Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992 39 Þróun textavarpsins er í höndum notenda Geir Magnússon hefur starfað við textavarpið frá upphafi og Anna Hreinsdóttir hóf störf skömmu síðar. Rúmlega 200 síður með ýmsum upplýsingum eru sendar út daglega. Skjámynd dagbókar textavarpsins. Fréttayfirlitið og úrslit í íþróttum er vinsælasta efnið í textavarpi Sjónvarpsins enn sem komið er í TEXTAVARPI Sjónvarpsins eru sífellt að bætast við upplýs- ingar og munu milli 220 og 230 síður vera sendar út daglega. Nýlega var byijað að senda út Dagbók sem inniheldur ýmiss konar upplýsingar um opnun- artíma opinberra staða, neyð- arsíma og fleiri slíkar upplýs- ingar. Auk þess er hægt að fá upplýsingar fram í tímann um flóð, fjöru og sólargang miðað við ýmsa staði á landinu. Sam- kvæmt upplýsingum Geirs Magnússonar og Önnu Hinriks- dóttur, starfsmanna texta- varpsins, var gerð könnun í október sl. þar sem fram kom að tæpiega 18% landsmanna gátu notfært sér textavarpið, 65% höfðu ekki búnað til þess í tækjum sínum og 17% vissu ekki hvort þeir hefðu mögu- leika á að ná þessum upplýsing- um. „Til þess að geta notfært sér textavarpið," sagði Geir, „verður að vera móttökubúnaður í sjón- varpstækinu. Þessi búnaður var ekki fyrir hendi í gömlu tækjun- um, en flestir söluaðilar bjóða nú slík tæki.“ Hann bendir á að margir hafi keypt sér nýtt sjón- varpstæki, þegar farið var að hefja litaútsendingar og því sé komið að því að fólk fari að end- urnýja hjá sér tækin. „Við viljum benda fólki á að kanna hvort slík- ur búnaður sé fyrir hendi og hvort hann geti tekið við íslenskum stöf- um. Eins og eflaust margir muna voru þeir byijunarörðugleikar í sambandi við móttöku textavarps- ins að tækin gátu ekki numið ís- lensku stafina. Hins vegar hafa flestir innflytjendur sjónvarpa gert ráðstafanir til að hægt sé að fá textavarpið óbrenglað. Það er aðeins einn stafur núna sem sjónvarpið getur ekki framkallað ogþað er ý, en í staðinn birtist y.“ I textavarpinu greiða viðkom- andi aðilar ekki fyrir að fá birtar upplýsingar. Aftur á móti er stefnt að því í framtíðinni að fast- eignaauglýsingar, bíó, lukkusíður og fleiri slíkar auglýsingar standi að einhveiju leyti straum af texta- varpinu. Fréttayfirlitið og úrslit í leikjum mikið notað í textavarpinu er meðal annars að finna upplýsingar um gengi gjaldmiðla, dráttarvexti, vísitölur, ýmislegt varðandi heyrnarlausa, s.s opnunartíma skrifstofu, dag- skrá félagsins og fleira. Einnig er hægt að fletta upp á hvaða myndlistarsýningar eru í gangi, dagatal þessa mánaðar og næsta á eftir og þannig má lengi telja. Aðspurð hvort þau haldi að þessi þjónusta sé almennt notuð, svara þau að fólk virðist vera að byija að læra á textavarpið. „Ég held að margir noti til dæmis fréttayfírlitið ef það missir af kvöldfréttunum," sagði Anna. „Fréttimar em uppfærðar tvisvar á dag eftir hádegis- og kvöldfrétt- ir og er þá stuðst bæði við útvarp og sjónvarp. Við birtum yfirleitt úrslit í íþróttum hér innanlands og þær upplýsingar era einnig mikið notaðar. Þá birtum við einn- ig úrslit enska, ítalska og þýska fótboltans og NBA-körfuboltans. Við höfum orðið vör við mikinn áhuga á NBA-boltanum.“ Geir segir að í framtíðinni sé stefnt að því að vera með upplýs- ingar um komu- og brottfarartíma flugvéla, en nú sé einungis að finna áætlanir innanlandsflugs, feija og strætisvagna í Reykjavík og Kópavogi. „Um síðustu helgi hófum við að birta upplýsingar um færð á vegum. Þetta eru fjór- ar leiðir sem eru uppfærðar á eins til tveggja tíma fresti eftir upplýs- ingum frá Vegagerðinni. Vonandi verður textavarpið mjög fljótlega beintengt gagnabanka Vegagerð- arinnar, þannig að þá verður um samtímauppfærslu að ræða á báð- um stöðum ásamt því að fleiri leiðir bætast við. í nánustu framtíð munum við halda áfram að bæta inn upplýs- ingum í dagbókina, en því næst erum við með hugmyndir að ein- hvers konar unglinga- og barna- síðum. Þar væri hægt að birta dagskrá félagsmiðstöðva, alls kyns þrautir og heilabrot, kross- gátu þar sem leitað er að földum orðum og skrýtlur sem krakkarn- ir gætu sent inn. Við tökum gjarn- an við alls kyns uppástungum, því þróunin er að hluta til í höndum notendanna," sagði Anna Hreins- dóttir. 9.00 Stundargaman. umsjon Punður Sigurðar- dóttir. 10.00 Við vinnuna með Guðmundi Benediktssyni. 12.00 Fréttir og réttir. Jón Asgeirsson og Þuríður Sigurðardóttir. 13.00 Við vinnuna. Guðmundur Benediktsson. 14.00 Svœðisútvarp. Umsjón Eria Fríðgeirsdóttir. 15.00 i katfi með Ólafi Þórðarsyni. Kl. 15.15. Stjömuspeki með Gunnlaugi Guðmundssyni. 16.00 Á utleið. Erla Friðgeirsdóttir. 11.00 íslendingafélagið. Umsjón Jón Ásgeirsson. 19.00 Lunga unga fólksins. Umsjón Jóhannes Krist- jánsson og Böðvar Bergsson. 21.00 Undir yfirborðinu. 22.00 Blár mánudagur. Umsjón PéturTyrfingsson. STJARNAN FM 102,2 7.00 Morgunþáttur. Erlingur og Óskar. 9.00 Jódís Konréðsdóttir. 13.00 Ásgeir Páll. 17.00 Ólafur Haukur 19.05 Ævintýraferð i Odyssey. 19.35 Vinsældalisti, 20 efstu sætin. 20.35 Richard Perinchief prédikar. 21.05 Vinsældalistinn ... framhald. 22.05 Fræðsluþáttur um fjölskylduna. Umsjón: dr. James Dobson. 24-00 Dagskrárlok. Bænastund kl. 9.30, 13.30, 17.30, 22,45 og 23.50. Bænalínan s. 675320. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Morgunutvarp Bylgjunnar. Eiríkur Jónsson og Guðrún Þóra og Steinunn ráðagóða. Fréttir kl. 7.00 og 8.00. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30. 9.00 Anna Björk Birgisdóttir. Hlustendalina er 671111. Mannamál kl. 10 og 11, fréttapakki i umsjón Steingrims Ólafssonar og Eiriks Jónsson- ' ar. Kvikmyndapistill kl. 11.30 í umsjón Páls Ósk- ars Hjálmtýssonar. Fréttir kl. 9.00 og 12.00. 13.00 Sigurður Ragnarsson. íþróttafréttir kl. 13.00. Mannamál kl. 14. 16.00 Reykjavík siðdegis. HallgrimurThorsteinsson og SteingrimurÓlafsson. Mannamál kl. 16. Frétt- ir kl. 17 og 18. 18.05 Landsíminn. Bjarni Dagur Jónsson. 19.00 Flóamarkaður Bylgjunnar. Simi 671111, myndriti 680064. 19.19 Fréttir. 20.00 Kristófer Helgason. 23.00 Kvöldsögur. Umsjón Eirikur Jónsson. 24.00 Nætutvaktin. EFFEMM FM 95,7 7.00 i morgunsárið. Sverrir Hreiðarsson. 9.00 Morgunþáttur. Ágúst Héðinsson. 12.00 Hádegisfréttir. 12.10 Valdís Gunnarsdóttir, Tónlist og getraunir. 15.00 ivar Guðmundsson. Stafaruglið. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Gullsafnið. Ragnar Bjarnason. 19.00 Halldór Backman. Kvöldmatartónlistin. 22.00 Ragnar Már Vilhjálmsson. 1.05 Haraldur Jóhannsson. 5.00 Náttfari. HUÓÐBYLGJAN Akureyri FM 101,8 17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson. Tekið á móti óskalögum og afmæliskveðjum í síma 2771 1. Fréttirfrá fréttastofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl, 18.00. SÓLIN FM 100,6- 7.00 Jóna De Grud og.Haraldur Kristjánsson. 10.00 Bjartur dagur. 12.00 Karl Lúðvíksson. 16.00 Síðdegislestin. 19.00 Hvað er að gerast? 21.00 Hallgrimur Kristinsson. ÚTRÁS FM 97,7 16.00 Iðnskólinn i Reykjavik. 18.00 FB. 20.00 Kvennaskólinn. 22.00 Úr iðrum. Urnsjón Halldór Harðarson, Kristján Eggertsson og Kristján Guy Burgess. 1.00 Dagskráriok. Gárur eftir Elínu Pálmadóttur Feimnis- málið fískur Hafið þið póstkort? Jú, þarna voru þau á mörgum statíf- um. Ekkert smáræðis úrval: lit- fagrar myndir af sól, ttjám, hest- um, fossum, hverum, húsinu sem Reagan og Gorbatsjov hittust í meðan þeir voru og hétu...Ætti ekki að vera mikill vandi að velja. En - þarna var ekkert kort brúk- legt. Ekkert til að senda vini í útlöndum með þakklæti fyrir ómetanlegan greiéa. Sú kveðja átti nefnilega að minna á fisk, helst þorsk. Ef ekki þá bara ís- lenskt fiskiþorp, báta að veiða, fiskimenn, konur í físki, kveðja frá fískveiðilandinu íslandi. Eftir að hafa snúið öllum statívunum í marga hringi var ekki um að villast. Hann Paul Adam verð- ur að fá kort með sel. Það kemst næst því að minna á fisk. Sel- urinn étur fisk. Þessum ágæta viðtakanda þakk- arkortsins hafði runnið svo til rilja að undir- stöðurit Du Rins frá 1935 um físk- veiðar franskra flandrara við ís- land í 300 ár, Historique de la Peche Dunkerqu- oise a la Morue, væri ekki til í þessu landi þorskveiðanna að hann lét taka afrit af þessum tveimur bindum upp á 600-700 síður hvort og sendi undirritaðri að gjöf. Hafði frétt að vesalingur minn hefði þurft að sitja löngum stundum í frönskum söfnum til að lesa bækumár og skrifa upp úr þeim, þar sem þær eru svo fágætar orðnar að ekki mátti taka afrit. Mikið af upplaginu hefur líklega horfið í stríðinu þegar 80% af Dunkirqueborg var eyðilögð. Paul Adam er hagfræð- ingur, sjálfur frá Dunkirque, og var lengi yfírmaður fiski- og landbúnaðardeildar OECD, svo ekkert virtist meira viðeigandi en senda honum þakkarkort með mynd af íslenskum fískveiðum eða físki. Þessi sami hagfræðing- ur hafði sagt í erindi fyrir margt löngu að ein ástæðan fyrir því að tókst fyrr á öldinni að gera norðurströnd Frakklands að þessum eftirsótta ferðamanna- stað hafí einmitt verið fiskimenn- irnir og bátarnir í litlu bæjunum, sem fyrstu baðstranda- og sumarleyfisgestirnir sendu af rómantískar myndir út um allt. Þótt fiskimennirnir væru á fjar- lægum miðum gátu baðstranda- gestirnir a.m.k. horft á gömlu sjómennina og bátana. En frá íslandi verður að nægja selakort. Ekkert kort af fiskveiðum. Ætli fiskur sé annars feimnis- mál á íslandi? Einu sinni var haft fyrir satt að lífið á þessari eyju væri saltfiskur, nú kannski frosinn fiskur. Tekjur sjávarút- vegs era víst 80% í vöraútflutn- ingi landsins. Við erum bara ekk- ert að flíka því. Lítum á hinn nýja miðil kvikmyndirnar. Varla verður sagt að fískur og líf í fiski hafi fram að þessu stáðið hjarta kvikmyndagerðarfólks sérlega nærri. Hin ágæta mynd Ásdísar Thoroddsen um hana Inguló og verbúðarlífið við saltan sjó, sem nú er komin út á 12. kvikmynda- vorinu á Islandi, er sú eina sem ég man eftir síðan Svíar voru að filma pena Sölku Völku hér suður með sjó fyrir 40 áram, utan skemmtilega grínmyndin hans Þráins úr Eyjum. Draugar virð- ast standa íslensku hjarta kvik- myndafólks nær. Líklega okkur öllum. í hvaða mæli vilja íslendingar annars lifa á og vinna í fiski, ef þeir mega velja? Er það óska- starfið? Ekki laust við að umræð- an falli stundum í þá veru að það sé neyðarúrræði. Talað um að konur flytji á suðvesturhomið af því að þær vilji ekki vinna í fiski og enga aðra vinnu að hafa heima. Efnt til þinga og funda til að finna eitthvað annað. Haft fyrir satt að sjómannslífið sé svoddan eymdartilvera að um- buna þurfi sjómönnum, þeim sem þræða á krókana, líta eftir smíð- um fiskiskipa eða bara rannsaka fiskistofna með skattaafslætti o.s.fi’v. Líklega er bara ekkert vinsælt að vera í físki. Vantar um 2.000 manns upp á innlendan vinnukraft í það. Um leið er kvartað undan þvi að frystitogar- ar taki þessa vinnu og ekki má nefna að færa saman vinnuna með minnkandi afla og láta færri skip landa honum á færri stöðum. Það eru þrátt fyrir allt mannrétt- indi að fískvinna standi til boða hvar sem er og hvenær sem er. Með minnkandi atvinnu kemur væntanlega í ljós í hve ríkum mæli fólk sættir sig í raun við að lifa á fiskvinnu. Og hvar fólk vill vinna hana. Vinnukraftur á íslandi var áður ávallt færanleg- ur, menn sóttu í verið og í kaupa- vinnu. Nú hefur verið tekin sú opinbera afstaða með lögum og reglugerðum að enginn eigi að þurfa að sækja vinnu annað en hann óskar. Gagnvart atvinnu- leysisbótum er fólki gert að flytja sig milli starfa eftir nokkurn tíma, fáist ekki óskastarfið. En það þarf ekki að taka vinnu ann- ars staðar og flytja sig um set. Þetta er nú stefnan í landinu. Er þetta fyrsta skrefið? Að vita hvar og hvemig fólkið vill vinna? Kannski er tækifærið einmitt nú til þess að gera könnun á hvar fólk vill vinna í fiski og hafa til hliðsjónar þegar upp rennur sú stund að fækka verður skipum og fiskvinnsluhúsum í landinu ef fiskarnir eru ekki lengur til skipt- anna í svo marga staði. Er það ekki eins góður grandvöllur og hvað annað, að fólkið í landinu fái sjálft að ráða lífi sínu? Er ekki vinnan fyrir manninn betri kostur en maðurinn fyrir vinn- una? Quo vadis? þótti einu sinni gott spakmæli. Hvert eram við annars að fara? Hver velur veg- inn á krossgötunum? Veit það nokkur?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.