Morgunblaðið - 15.03.1992, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.03.1992, Qupperneq 23
MOKGuyBuy»}» MIMIMINGAR stNmuAauR 19^2 ,23 Jóhanna E. Svend sen — Minning' Fædd 9. janúar 1921 Dáin 6. mars 1992 Föstudaginn 6. mars lést í Landa- kotsspítala Jóhanna Elísa Svendsen á 72. aldursári. Ég kynntist Jó- hönnu fyrst þegar Engelhart, eldri sonur hennar og maðurinn minn unnu saman við bílaviðgerðir í bíl- skúrnum heima hjá henni og Birni í Kópavoginum. Þeir unnu oft fram eftir kvöldi og alltaf var þeim boðið inn í kaffi og meðlæti og var þá oft setið og spjallað. Jóhanna var einstaklega myndar- leg húsmóðir, gestrisin í meira lagi og aldrei kom maður svo að ekki væru bornar fram góðgerðir. Hún var mjög lagin í höndunum og saumaði mikið og þegar hún frétti að ég ætlaði að sauma á elstu dótt- urina íslenska búninginn fyrir ferm- inguna hennar lét hún sig ekki muna um að koma og hjálpa mér við saumaskapinn og við hættum ekki fyrr en saumaður hafði verið upphlutur á allar þijár dætur mínar. Það eru margar vinnustundir sem liggja í slíkum saumaskap og ef ekki hefði notið hjálpar hennar er ég efins að verkinu hefði verið lok- ið. Hún sagði mér þá að hana hefði alltaf langað til að eiga stelpur svo að hún gæti saumað á þær kjóla með pífum og leggingum, en á þess- um árum átti hún synina tvo en engin barnabörn. Hún fékk þó ósk- ir sínar uppfylltar síðar og eignað- ist sonardætur sem örugglega hafa fengið kjóla sem amma saumaði. Jóhanna hafði gaman af að ferðast og fórum við fjölskyldurnar stund- um saman í ferð, oftast til beija og var þá gist í tjaldi eða sæiuhús- um. Ein slík ferð er mér minnisstæð, þá fórum við í Kerlingarfjöll og stönsuðum í Fossrófum, þar dró Jóhanna upp stífstraujaða svuntu og dúk til að leggja á matarborðið, sem var jörðin. Maturinn fram bor- inn eins og heima í eldhúsi, ég man hvað ég var hissa því hjá mér í ferðum var snarl og kalt kjöt en ekki heitur matur með baunum og sultu. Þetta var yndisleg máltíð í fallegu umhverfi og björtu veðri. Jóhanna var glæsileg kona, björt yfirlitum með þykkt ljóst hár, hún var snögg í hreyfingum og kunni vel að koma fram enda ekki óvön að framreiða hjá ráðherrum og öðru fyrirfólki í veislum og heimahúsum. Nú ríkir sorg og söknuður hjá fjöl- skyldu og vinum sem sjá á bak mikilhæfri eiginkonu og móður. Við sendum Birni, sonum hans og fjöl- skyldum þeirra, innilegar samúðar- kveðjur. Birna, Þorgeir og fjölskylda. Fátækleg orð ná ekki að lýsa Jóhönnu svo nokkru nemi, enda kynnti hún sig best í lifanda lífi með skemmtilegri og skörulegri framkomu. Ég kynntist Jóhönnu fyrir 20 árum og höfum við verið miklar vinkonur síðan. A mínum náms- árum byrjaði ég á því að elda fyrir fólk í heimahúsum. Jóhönnu fannst ég auðvitað mjög ung sem ég líka var, hún var óspör á ráðleggingarn- ar, fræddi mig á hvað hún hefði séð hina gera. Alltaf var hún fljót að gera gott úr því sem miður fór. Þar var Jóhanna á heimavelli, hún taldi það ekki eftir sér að leiðbeina og hjájpa öðrum. Jóhanna var bæði smekkleg, snyrtileg og vinnusöm. Jóhönnu var þetta þjónustueðli í blóð borið, það var hennar starf bæði utan heimilis og heima. Hún var glaðlynd að eðlisfari, kunni að fagna með fagnendum og syrgja með syrgjendum. í þau 20 ár sem ég hef þekkt Jóhönnu hefur trygglyndi hennar sýnt sig í öllu, það var alltaf hægt að leita til henn- ar hvort sem um barnapössun, saumaskap eða aðstoð við gesta- móttöku var að ræða. Hún var allt- af að hlúa að öðrum. Ég veit að vel hefur verið tekið á móti Jóhönnu handan móðunnar miklu af undan- gengnum ástvinum hennar, en styrkur okkar sem eftir lifum hlýtur að felast í björtum minningum um góða og hjartahlýja konu. Sú minn- ing mun ylja okkur til æviloka. Elsku Bjössi, Sigrún, Engilhart og Þór. Sorg ykkar og missi er ekki hægt að lækna með orðum, það eitt mun tíminn gera. Minningin um góða konu sem Jóhanna var, kon'u sem alltaf var tilbúin að hjálpa öðrum. Við á Tóm- asarhaganum kveðjum Jóhönnu með miklum söknuði. Fari hún í friði. Guðrún Þóra Hjaltadóttir. „Með þökk fyrir skínandi sumarsól samvistar þinnar ..." (EHK) Þakklát er ég að vinkona mín, Jóhanna, gat kvatt þennan heim með reisn, það hefði ekki átt við hana að verða öðrum háð, þvílíkur kvenskörungur, sem hún var. Ekki átti ég von á því, þegar við tengdadóttir mín vorum hjá henni tveimur dögum áður en hún dó, að það væri okkar kveðjustund, við sem röbbuðum saman um fermingu elsta barnabarnbarns hennar og nöfnu. Ætlaði hún svo sannarlega að komast í ferminguna, en enginn ræður sínum næturstað. Það var mikill lærdómur að hafa átt þessa vinkonu, sem með miklum krafti og vilja komst yfir veikindi sín, fyrst 1981 og svo 1985, þegar hún gat ekki talað, gengið né skrif- að, en upp komst hún og þvílík gleði þegar hún komst til beija og gat fært hjartalækni sínum aðalbláber. í nokkra mánuði skrifaði hún upp úr ljóðabókum til að þjálfa sig í skrift, og það tókst. Já, dugleg var hún Jóhanna. Við hjónin upplifðum þá gleði að farar tvisvar sinnum með þeim hjónum á þeirra heimaslóðir, í Mjóa- ijörð. Það var gaman að vera í beij- alandi Jóhönnu og þvílík ber; og hún eins og stormsveipur upp allar brekkur, enda hennar brekkur og hendurnar voru eins og mylluvæng- ir svo fljót var hún að tína. Þá var farið heim að Hofi, sópað og þrifið, skipt um gluggatjöld, svo allt liti vel út þegar ferðamaðurinn kíkti á glugga eða kom inn um dyrnar, sem voru öllum opnar, enda sáum við það í gestabókinni að margir hefðu litið inn. En þá var eftir að keyra upp á hið fagra Hérað, þar sem við dvöld- um í sumarhúsi, berin hreinsuð og sultað í hvelli. Ekki var slegið slöku við, keyrt út að Unaósi til að hitta frænkuna þar og fá þau hjónin með í bíltúr um Hérað. Já, það var góð sögustund að vera með þessu elskulega frænd- fólki á þeirra forfeðra slóð. Með virðingu kveðjum við vin- konu okkar og óskum henni bless- unar. Inga, Tóta og Jón. Kær bernskuvinkona er látin. Við fráfall Jóhönnu Svendsen er brost- inn strengur í brjóstum okkar vin- kvenna hennar, sem á þriðja og fjórða áratugnum slitum barns- skónum samtímis henni austur á Norðfirði. Þó að langt sé um liðið er sá tími svo ótrúlega ofarlega í minninu. Við áttum allar heima úti á Nesi. Jóhanna bjó á Haugsstöðum, þar bjuggu einnig systurnar Lilla og Sigga (Ingibjörg og Sigríður) Jó- hannsdætur, við systumar Svein- björg og Ingibjörg í Stjörnu og Didda Inga (Auður Ingvarsdóttir) í Pálmahúsinu. Þarna lékum við okk- ur saman frá blautu barnsbeini og höfðum nóg fyrir stafni allan ársins hring. í barna- og unglingaskóla áttum við samleið, svo þau bönd sem þarna bundust urðu býsna sterk. Við fundum það oft í sam- tölum síðar á ævinni hversu mikinn þátt við höfðum raunverulega tekið í kjörum hverrar annarrar, þó að við kynnum ekki að koma orðum að því þá. Þetta voru kreppu- og atvinnu- leysistímar, ekki síður en nú, en við vorum allar svo lánsamar að eiga duglega og vinnusama foreldra svo okkur skorti aldrei neitt, en nægju- semin og nýtnin var þá ólík því sem nú er. Jóhann er önnur í röð þess- ara bernskuvinkvenna, sem fellur frá, en Sigríður Jóhannsdóttir Zoéga lést eftir erfið veikindi í nóv- ember 1988. Jóhanna fæddist á Norðfirði 9. janúar 1921. Foreldrar hennar voru hin elskulegu hjón Þórunn Einars- dóttir frá Hofi í Mjóafirði, dáin 1970, og Engelhart Svendsen, vél- smiður, ættaður frá Tönsberg í Noregi, dáinn 1949. Jóhanna taldi sig því vera Norðfirðing, Mjófirðing og Norðmann. Hún hafði alla tíð mikið og gott samband við föður- fólk sitt í Noregi. Þau Þórunn og Engelhart eignuðust fjögur börn og var Jóhanna elst þeirra; tvær dætur misstu þau á fyrsta ári, en yngstur var Engelhart, fæddur 1938. Auk þess áttu þau eina kjördóttur, Sig- rúnu, f. 1930, en hana tóku þau aðeins mánaðar gamla. Engelhart rak vélsmiðju á Norð- firði í mörg ár, en árið 1937 flutt- ist fjölskyldan til Hesteyrar, þar sem Engelhart varð forstjóri fyrir síldarverksmiðjum Kveldúlfs í 6 ár. Austfirðirnir toguðu þau aftur til sín og árið 1943 fluttu þau aftur austur, settust að á Hofi í Mjóa- firði, ráku þar búskap í nokkur ár, jafnframt því sem Engelhart stund- aði iðn sína. Jóhanna stundaði nám við Hús- mæðraskólann á Hallormsstað vet- urna 1938-39 og 1939-40. Þarna naut sín meðfæddur myndarskapur hennar og þarna hlaut hún m.a. •þann undirbúning, sem gerði hana að þeirri fyrirmyndar húsmóður sem hún var._ Auk þess lærði hún kjólasaum á ísafirði á Vestfjarðar- árum fjölskyldunnar og vann um tírna _við saumaskap. Á ísafirði kynntist Jóhanna eftir- lifandi eiginmanni sínum, Birni S. Jónssyni múrara, f. 1920, og gengu þau í hjónaband árið 1946. Fyrstu árin voru þau búsett á Hofi í Mjóa- firði, en eftir lát Engelharts fluttist öll íjölskyidan hingað suður. Til að byija með bjuggu þau í Kópavogi, en síðar gerðist Þórunn húsvörður á Laugaveginum þar sem verslunin Markaðurinn var og sáu þær mæðg- ur, Þórunn og Jóhanna, um ræst- ingu þar. Á þessum árum byggði Björn með eigin höndum hið góða hús þeirra að Löngubrekku 29 í Kópavogi, þar sem heimili þeirra hefur staðið frá 1964. Jóhann og Björn eignuðust tvo syni, Engelhart, f. 1947; hann er bifvélavirki og hefur árum saman látið sér annt um Slysavarnafélag íslands og unnið þar mikið og gott starf. Kona hans er Helga Haralds- dóttir, dætur þeirra eru Jóhanna Elísa og Eva Osk. Yngri sonurinn er Þór, f. 1961, hann er tölvufræð- ingur hjá Reiknistofu bankanna. Kona Þórs er Ása Halldórsdóttir og þeirra börn eru Hrafnhildur Birna og Björn Jóhann. Heimili Jóhönnu og Björns var afar fallegt og heimilislegt; við skíð- logandi arininn hjá þeim áttu marg- ir notalega stund og betri veitingar hafa óvíða verið fram bornar, enda Jóhanna snillingur á því sviði. Árum saman gekk Jóhanna um beina í alls konar veislum úti í bæ og sagð- ist hún mikið hafa lært af þeim ágætu konum, sem hún kynntist í þeim störfum. Hjónaband Jóhönnu og Björns var mjög gott, þau báru traust og virðingu hvort fyrir öðru og bættu hvort annað upp. Þessi gustmikla dugnaðarkona, sem virtist geta gert allt í einu, og þessi hægláti, rólegi maður, sem mér fannst taka eitt fyrir í einu og ljúka því vel og vandlega. Jóhanna og Björn ferðuðust tölu- vert, fóru m.a. alloft til Noregs. Á sjötugsafmæli Jóhönnu, 9. janúar 1991, voru þau á Kanaríeyjum, hún sleppti því samt ekki að halda stór- veislu fyrir vinkonur sínar þegar heim kom. Flestar ferðir þeirra voru þó austur í Mjóafjörð, þar stóð gamla húsið þeirra lengi og þar tíndi Jóhanna berin í sultuna og saftina, sem hún dreifði í allar áttir. Jóhanna var glæsileg og glaðleg kona, alltaf hress í anda og sópaði að henni. Lífskrafturinn og dugnað- urinn virtist takmarkalaus og mun hún oft hafa misboðið heilsu sinni, sem undanfarin ár fór hnignandi. Árið 1981 fékk hún fyrsta hjartaá- fallið og 1985 bættist heilablæðing við, náði hún sér ótrúlega vel aftur og 9. janúar sl., á afmælisdegi hennar, var ekki að sjá á móttökun- um að þar hefði veik manneskja staðið að undirbúningnum. Andlát hennar kom okkur því öllum að óvöium. Ég minntist stundum á það við þessar bernskuvinkonur mínar, að við færum allar saman austur á Norðfjörð og leituðum uppi bernsk- uleikvelli okkar, sem að sjálfsögðu hafa breyst og meira og minna horfið. Nú yrði Jóhanna ekki í þeirri ferð, en á nýjum brautum hennar óskum við henni velfarnaðar. Einlægð samúð okkar vinkvenn- anna og fjölskyldna eiga þau Björn, synir og fjölskyldur þeirra, Engel- hart bróðir Jóhönnu og fjölskylda hans og síðast en ekki síst fóstur- systirin Sigrún, en henni virtist mér Jóhanna vilja vera allt í senn, móð- ir, systir og besta vinkona. Guð styrki ykkur í sárri sorg. Ég minnist kærrar vinkonu með þökk og virðingu. Ingibjörg Jónsdóttir. Þegar vinir kveðja stendur tíminn kyrr um stund en hugurinn reikar til baka, yfir farinn veg. Pabbi var búinn að segja mér margt um hana, stelpuna að aust- an. Svo kom hún í bæinn eitt vorið með pabba sínum. Hún var alveg eins og pabbi hafði lýst henni, hress og kát, björt yfirlitum, með þykkar ljósar fléttur langt niður á bak. Þau feðgin voru á leið til Noregs, á slóð- ir feðra okkar beggja, að heim- sækja ættingja og vini. Stelpan að austan var Jóhanna Svendsen. Síðan þetta var eru liðin 54 ár vináttu og tryggðar og minn- ingasjóðurinn orðinn æði stór. Á milli foreldra okkar var einlæg vin- átta og margar ógleymanlegar sam- verustundir átum við vestur á Hest- eyri og austur í Mjóafirði. í þá góðu gömlu daga ríkti gleði og kátína þótt oft væri þröngt setinn bekkur- inn og deila þyrfti lífsbjörginni. En sumrin voru löng og björt og fram- tíð yngri kynslóðarinnar óskráð blað. Svo kom Björn inn í líf Jóhönnu og Rolf inn í mitt líf. Jóhanna og Bjössi, sem varla er hægt að nefna nema í sama orðinu, fluttu suður og bjuggu sér heimili hér. Ný kyn- slóð óx úr grasi. Á heimili þeirra bjó einnig Þórunn móðir Jóhönnu, á meðan henni entist aldur, og þar hefur ennfremur Sigrún, fóstur- systir Jóhönnu, átt sitt trygga skjól og athvarf alla tíð. Fyrstu árin voru húsakynni Jóhönnu og Bjössa ekki alltaf stór eða plássið mikið en þó var þar allt stórt í sniðum. Vinátta og hjálpsemi, rausn og höfðings- skapur var og er í fyrirrúmi á þeim bæ. Hugurinn dvelur við ótal minn- ingar frá heimili þeirra. Þar nutu hæfileikar Jóhönnu sín best og þangað var ávallt gott að koma. Hjartahlýja húsráðenda í Löngu- brekku 29 var engu minni en ylur- inn frá arineldinum í stofunni þeirra. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir ómælda vináttu og hjálpsemi við mig og fjölskyldu mína. Ég kveð elskulega vinkonu og bið öllum öðrum ástvinum Jóhönnu Guðs blessunar. Sossen. Fyrir nokkru frétti ég að Jóhanna frændkona mín hefði veikst og væri komin á sjúkrahús. Litlu seinna fór ég til fundar við hana. Hækkandi sól braust fram úr skýjarofi og það var bjart yflr stuttri samverustund okkar sem varð hin síðasta. Jóhanna Sigurðardóttir, amma Jóhönnu Svendsen, og Stefanía móðir mín voru systur. Misskipt var með systrunum að því leyti að ég var einbirni, en börn móðursystur minnar urðu sextán. Maður hennar var Einar Árnason og bjuggu á Hofi í Mjóafirði. Elsta barn þeirra Hofshjóna var Þórunn, móðir Jóhönnu Svendsen, og var hún elsta barnabarnið. Mað- ur Þórunnar var Engelhart Svend- sen vélameistari, sonur Carls Svendsens, vélameistara á hvalveið- istöðvum Ellefsens, og Katharine konu hans. Þessi fjölskylda bast vináttubönd- um við foreldra mína og föðurfólk. Og Engelhart dvaldist heima á Brekku nokkur ár eftir að Norð- menn hurfu frá Mjóafirði, þar til hann gekk að eiga Þórunni Éinars- dóttur, frændsystur mína, 30. mars 1920. Á þeim misserum leit ég fyrst dagsins ljós og man til mín á hnjám Engelharts sem var barngóður mað- ur. Þannig atvikaðist það að við Jó- hanna Svendsen tengdumst böndum frændsemi og vináttu til beggja handa. Og við höfum átt samleið alla tíð, samgangur með heimilum foreldra okkar og okkar sjálfra var mikill eftir því sem kringumstæður leyfðu hveiju sinni, því stundum var nú vík milli vina. Foreldrar Jóhönnu áttu í fyrstu heimili á Hofi, en settust að á Norð- firði 1923. Þar sleit hún barnsskón- um, ólst upp hjá foreldrum sínum ásamt Sigrúnu fóstursystur- sem kom tii þeirra komabarn. Þegar Jóhanna var sextán ára fluttist hún með foreldrum sínum og Sigrúnu vestur á fírði þar sem faðir hennar réðst yfirvélstjóri við síldarverksmiðju Kveldúlfs á Hest- eyri. Þar dvaldist fjölskyldan næstu árin og þar fæddist hjónunum sonur 31. júlí 1938. Hann heitir Engil- hart, vélstjóri í Mosfellsbæ, kvæntur Jónínu Valdimarsdóttur og eiga þau fjögur börn. Á þessum misserum var Jóhanna í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað og tók próf þaðan 1940, en hafði áður numið við Gagn- fræðaskólann í Neskaupstað. Engelhart og Þórunn fluttu aust- ur á ný ásamt börnum sínum sum- arið 1943 og settust þá að á Hofi. Þar ráku þau nokkurn búskap, og Engelhart vann mikið út í frá við sérgrein sína og skyld störf. Næst er þess að geta að Jóhanna hafði kynnst ungum manni vestra, Birni Jónssyni, múrara á ísafirði. Hann fluttist nú einnig austur og gengu þau Jóhanna í hjónaband 28. desember 1946. Björn er raunar austfirskrar ættar á báða bóga og voru þau hjónin skyld að þriðja og fjórða. í fyrstu bjuggu ungu hjónin á Hofi ásamt foreldrum Jóhönnu. En Engelhart faðir hennar lést 7. októ- ber 1949, varð bráðkvaddur. Björn vann mikið að~ múrverki í næstu sveitum þau árin. Ámi, bróðir Þór- unnar, var þá heima og sinnti bú- störfum ásámt kvenfólkinu. Björn og Jóhanna breyttu til 1955 og fluttu suður. í fyrstu bjuggu þau í leiguhúsnæði í Kópavogi og í Reykjavík. Björn vann kappsamlega að iðn sinni, eftirsóttur fyrir marga hluta sakir. Jóhanna vann einnig nokkuð úti, einkum við framleiðslu- störf í veislum og boðum. Eigin húsbygging var undirbúin í Kópa- vogi og síðan var hafist handa. Verkið tók dijúgan tíma, því þau

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.