Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 27
Fataframleiðendur
Við erum 14 vanar saumakonur að Ijúka 3.
námsári í fataiðn við Iðnskólann í Reykjavík.
Tilheyrandi náminu er 4ra mánaða starfs-
þjálfun við fataframleiðslu. Við bjóðum því
fram starfskrafta okkar frá miðjum maí til
desemberloka '92.
Vanti ykkur góðan starfskraft á því tímabili,
vinsamlegast sendið inn upplýsingar til aug-
lýsingadeildar Mbl. merktar: „Fataiðn - 302.“
VF1 /stýritækni
Vélfræðingur með full réttindi, stýritækni-
fræðingur (vél-/raf-/tölvustýringar), mech
Cad rekstur, óskar eftir vinnu.
Upplýsingar í síma 670471.
Atvinnurekendur
Framkvæmdastjóri/markaðsstjóri
Raunvísinda- og viðskiptamenntaður maður
óskar eftir starfi. Reynsla í framkvæmda-
stjórn og markaðssetningu.
Meðeign kemur til greina.
Tilboð óskast send auglýsingadeild Mbl.
merkt: „FM - 12271“
Landið allt
34ra ára kona óskar eftir starfi, gjarnan á
landsbyggðinni. Hef margra ára starfsreynslu
á skrifstofusviði m.a. skrifstofustjórn á lögfr-
skrifstofu. Góð málakunnátta. Meðmæli.
Upplýsingar í síma 91-670862.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Fulltrúi
Hér með er auglýst laust til umsóknar starf
fulltrúa framkvæmdastjóra F.S.Í.
Starfssvið: Annast úrvinnslu launa, þ.m.t.
vinnuskýrslna. Greiðslu launa,
launagjalda og skatta. Fylgjast
með öllum kjarasamningum,
sem varða starfsfólk, og veita
upplýsingar um starfsskjör.
Umsjón með innheimtu og
greiðslu reikninga, úrvinnslu
ýmissa upplýsinga úr bókhaldi
og skýrslugerð. Fulltrúi er ábyrg-
ur gagnvart framkvæmdastjóra.
Leitum að: Starfsmanni með viðskiptalega
menntun og/eða reynslu. Við-
komandi þarf að hafa frum-
kvæði.
Gert er ráð fyrir að fulltrúinn hefji störf um
mánaðamótin mars - apríl eða fyrr eftir sam-
komulagi.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma
~ 94-4500.
Skriflegar umsóknir sendist framkvæmda-
stjóra í pósthólf 215, 400 ísafjörður, fyrir
20. mars nk.
HRAFNISTA, HAFNARFIRÐI
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar
óskast í sumafleysingar.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri, sími
54288.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Laus er til umsóknar staða sérfræðings á
handlækningadeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri. Auglýst er eftir sérfræðingi í al-
mennum skurðlækningum með æðaskurð-
lækningar sem undirgrein.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1992.
Nánari upplýsingar veitir Shree Datye, yfir-
læknir, í síma 96-22100.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist til framkvæmdastjóra
sjúkrahússins, pósthólf 380, 602 Akureyri.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Tónlistarkennari
Tónlistarkennara vantar við Tónlistarskóla
Raufarhafnar næsta skólaár. Þarf að geta
kennt á píanó og helst annað hljóðfæri t.d.
gítar. Æskilegt er að hann sinni einnig tón-
menntakennslu við Grunnskóla Raufarhafn-
ar; einnig starfi organista og kórstjóm kirkju-
kórs Raufarhafnarkirkju.
Húsnæði er til reiðu á staðnum.
Upplýsingar veita grunnskólástjóri í síma
96-51131 og sveitarstjóri í síma 96-51151.
Umsóknir skulu sendar skrifstofu Raufar-
hafnarhrepps fyrir 20. apríl nk.
tp
Vinnuskóli
Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir leiðbein-
endum til starfa við Vinnuskólann sumarið
1992. Starfstíminn er frá 1. júní til 31. júlí.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í
verkstjórn við ýmis verkleg störf og/eða
vinnu með unglingum.
Vinnuflokkar skólans starfa að þrifum, gróð-
urumhirðu og léttu viðhaldi t.d. á skólalóðum
eða leikvöllum.
Einnig er óskað eftir leiðbeinendum fyrir hóp
fatlaðra ungmenna, sem þurfa mikinn stuðn-
ing í starfi.
Umsóknareyðublöð fást í Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar, Rorgartúni 3, sími
622648.
Þar eru einnig veittar upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
Umbrot (pagemaker)
Útgáfufyrirtæki óskar eftir að ráða umbrots-
mann nú þegar.
Upplýsingar í síma 689938 (Bragi eða Erlingur).
Lífog saga.
Tölvuinnsláttur/af-
greiðsla
Óskum eftir starfsmanni í tölvuinnslátt og
afgreiðslu. Um fullt starf er að ræða. Tölvu-
kunnátta er ekki naunsynleg en samvisku-
semi og snyrtimennska áskilin.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðubiöð
fást á Ráðningarstofunni frá kl. 9-13.
<Hákmmtém
STARFS- OG ^NÁMSRÁÐGJÖF
KRINGLUNNI 4, (BORGARKRINGLUNNI), » 677448
Forritari
Öfiugt þjónustufyrirtæki með mikil verkefni
óskar að ráða kerfisfræðing/tölvunarfræð-
ing, eða aðila með sambærilega menntun,
til framtíðarstarfa.
Leitað er að forritara, sem æskilegt er að
hafi reynslu af IBM S/36 forritun og þekkingu
á PC umhverfi. Viðkomandi þarf að hafa þjón-
ustulund og eiga auðvelt með samskipti.
í boði er sjálfstætt og krefjandi starf.
Umsóknareyðublöð hjá Ráðgarði.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon í
síma 679595 fyrir 20. mars nk.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
Ert þú meira en
þriggja milljóna
króna virði á ári?
Vinnulýsing:
Að sýna og selja viðskiptavinum okkar orlofs-
íbúðir (íbúðirnar tengjast stærstu skiptisam-
tökum orlofsíbúðaeigenda í heimi).
Skilyrði:
★ Vilji og þor til að selja.
★ Sveigjanleiki.
★ Góðir tjáskiptahæfileikar.
★ Þekking á sænsku eða ensku er kostur..
Við bjóðum upp á:
. ★ Fagmannlega þjálfun.
★ Góða framamöguleika. »' • .•
- .★ Spennandi og óformlegt vinnuumhverfu :
Vinnustaður: Algarve, Portúgal.
Hafið samband við Erik Jensen, sölustjóra,
í síma 91-681204 fyrir 18. mars.