Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992
■ - * r ■ c ; ;sq
B,’ _ jj:' -i -.í*1
**• •
Flak vélarinnar á slysstaðnum
austan við Heklu.
Á innfelldu myndinni sést flugvél-
in sem fórst, TF-IVI.
Ésíií'í'i
Morgunblaðið/Omar Ragnarsson
Ungur maður fórst með eins hreyfíls flugvél við Heklurætur:
Rakst á ójöfnu í gróður-
lausu, nýrunnu hrauninu
Bar af leið inn í dimmviðri þar sem
skilyrði til sjónflugs voru afar léleg
TALIÐ er að flugmaðurinn sem fórst með TF-IVI við Hekluræt-
ur síðastliðið föstudagskvöld hafi verið á venjulegu láréttu flugi
yfir nýju hrauni frá Heklu, skammt suðaustur af fjallinu, í um
750 metra (2.300 feta) hæð yfir sjávarmáli, þegar vél hans rakst
á misfellu I hrauninu, sem annars liggur þarna á flatlendi. Hjól
vélarinnar voru uppi og hreyfill í gangi þegar hún flaug á hraun-
ið. Vélina hafði þá borið norður af eðlilegri sjónflugsleið þar sem
skilyrði til sjónflugs voru ágæt að sögn Ioftferðaeftirlits, og yfir
ofanverða Rangárvelli, milli Heklu og Tindfjalla, þar sem dimmt
var yfir og lágskýjað og flugskilyrði mun verri, auk þess sem
nýrunnið hraunið er gróðurlaust og svart og sést illa úr lofti í
dimmviðri. Hæðarmælir flugvélarinnar er loftvog sem gefur upp
hæð yfir sjávarmáli en ekki yfir yfírborði jarðar.
Flugmaðurinn, sem var ungur Þegar vélin var ekki komin
maður, hafði farið tvær ferðir inn fram hálftíma síðar var eftir-
í Þórsmörk á föstudagskvöld,
hvort skipti með þijá farþega,
jafnaldra kunningja sinna, sem
hann flaug með þangað. Þar lenti
hann í seinna skiptið um klukkan
22.20 og eftir skamma viðdvöl
að lokinni seinni ferðinni hélt hann
áleiðis til Reykjavíkur og áætlaði
komutíma þangað klukkan 23.05.
grennslan hafin og síðar víðtæk
leit, sem stóð yfir allt þar til Hörð-
ur Guðlaugsson, einkaflugmaður
á TF-NEW, sem tók þátt í leitinni
ásamt fjölda annarra flugmanna,
á 24 flugvélum og fjórum þyrlum
auk björgunarsveita og starfs-
manna Landhelgisgæslu, flaug
fram á flak vélarinnar klukkan
13.47 á laugardag. Á þriðja
hundrað manns leitaði vélarinnar
frá Eyjafjallajökli vestur í Borgar-
fjörð.
Að sögn Skúla Jóns Sigurðs-
sonar, deildarstjóra loftferðaeftir-
lits Flugmálastjórnar, er skoðun
á slysstaðnum lokið. Fullvíst er
talið að flugmaðurinn hafi látist
samstundis er hann flaug á hraun-
ið og að eldur sem kom upp í flak-
inu hafí skemmt neyðarsendi vél-
arinnar og valdið því að ekki
heyrðist í honum.
Flugvélin, sem var eins hreyf-
ils, fjögurra sæta flugvél af gerð-
inni Cessna, var vel tækjum búin,
að sögn Skúla Jóns. Hún var í
eigu nokkurra einkaflugmanna í
Reykjavík og var flugmaðurinn
sem fórst einn þeirra. Hann hafði
lokið einkaflugmannsprófi á síð-
asta ári en hafði ekki blindflugs-
réttindi.
Ekki er unnt að greina frá nafni
hans að svo stöddu, þar sem ekki
hefur enn náðst samband við nána
ættingja hans sem eru á ferðalagi.
Vestfirðir, Norðurland og Austfirðir;
Bæjarstarfsmenn í Keflavík:
Hópi þeirra sagt upp
í hagræðingarskyni
BÆJARRÁÐ Keflavíkur hefur tekið ákvörðun um að segja upp hópi
starfsmanna á bæjarskrifstofu, í tæknideild og hjá Sérleyfisbifreiðum
Keflavíkur. Drífa Sigfúsdóttir, settur bæjarstjóri í Keflavík, segir að
uppsagnirnar séu hluti af hagræðingu í rekstri bæjarfélagsins og mik-
ill meirihluti starfsmanna verði endurráðinn í svipuð störf. Hún vildi
ekki segja hversu mörgum hefði verið sagt upp fyrr en eftir fund
bæjarstjórnar í dag, þriðjudag. Hólmar Magnússon, formaður Starfs-
mannafélags Keflavíkurbæjar, sagði að starfsmenn væru óhressir með
hvernig staðið væri að uppsögnum og að ekkert biði þeirra er misstu
alfarið vinnuna nema atvinnuleysi.
Drífa sagði að í kjölfar úttektar
ráðgjafarfyrirtækis á starfsemi bæj-
arins og stofnunum þess hefði verið
samþykkt nýtt skipurit fyrir Kefla-
víkurbæ. Breytingamar nú væru
gerðar í anda þess. Verið væri að
lagfæra og afmarka betur hver ætti
að gera hvað.
Aðspurð sagði Drífa að ýmsar
ástæður væru fyrir því að þörf væri
fyrir hagræðingu í rekstri bæjarfé-
lagsins. Mætti þar nefna minnkandi
tekjur og aukið álag ríkis á bæjarfé-
lagið. Ennfremur setti atvinnuleysi
mark á umgjörð bæjarfélagsins. Hún
lagði áherslu á að meirihluta þeirra
sem fengið hefði uppsagnarbréf gæf-
ist kostur á að sækja um svipað starf
en nokkuð væru um að stöðugildi
hefðu verið endurskipulögð.
Hólmar Magnússon, formaður
Starfsmannafélags Keflavíkurbæjar,
sagði að uppsagnimar hefðu verið
framkvæmdar með leiðinlegum
hætti. Að sögn Hólmars vissi enginn
neitt fyrr en bæjarstjóri boðaði til
fundar þar sem lesin var upp fundar-
gerð um málið og uppsagnarbréfin
afhent. Hann sagði að því næst hefði
bæjarstjóri tilkynnt að hann væri
farinn í tveggja vikna frí og starfs-
menn hefðu þess vegna ekki getað
rætt frekar við hann um þessar upp-
sagnir.
Hólmar sagði að honum skildist
að fimm manns misstu alveg vinnuna
frá og með 1. nóvember nk. og telur
hann að vegna slæms ástands í bæn-
um bíði þeirra ekkert nema atvinnu-
leysi. Hólmar sagði að hann væri
óhress með það að ekki væri farið
eftir starfsaldri í uppsögnunum held-
ur virtist valið innan úr.
Hólmar sagði að boðað hefði verið
til fundar með formanni BSRB í
dag, þriðjudaginn 7. júlí, þar sem
kanna ætti hvað væri hægt að gera.
f framhaldi af þeim fundi á ræða við
bæjarstjóra.
Samingar farmanna:
Tvö félög fella nýj-
ar samningstillögur
TILLOGUR að nýjum samningum um kjör vélstjóra og stýrimanna á
farskipum sem gengið var frá hjá ríkissáttasemjara 25. maí sl. voru
felldar í atkvæðagreiðslum hjá félögunum sem lauk í byrjun mánaðar-
ins. Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, segir að ekki hafi ver-
ið tekin ákvörðun um hvenær fundir verði haldnir með forsvarsmönn-
um félaganna. Tillögur að samningum skipstjóra og bryta voru sam-
þykktar hjá félögunum.
Hjá Vélstjórafélagi íslands voru
115 á kjörskrá en 63 greiddu at-
kvæði, þar af voru tvö atkvæði auð
og ógild. Tillagan var felld með 35
gegn 26 atkvæðum.
Að sögn Helga Laxdal, formanns
Vélstjórafélags íslands, hafði at-
kvæðagreiðslan staðið yfir í um það
bil mánuð er niðurstaða Kjaradóms
lá fyrir en þátttakan jókst þá.
„Það er óvenjulegt í slíkum kosn-
ingum að þátttaka taki skyndilega
kipp en það gerðist í þessum, eftir
að Kjaradómur hafði kveðið upp dóm
sinn,“ segir Helgi.
Hann segir að boðaður hafi verið
almennur félagsfundur með far-
skipavélstjórum á morgun, þar sem
fjallað verði um framhald málsins
en jafnframt sé beðið eftir að ríkis-
sáttasemjari boði fund.
„Það mun koma fram á fundinum
hjá okkur á morgun hvort einhver
misskilningur hafi ríkt varðandi
þennan samning en það er ekki úti-
lokað að svo hafi verið, um hagræð-
ingarráðstafanir sem þar er kveðið
á um,“ segir Helgi.
Hjá Stýrimannafélaginu voru 124
á kjörskrá. Þar af greiddu 84 at-
kvæði, 23 með en 61 á móti.
Víða landburður af fiski
Guðlaugur Gíslason, starfsmaður
Stýrimannafélags íslands, segir að
flestir þeirra sem greitt hafi atkvæði
hafi verið búnir að því er niðurstaða
Kjaradóms lá fyrir.
Hann segir að beðið sé fundarboð-
MOKAFLI hefur komið á land á Vestfjörðum að undanförnu og
hafa handfæra- og línubátar fiskað sérlega vel. Aflabrögðin hjá
bátum á Norðurlandi og Austfjörðum hafa einnig glæðst verulega
á síðustu dögum. Einar Oddur Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Hjálms á Flateyri, segir að svo mikill fiskur komi á land að hann
keyri lausfrystinguna í frystihúsinu 20 til 24 tíma á sólarhring og
hann segir að öllum beri saman um að nú sé óvenjumikil fiskgengd
á grunnslóð. Samkvæmt upplýsingum frá Dalvík og Höfn í Horna-
firði hafa aflabrögðin glæðst verulega síðustu daga eftir mikla lá-
deyðu í allt sumar.
Sigurður Viggósson, fram-
kvæmdastjóri Odda á Patreksfírði,
segir að óvenjumikið framboð hafi
verið af fiski á staðnum að undan-
fömu. „Hér hefur verið mikill afli
hjá handfærabátum undanfarnar
þijár vikur,“ segir Sigurður.
Jón Páll Halldórsson forstjóri
Norðurtangans á ísafírði segir að
reynt hafí verið að keyra vinnslu
aðeins í dagvinnu að undanförnu
en það sé alveg sýnilegt að auka
verði vinnuna til að hafa undan í
vinnslunni. „Við önnum ekki öllu-
þessu hráefni nema aukavinna verði
unnin. Sjá nánar á miðopnu.
unar frá ríkissáttasemjara en al-
mennur félagsfundur hafí verið boð-
aður um næstu mánaðamót.
Skipstjórafélag íslands samþykkti
tillögu að nýjum samningi fyrir fé-
lagið með 16 atkvæðum gegn 10.
Þá var tillaga að samningi fyrir
Félag bryta samþykkt með 9 at-
kvæðum gegn 4.
Ólafur Karvel Pálsson, fískifræð-
ingur hjá Hafrannsóknastofnun,
segir að mikil fískgengd nú sé mjög
eðlilegur hlutur enda býsna algengt
að fiskurinn gangi á grunnslóðina
að sumri til í ætisleit. „Það hefur
oft verið svo að á þessum tíma
berist fréttir af góðum afla hjá
handfæra- og línubátum," segir
Ólafur.
Einar Oddur segir að landburður
hafí verið af físki að undanfömu.
Hann nefnir sem dæmi að togarinn
Gyllir hafí landað 120 tonnum af
þorski eftir fímm daga úthald og
var meginuppistaða aflans þorskur.
Eggert Bollason á hafnarvoginni
á Dalvík segir að síðasta vika hafí
verið sú besta í sumar á handfær-
um. „Menn voru að fá þetta upp í
1,5 tonn eftir sólarhringinn og að
jafnaði var dagsaflinn um 750 kg
á móti 100-150 kg á dag fyrr í
sumar,“ segir Eggert.
Á Höfn í Homafírðí er sömu sögu
að segja, veiðin þar hefur glæðst
mikið síðustu daga eftir ládeyðu í
sumar. Heimir Karlsson á Höfn
fékk ásamt félaga sínum 1,7 tonn
eftir daginn um helgina, mest fal-
legan þorsk. Hann segir að fyrir
síðustu nnánaðamót hafí ekki verið
hægt að tala um neinn afla að ráði
hjá handfærabátum.
Kjaradómur:
Viðræður hafnar um næstu skref
HLUTI Kjaradóms kom saman í gærkvöldi til viðræðna um hvað
gera skuli í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að setja
bráðabirgðalög um dóminn. Að sögn Jóns Finnssonar, formanns
Kjaradóms, er um byijunarviðræður að ræða og segir hann að
það geti tekið dóminn nokkurn tíma að ákveða hvað gera skuli.
málum og þjóðarbúskap við störf
sín.
Með bráðabirgðalögunum sem
ákveðið var að setja um dóminn
sl. föstudag er Kjaradómi falið
að úrskurða á ný um laun emb-
ættismanna samkvæmt nýjum
lagaskilyrðum sem fela í sér að
framvegis taki Kjaradómur mið
af aðstæðum og horfum í kjara-
Jón Finnsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi að
enn væri ekkert um málið að
segja þar sem ákvörðun hefði
ekki verið tekin um hvað gert
yrði en það gæti tekið nokkurn
tíma.
t
I
1