Morgunblaðið - 15.03.1992, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 15.03.1992, Qupperneq 40
Bögglapóstur um allt lund PÓSTUR OG SlMI Landsbanki íslands MORGUNBLADID. ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 091100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1005 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTÍ 85 SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Dansskóli í Breiðholti: Grimmd- arfrost um allt land Ráðist með hnúajámum á starfsmann HÓPUR ungmenna vopnaður hnúajárnum ruddist inn í dans- skóla í Breiðholti seint á föstu- dagskvöld og veittist þar að starfsmanni Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar í Drafnarfelli. Hann var fluttur á slysadeild. FVrr um daginn kom upp eldur í ísbúð í sama húsi og dansskólinn er í. Ekki er vitað um ástæður þess að unglingarnir létu svo ófriðlega en íjöirnennt lögreglulið dreif á stað- inn. I Drafnarfelli er lögreglustöð sem þjónar Breiðholtshverfunum og fengu lögregluþjónar þar liðsauka af aðalstöð til að kveða niður ólætin. DREKKHLAÐINN A SUNDUNUM Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um kvótakerfið: Almennmgshlutafélög ef kvóti fer yfir ákveðið mark Settar yrðu reglur um eignaraðild einstaklinga að slíkurn fyrirtækjum ÞORSTEINN Pálsson sjávarút- vegsráðherra sagði á ráðstefnu um framtíð sjávarútvegs sem nemendur Háskólans á Akureyri stóðu fyrir í gær, að nauðsynlegt geti verið að selja um það skýrar reglur að fyrirtæki sem ráði afla- heimildum yfir tilteknu marki séu rekin sem opin almennings- hlutafélög. í útvarpsfréttum í gær var ennfremur haft eftir ráðherranum að jafnframt yrðu settar reglur um að einstaklingar mættu ekki eiga of mikinn hluta í þeim. I ræðu sinni sagði Þorsteinn Páls- 30fi orðrétt: „Menn hafa haft af því áhyggjur að aflamarkskerfið geti leitt til þess að. eignarhald í sjávar- útvegi færist í hendur færri manna en áður og leiði þannig til óeðlilegr- ar samþjöppunar valds í þjóðfélag- inu. Það er vissulega ástæða til að huga að atriðum eins og þessu. Ég hef því nokkrum sinnum bent á að nauðsynlegt geti verið að setja um það skýrar reglur að fyrirtæki sem ráði aflaheimildum yfír tilteknu marki séu rekin sem opin almenn- ingshlutafélög. Þá mætti einnig búa þriðja þrep aflamarksheimilda par sem kvaðir um dreifða eignar- aðild yrðu gerðar. Með þessum hætti má tryggja eðlilega eigna- dreifingu og valddreifingu í sjávar- útvegi." Þorsteinn sagði ennfremur: „Þjóðin á þessa auðlind. Og um það verður ekki deilt að útveginum ber að greiða í sameiginlega sjóði fólks- ins í landinu þegar atvinnufyrir- tækjunum hefur verið tryggð eðli- leg arðsemi. Hvenær menn ná því marki vitum við ekki en ég hef bæði í gamni og alvöru sagt að óumdeilt hljóti að vera að markinu sé náð þegar útvegurinn hefur eign- ast meirihluta í þjónustufyrirtækj- um eins og Morgunblaðinu og Eim- skip,“ sagði sjávarútvegsráðherra. Þá vék Þorsteinn Pálsson að framleiðniaukningu í sjávarútvegi. „Fyrir þá sök starfa nú færri í at- vinnugreininni en áður. Því er það að einvörðungu 13 hundraðshlutar þjóðarinnar vinna nú við sjávarút- veg, atvinnugrein sem stendur und- ir 80% af gjaldeyristekjum fyrir vöruútflutning landsmanna. Lýðskrumarar sem höfða til hinna 87 hundraðshluta þjóðarinnar tala gjarnan með óvirðingu um fulltrúa þröngra sérhagsmuna þegar for- ystumenn sjávarútvegs hafa kvatt sér hljóðs til þess að ræða um mál- efni atvinnugreinarinnar. Vitaskuld snúast öll þessi mál um hagsmuni. En á hagsmuni hverra hefur verið hallað? Því þarf að svara með rökum en ekki tilfinningum. Ef menn hefðu ekki annað við að styðjast en áróð- ursskrif Morgunblaðsins væri nær- tækast að ætla að sjávarútvegurinn hefði um langan tíma verið afæta á hinum sem stunda þjónustustörfin í þjóðfélaginu.“ GRIMMDARFROST var um allt land í gærmorgun og fyrrinótt. Klukkan 9 í gærmorgun var frostið víða 12-16 stig við strend- ur landsins og enn meira í inn- sveitum, til dæmis 18 stig á Grímsstöðum á Fjöllum og Egils- stöðum og 24 stig á Hveravöllum. í Reykjavík var 13 stiga frost í gærmorgun. Svalt var alla vik- una en hitaveitustjóri segir að álag á kerfi Hitaveitu Reykjavík- ur hafi ekki verið jafn mikið og við hefði mátt búast. Markús Á. Einarsson veðurfræð- ingur sagði í gærmorgun að dagur- inn væri einn kaldasti ef ekki kald- asti dagur vetrarins. Gunnar Kristinsson hitaveitu- stjóri sagði að álag á kerfi Hitaveit- unnar væri full lítið miðað við hita- stig og hefði verið svo alla vikuna. Taldi hann að sólin væri farin að hafa sín áhrif og lítill vindur. Sagði Gunnar að rekstur veitunnar hefði gengið vel þessa daga, engin vand- ræði hefðu skapast. Hins vegar hefði hann orðið fyrir smávonbrigð- um í gærmorgun með hvað lítið seldist af vatni, hann hefði átt von á meira álagi í þessu mikla frosti. Verðmæti loðnuafurðanna gæti orðið 5,5 milljarðar Hilmir SU aflahæsta loðnuskipid LOÐNUKVÓTI íslenskra skipa er 751 þúsund tonn á yfirstand- andi vertíð. Úr þessu magni væri hægt að framleiða um 127.500 tonn af nyöli og um 60 þúsund tonn af Iýsi, miðað við að fituinni- hald loðnunnar sé að meðaltali 8% á vertíðinni en það er nú kom- ið niður í 6%. Verðmæti loðnuafurða héðan gæti því orðið 5,5 milljarðar króna á þessari vertíð, þar af rúmir 4,3 milijarðar fyrir mjöl og tæpir 1,2 milljarðar fyrir lýsi. Nú fást 320-325 sterlingspund, eða 33.200-33.700 krónur, fyrir tonnið af mjöli og 330 Bandaríkjadalir, eða 19.400 krónur, fyrir tonnið af lýsi. Hráefnisverð loðnu hérlendis er 3.400-3.800 krónur fyrir tonnið. Nú eru allar geymslur hér að fyllast af mjöli, að sögn Jóns 01- afssonar, framkvæmdastjóra Fé- lags íslenskra fiskimjölsframleið- enda. Á hádegi á föstudag var Hilm- ir SU aflahæsta loðnuskipið á vertíðinni með 24.113 tonn. Börkur NK var hins vegar með 22.836 tonn en Hólmaborg SU 21.564 tonn og Helga II RE 20.133 tonn. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru þau skip, sem hafa fengið mest- an loðnukvóta úthlutaðan á þessari vertíð Hilmir SU með 32.886 tonn, Björg Jónsdóttir ÞH 27.769 tonn, Örn KE 26.926 tonn, Helga II RE 26.731 tonn, Sunnuberg GK 23.038 tonn, Háberg GK 21.297 tonn, Harpa RE 21.230 tonn, Keflvíking- ur KE 20.714 tonn og Hólmaborg SU 20.654 tonn. Börkur NK hefur hins vegar fengið mestan loðnukvóta frá öðr- um skipum, eða 15.953 tonn, en Víkingur AK hefur fengið 13.161 tonn frá öðrum skipum, Höfrung- ur AK 12.981 tonn, Hólmaborg SU 7.584 tonn, Hákon ÞH 6.065 tonn en Sigurður RE og Guðmundur VE 6.020 tonn. 23 skip hafa fengið loðnukvóta frá öðrum skipum á vertíðinni en loðnukvóti hefur verið færður af 12 skipum. Af Ásborgu EA hefur verið fært 13.161 tonn, Beiti NK 14.753 tonn Pétri Jónssyni RE 14.420 tonn, Jóni Finnssyni RE 13.161 tonn, Rauðsey AK 12.981 tonn og Heimaey VE 12.679 tonn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.