Morgunblaðið - 01.05.1992, Side 11
11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
»
i
i
1
Kynnist mesta ævintýri nútímans íheimsreisu ti! Austurianda fjær 6. - 27. sept. ’92.
FILIPPSEYJAR - litrík jarönesk paradís.
Þar hefst veislan með „fiestu“ á einu besta
hóteli Asíu, WESTIN PHILIPPINE PLAZA -
gisting 4 nætur. Fegurð eyjanna og ljúf-
mennska íbúanna láta engan ósnortinn.
JAPAN - ferö inn í framtíÖina. Japan er
tæknivæddasta samfélag nútímans og mesta
efnahagsundur. Þar býr kurteisasta þjóð
heimsins, sem kann betur að þjóna gestum
en nokkur önnur. Ferð um Japan er ævin-
týri, þar sem fortíð og nútið, austrænt og
vestrænt blandast á alveg sérstakan hátt, sem
ekki finnst annars staðar. TÓKÝÓ er heims-
borgin í dag, þar sem hátæknin er fullnýtt í
þjónustu lífsgæða og menningar, borg hrað-
ans, þar sem enginn flýtir sér, hljóðlátari,
hreinni og öruggari en stórborgir Vestur-
landa, en síkvik, þróttmikil og spennandi.
Kynnisferðir um borgina og til NIKKO,
DISNEYLANDS, KAMAKURA, HAKONE og
FUJIFJALLS - hins heilaga fjalls. Gisting 4
nætur á AKASAKA PRINCE, einu best búna
hóteli heims. Ferð tii OSAKA með „shink-
ansen“-hraðlestinni (250 km á klst.). Gist á
NANKAI SOUTH TOWER, nýjasta lúxushót-
eli Japans, 5 nætur. Kynnisferðir til KYOTO,
höfuðborgar keisaranna í 1000 ár, til menn-
ingar- og listahöfuðborgarinnar NARA og
HIROSIMA.
FORMOSA (TAIWAN), „syjsn ÍUgfa , hefur inga hafa notfært sér heimsreis-
varðveitt kínverska menningu og hefðir mörg urnar til að uppgötva heiminn,
þúsund ára. TAPEI, höfuðborgin, er ótrúleg m.a. í Thailandi, en þetta er
með vöruúrval og gott verð, sem ber af flestu draumaferðin sem margir hafa
öðru er þekkist, og frægustu matreiðslumeist- _ beðið eftir.
ara Austurlanda, að ógleymdum lystisemdum
næturlífsins. Kynnisferð um borgina og ná-
grenni. Gisting: GRAND HYATT, opnað 1990,
af þeim sem til þekkja talið fegursta hótel
heimsins og ný viðmiðun i hótelþjónustu - 3
nætur.
THAILAND - JOMTIEN - vikudvöl á
stærsta og fullkomnasta strandhóteli Asíu.
Thailand með hagstæðu verðlagi og margs-
konar lystisemdum kallar á fleiri ferðamenn
frá Evrópu en önnur lönd Asíu. JOMTIEN-
ströndin við Síamsflóann er að verða mesti
tískubaðstaður Thailands. Þar er kjörinn
staður til að hvílast í ferðalok á AMBASSAD-
OR CITY hótelinu þar sem eru glæsilegar
vistarverur, 3 risasundlaugar við blóms-
krýdda ströndina, 20 fjölþjóða-veitingasali,
fullkomna hvíldar- og heisluræktaraðstöðu,
. tennis, badminton, golf - allt, sem fólk getur
óskað sér til að njóta lifsins í fríi. Dagsferð
býðst til Bangkok, en þangað er aðens 2'/*
stundar akstur, einnig í orkídeu-þorpið yrulis-
lega í 10 km fjarlægð. Mörg hundruð íslend-
AR—JAPAN—FORMOSA—THAILAND
FERÐ AKYNNING:
PftHTIÐ SHEMMA, NÚ VERflA
Ingólfur Guðbrandsson kynnir ferðina og flytur erindi með myndasýningu
FJARLÆG AUSTURLÖND - FERÐINN1 FORTÍÐ OG FRAMTIÐ
í Ársal Hótel Sögu í dag, föstudag, 1. maí kl. 16. Okeypis aðgangur.
Inngangur um noróurdyr.
AÐEINS 30 MANNSIHOPNUM.
Margt mun koma á óvart í þessari
ævintýraferð, einnig ótrúlega hag-
stætt verð miðað við gæði og hátt
verðlag í Japan
AUSTURSTRÆTi 17, 4. hæð 101 REYKJAVÍK-SÍMI 620400*FAX 626S64