Morgunblaðið - 07.07.1992, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.07.1992, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 11 Hér er komið að atriði sem e.t.v. er ekki sanngjarnt að gagnrýna. Islenskum söguatlas er ekki ætlað að vera tæmandi yfirlitsrit um sögu þess tímabils sem um er fjallað. Á hverri opnu ritsins standa höfund- i ar frammi fyrir vali á því hvaða efni skuli tekið með og hversu rækiléga það skuli rætt og útskýrt í máli og myndum. Yfirleitt hefur þeim tekist vel upp í þessu vali og í raun er óhætt að fullyrða að ritið sé mun rækilegra yfirlitsrit en tíðk- ast er um erlendar bækur af svip- uðum toga. Það er ritinu einnig styrkur að höfundar líta á samfé- lags-, menningar- og stjórnmála- þróun hérlendis í ljósi erlendrar þróunar. Sérstakar opnur fjalla um þróun þessara málaflokka erlendis. Ég tel þó að rækilegar hefði þurft að fjalla um kvennabaráttu á er- lendri grund í tengslum við umfjöll- un um þann málaflokk hérlendis 1 (bls. 162-3) og nokkuð kemur á óvart að lítt er fjallað um erlendar stjórnmálastefnur og viðgang verkalýðshreyfíngar, t.d. í tengsl- um við opnu um stéttasamfélag í mótun 1860-1910 (bls., 170-71), en vera má að því efni verði gerð rækilegri skil í þriðja. bindi verks- ins. Þótt fleira mætti fínna að fram- setningu og efnistökum í öðru bindi íslands söguatlass breytir það engu um það að höfundar hafa í aðalat- riðum skilað af sér góðu verki. Ritið einkennist af áherslu á þróun íslensks samfélags og atvinnuhátta og gefur heillegri mynd af þróun þessara málaflokka en flest önnur nýlega yfirlitsrit um íslenskra sögu. Höfundum tekst næsta vel að þræða hinn gullna meðalveg á milli hins almenna og hins sértæka í þróun íslenskra samfélags- og at- vinnuhátta og ríkulegt myndefni fellur vel að efninu og skýrir betur margt af því sem tæpt er á í sam- þjöppuðum texta. Áhugafólk um íslenska sögu hlýtur að fagna þessu riti og bíða spennt eftir lokabindi verksins. in höfði eitthvað til þeirra. Niðurstaða Susanne Bjertrup var tvenns konar: a) Mikilvægt er rithöfundi að geta miðlað einhverri reynslu. Það er mikilvægara að hafa eitthvað að segja heldur en hvernig það er sagt. b) Nauðsynlegt er að koma á fót nýrri tegund af gagnrýni þar sem ekki er aðeins lögð áhersla á að meta tungumálið heldur sé sið- ferðilegur og pólitískur tilgangur ritverks undantekningarlaust dreginn fram. íslenskar bókmenntir voru Eistlendingum kærar Anu Saluáár vinnur hjá því fræga bókaútgáfufýrirtæki Looming í Tallinn. í erindi sínu fjallaði hún um eistneskar þýðingar á norræn- um bókmenntum. Öll helstu klass- ísku verk norrænna aldamótahöf- unda voru snemma þýdd. Hún nefndi Ibsen, Strindberg, Jensen og Lagerlöf. Á lýðveldistímanum milli styij- aldanna var bókaútgáfa mjög blóm- leg í Eistlandi, þar með taldar þýð- ingar á norrænum samtímaverkum. Verk Gunnars Gunnarssonar ög Kristmanns Guðmundssonar voru á því tímabili mikið lesin. Og ekki aðeins lesin heldur vildi fólk eiga bækur þeirra, þær voru hluti af dæmigerðu heimilisbókasafni. Þetta kann að hljóma undarlega, jafnvel ýkjukennt. Þegar ofsóknir kommúnista gegn andkommúnist- um hófust flýðu margir Eistlendi- nagar fóstugörðina, flestir til Sví- þjóðar eins og kunnugt er. í útlegð- inni reyndi fólk að skapa sér viðund- andi aðstæður og lifa lífinu sem mest í líkingu við það sem áður var. Sumir höfðu skilið allt sitt eft- ir, einnig heimilisbókasafnið. Þess vegna voru bækur Gunnars og Kristmanns prentaðar á eistnesku í framandi landi. Þetta sýnir betur en margt annað að útbreiðsla bók- mennta getur verið óútreiknanleg og nánast ótrúleg. FAXAFENI8 • SÍMI91 - 68 58 70 DMMT8U 1600cc • 16 ventla • Bein innspýting • 105 hestöfl KOSTAR STADGREIDDUR, KOMINN Á GÖTUNA FRÁ: BRIMBORG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.