Morgunblaðið - 08.03.1992, Side 20

Morgunblaðið - 08.03.1992, Side 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. MARZ 1992 BODBERIGLJEPA Ar spjöldum glæpasogunnar RITSNILLI Pierre Lacenaires ásamt skuggalegum þunglyndis- viðhorfum, sem fram komu i bæklingum hans, gerðu þennan svikahrapp að eins konar andhetju. „Að drepa án iðrunar er hámark sælunnar," skrifaði Lacenaire. „Það er ógerlegt að eyða hjá mér hatrinu á mannkyni. Þetta hatur er afrakstur ævinnar, niðurstaða allra hugsana minna. Ég hef aldrei vor- kennt þeim sem hafa þjáðst, og vil ekki að mér sé sýnd sam- úð.“ Rithöfundurinn frægi Victor Hugo var einn þeirra er höfðu samúð með honum. Það hafði einnig rússneski rithöfundurinn Fjodor Dostojevsky, og kynni hans af málum Lacenaires voru meðal þess sem hvöttu hann til að skrifa bókina „Glæpur og refsing“. essi boðberi glæpa hlaut nafnið Pierre Francois Gaillard þegar hann fæddist árið 1800 í bænum Francheville í Frakklandi, sonur auðugs jám- kaupmanns. í endurminningum sínum segist Gaillard hafa verið afskiptur í æsku í skugga ofdekr- aðs eldri bróður, og hafði þetta mikil áhrif á hann. Hann var námfús en þunglyndur nemandi við Alix-framhaldsskólann þar sem einn kennaranna sagði síðar að hann hafi vakið athygli fyrir bókhneigð sína. Að námi loknu tók hann upp nafnið Lacenaire og hélt til Pansar þar sem hann hugðist nema lög, en fjárhags- erfiðleikar komu í veg fyrir að hann gæti haldið áfram námi. Hann gegndi ýmsum störfum fyrir kaupsýslumenn og banka, en þegar ekki var annað í boði gekk hann í herinn. Hann barð- ist með uppreisnarmönnum á Pelopsskaga í Grikklandi, en hélt svo heim til Frakklands árið 1829. Þar hafði fjölskylda hans orðið fyrir enn einu áfallinu. Hann komst að því að faðir hans var orðinn gjaldþrota, og sjálfur stóð hann uppi peningalaus. Um þetta leyti háði Lacenaire einvígi við Benjamin Constant, sem var þekktur rithöfundur, ræðumaður og stjórnmálamaður. Lacenaire gekk með sigur af hólmi, en þessi reynsla gjör- breytti skoðunum hans á iífí og dauða. í fyrsta sinn sá hann að unnt var að drepa mann án þess að fínna persónulega til nok- kurar iðrunar. Lacenaire var fyrst dæmdur tii fangelsisvistar árið 1829 fyrir fjársvik. Eftir að hann var látinn laus árið 1830 stundaði Lacena- ire ritstörf um skeið. A næstu þremur árum samdi hann fjölda lýrískra ljóða, söngtexta og rit- gerða, en tekjumar nægðu hon- um ekki til framfæris. Þegar svo var korriið greip hann enn til fjár- svika, sem leiddu til þess að hann var dæmdur til þrettán mánaða dvalar í Poissy-fangels- inu árið 1833. M eðan hann beið dóms kynnt- ist Lacenaire Vigouroux rit- stjóra róttæka stjómmálaritsins Bon Sens, en tímaritið var þekkt fyrir harða gagnrýni á franskt stjómkerfí og völd konungs. Lac- enaire reyndist Vigouroux dygg- ur lærisveinn, og hann féllst á að skrifa ritgerð „Um fangelsi og refsikerfíð í Frakklandi" fyrir fréttablað tímaritsins. Þar lýsti hann á nístandi hátt hryllingi franska hegningarkerfisins. „í þessu umhverfí siðleysis, tor- tryggni í orðum og athöfnum, hræðilegum og viðbjóðslegum Franski ritsnillingurinn og morðinginn Pierre Lacenaire. „Að drepa án iðrunar er hámark sæl«nnar,“ skrilaði franski ritsnill- ingurinn Lacenaires, en mál hans varð hvatinn að hví að Dnstnievskíj skritaði ritverkið „Glæpur ug refsing". frásögnum af glæpum fer vesæll unglingurinn að skammast sín fyrir þann snefil af sakleysi og siðsemi sem hann bjó enn yfír áður en hann var færður í fang- elsi. Hann fer að skammast sín fyrir að vera minni þorpari en samfangar hans, hann óttast háð þeirra og fyrirlitningu. Því þið skuluð ekki láta ykkur detta í hug að virðing og fyrirlitning finnist ekki einnig í galeiðunni, sem sést á því að sumir refsi- fangar standa betur að vígi innan múranna en í samfélagi þar sem allir fyrirlíta þá...“ Þrátt fyrir nýfengna frægð sem greinahöfundur var Lacena- ire ásáttur við það að vera svindl- ari og þjófur að atvinnu. Eftir lausn úr fangelsi árið 1834 fékk Lacenaire til liðs við sig Pierre Victor Avril, fyrrum trésmið sem einnig hafði lagt glæpina fyrir sig. „Ég var hugsuðurinn, Avril valdbeitandinn," sagði Lacena- ire. Þeim datt í hug að tæla bank- asendiboða til sín undir því yfír- skyni að þeir þyrftu að innleysa falsaða ávísun, vitandi að sendi- boðarnir báru jafnan talsverða fjármuni á sér til að geta sinnt hlutverkum sínum. Lacenaire valdi sendiboða sem hann kannaðist við. Þessi sendi- boði, Chardon að nafni, hafði setið í fangelsi með Lacenaire fímm árum áður og höfðu þeir þá haft óbeit hvor á öðrum. Seinna sagði Lacenaire, „ég hef losnað við allar ástríður mínar nema eina, hefndarþorsta." Að morgni 14. desember, 1834, mættu þjófamir tveir heima hjá Chardon við Martin- stræti. Chardin hleypti þeim inn í forstofuna, en áður en hann gat spurt þá um erindið höfðu þeir tekið hann kverkataki. Á meðan Chardon reyndi að losna úr greipum Avrils stakk Lacena- ire hann þrívegis með rýtíngi, en síðan veitti Avril honum bana- höggið með öxi. Þegar þeir heyrðu til lasburða móður Char- dons í næsta herbergi, sló Lac- enaire har.a með þjöl og tók svo rúmdýnu og tróð henni yfir and- lit hennar. Avril bar út talsvert af borðbúnaði, eina ausu og svarta silkihúfu. Verðmæti þess sem þjófamir tóku nam rétt rúm- um 500 frönkum, mun minna en þeir höfðu reiknað með þegar þeir skipulögðu verknaðinn. Engu að síður virtust Lacenaire og Avril ánægðir. Þeir héldu upp á þennan „fullkomna glæp“ með koníaksdrykkju á krá einni, en héldu síðan heim til sín. Fulltrúar lögreglunnar fundu líkin tveimur dögum síðar. Gamla konan hafði verið of mátt- vana til að losa sig við rúmdýn- una, og hafði því kafnað. Tveimur dögum eftir morðin kom Lacenaire í banka við Mont- orgueil-stræti og kynnti sig fyrir gjaldkeranum sem „Monsieur Mahossier". Hann kvaðst vilja semja um greiðslu frá einum af skuldunautum sínum, og að ganga þyrfti frá málinu hinn 31. desember. Þegar Lacenaire var farinn sagði gjaldkerinn sendi- boða að fara með 3.000 franka á tiltekið heimilisfang eftir að hann hefði lokið öðrum erindum sínum. Sendiboðinn var 18 ára piltur, Genevay að nafni, og fór hann eftir fyrirmælum gjaldker- ans. Hann mætti hjá Lacenaire síðdegis á gamlársdag. Þegar honum hafði verið hleypt inn lagði sendiboðinn peningana á borðið og var um það bil að fara þegar Francois (sem var þekktur undir nafninu Rauðskeggur), fyrrum hermaður sem Lacenaire hafði keypt til verksins, sló til hans aftan frá. Genevay hlaut svöðusár á öxl eftir sömu þjölina og notuð hafði verið á Chardon og æpti af sársauka. Hróp hans heyrðust út á götu og Rauð- skeggur, sem var nýliði á glæpa- sviðinu, varð felmtri sleginn og lagði á flótta. Genevay lifði af árásina og gat gefið lögreglunni skýrslu. Canler fulltrúi hjá rannsóknar- lögreglunni vissi ekki hvar hann ætti að hefja rannsókn á glæpn- um því svo virtist sem um venju- lega líkamsárás og rán væri að ræða. Honum tókst þó að rekja slóð árásarmannanna til sveita- krárinnar Faubourg du Temple þar s_em Rauðskeggur var í fel- um. Á skrá yfir dvalargesti stóð nafnið „Mahossier". Veitinga- konan mundi eftir þessum gesti sem einnig hafði notað nafnið „Monsieur Baton“. Rauðskeggur var færður á fund Genevay sem strax þekkti árásarmann sinn. Þá var eftir að ná Baton eða Mahossier, ef þar var um einn og sama manninn að ræða. Canler lögreglufulltrúi yfir- heyrði 500 grunaða áður en hon- um tókst að fínna Baton í fang- elsi í París. Eftir að hann hafði fengið nokkra drykki til að gera hann málglaðari og fyrirheit um frelsi minntist Baton vinar sem hét Gaillard, en nafnið þýðir í raun sá léttlyndi. Baton hafði verið fyrstur til að kynna Rauð- skegg fyrir Lacenaire. En Canler reyndist erfitt að hafa upp á þeim léttlynda, því Lacenaire hafði gert varúðarráðstafanir, og meðal annars svikið Avril fé- laga sinn, sem nú sat í næsta klefa við Rauðskegg í Poissy- fangelsinu. Hann hafði verið handtekinn fyrir skjalafals. Fangarnir höfðu haft tíma til að íhuga sín mál, og þeir ákváðu að vísa Allard yfirmanni rann- sóknarlögreglunnar á Lacenaire. Þegar lögreglumenn komu til að handtaka hann játaði þessi meistari samsærisins á sig morð- ið á Chardon, árásina á Genevay og nokkra minni glæpi. „Þér er það auðvitað ljóst að þetta gerir út af við þig,“ sagði Canler. „Ég veit það. Það skiptir engu ef það gerir einnig út af við þá,“ svar- aði Lacenaire glottandi. Meðan Lacenaire sat í fangelsi heimsóttu hann þeir Victor Hugo og Théophile Gautier, nafntoguðustu rithöfundar Frakklands, sem hlustuðu af at- hygli á morðingjann flytja frum- samin ljóð. Úr klefa sínum þar hjá andmælti Rauðskeggur há- stöfum. „Þetta er nú meiri mæl- skan. Kjaftaskur, kjaftaskur. Það hlusta allir á Lacenaire. Þeir fara brátt að klappa honum lof í lófa.“ Réttarhöldin yfir af- brotamönnunum þremur hófust í Cour d’Assises í Seine umdæmi 12. nóvember 1835. Veijandi Lacenaires var fyrmm skólafé- lagi hans frá Alix, en lögfræð- ingurinn andaðist í miðjum rétt- arhöldum. „Ég þvæ hendur mín- ar,“ sagði Lacenaire, og vitnaði þar til orða Pontúsar Pilatusar. Hann var sáttur við örlög sín. Réttarhöldin stóðu í fjóra daga og þeim lauk með sakfellingu. Rauðskeggur var dæmdur til lífstíðar fangelsis. Avril og Lac- enaire voru dæmdir til dauða. Hinn 9. janúar 1836 voru þeir tveir fluttir til St. Jacques-hliðs- ins í suðurhluta Parísar. Lacena- ire horfði beint í augu böðuls síns og sagði: „Ekkert mál. Ég er óhræddur!" - Og því næst féll öxin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.