Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 4
4 FRETTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992
ERLEIMT
INNLENT
Kjarasamn-
ingar í
biðstöðu
Samninganefnd Alþýðusam-
bands íslands samþykkti á mánu-
dag að fresta viðræðum við at-
vinnurekendur og óska eftir aðild
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja að samningaviðræðunum.
BSRB samþykkti á formannaráð-
stefnu á þriðjudag að taka upp
náið samstarf við önnur samtök
launafólks. Biðstaða hefur verið í
kjarasamningunum síðan vegna
þess að BSRB og Kennarasam-
band íslands telja sig ekki hafa
fengið nægilega skýr svör af hálfu
Samninganefndar ríkisins um að
ekki verði hróflað við réttindum
opinberra starfsmanna á samn-
ingstíma næsta kjarasamnings.
Loðnukvótinn aukinn
Sjávarútvegsráðherra hefur
ákveðið að auka heildarloðnukvót-
ann fyrir yfirstandandi vertíð um
50 þúsund tonn, úr 748 þúsund
tonnum í 798 þúsund tonn. Af
þessu koma 751 þúsund tonn í
hlut íslenskra skipa á allri vertríð-
inni. Íslensk skip höfðu um miðjan
dag á föstudag veitt tæp 557
þúsund tonn og áttu því eftir að
veiða 194 þúsund tonn.
Kvóti Færeyinga skertur
Fiskveiðikvóti Færeyinga hér
við land hefur verið skertur um
2.500 lestir á yfírstandandi fisk-
veiðiári, úr 9.000 lestum í 6.500
lestir, eða um tæp 28%. Þorskk-
vóti þeirra verður 1.000 lestir í
stað 1.500 lesta. Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra segir
þessa skerðingu óhjákvæmilega
ERLENT
Rússar vilja
burt frá
Kákasus
ÁTÖKIN milli Armena og Azera
um Nagorno-Karabak harðna
stöðugt og er jafnvel óttast, að
til styijaldar geti komið milli ríkj-
anna. Er héraðið í Azerbajdzhan
en armenskir íbúar þess krefjast
sjálfstæðis. Hefur Armenum
vegnað betur að undanfömu en
síðustu daga hafa Azerar verið
að flytja mikið lið til átakasvæð-
anna. Armenía og Azerbajdzhan
eru aðilar að samveldi sjálfstæðra
ríkja og í Kákasuslöndunum er
samveldisherinn með um 100.000
manna lið. Nærvera þess hefur
þó engu breytt um ástandið og
sjálft hefur það mátt sitja undir
árásum vopnaðra sveita Armena
og Azera. Eru Rússar farnir að
ókyrrast yfír þessu og eru uppi
hugmyndir meðal þeirra að draga
allt herliðið burt og binda þar með
enda á 200 ára sögu beinna af-
skipta af málefnum Kákasusþjóð-
anna. Hefur verið rætt um, að
RÖSE, Ráðstefnan um öryggi og
samvinnu í Evrópu, reyni að miðla
málum í deilu Ármena og Azera
og jafnvel, að Atlantshafsbanda-
lagið láni RÖSE herlið til að fylgja
eftir friðarsamningum.
Kosningar í Bretlandi
JOHN Miijor, forsætisráðherra
Bretlands, hefur boðað til al-
mennra þingkosninga 9. apríl
næstkomandi og
er búist við, að
þær verði þær
tvísýnustu eftir
stríð. Hefur
Verkamanna-
flokkurinn held-
ur vinninginn yf-
ir íhaldsflokkinn
í skoðanakönn-
unum á fyrstu
miðað við núverandi aðstæður.
Færeyski sjávarútvegsráðherrann
John Petersen segir að þessi
ákvörðun valdi Færeyingum mikl-
um vonbrigðum.
Aldrei fleiri atvinnulausir í
borginni
Skráð atvinnuleysi á landsvísu
í febrúar var 2,8% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði. Heldur
dró úr atvinnuleysi á landsbyggð-
inni frá janúar en á höfuðborgar-
svæðinu jókst atvinnuleysi hins
vegar um 28%. Fyrstu tíu daga
febrúarmánaðar fjölgaði atvinnu-
lausum í Reykjavík enn, eða um
120 manns, og voru þá 1.447
skráðir atvinnulausir.
Friðarviðræður á íslandi?
Hussein Jórdaníukonungur átti
hér sólarhrings viðdvöl á leið sinni
til Vesturheims um síðustu helgi.
í viðræðum sínum við Hussein
og ráðherra hans sögðust Davíð
Oddsson forsætisráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra ekki mundu biðjast und-
an því að Jórdanir nefndu ísland
sem eitt þeirra landa sem til
greina kæmu sem gestgjafaland
fyrir næstu umferð friðarvið-
ræðna fyrir botni Miðjarðarhafs.
Skandia á islenskan
fjármagnsmarkað?
Norræna . tryggingafélagið
Skandia hefur sýnt áhuga á að
kaupa Verðbréfamarkað Fjárfest-
ingafélagsins hf. Búist er við til-
boði félagsins í vikunni.
dögum kosningabaráttunnar en
hann verður þó að bæta verulega
við sig eigi hann að fella stjórn
íhaldsmanna. Mikill samdráttur
hefur verið í bresku efnahagslífí
um nokkuð langt skeið og munu
efnahagsmálin því verða ofarlega
á baugi í kosningabaráttunni.
Verður nokkur skattalækkun,
sem boðuð var með fjárlagafrum-
varpinu, helsta tromp íhalds-
flokksins og hún hefur mælst vel
fyrir hjá almenningi.
Hörmulegt slys í Gautaborg
ÞRETTÁN manns létust og tugir
manna slösuðust á fimmtudag
þegar tveir mannlausir sporvagn-
ar runnu stjórnlaust niður brekku
í Gautaborg. Lentu þeir á þremur
bílum og á hópi fólks, sem beið
við eina sporvagnastöðina. Lög-
regluþjónar, sem sáu hvað verða
vildi, gátu ekið á undan vögnunum
með blikkandi ljós og sírenu og
er talið, að það hafi komið í veg
fyrir enn skelfílegra slys. Er ís-
lensk stúlka meðai hinna slösuðu
en meiðsli hennar voru ekki alvar-
leg. Rannsókn fer nú fram á þess-
um atburði en á vögnunum er
þrefalt hemlakerfi og áttu þeir
ekki að geta runnið stjórnlaust
eins og raunin var á.
Úkraína heldur kjarna-
vopnum
LEONÍD Kravtsjúk, forseti
Úkraínu, tilkynnti á fimmtudag,
að hætt hefði verið flutningum
skammdrægra kjarnavopna til
eyðingar í Rússlandi. Sagði hann,
að engin trygging væri fyrir, að
vopnunum yrði eytt auk þess sem
pólitísk óvissa og upplausn yllu
því, að vopnin gætu lent í óvina-
höndum. Kvað hann það stefnu
Úkraínumanna að láta engin vopn
af hendi nema til eyðingar. Er
þessi stefnubreyting Úkraínu-
manna nýjasta dæmið um ágrein-
ing þeirra og Rússa í hermáium
og sýnir auk þess, að þeir hafa
illan bifur á ástaridinu og hugsan-
legri þróun í Rússlandi.
Reagan o g páfi mynduðu
leynibandalag gegn komm-
únismanum 1 Austur-Evrópu
Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og kona hans,
Nancy, ræða við Jóhannes Pál páfa II í Washington 1987.
Bandaríska tímaritið Time birti
nýlega grein þar sem skýrt er
frá því að Ronald Reagan, fyrr-
verandi Bandaríkjaforseti, og
Jóhannes Páll páfi II hafi ákveð-
ið á fyrsta fundi þeirra í Páfa-
garði 7. júní 1982 að hefja leyni-
lega herferð til að flýta fyrir
hruni kommúnismans í Austur-
Evrópu. „Þetta var eitt af mestu
leynibandalögum sögunnar,"
hefur tímaritið eftir Richard
Allen, þáverandi þjóðaröryggis-
ráðgjafa Reagans.
Reagan og páfi beindu einkum
sjónum sínum að Póllandi, fjöl-
mennasta ieppríki Sovétríkjanna í
Austur-Evrópu, enda er páfi þaðan.
Báðir voru sannfærðir um að hægt
yi-ði að frelsa Pólland ef Páfagarð-
ur og Bandaríkjastjórn tækju hönd-
um saman um að grafa undan
pólsku kommúnistastjórninni og
halda lífí í verkalýðshreyfingunni
Samstöðu, sem var bönnuð þegar
herlög voru sett í landinu árið áð-
ur, 1981.
Samstaða starfaði á laun með
aðstoð bandarísku leyniþjón-
ustunnar CIA og fulltrúa páfa þar
til starfsemi hennar var heimiluð
aftur árið 1989. Hreyfíngunni var
séð fyrir tækjum í tonnatali - fax-
tækum (þeim fyrstu í Póllandi),
prentvélum, senditækjum, símum,
stuttbylgjuútvörpum, myndbands-
vélum, Ijósritunarvélum, telex-
tækjum og tölvum. Öllu þessu var
smyglað til Póllands með hjálp
presta, bandarískra njósnara og
fulltrúa bandarískra og evrópskra
verkalýðshreyfínga. Samstaða
fékk fjármuni úr sjóðum CIA, leyni-
reikningum í Páfagarði og frá vest-
rænum verkalýðshreyfingum.
Aðstoðarmenn Reagans og páfa
segja að þeir hafi neitað að sætta
sig við skiptingu Evrópu eins og
hún var ákveðin á Jaita-fundinum
og yfírráð kommúnista yfír Austur-
Evrópu. Þeir hafí verið sannfærðir
um að fijálst Pólland yrði sem rýt-
ingsstunga í hjarta sovéska heims-
veldisins og ef Pólveijar tækju upp
lýðræði myndu önnur Austur-Evr-
ópuríki fara að dæmi þeirra.
Reagan og páfi ræddu líka ann-
að sem þeir áttu sameiginlegt.
Reynt hafði verið að myrða þá með
sex vikna millibili árið 1981 og
báðir töldu þeir að Guð hefði bjarg-
að þeim þar sem hann hefði falið
þeim sérstakt hlutverk.
Áætlun Reagans
Reagan kom á fundinn með
áætlun sem miðaði að því að stuðla
að efnahagshruni í Sovétríkjunum,
ijúfa tengsl þeirra við hin Varsjár-
bandalagslöndin og knýja fram
umbætur innan Sovétríkjanna.
Áætlunin fól meðal annars í sér
eftirfarandi:
• Hernaðaruppbygging Banda-
ríkjamanna sem var þegar hafin,
en hún miðaði að því að gera það
of dýrt fyrir Sovétmenn að keppa
við Bandaríkin á þessu sviði. Geim-
varnaáætlunin varð þungamiðjan í
stefnu Reagans.
• Leynilegar aðgerðir sem mið-
uðu að því að hvetja umbótahreyf-
ingar í Ungveijalandi, Tékkósló-
vakíu og Póllandi til dáða.
• Fjárhagsaðstoð við Varsjár-
bandalagslöndin í samræmi við
vilja þeirra til að vernda mannrétt-
indi og koma á umbótum í átt til
lýðræðis og fijáls markaðsbúskap-
ar.
• Efnahagsleg einangrun Sovét-
ríkjanna. Komið yrði í veg fyrir að
Sovétmenn fengju hátæknibúnað
og tækniþekkingu frá Vesturlönd-
um og Japan.
• Aukin notkun útvarpsstöðv-
anna Radio Liberty, Voice of Amer-
ica og Radio Free Europe til að
koma boðskap Bandaríkjastjómar
til skila í Austur-Evrópu.
Páfi fékk aðgang að
upplýsingum frá CIA
Barátta Bandaríkjastjórnar og
Páfagarðs fyrir því að halda lífinu
í Samstöðu hófst um leið og Wojci-
ech Jaruzelski hershöfðingi setti
neyðarlög 13. desember 1981.
Reagan gaf þegar í stað út fyrir-
mæli um að páfi fengi allar upplýs-
ingar sem bandaríska leyniþjónust-
an hafði varðandi ástandið í Pól-
iandi, meðal annars upplýsingar frá
pólskum aðstoðarvarnarmálaráð-
herra sem var á mála hjá CIA.
Bandaríkjastjórn lét Páfagarði
einnig í té upplýsingar og skýrslur
frá Ryszard Kuklinski, háttsettum
embættismanni í höfuðstöðvum
pólska hersins sem var á mála hjá
CIA þar til í nóvember 1981 er
honum var komið frá Póllandi eftir
að hann hafði varað við því að
Sovétmenn væru reiðubúnir að
gera innrás í landið ef pólska
stjómin setti ekki herlög.
Bandarísku embættismennirnir,
sem tóku þátt í þessu verkefni,
voru allir kaþólikkar, þeirra á með-
al William Casey, yfirmaður CIA,
Richard Allen þjóðaröryggisráð-
gjafi og Alexander Haig utanríkis-
ráðherra.
Páfi hitti sjálfur bandaríska
embættismenn að máli til að geta
metið atburðina í Póllandi og ár-
angurinn af aðgerðum Bandaríkja-
manna. Hann hafði síðan samband
við Reagan, annaðhvort bréflega
eða í síma. Casey kom því sem
næst alltaf fyrst við í Róm þegar
hann fór til Evrópu eða Miðaustur-
landa til að geta rætt við Jóhannes
Pál páfa.
Gorbatsjov þakkar páfa
Sovétmenn og stjórn kommún-
ista í Póllandi létu smám saman
undan síga. Fangelsi vom tæmd,
ákærur á hendur Lech Walesa, leið-
toga Samstöðu, voru látnar niður
falla, innbyrðis átök brutust út í
kommúnistaflokknum, og efnahag-
ur landsins hrundi vegna öldu verk-
falla og mótmæla sem gekk yfir
landið, auk refsiaðgerða Bandaríkj-
astjórnar.
Míkhaíl Gorbatsjov, þáverandi
forseti Sovétríkjanna, skrifaði ný-
lega grein í ítalska dagblaðið La
Stampa þar sem hann lét í ljós þá
skoðun að breytingarnar í Austur-
Evrópu hefðu ekki getað átt sér
stað ef páfa hefði ekki notið við.
Hann fór ennfremur mjög lofsam-
legum orðum um páfa og sagði að
hann hefði haft mjög mikil áhrif á
skoðanir sínar og lífsviðhorf.
Kasparov sigurvegari
á skákmótinu í Linares
Linares. Reuter.
GARRÍJ Kasparov, heimsmeistari
mótinu í Linares á Spáni. í 13.
Júgóslavann Ljubomir Ljubojevic
Kasparov tapaði engri skák á
mótinu og fékk eins og fyrr segir
10 vinninga af 13 mögulegum. Eini
maðurinn, sem komst nálægt því
að ógna sigurgöngu Kasparovs var
Hollendingurinn Jan Timman en
hann stendur verr að vígi í biðskák-
inni við Rússann Valeríj Salov, sem
keppti raunar fyrir Spán á mótinu.
Salov átti peðinu meira þegar skák-
in fór í bið og Timman getur í besta
í skák, bar sigur úr býtum á skák-
)g síðustu umferðinni vann hann
og hlaut 10 vinninga alls.
falli gert sér vonir um jafntefli.
Önnur úrslit í siðustu umferð
voru þessi:
Anatólíj Karpov, Rússlandi, gerði
jafntefli við Artúr Júsúpov, sem er
rússneskur einnig en keppir fyrir
Þýskaland. Viswanathan Ánand frá
Indlandi sigraði Alexander
Beljavskíj frá Úkraínu; Jonathan
Speelman, Bretlandi, og Evgeníj
Bareev, Rússlandi, gerðu jafntefli;
Borís Gelfand, Hvíta Rússlandi,
sigraði Nigel Short, Bretlandi;
Vassílíj ívantsjúk, Úkraínu, vann
Manuel Illescas, Spáni.
Röð keppenda með fyrirvara um
úrslit í tveimur biðskákum var
þessi::
Kasparov 10 v.; Timman 8 v. og
biðskák; ívantsjúk 8 v.; Karpov 7,5
v.; Gelfand og Anand 7 v.; Bareev
6.5 v.; Salov 6 v. og biðskák; Jús-
úpov 6 v.; Illescas 5,5 v.; Ljubojevic
4.5 v. og Speelman og Short 3,5 v.