Morgunblaðið - 15.03.1992, Síða 9

Morgunblaðið - 15.03.1992, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJAA/EÐUR SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992 9 Lýðræðið: spegilmynd þrenningar Guðs Ein af þeim skilgreiningum kristinnar trúar sem hvað mestar deilur hefur vakið er sú sem segir að Guð sé „þrenning". Sér- staklega virðist þrenningin ganga illa í Islendinga, alla vega ef marka má kannanir um trúarskoðanir landans. í stuttu máli, svona til glöggvunar, byggir þrenningartrú- in á þeirri kenningu að Guð sé í raun og veru ekki einn, eins og við erum vön að telja hann, heldur þrír. Samt sé um einn Guð að ræða (?). Þessir þrír kallast „þrjár pers- ónur Guðs“. Sú fyrsta er skap- arinn, sá er allt hefur gert og við- heldur veröldinni. Önnur persónan er Sonurinn, sá er kom til okkar í Jesú Kristi. Þriðja persóna Guðs er Heilagur andi, sá er Jesús lofaði að senda lærisveinum sínum, sá Guð sem er í, með og hjá okkur alla daga. Er nema von að slík speki segi fólki lítið? Er til nokkurs að velta sér upp úr svona löguðu? Breytir það einhveiju fyrir okkur þó einhveijir sjálfskipaðir fornald- arspekingar hafi gert sér upp furðuhugmyndir um Guð til að sýn- ast vitrir? Eða býr eitthvað annað og meira að baki? Heil ósköp hefur verið ritað um þrenningu Guðs í gegnum aldirnar. Sumt með kenn- ingunni og annað á móti. Ekki ætla ég, fremur en áður í þessum greinakornum, að elta ólar við slíkt, enda nóg af fræðimönnum til, sem geta dundað sér við það. Aftur á móti langar mig til að nefna eina kenningu um þrenninguna sem oft gengur aftur, sérstaklega hjá ýms- um þeim er telja trúarbrögðin til vanþroskaðra barnabreka mann- kyns. Þeir segja að þrenningar- kenningin sé skilgetið afkvæmi kirkjuvalds og keisara fyrri tíma, að þessar tvær valdastofnanir hafi með henni soðið saman kenningu til þess eins að tryggja sér völdin um langa framtíð. (Þjáðust þeir kannski af athyglisskorti?) Svo eru það hinir sem segja að þrenningar- kenningin sé afsprengi grískrar heimspeki fornaldarinnar, er þann- ig hafi smeygt sér inn undir pils- faldinn á heilagri kirkju. Ofan- greindar skoðanir eru efalaust góðra gjalda verðar, þó oft séu þær settar fram af heift og einstrengis- skap er brýtur niður en byggir ekkert upp og er því til lítils í umræðu manna í niilli. Alla vega er kristin trú mjög heimspekiieg á köflum. Það var reyndar svo, að árið 325 e. kr. reyndi keisari Aust- Rómverska keisaradæmisins (sem réð yfir flestum löndum kristninn- ar) að banna þrenningarkenning- una. Ástæðan var sú að hann vildi líta á Jesú sem hvern annan mann, vissulega fylltan af anda Guðs, en í mesta lagi einskonar hálfguð. Hvers vegna? Jú, keisarinn áleit réttilega að ef Jesús hefði aðeins verið þroskaður maður, spekingur eða hálfguð, þá gætu aðrir, þar með talinn keisarinn, öðlast sömu tign. Slíkt þekkist reyndar víða meðal trúarbragðanna. Hvað um það. Þeir er aðhylltust þrenningar- kenninguna voru látlaust ofsóttir og hún varð því ekki viðurkennd af kirkjunni og ríkisvaldinu fyrr en árið 381 e.kr. En hvers vegna var hún viður- kennd? Hvers vegna tókst keisaranum (og kirkjuyfirvald- inu er studdi hann með ráð- um og dáð) ekki að útrýma henni? Jú, vegna þess að almenningur, fólkið, hinir kristnu í iandinu, stóðu vörð um þrenningarkenninguna með lífið að veði. Fólkið hafði tilbeðið Jesú og dýrkað. Það vissi og fann að hann var hvorki spámaður, galdrakarl eða hálf-guð, heldur „Guð af Guði, ljós af ljósi, sannur Guð af Guði sönnum" eins og segir í fornri trú- aijátningu kirkjunnar frá 4. öld eftir kristsburð. En að öllum sögulegum vanga- veltum slepptum þá er kenningin um hinn þrí-eina Guð grundvöllur allra vona manna um réttlæti og betri heim. Hinn eini Guð, sem mætir okkur í þremur persónum, vinnur hveija stund að því að gera heiminn betri, nálgast heiminn, leiða heiminn fram á veginn. Orðið „persóna" er komið úr orðasafni grísku leikritaskáldanna fornu eins og svo margt annað gott er við notum hvern dag án þess að gefa því gaum. „Persóna" grísku leikrit- anna var sá er lét röddina hljóma í gegnum grímu (til að hún heyrð- ist betur). Þannig sjáum við Guð eins og þtjár persónur, þijú hlut- verk á leiksviði heimsins. Þannig er honum lýst um allt Nýja testa- mentið. Því er ef til vill réttara að segja sem svo að Guð þrenningar- innar sé ekki EINN Guð heldur EITT Guð. Hvað skyldi ég nú eiga við með því? Faðirinn er skapar allt. Sonurinn er kemur til okkar í Jesú Kristi og Andinn er dvelur hjá okkur og í okkur starfa saman í einu heilu, óskiftu og órjúfanlegu samfélagi. Samfélag þeirra er EITT og HEILT. Það er EITT sam- félag þriggja persóna. Innsta eðli Guðs er þá samfélagið við náung- ann, enda endurspeglast samfélag- ið og kærleikurinn innan þrenning- arinnar í þeim kærleika sem Guð sýnir með því að vilja eiga samfé- lag við okkur mennina. Þessi kenn- ing um Guð þrenningarinnar sem byggir á Biblíunni, er að sjálfsögðu fullkomlega ósamræmanleg öllum einveldis- og einræðishugmyndum. Eingyðistrúin, það að trúa aðeins á einn Guð, hefur oft verið notuð sem skálkaskjól einræðisins í gegn- um aldirnar. Hinir ýmsu harðstjór- ar hafa sagt sem svo: „Úr því að Guð einn stjórnar öilu, hlýtur stjórn eins manns á jörðinni að vera það sem hinn eini Guð vill.“ Þrenning- arkenningin er í algerri andstöðu við þetta. Guð er vissulega einn Guð, en um leið er hinn eini Guð samfélag hinna þriggja. Ekki EINN heldur EITT. Þess vegna endurspeglar samfélag hinna mörgu innsta eðli Guðs og vilja, samfélag er byggist á kærleika til náungans. Það samfélag finnur sér síðan fai’veg innan lýðræðisins, þegar réttur allra er virtur og manngildið fær að njóta sin. Slíkt lýðræði er því miður að verða frem- ur sjaldgæft, því skrílræðið er á svo mörgum sviðum að ná yfir- höndinni. Þar sem meirihlutinn kúgar minnihlutann er hvorki um réttlæti eða heilsteypt samfélag að ræða heldur kúgun engu betri en kúgun einræðisins eða flokkræðis- ins eins og við þekkjum það á þess- ari öld. Þrenningarkenningin verð- ur ávallt fyrir árásum fasista, nas- ista, komúnista og annarra einræð- issinna því þeir þola ekki lýðræðið sem sprettur upp úr hugmyndinni um hinn þrí-eina Guð. Hinn þrí-eini Guð er líka fleinn í holdi þeirra er maka krókinn á blóðþyrstum múg skrílræðisins og lifa á því að bijóta fólk niður í fjölmiðlum og fleygja hræjunum fyrir lýðinn. Og það allt í nafni lýðræðis! En til þess að maðurinn geti átt samneyti við Guð þarf hann fyrst að fá tækifæri til þess að vera maður með öllu því sem þgð felur í sér. Næsta sunnu- dag skulum við líta saman á mennskuna sem er forsenda þess að maðurinn geti átt samfélag við samfélagið sem við köllum Guð. Höfundur er fræðslufulltrúi Þjóðkirkjunniir á Austurlandi. IIRISTNIA KROSSCÖTUIVI eftirÞórhall Heimisson VEÐURHORFUR í DAG, 15. MARZ YFIRLIT í GÆR: Á Grænlandssundi er 1.018 mb hæð, sem fer minnkandi og þokast austur, en suður af Hvarfi er vaxandi lægð sem mun hreyfast austnorðaustur og fer hún að hafa áhrif á veður hér við land i nótt, fyrst suðvestan- og vestanlands. HORFUR í DAG: Austan- og suðaustanátt, allhvasst eða hvasst og snjókoma um sunnan- og vestanvert landið fram eftir degi, en hægari og él síðdegis. Vaxandi suðaustanátt norðaustanlands og snjókoma síðdegis. Minnkandi frost um allt iand. HORFUR Á MÁNUDAG: Fremur hæg suðvestanátt um mest allt land, nema á Vestfjörðum og vestan- verðu Norðurlandi, þar verður norðaustanátt, sums staðar allhvöss. Sunnan- lands má búast við skúrum en slydduéljum á norðanverðum Vestfjörðum. Hiti 2 til 3 stig. HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Fremur hæg vestan- og norðvestanátt. Smáél norðan- og norðaustanlands, en að mestu úrkomulaust annars staðar. Frost 3 til 5 stig. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6.00 í gær að ísl. tíma Staður hiti veður Staður hiti veður Akureyri ^■15 úrk. í grennd Glasgow 0 snjóél Reykjavík +13 skafrenningur Hamborg 0 skýjað Bergen 0 skýjað London 4 skýjað Helsinki 1 slydduél LosAngeles 14 léttskýjað Kaupmannahöfn 1 skýjað Lúxemborg 3 skýjað Narssarssuaq +1 snjókoma Madríd 1 heiðskirt Nuuk +7 snjókoma Malaga 7 þokumóða Ósló +1 léttskýjað Mallorca 5 þoka Stokkhólmur +2 skýjað Montreal +14 heiðskírt Þórshöfn +8 skúrir New York +2 hálfskýjað Algarve 8 heiðskírt Orlando 14 alskýjað Amsterdam 2 haglél París 8 skýjað Barcelona 6 hálfskýjað Madeira 14 hálfskýjað Berlín 1 snjóél Róm 9 þokumóða Chicago +3 snjókoma Vín 1 rigning Feneyjar 3 heiðskírt Washington +1 léttskýjað Frankfurt 4 rigning Winnipeg +5 snjóél Svarsími Veðurstofu íslands - veðurfregnir: 990600. o 'ö Q Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig. r r r * / * * * * • í * 10° Hitastig r r r r r * / r * r * * * * * V V V V Súld Ftigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka S Kvöld-, nœtur- og helgarþjónusta apótekanna i Reykjavík dagana 13. marz til 19. marz, að báðum dögum meðtöldum, er i Breiðholts Apóteki, í Mjódd. Auk þess er Apótek Austurbæjar, Háteigsvegi 1, opin til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema sunnudag. Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópavog i Heilsuverndarstöð Reykjavík- ur við Barónsstig frá kl. 17 til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og helgidaga. Nánari uppl. i s. 21230. Lögreglan í Reykjavík: Neyðarsimar 11166 og 000. Læknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndimóttaka rúmhelga daga 10-16, s. 620064. Tannlæknavakt - neyðarvakt um helgar og stórhátíðir. Simsvari 681041. Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans s. 696600). Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami simi. Uppl. um lyfjabúðir og læknaþjón. i simsvara 18888. Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sór ónæmisskírteini. Alnæmi: Læknir eða hjukrunarfræðingur veitir upplýsingar á miðvikud. kl. 18-19 i s. 91-622280. Ekki þarf að gefa upp nafn. Samtök áhugafólks um alnæmisvandann styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra i s. 28586. Mótefnamælingar vegna HIV smits fást að kostnaðarlausu i Huð- og kynsjúkdómadeild, Þverholti 18 kl. 9-11.30, á.rannsóknarstofu Borgarspitalans, virka daga kl. 8-10, á göngudeild Lands- pítalans kl. 8-15 virka daga, á heilsugæslustöðvum og hjá heimilislæknum. Þag- mælsku gætt. Samtckin 78: Upplýsingar og ráðgjöf i s. 91-28539 mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 20-23. Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabbamein, hafa viðtalstíma á þriðjudögum kl. 13-17 I húsi Krabbameinsfélagsins Skógarhlið 8, s.621414. Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718. Mosfells Apótek: Opið virka daga 9-18.30. Laugard. 9-12. Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12. Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12. Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apótekið: Virka daga kl. 9-18.30. Laugardaga kl. 11-14. Hafnarfjarðarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardögum kl. 10-14. Apótek Norður- bæjar: Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum 10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14. Uppl. vaktþjónustu i s. 51600. Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100. Keflavik: Apótekiö er opið kl. 9-19 mánudag til föstudag. Laugardaga, helgidaga og almenna fridaga kl. 10-12. Heilsugæslustöð, simþjónusta 4000. Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um læknavakt fést i símsvara 1300 eftir kl. 17. Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. - Apótekiö opið virka daga til kl. 18.30. Laugardaga kl. 10-13. Sunnudaga kl. 13-14. Heimsóknartimi Sjúkrahússins kl. 15.30-16 og kl. 19-19.30. Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Neyðarathvarf opið allan sólarhringinn, ætlað börn- um og unglingum að 18 ára aldri sem ekki eiga i önnur hús að venda. Opið allan sólarhringinn. S. 91-622266. Grænt númer 99-6622. Símaþjónusta Rauðakrosshússins. Ráðgjafar- og upplýsingarsimi ætlaður börnum og unglingum að 20 ára aldri. Ekki þarf að gefa upp nafn. Opiö allan sólarhringinn. S: 91-622266, Grænt númer: 99-6622. LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki, Ármúla 5, opið kl. 12—15 þriðjudaga og laugardaga kl. 11-16. S. 812833. G-samtökin, landssamb. fólks um greiðsluerfiðleika og gjaldþrot, Vesturvör 27, Kópa- vogi, opið 10—14 virka daga, s. 642984, (simsvari). Foreldrasamtökin Vimulaus æska Borgartúni 28. s. 622217, veitir foreldrum og foreldrafél. upplýsingar: Mánud. 13-16, þriöjud., miðvikud. og föstud. 9-12. Áfengis- og fikniefnaneytendur. Göngudeild Landspitalans, s. 601770. Viðtalstimi hjá hjúkrun- arfræðingi fyrir aðstandendur þriðjudaga 9-10. Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 611205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi i heimahúsum eða orðiö fyrir nauðgun. Stigamót, Vesturg. 3, s. 626868/626878. Miöstöð fyrir konur og börn, sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Virka daga kl. 9-19. MS-félag islands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s. 688620. Styrktarfélag krabbameinssjúkra bama. Pósth. 8687 128 Rvik. Simsvari allan sólar- hringinn. S. 676020. Lífsvon — landssamtök til verndar ófæddum börnum. S. 15111. Kvennaráðgjöfin: Simi 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22. Fimmtud. 13.30 og 20-22. Vinnuhópur gegn sifjaspellum. Tólf spora fundir fyrir þolendur sifjaspella miðviku- dagskvöld kl. 20-21. Skrifst. Vesturgötu 3. Opið kl. 9-19. Simi 626868 eða 626878. SÁÁ Samtök óhugafólks um áfengisvandamálið, Siðumúla 3-5, s. 82399 kl. 9-17. AL-ANON, aðstandendur alkohólista, Hafnarstr. 5 (Tryggvagötumegin). Mánud.- föstud. kl. 9-12. Laugardaga kl. 10-12, s. 19282. AA-samtökin, s. 16373, kl. 17-20 daglega. FBA-samtökin. Fullorðin börn alkohólista. Fundir Tjarnargötu 20 á fimmtud. kl. 20. I Bustaöakirkju sunnud. kl. 11. Unglingaheimili ríkisins, aðstoð við unglinga og foreldra þeirra, s. 689270 / 31700. Vinalína Rauða krossins, s. 616464 og grænt númer 99-6464, er ætluð fullorðnum, sem telja sig þurfa að tjá sig. Svarað kl. 20-23 öll kvöld. Skautar/skíði. Uppl. um opnunartima skautasvellsins Laugardag, um skiðabrekku i Breiðholti og troðnar göngubrautir i Rvik s. 685533. Uppl. um skiðalyftur Bláfjöll- um/Skálafelli s. 801111. Upplýsingamiðstöð ferðamála Bankastr. 2: Opin vetrarmán. mán./föst. kl. 10.00- 16.00, laugard. kl. 10.00-14.00. Fréttasendingar Ríkisútvarpsins til útlanda daglega á stuttbyigju: lltvarpað er óstefnuvirkt allan sólarhringinn á 3295,6100 og 9265 kHz. Hádegisfréttum er útvarp- að til Noröurlanda, Bretlands og meginlands Evrópu: Daglega kl. 12.15-12.45 ó 15790 og 13830 kHz. og kvöldfréttum. Daglega kl. 18.55-19.30 á 11402 og 13855 kHz. Til Kanada og Bandarikjanna: Daglega: kl. 14.10-14.40 á 15770 og 13855 kHz. Hádegisfréttir. Daglega kl. 19.35-20.10 á 15770og 13855 kHz. kvöldfréttir. Daglega kl. 23.00- 23.35 á 15770 og 13855 kHz. Að loknum lestri hádegisfrétta á laugardög- um og sunnudögum er lesið fréttayfirlit liðinnar viku. ísl. timi, sem er sami og GMT. SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar Landspitalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin. kl. 19-20.. Sængurkvennadeild. Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-20.30. Fæðingardeildin Eiriksgötu: Heimsóknartimar: Almennur kl. 15-16. Feðra- og systkinatími kl. 20-21. Aðrir eftir samkomulagi. Barnaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspítalans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Geðdeild Vífilstaðadeild: Sunnudaga kl. 15.30-17. Landa- kotsspítali: Alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: Heimsóknartimi annarra en foreldra er kl. 16-17. - Borgarspitalinn i Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. a laugardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnar- búðin Alla daga kl. 14-17. - Hvitabandið, hjúkrunardeild og Skjól hjúkrunarheimili. Heimsóknartími frjáls alla daga Grensásdeild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 - Laugardaga og sunnudaga ki. 14-19.30. - Heilsuverndarstöðin: Heimsóknartimi frjáls alla daga. Fæðingarheimili Reykjavikur Alla daga kkl. 15.30-16.00. - Klepps- spítali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til ki. 17. - Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vífilsstaðaspítali: Heimsóknartimi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St. Jósefs- spitali Hafn.: Álla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlið hjúkrunarheimili i Kópa- vogi: Heimsóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavikurlæknishér- aðs og heilsugæslustöðvar: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð Suöumesja. S. 14000. Keflavík - sjúkrahúsið: Heimsóknartimi virka daga kl. 18.30- 19.30. Um helgar og á hátiðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akureyri - sjúkra- húsið: Heimsóknartimi alla daga kl. 15.30 -16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavaröstofusimi fró kl. 22.00-8.00, s. 22209. BILANAVAKT Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hitaveitu, s. 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami simi á helgidögum. Rafmagnsveitan bilanavakt 686230. Rafveita Hafnarfjarðar bilanavakt 652936 SÖFN Landsbókasafn íslands: Aðallestrarsalur opinn mónud. - föstud. kl. 9-19 og laugar- daga kl. 9-12. Handritasalur mánud.-fimmtud. kl. 9-19 og föstud. kl. 9-17. Útlánssal- ur (vegna heimlána) mánud.-föstud. kl. 9-16. Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla islands. Opið mánudaga til föstudaga kl. 9-19. Upplýsingar um útibú veittar i aðalsafni, s. 694326. Borgarbókasafn Reykjavikur: Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbóka- safnið í Gerðubergi 3-5, s. 79122. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheima- safn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud. - fimmtud. kl. 9-21, föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn - Lestrarsalur, s. 27029. Opinn mánud. - laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47, s. 27640. Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud. - föstud. kl. 15-19. Bókabílar, s. 36270. Viökomu- staðir viðsvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið i Gerðubergi fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miðvikud. kl. 10-11. Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12. Þjóðminjasafnið: Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnudag kl. 12-16. Leiðsögn um safnið laugardaga kl. 14. Árbæjarsafn: Opið um helgar kl. 10-18. Árnagarður: Handritasýning til 1. sept., alla virka daga kl. 14-16. Ásmundarsafn i Sigtúni: Opið alla daga 10-16. Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud.-föstud. kl. 13-19. Nonnahús alla daga 14-16.30. Náttúrugripasafnið á Akureyri: Opiö sunnudaga kl. 13-15. Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. Sýningarsalir: 14-19 alla daga. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi. Opið alla daga 12-18 nema mánudaga. Sumarsýning á islenskum verkum i eigu safnsins. Minjasafn Rafmagnsveitu Reykjavikur við rafstöðina við Elliðaár. Opið sunnud. 14-16. Safn Ásgrims Jónssonar, Bergstaðastræti: Opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Húsdýragarðurinn: Opinn virka daga, þó ekki miðvikudaga, kl. 13-17. Opinn um helgar kl. 10-18. Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Högg- myndagarðurinn opinn daglega kl. 11-16. Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11-18. Listasafn Sigurjóns Olafssonar, Laugarnesi: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið sunnudaga milli kl. 14 og 16. S. 699964. Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. 13.30-16. Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opin sunnudaga kl. 13.30-16. Á öðrum tímum eftir samkomulagi. Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opiö mán.-fimmtud. kl. 10-21. Föstud. 10-19. Lesstofan opin frá mánud.-föstud. kl. 13-19. Byggðasafn Hafnarfjarðar: Opið laugard. og sunnud. kl. 14-18 og eftir samkomu- lagi. S. 54700. Sjóminjasafn islands, Hafnarfirði: Opið laugardaga'og sunnudaga frá kl. 14-18. Bókasafn Keflavikur: Opið mánud.-miðvikud. kl. 15-22, þriðjud. og fimmtud. kl. 15-19 og föstud. kl. 15-20. ORÐ DAGSINS Reykjavík sími 10000. Akureyri s. 96-21840. SUNDSTAÐIR Sundstaðir i ReykjaviV: Þessir sundstaðir: Laugardalslaug. Vesturbæjarlaug og Breið- holtslaug eru opnir sem hér segir: Mánud. - föstud. 7.00-20.30, laugard. 7.30— 17.30, sunnud. 8.00-17.30. Sundhöll Reykjavikur. Mánud. - föstud. kl. 7.00-19.00. Lokað i laug kl. 13.30—16.10. Opið i böð og potta fyrir fullorðna. Opið fyrir böm frá kl. 16.50-19.00. Stóra brettið opið frá kl. 17.00-17.30. Laugard. kl. 7.30-17.30, sunnud. kl. 8.00-17.30. Garðabær. Sundlaugin opin mánud.-föstud.: 7.00-20.30. Laugard. 8.00-17 og sunnud. 8-17. Hafnarfjörður. Suðurbæjarlaug: Mánudaga - föstudaga: 7.00-21.00. Laugardaga: 8.00-18.00. Sunnudaga: 8.00-17.00. Sundlaug Hafnarfjarðar: Mánudaga — föstudaga: 7-21. Laugardaga. 8-16. Sunnudaga: 9-11.30. Sundlaug Hveragerðis: Mánudaga - fimmtudaga: 7-20.30. Föstudaga: 7-19.30. Helg- ar: 9-15.30. Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga - fimmtud. kl. 6.30-8 og 16-21.45, (mánud. og miðvikud. lokaö 17.45—19.45). Föstudaga kl. 6.30-8 og 16—18.45. Laugar- daga kl. 10-17.30. Sunnudaga kl. 10-15.30. Sundmiðstöð Keflavikur: Opin mánudaga - föstudaga 7-21, Laugardaga 8-18. Sunnu- daga 9-16. Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga - föstudaga kl. 7-20.30. Laugardaga og sunnu- daga kl. 8-16.30. Siminn er 41299. Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga — föstudaga kl. 7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnu- daga 8-16. Simi 23260. Sundlaug Sehjamamess: Opin mánud. - föstud. kl. 7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10- 17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.