Morgunblaðið - 08.03.1992, Side 22

Morgunblaðið - 08.03.1992, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUPAGUR 8. MARZ 1992 Arndís Jóhannsdóttir með nokkra af þeim hlutum sem hún hefur unnið úr steinbítsroði. Morgunblaðið/Emilía TÍSKA HÖNNUN Töskur ogaðrir munir úr stein- bítsroði Amdís Jóhannsdóttir, sem er söðlasmiður að mennt og starfaði sem slík þar til fyrir nokkrum ámm, hefur á undanfömum áram unnið ýmsa muni svo sem töskur og þess háttar úr steinbítsroði. Hún segir það vera mjög erfitt að fá unnið roð sem hægt sé að nota í þessa muni auk þess sem slík roð séu mjög dýr. „Árið 1985 keypti ég lager af steinbíts- roði af konu, en maðurinn hennar hafði verkað roðið fyrir um fimmtíu árum síðan en hafði ekki unnið úr því. Þetta var talsvert magn og síðan hef ég verið að vinna úr þessum lager," segir Am- dís. Hún segir steinbítsroð hafa verið eitt það fínasta sem hægt hafi verið að fá í leðri undanfarin ár og að hvert roð sé mjög dýrt, en í meðalstóra handtösku notar hún allt að tuttugu roð. „Ástæðan fyrir þessu er kannski sú að það era leynd- ardómar yfír því hvemig svona roð er unnið þannig að það verði að leðri. Eg veit ekki nóg um það til þess að Óvenjuleg sýning á nýjasta vorfatnaðinum hjá Sævari Karli Fyrrverandi fyrirliði enska krikket- lands- liðsins, David Gower, er trú- lofaður Þórunni Nash, en hún er íslensk í móðurætt. David og Þórunn, sem vann á tannlæknastofu, kynntust á balli árið 1985, en þá voru þau bæði í sambandi við aðra. Þórunn fór til Davids á ballinu og bað hann um eiginhandaráritun og dans eftir að vinkona hennar hafði beðið hana um að gera það. David bað Þórunnar á afmælisdegi hennar 8. nóvember síðastliðinn, er þau dvöldu í Suður-Afríku. Þau stefna að því að gifta sig nú í vor og ætla að hafa hefðbundið brúðkaup. Nokkuð hefur verið skrif- að um samband þeirra í bresk blöð þar sem David sleit sambandi sínu við Vicky Stewart vegna Þór- unnar, en þau höfðu verið saman í tólf ár. Þórunn og David Gower sem ætla að gifta sig í vor. gera það sjálf. Auðvitað er hægt að fá óunnið steinbíts- roð hér á landi en það er alls ekki nóg því það verður að vera sútað svo að það verði nógu sterkt til að búa þessa hluti til.“ Amdís segist ekki selja þessar vörar sínar í verslun- um heldur selji hún eftir pöntunum. Ennfremur segir hún að steinbítsroð sé mjög sterkt og að það endist mjög vel og lengi. „Mér finnst mjög gaman að nota roðið með leðri t.d. í töskum og það kemur vel út. Roðið er heldur ekki sama efnið eftir að búið er að súta það. Þetta er í raun allt annað efni heldur en notað var í steinbítsroðs- kónum sem voru notaðir áður fyrr og það má ekki rugla því saman," segir Amdís. * Aþessum árstíma kynna fatata- verslanir gjaman nýjustu vorl- ínuna í fatnaði og er það ekki í frá- sögur færandi. Hjónin Sævar Karl Ólason og Erla Þórarinsdóttir, eig- endur verslunarinnar Sævar Karl, ætla hins vegar ekki að fara hefð- bundnar leiðir við kynningu vorlín- unnar nú en i dag hafa þau boðið viðskiptavinum sínum á sýningu á nýjustu línunni í vorfatnaði. Það er Sigríður Guðjónsdóttir sem hefur séð um alla uppsetningu sýningarinnar en hún hefur starfað hjá Sævari Karli um árabil og sér m.a. um gall- eríið sem verslunin rekur. „Það er miklu áhrifameira að hafa um- hverfið sem best úr garði gert þann- ig að þegar fólk kemur inn úr kuldan- um fer um það ákveðin sumartilfínn- ing. Það var aðallega það sem ég hafði í huga þegar ég var að byrja á þessu. Eg bjó til júlí í febrúar og því er komið sumar hér inni þó að SAMBÖND Islensk kona trúlofuð fyrrverandi fyrirliða enska krikket- landsliðsins UPPBOÐ 38. listmunauppboð Gallerí Borgar, sem haldið er ísamráði við Listmunaupp- boð Sigurðar Benediktssonar hf., fer fram í Súlnasal Hótels Sögu í kvöld, sunnudaginn 8. marz, og hefst klukkan 20.30. Verkin verða sýnd í Gallerí Borg við Austurvöll í dag á milli klukkan 14.00 og 18.00. Hægt er að gera forboð íverkin á sýningarstað. Meðal verka sem boðin verða eru: 72.Þorvaldur Skúlason Brautarstöðin. Vatnslitur. 37,5x26 cm. Merkt. 73.Gunnlaugur Blöndal Höfn. Olía. 34x52 cm. Merkt. 74.Ásgrímur Jónsson Rocca di Pape. Vatnslitur. 1907.26x45 cm. Merkt. 75.Svavar Guðnason Abstraktion. Krít 1940. 30x26 cm. Merkt. 76.Jón Engilberts Kýr. Olía. 75x92 cm. Merkt. 77.Jóhannes S. Kjarval Lífsins tré. Túss. 57x48 cm. Merkt. 78.Kristín Jónsdóttir Hnjúkur í Vatnsdal. Olía 1919. 51,5x71 cm. Merkt. 79. Þorvaldur Skúlason Maður. Vatnslitur. 67x37,5. Merkt. 80.Gunnlaugur Blöndal París. Vatnsl. og pastel 1927. 33x44,5 cm. Merkt. 81.Tove Ólafsson Móðir og barn. Bronce 3/101991.33x11 cm. Merkt. 82.Þórarinn B. Þorláksson Túlípanar. Olía 1909. 36,5x30,5 cm. Merkt. 83.Jón Þorleifsson Blóm. Olía. 85x90 cm. Merkt. 84.Snorri Arinbjarnar Hofsjökull. Vatnslitur. 26x36 cm. Merkt. 85.Svavar Guðnason Abstraktion. Vatnslitur 1962. 38x48 cm. Merkt. 86.Kristín Jónsdóttir Hjalteyri. Olía á spjald. 33x52 cm. Merkt. 87.Jón Engilberts Listmálarinn. Olía. 65x72 cm. Merkt. 88.Tove Ólafsson Barnaheimilið. Bronce 3/10 1991.37x33 cm. Merkt. 89. Þorvaldur Skúlason Pakkhús. Olía 1935. 66x80 cm. Merkt. 90.Gunnlaugur Blöndal Reykjavíkurhöfn. Olía. 91x125 cm. Merkt. 91.Þórarinn B. Þorláksson Sundin. Olía 1902; 31,5x37,5 cm. Merkt. 92.Gunnlaugur Blöndal Módel. Olía, París 1930. 59,5x91,5 cm. Merkt. ATH. Hægt er að gera boð íverkin símleiðis. Símar á uppboðsstað eru 985-28173 og 985-28174. Uppboðið hefst ki. 20.30. 1 >í \] }í < I > v /I IVI Pósthússtræti 9.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.