Morgunblaðið - 07.07.1992, Page 13
GRAM K-245 GRAM K-285 GRAM K-395
GRAM KF-195 GRAM KF-233 GRAM KF-264
GRAM KF-250 GRAM KF-355 GRAM KF-344
m)KpUKBirApip ^HWUPAr-UR 7.,jpi4 yj92
o >J
... 1
13
Nú fer að líða að því að sérfræð-
ingar, sem utanríkisráðherra hefur
kallað til, skili áliti sínu á því hvort
samningurinn um Evrópskt efna-
hagssvæði standist stjórnarskrána.
Utanríkisráðherra skipaði eins
og kunnugt er sína eigin nefnd
eftir að fram kom á Alþingi tillaga
um að sérfræðingar tilnefndir af
hlutlausum aðilum segðu álit sitt
á því hvort samþykkt EES-samn-
ings standist óbreytta stjómar-
skrá. Ráðherrann lagðist gegn
samþykkt tillögunnar um athugun
á vegum þingsins og vildi greini-
lega einn ráða því hveijir fjölluðu
um þetta mikla álitamál. Forsætis-
ráðherra sem samkvæmt reglum
um stjórnarráðið fer með mál er
varða stjómskipan lýðveldisins
fékk ekki einu sinni að skipa mann
í nefndina. Athugun á vegum ríkis-
stjómarinnar á EES í tengslum við
stjórnarskrána hefði eðlilega átt
að vera á vegum forsætisráðuneyt-
isins. Það hefur líka vakið athygli
að þjóðréttarfræðingur utanríkis-
ráðuneytisins, Guðmundur Eiríks-
son, er ekki í hópi þeirra sem utan-
ríkisráðherra kveður til, á sínum
vegum, til að fjalla um þetta mál.
Þessi helsti sérfræðingur utanrík-
isráðuneytisins á vegum þjóðar-
réttar hefur mér vitanlega ekki
tjáð sig um það hvort rétt sé að
staðfesta EES-samninginn að
óbreyttri stjórnarskrá.
Er niðurstaðari þegar ljós?
Ef marka má blaðafregnir er
utanríkisráðherra og flokkur hans,
Alþýðuflokkurinn, nokkuð viss um
niðurstöður nefndar utanríkisráð-
herra hópsins. í ályktun frá flokks-
þingi Alþýðuflokksins segir að m.a.
„ ... niðurstöður þeirra munu
væntanlega eyða efasemdum um
Kristín Einarsdóttir
„Það má ekki leika
nokkur vafi á því að
farið sé að stjórnarskrá
lýðveldis okkar, hún er
ekkert pappírsgagn
sem má sveigja og
beygja eftir því sem
hentar hverju sinni.“
að samningarnir standist heimildir
stjórnarskrárinnar ...“ Á þeim bæ
virðast menn fyrirfram vissir um
niðurstöðuna.
Utanríkisráðherra sagði í blaða-
viðtali nýlega að það þurfi enga
sprenglærða lögfræðinga til að
segja sér hvort samningurinn feli
ekki í sér framsal á löggjafar-
valdi, dómsvaldi eða framkvæmda-
Álit sérfræðinga
Á fundi Lögfræðingafélags ís-
lands þann 20. júní sl. færði Guð-
mundur Alfreðsson þjóðréttar-
fræðingur mjög sannfærandi rök
fyrir því að br'eyta þurfi stjórnar-
skránni ef til samþykkis Alþingis
eigi að koma á EES-samningi og
fylgisamningum hans. Einnig kom
fram á fundinum sú skoðun af
hálfu hæstaréttarlögmannanna Ei-
ríks Tómassonar og Ragnars Aðal-
steinssonar, að rétt væri að breyta
stjórnarskránni ef ekki eigi að vera
hætta á árekstrum síðar. Umrædd-
ir lögmenn eru í hópi færustu lög-
manna landsins og því hlýtur Al-
þingi að taka mark á orðum þeirra.
Rökleysur um EES
í forystugrein Alþýðublaðsins
22. júni og Mbl. hefur endurbirt
er sagt að það sé sameiginleg nið-
urstaða allra EFTA-ríkjanna að
samningurinn feli ekki í sér fram-
sal á löggjafarvaldi. Þetta er sögð
niðurstaða þjóðréttarfræðinga í
öllum EFTA-ríkjanna eftir athug-
un á álitamálum. Þetta er einkenni-
leg fullyrðing m.a. í ljósi þess að
í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi
verður að samþykkja EES-samn-
ing með auknum meirihluta á þing-
um landanna vegna þess að þar
er samningurinn talinn fela í sér
skerðingu á fullveldi ríkjanna. Það
má ekki leika nokkur vafi á því
að farið sé að stjórnarskrá lýðveld-
is okkar, hún er ekkert páppírs-
gagn sem má sveigja og beygja
eftir því sem hentar hveiju sinni.
Höfundur er þingmaður
Kvennalistans og formaður
Samstöðu um óháð Island.
Bók um Sögn landsmóta UMFÍ
á stórlækkudu verði
BÓKIN Saga landsmóta UMFÍ
1909 til 1990 er komin út, en
höfundar hennar eru Viðar
Hreinsson, Jón Torfason og
Höskuldur Þráinsson. Bókin lýs-
ir öllum landsmótum Ung-
mennafélags íslands og aftast
er birtur árangur þeirra, sem
tekið hafa þátt í landsmótunum.
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir ávarpar lesendur
bókarinnar í upphafi hennar.
Útgefendur eru Jóhann Sigurðs-
son og Sigurður Viðar Sig-
mundsson.
Á bókarkápu segir m.a.: „Á
landsmótum kristallaðist baráttu-
andi ungrar þjóðar, þar var þrek
hennar mælt, andinn innblásinn. Á
landsmótum urðu til hetjur,
ógleymanlegar minningar, þar
fann ungt og óharðnað æskufólk
fyrirmyndir. Þar blossaði ástin, þar
kviknaði metenaður sem aldrei
slokknaði. Metnaður til að vinna
þjóð sinni: íslandi allt!
Landsmót eru meira en íþrótta-
mót, þau eru hátíð. Landsmót eru
fagnaðarfundur kraftmikils æsku-
fólks sem í bráðum heila öld hefur
svalað þrá sinni eftir ævintýrum
og fengið heilbrigða útrás í keppni
við jafningja á landsmóti.
Yfir landsmótum hvílir þjóð-
sagnakenndur ævintýraljómi. Þau
hafa orðið mörgum sjóður hinna
hjartfólgnustu minninga og þau
verða áfram - á meðan Islendingar
hafa kapp, þor og sjálfstraust til
að vera sjálfstæð þjóð - komandi
kynslóðum hvatning til dáða.
Forseta íslands var afhent fyrsta eintak bókarinnar, sem kom úr
prentun. Með Vigdísi Finnbogadóttur á myndinni eru: Pálmi Gisla-
son, formaður UMFÍ og útgefendurnir Sigurður Viðar Sigmundsson
og Jóhann Sigurðsson.
Það er erfitt að lýsa hinni sér-
stöku og ijölbreytilegu stemningu
landsmótanna. I þessari bók er
reynt að handsama hina hrað-
fleygu stund en jafnframt er þess
freistað að segja íslandssögu
landsmótanna. Reynt er að lýsa
íslensku vornóttinni, blómstrandi
ástum, dunandi dansi, keppni sigr-
um, vonbrigðum og fögnuðu, sorg
og gleði.
Á meira en fimm hundruð síðum
og með sex hundruð ljósmyndum
er reynt að gera hið ómögulega,
festa landsmótin á bók. Haft var
samband við hundruð manna,
ótölulegur fjöldi lagði verkinu lið,
og við þá vinnu vaknaði enn og
aftur sá andi, sem ríkir á landsmót-
um, höfundar og útgefendur
heyrðu óm af nið aldanna og fyllt-
ust vonglaðri bjartsýni um framtíð
íslensku landsmótanna.“
Bókin er 544 blaðsíður í stóru
broti.
nú afieins 42.900 kr. nú afieins 49.950 kr. nú afieins 57.650 kr.
39.890 46.450 53.610
(stofigreitt) (staðgreitt) (staðgreitt)
nú afieins 56.950 kr. nú afieins 71.800 kr.
nú afieins 78.450 kr.
52.960 66.770 72.960
(staðgreitt) (staðgreitt) (staðgreitt)
Gófiir greiðsluskilmálar: 7% stafigreifisluafsláttur og 3% afi auki
séu keypt 2 eöa fleiri stór tæki samtfmis (magnafsláttur). EURO og
VISA rafigrelfislur til allt afi 18 mánafia, án útborgunar
/FOntK
HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420
244 Itr. kælir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 cm
274 Itr. kælir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 126.5- 135,0 cm (stillanleg)
379 Itr. kælir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg)
nú aöeins 49.950 kr. nú aöeins 52.650 kr. nú afieins 71.950 W.
46.450 48.960
(staðgreitt) (staðgreitt)
66.910
(staðgreitt)
166 Itr. kælir + 31 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 106.5 cm
172 Itr. kælir + 62 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 cm -135,0 (stillanleg)
274 Itr. kælir + 62 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5- 175,0 cm (stillanleg)
194 Itr. kælir + 146 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg)
204 Itr. kælir + 29 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 126.5
1991tr. kælir + 64 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 146.5 cm
Málið er heitt því með sérstökum samningi við GRAM
verksmiðjurnar bjóðum við nú allar gerðir dönsku
GRAM kæliskápanna á stórlækkuðu verði. GRAM
býður 16 gerðir kæliskápa með eða án frystis,
til innbyggingar eða frístæða, til dæmis neðangreinda:
Er stj órnarskrá-
in pappírsgagn? STADRCYND!
eftir Kristínu
Einarsdóttur
valdi. Einnig hann virðist nokkuð
viss um að hvaða niðurstöðu nefnd-
in hans muni komast.