Morgunblaðið - 07.07.1992, Page 4

Morgunblaðið - 07.07.1992, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson Af myndinni að dæma mætti ætla að haustið væri gengið í garð en svo er nú ekki því þarna hafa grasmaðkamir verið á ferð. Vestur-Eyjafjöll: Grasmaðkur eyðileggur úthasra 02: nokkur tún Holti. GRASMAÐKUR hefur eyðilagt alla sprettu á láglendi í útjörð og nokkur tún frá Markarfljóti að vestan og austan að Hvammsnúpi. Bændur hafa gefið fé og hrossum á þessu svæði en einkum er þetta erfitt á fjáijörðunum Seljalandsseli og Fitjamýri, þar sem bændur á þessum jörðum geta ekki eins og áður rekið féð á afrétt Vestur- Eyfellinga inná almenninga fyrir innan Þórsmörk. Leifur Einarsson, bóndi á Nýjabæ, sagðist aldrei hafa fyrr kynnst eins skæðum grasmaðkafar- aldri. Virtist vera um þijár tegund- ir að ræða, sem tækju eins og við hver af annarri. Hann vissi ekki um annað dæmi varðandi grasmaðk í byijun júlí og eins fannst honum að rigningar í maí og júní hefðu átt að koma í veg fyrir útbreiðslu grasmaðksins. Sjálfur sæi hann mest eftir að hafa ekki brennt sinu á friðaðri útjörð en vaxtarskilyrði grasmaðksins væru einmitt í sin- ur.ni og þegar grasmaðkurinn væri kominn af stað gæti næstum ekk- ert stöðvað hann. Fram undir þetta hefði hann orðið að gefa fé og hrossum, því litla beit væri að fá af útjörð. Slætti af nýrækt væri lokið. Hann hefði pakkað heyinu í rúllur en orðið var við að í heyinu var grasmaðkurinn iðandi í veruleg- um mæli. Öll útjörð og nokkur túri frá Markarfljóti austur að Hvammsnúpi væru víðast grá og sviðin eins og á vetrardegi. Jarðirn- ar sem verst hefðu orðið úti væru á svonefndum Mýrarbæjum, Nýjabæ, Sandhólmabæjum, Fitja- mýri og Hvammi. Baldur Bjömsson, bóndi á Fitja- mýri, sagðist hafa brennt sinu á hluta landsins í apríl og það væri honum til bjargar núna. Allt féð og hrossin væru á þessari útjörð sem væri falleg og græn við hlið hundruð hektara af landi sem væru grá og engin skepna á. Fyrir nokkr- um dögum hefði maðkurinn komið í bylgjum inn á túnið en að mestu hefði tekist að stöðva framrásina með milli áburðargjöf við jaðar túnsins en kjamaáburður virðist drepa maðkinn. Jón Pétursson, bóndi i Syðri- Hól, hefur misst alla sína útjörð í grasmaðkinn og um 15 ha af ábomu túni. Féð hjá honum kemur heim að fjárhúsum en í kring um þau virðist eini græni bletturinn vera á stóra svæði. „Það er ekkert annað hægt en að reyna að fá lán- aðar slægjur ef fæst og land fyrir fénað og hross,“ sagði Jónas Pét- ursson við fréttaritara þegar hann kom til að líta á aðstæður. - Fréttaritari. VEÐUR Reykjavíkurhöfn: m / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tima hiti veöur Akureyri 17 Iétt8kýj8& Reykjavík 14 skýjað Bergen 18 skýjað Helsinki 19 léttskýjað Kaupmannahöfn 21 léttskýjað Narssarssuaq 10 rigning Nuuk 8 téttskýjað Osló 23 hálfskýjað Stokkhóimur 24 léttskýjað Þórshöfn 14 skýjað Algarve vantar Amsterdam 22 léttskýjað Barcelona 21 léttskýjað Berlín 18 rigning Chicago 16 heiðskírt Feneyjar 23 léttskýjað Frankfurt 16 alskýjað Glasgow 16 rigning Hamborg 20 hálfskýjað London 21 léttskýjað LosAngeles 18 heiðskirt Lúxemborg 13 rigning Madríd 23 hálfskýjað Malaga 25 léttskýjað Mallorca 24 skýjað Montreal 16 léttskýjað New York 21 alskýjað Orlando 27 heiðskírt Parfe 17 rigning Madeira vantar Róm 23 skýjað Vín 22 skýjað Washington 22 alskýjað Winnipeg 14 skýjað Rottur komu í land úr rússneskum togara HÉRAÐSLÆKNIRINN í Reykjavík lét á föstudag rannsaka rússn- eskan togara, sem lá við landfestar við Æjgisgarð í Reykjavíkur- höfn, vegna gruns um rottugang um borð. I Ijós kom að sá grunur var á rökum reistur og verður farmur skipsins, sem aðallega er frosinn fiskur, skoðaður í framhaldi af málinu. Heimir Bjarnason, aðstoðarhér- aðslæknir í Reykjavík, segir að tog- arinn hafi verið toliafgreiddur á mánudaginn í síðustu viku, enda hafi hann haft löggiit „rottuvott- orð“ og auk þess sent skeyti til umboðsaðila um að ekki væru meindýr um borð. Síðdegis á fimmtudag hafi héraðslæknisemb- ættinu borist af því fregnir að rott- ur hefðu komið í land af skipinu og af þeim sökum hafi það verið skoðað síðastliðinn föstudagsmorg- un. Heimir segir að ekki hafi leynt sér að rottur hafi verið um borð í skipinu og hafi af þeim sökum ver- ið gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að þær kæmust í land. Landgangur hafi verið tekinn upp og spennar settir á landfestar. Málið sé nú til frekari skoðunar hjá embætti héraðslæknis og meðal annars sé full ástæða til að skoða farm skipsins sérstaklega af þess- um sökum. Að sögn Heimis er afar sjald- gæft að rottur berist í land frá skipum. Hann hafí starfað í 15 ár hjá embættinu og muni aðeins eft- ir einu máli af þessu tagi. ----♦ ♦ ♦--- Súluhlaup- inu lokið HLAUPINU í Súlu er lokið en það náði hæst tíföldu rennsli miðað við grunnrennsli aðfara- nótt sunnudags. Fyrstu fréttir af hlaupinu í Súlu bárust síðdegis á föstudag og þegar rennslið var mælt um hádegisbil á laugardag var það um 500 rúm- metrar á sek. en mældist 585 rúm- metrar á sek. um kl. 21 þann dag. Að sögn Snorra Zóphóníassonar jarðfræðings hjá Orkustofnun, var þegar farið að draga úr hlaupinu að morgni sunnudags. Venjulegt vatnsmagn árinnar er um 50 rúm- metrar á sek. á þessum árstíma. Morgunblaðið/Magnús Glslason Talinn hafa sofnað undir stýri ROSKIN kona var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík eftir að bíll sem hún var farþegi í hafnaði út af veginum skammt frá Staðarskála í Hrútafírði síðdegis á sunnudag. Talið er að ökumaður bílsins hafí dottað undir stýri. í veltunni hlaut konan opið fótbrot en aðrir sem í bílnum voru meidd- ust minna. Fólkið var í Subaru-bifreið á suðurleið. Þyrlan var kvödd til og látin flytja konuna til aðgerðar á sjúkrahús í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.