Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 23

Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 23
I MORGUNBLAÐIÐ FOLK I í FRÉTTUIU! I XJO=i amM8MU#) SUNNUDÁGUR 15. MARZ 1992 HLJÓMS VEITARSTJ ÓRN Gunnsteinn Ólafsson dæmdur til að leita fyrir sér í útlöndum Anna Bjarnadóttir GUNNSTEINN ÓLAFSSON lýk- ur prófi í hljómsveitarstjórn frá tónlistarháskólanum i Freiburg í Þýskalandi í vor. Aðalprófverk- efni hans var stjórn á flutningi óperunnar Orfeus og Evridís eft- ir Christoph Willibald Gluck á tónlcikum í Freiburg 15. febr- úar. Biönduð hljómsveit nem- enda úr háskólanum og tónlistar- háskólanum, Madrfgalkórinn í Freiburg og þrír einsöngvarar tóku þátt í flutningnum. Tónleik- arnir voru haldnir í 700 manna sal og voru svo vel sóttir að margir þurftu frá að hverfa. „Tónleikarnir gengu einstaklega vel,“ sagði Gunnsteinn. „Áheyr- endur hrifust af tónlistinni. Það er heiður að hafa náð til þeirra." Hlustendur fögnuðu flutningn- um innilega og gagnrýnin í Bad- ische Zeitung var jákvæð. Þar er Gunnsteini hælt fyrir lipra og örugga stjórn og sagt að það sé athyglisvert hversu skýrum og magnþrungnum tónlistarflutn- ingi hann náði fram á köflum hjá hljómlistarmönnunum. Gunnsteini fannst ég nokkuð nærgöngul þegar ég spurði hvort það leyndist „showdirigent" í honum. Við höfðum rætt um hljómsveitarstjóra sem hafa náð langt undanfarið og hann hélt því fram að það væru svokallaðir „showdirigentar11 sem næðu lengst. Þeir höfðuðu til áheyrenda með líf- legri framkomu á tónleikum og væru reiðubúnir að taka þátt í aug- lýsingastarfsemi plötufyrirtækja. „Plötuútgáfa er gífurlegur iðnað- ur,“ sagði hann. „Tónleikar eru jafnvel haldnir til að hægt sé að selja piötur og tónlistin hefur fjar- lægst tónlistarsalinn.“ Hann fór að ganga um gólf og talaði sig upp í hita. „En það jafnast ekkert á við hljómleika. Þá ræður augnablikið. Það er ekki hægt að ná stemmning- unni sem myndast á hljómleikum í upptöku. Þar ræður tæknin. Á hljómleikum losnar einhver spenna úr böndum sem er erfitt að skil- greina. Hljómsveitarstjórinn verður að vera fijáls svo tónlistin njóti sín. Ef hann er ekki frjáls þá blómgast tónlistin ekki. Ég reyni að vera ftjáls þegar ég stjórna,“ og hann hreyfði handleggina tígulega. „Ég reyni að njóta augnabliksins." Gunnsteinn sagðist þrisvar hafa byijað á nýjum verkefnum á núll punkti og unnið. að þeim í fjögur ár eða þangað til hann náði þeim þroska sem honum fannst hann geta með þeim. Hann tók við kór Menntaskólans í Kópavogi 17 ára gamall og kórinn óx og dafnaði undir hans stjórn þangað til hann fór til Ungveijalands 1983. Það var lítið gert úr undirstöðunni sem hann hafði úr Tónlistarskólanum í Reykjavík þegar hann kom þangað einn og mállaus. En hann stóðst inntökupróf í tónlistarháskólann eftir tveggja ára dvöl og er ánægð- ur með menntunina sem hann hlaut þar. Hann ætlaði að halda tón- smíðanámi áfram vestan járntjalds 1987 en málin æxluðust svo að hann lagði tónsmíðar á hilluna í Fréiburg og einbeitti sér að hljóm- sveitarstjórn. „Það myndaðist strax mjög gott og náið 'samband á milli mín og Peters Baberkoffs, kennarans míns í hljómsveitarstjórn," sagði Gunn- steinn. „Og það rann upp fyrir mér að það á betur við mig að standa og stjóma tónlistarflutningi en að semja eigin tónlist." Hann tók við Freiburger Kammerensemble, hljómsveitinni sem hann stjórnaði á próftónleikunum, 1989. Hún var þá ekkert til að státa sig af en sveit- inni hefur vaxið fiskur um hiygg og nú leika 40 manns í henni. „Eg hef sjálfur lært óhemju mikið af Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir „Heimur hþ'ómlistarinnar miðast ekki við suðvesturhorn íslands svo ég mun fyrst í stað leita fyrir mér annars staðar,“ sagði Gunnsteinn Ólafsson sem lýkur prófi í hljómsveitarstjórn frá tónlistarháskólanum í Freiburg í vor. starfinu með henni,“ sagði Gunn- steinn. „Léleg hljómsveit þarf meiri stuðning en góð hljómsveit. Ég lét hana spila mikið af verkum eftir Haydn. Hann mótaði sinfóníuna sem tónverk og besta leiðin til að ala upp hljómsveit er að fást við verk eftir hann.“ Gunnsteinn ætlar að halda áfram með hljómsveitina fram á vor og sjá hvað setur. „Ég stend enn einu sinni á núllpunkti,“ sagði hann. „Heimur hljómlistarinnar miðast ekki við suð-vesturhorn íslands svo ég mun fyrst í stað leita fyrir mér annars staðar. Sinfóníuhljómsveit íslands hefur slitið barnsskónum og maður getur ekki vænst þess að fá að taka út þroska hjá henni. Hún getur ekki gert alla sem hafa lokið prófi úti í heimi að aðalhljóm- sveitarstjórum. Þeir sem fara í þetta nám eru því næstum dæmdir til að búa í útlöndum og reyna að komast þar áfram. í Þýskalandi tíðkast að ungir hljómsveitarstjórar starfi í óperuhúsum og spili undir á píanó á æfingum. Þannig öðlast hljóm- sveitarstjórinn mikilvæga reynslu. Þessi leið hefur því miður ekki ver- ið farin hjá íslensku óperunni. Það er enginn fæddur stjórnandi en með því að leyfa ungum stjórnendum að leika undir á æfíngum þá gæti Óperan alið upp nýja stjórnendur. - Ég mun sækja um störf við leik- hús og óperur í Evrópu og taka því sem býðst. Nú er mest undir því komið að vera réttur maður á rétt- um stað.“ kuÍÚhmbúw 51866 Gengi mars ’92 A® ÞVOTTAVELAR UPPÞVOTTAVÉLAR KÆLI- 0G FRYSTISKÁPAR 20 þvottakerfi td. sparnaðarkerfi, hrað- kerfi, ullarkerfi o.s.frv. - Tromla úr ryð- fríu stáli - Taka inn heitt og kalt vatn. Hæð 85 cm - Breidd 59.5 cm Dýpt 56.3cm. Gerð 7822 - Verð 56.772 stgr. 12 m. matarstell - 3 þvottakerfi Hæð 85 cm - Breidd 60 cm Dýpt 60 cm. Gerð 8326 - 232 lítra - Verð 51.267 stgr. Hæð 134,9 cm - Breidd 55 cm Dýpt 60 cm. Gerð 9535 - 4.5 kg - Verð 65.313 stgr. Tveir vinduhraðar: 500 og 1000 snún. Gerð 9525 - 4.5 kg - Verð 55.196 stgr. Tveir vinduhraðar: 500 og 800 snún. Gerð 7800 - Sllm Line - Verð 56.772 stgr. 7 m. matarstell - 3 þvottakerfi Hæð 85 cm - Breidd 45 cm Dýpt 60 cm. Gerð 8342 - 288 lítra - Verð 54.626 stgr. Hæð 159 cm - Breidd 55 cm Dýpt 60 cm. HEKIA LAUGAVEG1174 S 695500/695550

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.