Morgunblaðið - 15.03.1992, Síða 13

Morgunblaðið - 15.03.1992, Síða 13
8* 12 mílna fiskveiðilögsögu og innan hennar halda sig flestar þýðingar- mestu físktegundirnar sem við nýt- um. Erlend veiðiskip hafa mjög tak- markaða möguleika á að stunda veiðar úr þeim fiskistofnum. Hins vegar er þetta ekki algild regla því nokkrir fiskistofnar veiðast bæði utan og innan okkar efnahagslög- sögu. Er í þeifn tilvikum enn þörf á heimild til þess að takmarka að- gang erlendra veiðiskipa að höfnum þeim er stunda veiðar úr þeim stofn- um. Verslun og viðskipti íslenskar vinnslustöðvar hafa á undanförnum árum í ríkari mæli leitað eftir kaupum á afla af erlend- um skipum. Einkum hefur til þessa verið um að ræða kaup á rækju. Vegna samdráttar í afla á síðustu árum hafa verið kannaðir möguleik- ar á kaupum á ýmsum botnfiskteg- undum. Jafnframt hafa augu manna opnast fyrir því að ýmsir tekjumöguleikar séu fyrir hendi með viðskipti við erlend veiðiskip. Komum þessara skipa til hafna fylgja mikil viðskipti og fjölbreyttir tekjumöguleikar fyrir ýmsa þjón- ustustarfsemi í landinu. Með því að heimila frjálsari að- gang að íslenskum höfnum er kom- ið til móts við þær breytingar til fijálsræðis í verslun og viðskiptum milli landa sem orðið hafa á síðari árum. Með þeim fyrirvara, sem gerður er varðandi löndun afla úr sameiginlegum fiskistofnum verður ekki annað séð en að breyting þessi geti orðið okkur til hagsbóta. Sú rýmkun á reglum um komu er- lendra skipa til hafna sem hér er gert ráð íyrir mun án efa leiða til aukinna viðskipta við erlend veiði- skip.“ Samningaviðræður í samningum EFTA-ríkja um frí- verslun með fisk er kveðið á um gagnkvæman löndunarrétt fiski- skipa samningsaðila og í samnings- drögum um evrópskt efnahags- svæði eni einnig hliðstæð ákvæði. Veiðar íslendinga fara að mestu leyti fram innan efnahagslögsögu landsins og flestir mikilvægustu fiskistofnarnir veiðast ekki utan hennar. Þó eru nokkrir stofnar sem veiðast bæði utan og innan lögsög- unnar, t.d. karfi, ioðna og rækja á hafsvæðinu milli íslands og Græn- lands. Um nýtingu loðnustofnsins hefur verið gert samkomulag við Grænland og Noreg, en um nýtingu annarra stofna er ósamið. Viðræður hafa farið fram milli íslands, Græn- lands og Færeyja um nýtingu karfa- stofnsins, en samkomulag hefur ekki náðst. Veiðar á úthafskarfa frá íslandi hófust fyrir þremur árum en aðrar þjóðir, einkum Rússar, hófu þær fyrr. Margt er óljóst um stærð og útbreiðslu þessa stofns en Ijóst er að hann veiðist bæði innan og utan efnahagslögsögu íslands. I frumvarpinu segir að nauðsyn- legt þyki að ráðherra geti takmark- að þjónustu við þau skip, sem stunda veiðar úr þeim fiskistofnum, sem ekki hefur verið samið um nýtingu á. Sé stofn t.d. ofnýttur og samkomulag ekki tekist um nýt- ingu hans, þyki óeðlilegt að erlend- um veiðiskipum verði auðveldaðar veiðar með því að veita þeim alla þjónustu og heimild til löndunar afla hér á landi. Ráðherra geti beitt slíkum takmörkunum þegar um er að ræða veiðar úr stofnum, sem veiðast í islensku efnahagslögsög- unni, hvort sem þeir fyrirfinnast einnig í lögsögu annarra ríkja eða á alþjóðlegu hafsvæði. Þá getur ráðherra beitt þessu ákvæði, hvort sem það skip sem í hlut á, er frá ríki sem ágreiningur er við um nýt- ingu stofnsins eða ekki. Hins vegar gætu þessi skip leitað aðstoðar til hafna hér á landi ef upp kemur sú staða að þau þarfnast aðstoðar vegna bilana eða tjóna. Þeim skip- um myndi verða veitt sú þjónusta sem nauðsynleg væri til þess að þau gætu án áhættu haldið áfram ferð sinni. S'JtAÍé .51 tiUðMitliiii'jn tkttfAJöií'JUítók MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992 VIUUM SELJA ÞJONUSTU GEGN ÞVÍ AD FÁ AFLANN - segir framkvæmdastjóri Vélsmiðjunnar Odda hf. á Akureyri HÓPUR þjónustufyrirtækja á Akureyri ásamt Akureyrarhöfn og atvinnumálanefnd bæjarins hefur síðan um áramót skoðað mögu- leikana á því að laða erlend veiðiskip til Akureyrar. Þegar og ef nýtt frumvarp, sem nú liggur fyrir þingheimi, verður að lögum, verður farið í það að leita viðskiptasambanda og horfa norðan- menn helst til rússneskra veiðiskipa. „En á meðan við biðum und- irbúum við okkar heimavöll," segir Torfi Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Vélsmiðjunnar Odda hf. á Akureyri. Jón Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri K. Jónsson á Akureyri, Jón Þórðarson, forstöðumaður sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akur- eyri og Torfi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Vélsmiðjunnar Odda hf. á Akureyri. Við erum að kanna hvort mögu- leiki sé á því að fá til Akur- eyrar erlend fískiskip svo hægt sé að selja þeim hér vörur og þjónustu gegn því að þau fái að landa hér sínum afla, sem físk- vinnslufyrirtækjin á svæðinu keyptu svo þau gætu betur nýtt afkastagetu sína en nú er. í þessu sambandi erum við fyrst og fremst að hugsa um vöruskipti og fyrir fiskinn fengju' erlendu skipin þá þjónustu sem þau óskuðu eftir," segir Torfi. Þó hér sé fyrst og fremst um að ræða akureyrsk fyr- irtæki, sem eru að taka höndum saman, er ekkert því til fyrirstöðu að önnur fiskvinnslufyrirtæki á Norðurlandi njóti góðs af enda eru samgöngur mjög góðar, að sögn *■ g held að landanir erlendra skipa inn á íslenska fiskmarkaði myndu hafa mjög jákvæð áhrif á fiskvinnsluna í ljósi mikils hráefn- isskorts í yinnslunni, að minnsta hér á suð-vestur horninu á undan- förnum árum. Ég tel að íslensku fískmarkaðirnir séu fyllilega sam- Torfa. Nú þegar hefur verið rætt við forsvarsmenn fiskvinnslufyrir- tækja á Ólafsfirði og Húsavík sem eru mjög jákvæðir í málinu. Torfi segir að aflaverð myndi hugsan- lega mótast af samkeppni við aðr- ar þjóðir um afla erlendu skipana, og yrði verðið þar af leiðandi held- ur lægra en fengist á innlendu fiskmörkuðunum. „Við erum að láta kanna það fyrir okkur hvaða skip hugsanlega gætu nýtt sér þá þjónustu, sem hér er til staðar, og samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum, er fj'öldi rússneskra togara að veið- um í Barentshafi sem landar milli 40 og 50 þúsund tonnum af þorski árlega í Noregi, en á yfirstandandi ári hafa norsk stjórnvöld heimilað keppnisfærir í verði miðað við þá markaði sem þessi skip hafa verið að landa á nú undanfarið, til dæm- is í Noregi og Bretlandi. Það er gríðarlega mikil vinnslu- geta ónýtt á þessu svæði og hægt að taka við mikilli aukningu á fiski löndun á 46 þúsund tonnum af rússneskum togurum. Þá hafa þeir farið í nokkrum mæli til Fær- eyja, en við teljum okkur geta boðið upp á mun betri þjónustu en Færeyingar auk þess sem við teljum okkur vera. mjög sam- keppnisfæra í verði á þjónustu. Talið er að hver grænlenskur togari, sem kemur hingað til lands til löndunar, kaupi þjónustu fyrir 5-10 milljónir í hvert skipti. Við horfum hinsvegar til þess að geta selt Rússum meira, hugsanlega með tiltölulega litlum fyrirvara án þess að til komi verðlækkun að neinu marki. Fyr- irtækin byggju við meira og öruggara framboð, en væru ekki í sífelldri óvissu um hvort þau hefðu hráefni til næsta dags eins og nú er. Við getum boðið þessum skipum alla þjónustu við löndun og sölu á afla. Við getum einnig séð um að útvega þeim útgerðarvörur, olíu og aðrar nauðsynjar og séð um að greiða viðkomandi þjónustuaðilum fyrir þær vörur. Þannig yrði tryggt á einfaldan hátt að allir fengju greitt fyrir sínar vörur og þjónustu. einhvern vinnslubúnað í skipin sín, því hér á Akureyri er bæði tækni og þekking til staðar auk góðra samgangna. Þess má jafnframt geta að sjávarútvegsdeild Háskól- ans á Akureyri hefur tekið virkan þátt í þessum undirbúningi. Ef vel til tekst, teljum við að líkur séu á töluverðum viðskiptum, sem að sjálfsögðu yrðu lyftistöng fyrir byggðarlagið, nú þegar atvinnu- ástandið er eins og það er,“ segir Torfi Guðmundsson. Ég er á því að aðrar reglur eigi að gilda um þau skip, sem veiða úr sameiginlegum veiðistofnum sem ekki hefur verið samið um nýtingu á milli Islendinga og annarra þjóða. Það er afskaplega hæpið að við ís- lendingar, sem rekum hér harða fískfriðunarstefnu, ætlum svo á sama tíma að auðvelda öðrum þjóð- um að auka afköst skipa sinna við veiðar úr sameiginlegum stofnum með því að leyfa þeim að landa hér á ístandi. Hinsvegar er mjög brýnt að á þessu máli verði tekið sem fyrst og gerðir verði samningar um þessar veiðar þannig að við gætum heimilað þessum aðilum að landa hér á landi til hagsbóta fyrir inn- lend fískvinnslu- og þjónustufyrir- tæki,“ segir Grétar. BRÝNT AÐ SEMJA UM SAM- EIGINLEGA FISKISTOFNA - segir framkvæmdastjóri Fiskmarkaðarins hf. í Hafnarfirði „Ég held tvímælalaust að forráðamenn fiskmarkaðanna á Islandi fagni þessari breytingu, sérstaklega í ljósi þess að kvóti hefur minnk- að og fiskmörkuðum fjölgað nú að undanförnu," segir Grétar Frið- riksson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðarins hf. í Hafnarfirði. Grétar Friðriksson LONDUNARRETTURINN MIKILVÆGUR í SAMNINGUM - segir fyrrverandi sjávarútvegsráðherra „Mín skoðun er sú að landanir erlendra togara úr sameiginlegum stofnum, sem ekki hefur verið samið um, ættu að vera bannaðar. Síðan ætti ríkisstjórn á hverjum tíma að hafa heimild til að semja um annað ef það greiðir fyrir samskiptum á sviði sjávarútvegs- mála eða ef menn meta það réttlætanlegt út frá hagsmunum þjóð- arinnar,“ segir Halldór Asgrímsson, fyrrum sjávarútvegsráðherra. Halldór nefnir sem dæmi að samningur hafi verið gerður við Grænlendinga árið 1980 er varðaði landanir úr sameiginleg- um rækjustofni og hafi þeim samn- ingi æ síðan verið framlengt. Talið var mikilvægt að auka samskipti við Grænlendinga til þess að koma af stað viðræðum milli þjóðanna um skiptingu og nýt- ingu annarra sameiginlegra stofna. Fyrir þremur árum var síðan samið um skiptingu loðnu- stofnsins og jafn- framt um það samið að löndunarréttur yrði tryggður hér á landi. Um aðra sameiginlega stofna hefúr hins- vegar ekki verið samið, „en ég er þeirrar skoðunar að það eigi að reyna til þrautar að ná samningum um þessa sameiginlegu stofna og í þeim samningum eigi m.a. að semja jafnhliða um löndunarrétt á íslandi,“ segir Halldór. Halldór telur að skammtíma- sjónarmið njóti í ræðu og riti sumra. talsmanna algjörs ftjálsræðis í þessum efnum, og nefnir m.a. málflutning Össurar Skarphéðinss- onar, þingmanns Alþýðuflokks, sem telur ekkert vera því til fyrir- stöðu að t.d. þýskir togarar gerðu út frá Hafnarfirði vegna atvinnu- ástandsins á Suðurnesjum. „Auð- vitað getum við ekki komið í veg fyrir að veiðar eigi sér stað utan okkar landhelgi, en ég tel að löndunarrétturinn eigi að vera liður í heildarsamningum um nýtingu auðlindanna. Ég legg á það áherslu að allar slíkar umleitanir haldi áfram og ég trúi því að samningar munu takast, fyrr eða síðar.“ Halldór Asgrímsson GRÆNLENDINGAR ABYRGÐ- ARLAUSIR í VIÐSKIPTUM - segir formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna „Við erum samþykkir breytingu laganna á þann veg að öllum erlendum skipum sé frjálst að sækja hingað þjónustu og löndun afla, svo fremi að hann hafi ekki verið veiddur úr stofnum, sem eru sameiginlegir okkur og öðrum þjóðum, og ekki hefur samist um hvernig nýta skuli,“ segir Krislján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna. Kristján segir að þar sé um að ræða karfa, grálúðu og rækju sem væru sameigin- legir íslendingum og Grænlend- ingum, og áherslurnar væru þann- ig að karfinn skipti mestu máli, næst grálúð'an og í þriðja lagi rækjan. „Við megum ekki gera erlendum aðilum það mögulegt að sækja í sameiginlega stofna þó svo að Grænlendingar bregði á það ráð að selja þeim veiðirétt, alveg án nokkurra rannsókna og án nokk- urs mats á því hvað viðkomandi fiskistofn þolir, en nú fyrir nokkrum dögum seldu Grænlendingar Rússum níu þús- und tonna karfak- vóta ofan á 45 þúsund tonna kvóta, sem þeir áður seldu Efna- hagsbandalaginu. Efnahagsbandalagslöndin hafa hinsvegar ekki getað veitt nema um fímm þúsund tonn vegna þess að þau hafa ekki getað gert út frá íslandi. Við myndum hugsanlega geta aukið okkar karfaveiðar ef Grænlendingar hættu þessu þar sem að þetta er fiskur, sem geng- ur á milli lögsaga. Að mínu mati hafa Grænlendingar, því miður, verið mjög ábyrgðarlausir í við- skiptum með þessa stofna. Þá virð- ist ekkert varða um það hvort stofnarnir séu ofveiddir eða ekki. Stundarhagurinn einn og sér ræð- ur ferðinni hjá þeim. Ég vil hindra þessa þróun með því að veita þeim ekki aðgang að íslenskum höfnum. Ef við hinsvegar veitum þeim að- gang, erum við í leiðinni að .gera þeim auðvelt fyrir og þá mun þetta gerast í enn ríkari mæli en reynd- in er í dag. Ég óttast þessa þróun. Löndunarbannið er ekki sett af mannvonsku einni saman. Við vilj- um einfaldlega að samkoinulag náist um nýtingu þessarra stofna, þjóðanna á milli, en hingað til hafa Grænlendingar ekki fengist til neinna raunhæfra viðræðna, að öðru leyti en því er viðkemur loðn- unni,“ segir Kristján. Krislján Ragnarsson 3 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992 13 Pétur Grétarsson Einleiks- verk fyrir slagverk PÉTUR Grétarsson slagverks- leikari heldur þriðjudaginn 17. mars einleikstónleika í Borgar- leikhúsinu. Hér er um að ræða fyrstu einleikstónleika íslensks síagverksleikara hér á landi. Á tónleikunum flytur Pétur fjög- ur einleiksverk fýrir ýmis slag- verkshljóðfæri auk tveggja dúetta, annars vegar með Kjartani Óskars- syni klarinettuleikara og hins vegar Eiríki Erni Pálssyni trompetleikara. Helmingur efnisskrárinnar er ís- lenskur en þar gefur að heyra verk ungra íslenskra tónskálda, þeirra Áskels Mássonar, Lárusar H. Grímssonar og Tryggva M. Bald- vinssonar. Hinn helmingurinn er eftir erlend tónskáld þau Gitta Steiner, William Kraft og ungveij- ann Istvan Lang. Pétur Grétarsson er fæddur í Reykjavík 1958 og lærði slagverk í Tónlistarskólanum i Reykjavík og Berklee College of Music í Boston. Tónleikarnir verða í litla sal Borgarleikhússins og hefjast þeir kl. 21.00. Dúx spiritus fyrir viðlcvæma og feita húb a i I § Dúx spiritus er mild djúphreinsandi náttúrusápa fyrir feita húð. Dúx skilur eftir raka í húáinni og viáheldur eblilegu sýrustigi pH 5,5. snyrtivörur fó JMtacinéosIi Classic -tölvurnar eru með 2 Mb innra minni og 40 Mb harðdiski. Allar Macintosh-tölvurnar eru með íslensku stýrikerfi, sem auðveldar til muna þegar verið er að læra á tölvuna, auk þess sem tölvunotendur temja sér að tala íslensku en ekki torskildar og flóknar skipanir. Macintosh Classic er nú á sérstöku fermingartilboði, aðeins 88.878,- kr. eða 9 - stgr. IVIacimtosli LC -tölvurnar eru með 4 Mb innra minni og 80 Mb harðdiski. Þær er hægt að fá þær með mismunandi útfærslum, hvort sem er með svarthvítum skjá eða litaskjá. Macintosh LC fylgir hið frábæra stýrikerfi: System 7 á íslensku og hún er nú á sérstöku fermingartilboði, aðeins 184.707,- kr. m/12" sv/hv. skjá eða aðeins 175.472,- stgr. Appl e StyIe"Wriier- prentarinn er einstakur í sinni röð. Þetta er bleksprautuprentari með 360 x 360 punkta upplausn á fertommu, sem er meiri upplausn en t.d. algengir leysiprentarar. Apple StyleWriter- prentarinn er með sjálfvirkan arkamatara fyrir allt að 50 blöð, hvort sem er einlit eða áprentuð bréfsefni. Apple StyleWriter er nú á sérstöku fermingartilboði, aðeins 41.869,- kr. eða 39.776,- 9 ^ stgr. Að auki er til mikið úrval forrita og leikja, músamottur, diskageymslur, harðdiskar, minnisstækkanir og ýmislegt fleira, fyrir þá sem eiga Macintosh-tölvu. Apple-umboðið Skipholti 21, Sími: 91-624800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.