Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 1
ÞAÐ LIGGUR
Í EYRUM ^
SUNNUDAGUR
15. MARZ 1992
SUWNUDAGUR
jHarflitiiftltiftift
BLAÐ
ERU
TÍM,
YÖÐ
eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
SKÖMMU eftir að fyrri heimsstyrjöld-
inni lauk spósséraði fimm ára göm-
ul telpa eftir Tjarnargötunni í Reykja-
vík og var svo fín, í fallegri Ijós-
blárri kápu með hatt og sólhlíf í
sama lit, að
AGRJP drengur þremur
AF SOQU árum eldri varð
GUÐRÚNAR fyst skotinn í
LAXDAL henni. Það var
^^mmmmmm^mmmm^ kannski von að
eftir þessari stúlku væri tekið, hún
var einkabarn tónskáldsins Jóns Lax-
dals, sem jafnframt var vellauðugur
stórkaupmaður í Reykjavík og þá
nýlátinnar konu hans Elínar, dóttur
þjóðskáldsins Matthíasar Joch-
umssonar. Litli móðurleysinginn Guð-
rún Laxdal, sem sveiflaði glaðlega
sólhlífinni sinni þennan löngu liðna
sumardag, hefur ekki alltaf verið í
brýnni þörf fyrir sólhlíf á lífsleiðinni.
Þar hafa skipst á skin og skúrir,
rétt eins og hjá okkur hinum. En
það er mál manna að hún hafi stað-
ið af sér hretviðri lífsins með þeirri
reisn sem samboðin er gáfaðri og
velættaðri konu.