Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 16. MARZ 1992
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN I AUSTURRIKI
Það er engin
ástæðatil
aðörvænta
- segirGunnar Andrésson, einnyngsti
leikmaður landsliðsins, sem er með til-
boð frá Alicante á Spáni. „Ég er ekki
tilbúinn til að fara út og leika strax. Það
er nægur tími til stefnu og ég þarf að
öðlast meiri reynslu"
„ÞAÐ SEM hefur glatt mig mest í vetur er að ég hef alveg slopp-
ið við meiðsli og þess vegna getað haldið út á ákveðnum dampi.
Fram til þessa hef ég verið mikill hrakfallabálkur og oft verið frá
um tíma vegna meiðsla,11 sagði Gunnar Andrésson, einn af fram-
tíðarleikmönnum landsliðsins íhandknattleik og sá leikmaður
sem mun koma til með að leika stórt hlutverk á næstu árum
sem leikstjórnandi. Gunnar, sem er fyrirliði 21 árs landsliðsins,
er nú á förum með landsliðinu til Austurríkis, þar sem það tek-
ur þátt í B-keppninni sem hefst á fimmtudaginn kemur.
Eftir
Sigmund Ó.
Steinarsson
Qunnar hefur tekið miklum
framförum í vetur og er hann
einn yngsti leikmaður landsliðsins,
en hann er aftur á
móti einn af eldri
leikmönnum Fram-
liðsins. „Það hefur
komið mér til góða
að ég lagði mikla áherslu á að auka
styrk minn síðastliðið sumar. Það
hefur skilað sér í auknum krafti og
meiri ánægju í því sem ég hef ver-
ið að fást við.“
Gunnar lék mjög vel með 21 árs
landsliðinu í heimsmeistarakeppni
21 árs liða f Aþenu, þar sem hann
var leikstjórnandi og besti leikmað-
ur íslenska liðsins, sem hafnaði í
fimmta sæti, en með smá heppni
hefði litið getað leikið til úrslita
gegn Júgóslövum. Eftir keppnina í
Aþenu valdi Þorbergur Aðalsteins-
son hann í landsliðshópinn og Gunn-
ar lék sinn fyrsta landsleik gegn
Rússum í vetur. „Auðvitað var það
stórt skref fram á við að vera val-
inn í landsliðið. Handknattleiks-
menn er alltaf að læra og við það
taka þeir eitt og eitt skref að settu
marki. Mér hefur fundist réttur
stígandi vera hjá mér allt frá því
að 21 árs landsliðið tók þátt í sterku
móti á Spáni í fyrra. Sá stutti tími
sem ég hef verið með landsliðinu
hefur verið mér dýrmætur og ég
hef lært geysilega mikið. Það var
stórkostlegt að fá tækifæri til að
leika með Kristjáni Arasyni í mótinu
í Austurríki á dögunum. Kristján
er frábær leikmaður og leiðtogi sem
nær því besta úr meðspilurum sín-
um hvetju sinni. Það var mikill
styrkur fyrir landsliðið þegar Krist-
ján gaf kost á sér í B-keppnina.“
„Þýðir ekkert að örvænta“
Að undanförnu hefur sá orðróm-
ur magnast að landsliðið sé ekki
líklegt til að gera stóra hluti í Aust-
urríki. Hvað segir Gunnar um þann
orðróm? „Það hefur enga þýðingu
að hlusta á hann, heldur láta hann
eins og vind um eyru þjóta. Það er
engin ástæða til að örvænta. Leik-
menn íslenska liðsins hafa yfir getu
og kunnáttu að ráða til að ná settu
Með annan
fótinnstyttri
Varð það til að Gunnars Andrés-
son valdi frekar handknattleikinn
en knattspyrnuna?
Gunnar Andrésson lék bæði með unglingalandsliðinu í knatt-
spyrnu og handknattleik þegar hann var 16 ára og var
þá aðeins spurning hvaða íþrótt hann myndi velja.
„Gunnar var mjög efnilegur knattspyrnumaður og mikill
markaskorari. Hann var metnaðarfullur og varð að velja á
milii knattspymunnar og handknattleiksins. Ég var viss um
að hann myndi ná langt i þeirri iþróttagrein sem hann myndi velja,“
sagði Láms Loftsson, sem þjálfaði Gunnar Andrésson i drengja-
landsliðinu í knattspyrnu, en Gunnar lék sex drengjalandsleiki á
Norðurlandamóti og í Evrópukeppni og skoraði eitt mark.
„Það var mikil pressa á mér frá báðum hliðum, en ég ákvað að
velja handknattleikinn. Fannst hann meira spennandi," sagði Gunn-
ar, sem lagði knattspymuskóna á hilluna á seinna ári sinu í 2. flokki,
en hann hafði átt við þráláta verki að striða í baki og nára. „Ég
hafði farið til margra lækna, sem fundu ekki út hvað angraði mig.
Mér var sagt að ég þyldi knattspyrnuna verr en handknattleik og
var ráðlagt að hvíla mig á knattspyrnunni. Það var svo Siguijón
Sigurðsson, læknir landsliðsins t knattspyrnu, sem sá hvað var að.
Hann sá að annar fótleggurinn var styttri og lét mig fá innlegg í
annan skóinn. Þar sem fóturinn var tveimur sentimetrum styttri tók
það um eitt og hálft ár að rétta skekkjuna af. Það getur vel verið
að þetta hafi átt stóran þátt t að ég valdi handknaltleikinn frekar
en knattspyrnuna," sagði Gunnar.
Andrésson í leik með
Fram.
marki. Persónulega tel ég að ís-
lenska liðið eigi að klára dæmið
léttilega í Austurríki. Við verðum
að hafa það hugfast að taka einn
leik fyrir í einu, en ekki að hugsa
of mikið um heildarrammann eða
eitt ákveðið sæti. Við verðum að
leika okkar leiki eins og við getum
best - og gefa allt sem við eigum
í hvern leik frá upphafi til enda.
Þannig gekk það í B-keppninni t
Frakklandi og góður andi innan
landsliðsins á aftur að geta borið
ávöxt.“
Strákarnir eiga ad klára dæmið
- segir Hilmar Björnsson, fyrrum landsliðsþjálfari í handknattleik
að er ekkert sem segir að við
eigum ekki að vera í tveimur
fyrstu sætunum í B-keppninni í
Austurríki," segir Hilmar Björnsson,
fyrrum landsliðsþjálfari, sem stjórn-
aði tslenska liðinu í tveimur B-keppn-
um - 1981 í Frakklandi og 1983 í
Hollandi. „Grunnurinn í okkar liði
er skipaður leikmönnum úr tveimur
stðustu heimsmeistarakeppnum 21
árs landsliða, þar sem ísland hefur
verið I fimmta sæti t bæði skiptin.
Þá eru margir gamalreyndir leik-
menn í hópnum þannig að forsendur
til að klára verfefnið t Austurríki eru
til staðar hvað leikmenn snertir. Það
er aðeins spurningin um það að leik-
mennirnir taki málin föstum tökum
og klári dærnið," sagði Hilmar.
Þær raddir hafa verið á lofti upp
á sfðkastið að mótherjar Islendinga
síðustu daga hafi ekki verið nægilega
sterkir. Hvað segir Hilmar um það?
„Ég hef heyrt það svo oft t gegnum
árin að það skipti einhverju máli við
hverja sé leikið. Ef leikið hefur verið
gegn sterkum þjóðum og tapað
þremur leikjum t röð, sögðu menn:
„Hvers vegna vorum við að leika
gegn sterkum þjóðum og tapa þann-
ig að leikmennirnir hafa misst sjálfs-
traustið?“ Og þegar er leikið gegn
þjóðum sem eru í aðeins lakari gæða-
flokki en við er sagt. að það hafi
enga þýðingu að leika gegn lélegum
þjóðum. Ég hef aldrei fundið út
hvaða þjóðir hefðu þá hentað okkur
best. Það fer eftir árangrinum í
leikjunum hvernig litið er á málið.
Þessar umræður aru oftast til-
finningalegt kjaftæði, sem skiptir
nákvæmlega engu máli. Það skiptir
engu máli hvort landsliðið vinni tíu
leiki fyrir B-keppni, eða tapar tíu
leikjum. Það sem skiptir máli eru
þessar sextíu mínútur í hveijum leik
í B-keppninni. Það getur eingöngu
skemmt fyrir ef menn ætla að vera
að tuða um það fram og til baka við
hverja var verið að keppa fyrir
keppnina.
Málið snýst einfaldlega um það
að snúa sér að verkefninu sem fram-
undan er af fullum krafti. Líta á
hvern leik fyrir sig eins og hand-
knattleik eins og hann er og vera
ekki að flækja málið meira. Kunnátt-
an er fyrir hendi og menn verða að
nýta sér hana til að klára dæmið."
„Ekkert sem verður
nýtt fyrir okkur"
ísland leikur fyrst gegn Hollandi
og hafa margir rætt um að Hollend-
ingar verði erfiðir. íslendingar hafa
oft leikið gegn Hollendingum í B-
keppni og unnið þá léttilega. Sér
Hilmar einhveijar breytingar þar á?
„Nei, Hollendingar hafa ekkert
breyst. Allar þær þjóðir sem við kom-
um til með að leika gegn ! Austur-
ríki eru ekki með eins öflugt ungling-
astarf og við. íslenska 21 árs
landsliðið hefur verið fremra þeim
öllum og flestar þeirra hafa ekki átt
lið í HM 21 árs liða. Þjóðirnar hafa
ekki eignast toppspilara undanfarin
ár. Það er ekkert sem verður nýtt
fyrir okkur og það á ekkeit að koma
okkur á óvart. Þjóðirnar tefla fram
sömu leikmönnum og undanfarin ár
og það eru engar stórhetjur í
landsliðum þeirra.
Þetta verður bara handknattleikur
og hann fer fram á vellinum þegar
flautað er til leiks. Þá er spurning
um dagsform og samstöðu innan liðs-
ins. Það getur alltaf komið bakslag
en það er til að herða liðið en ekki
til að draga liðið niður í eitthvað
neikvætt," sagði Hilmar, sem sagði
að það væri ekki í hlutverki íslend-
inga að vera hræddir. „Norðmenn,
Danir og Pólvetjar eiga ekki að vera
neinar stórar hindranir. Ef svo yerð-
ur hafa þeir eflst rosalega á stuttum
tíma. Það eru þeir sem eiga að vera
hræddir við Islendinga. Auðvitað
getur komið fyrir að tslenska liðið
tapi, en það á ekki að skapa ein-
hveija minnimáttarkennd fyrirfram.
íslendingar eiga að bera höfuðið
hátt þegar þeir mæta í Austurríki,"
sagði Hilmar Björnsson.
Hilmar Björnsson.