Morgunblaðið - 07.07.1992, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992
TAXI
%
'ö/
LEIGUBÍLL
ER ÓDÝRARI
EN ÞÚ HELDUR
Raflagnaefni
í miklu úrvali
1^\RAFSÓL
Skipholti 33
S.35600
FisTfíWW
ELFA VORTICE
VIFTUR
AUKIN VELLÍÐAN !
Loftspaöaviftur í hvítu, kopar,
stáli og svörtu.
Borðviftur Gólfviftur
Fjölbreytt úrval • hagstætt verð!
I Elnar Farestvett&Co.hf.
I Boigartúm 28 — "S 622901 og 622900
fífífífífífífí
ESAB
RAFSUDU
TÆKI,VIR
0G FYLGl
HLUTIR
Hestamót Glaðs á Nesodda:
Börnin með hæstu einkunnimar
Góð þátttaka í kappreiðum
__________Hestar
Valdimar Kristinsson
BÖRNIN og unglingarnir sáu um
að halda uppi gæðunum á hesta-
mót Glaðs á Nesodda í Dölum á
laugardag en þau voru með
nokkru hærri einkunnir en þeir
fullorðnu. Blíðuveður var á móts-
daginn og fór vel um bæði menn
og málleysingja.
Það ríkir ávallt sérstök stemmn-
ing á Nesoddamótunum, Borgfirð-
ingar fjölmenna ætíð og taka þátt
í kappreiðum og gerð eru hestakaup
í ríkum mæli þó að heldur hafi dreg-
ið úr þeim síðustu árin . Mótið nú
var með hefðbundnum hætti að því
undanskildu að nú var boðið upp á
töltkeppni en slík keppni nýtur orð-
ið vinsælda á almennum hestamót-
um. Öfugt við það sem tíðkast nú
orðið var þátttaka í kappreiðum
býsna góð og gott ef þetta voru
ekki blómlegustu kappreiðamar
sem haldnar hafa verið á þessu
ári. Meðal þátttakenda í skeiðinu
voru tveir öldungar á þrítugsaldri,
Smári frá Galtarholti 24 vetra og
Sjan 21 vetra, en þeir voru saman
í riðli og náði Sjan tíma sem gaf
annað sætið en Smári sem var á
undan stökk upp rétt áður en í
markið kom. Báðir þessir hestar
hafa mætt á Nesoddann reglulega
síðasta áratug og átt þar marga
góða spretti. Þá var þátttaka í
barnaflokki mjög góð eða 16 kepp-
endur alls skráðir og er það meira
en gerist og gengur hjá mun stærri
félögunum en Glaður er.
Úrslit á mótinu urðu sem hér segir:
A-flokkur
1. Þóra frá Gillastöðum, f.: Dalvar,
Hrappstöðum, m.: Jörp, eigandi og knapi
Jón Ægisson, 8,05.
2. Nasi, f.: frá Kýrholti, m.: Ellublesa,
eigandi og knapi Guðmundur Baldvins-
son, 7,68.
3. Gletta frá Búðardal, f.: Hlynur, Vatns-
leysu, m.: Rjóð, Búðardal, eigandi og
knapi Hallur Jónsson, 7,76.
4. Garpur, f.: Náttfari, m.: Stóra-Jörp,
eigendur Bjarki Jónasson og Hlöðver
Eggertsson, knapi Bjarki, 7,91.
5. Lukkuláki frá Gillastöðum, f.: Spænir
1019, Efri-Brú, m.: Lukka, Hjarðar-
haga, eigandi og knapi Jón Ægisson,
7,67.
B-flokkur
1. Draumur frá Hólum, f.: Funi 944,
m.: Nótt, Vífilsdal, eigandi og knapi
Marteinn Valdimarsson, 8,25.
2. Glóð frá Stórholti, f.: Eldur 950,
Stóra-Hofi, m.: Fluga 4772, eigandi
Bryndís Karlsdóttir, knapi Ámundi Sig-
urðsson, 8,18.
3. Freyja Baldursdóttir frá Gillastöðum,
f.: Baldur, Bakka, m.: Rán, Efri-Brú,
eigandi Hrönn Jónsdóttir, knapi Jón
Ægisson, 8,04.
4. Glámur frá Hjarðarhaga, f.: Feykir
962, Hafsteinsstöðum, m.:Brúnstjarna,
Hjarðarhaga, eigandi og knapi Svanborg
Einarsdóttir, 7,92.
5. Gosi, f.: Þór, Akureyri, eigandi og
knapi Sigurður Jökulsson, 7,93.
U nglingaflokkur
1. Iris Hrund Grettisdóttir 14 ára á
Demon frá Hólum, 8,36.
2. Björk Guðbjörnsdóttir 15 ára á Gusti
frá Stórholti, 8,24.
3. Birgir Már Bjarnason 13 ára á Sindra
frá Þorbergsstöðum, 7,48.
4. Inga Heiða Halldórsdóttir 16 ára á
Sleipni, 7,50.
5. Gunnlaugur M Sigurðsson 14 ára á
Ljúfi, 7,06.
Barnaflokkur
1. Ægir Jónsson 11 ára á Þresti frá
Ólafsvík, 8,29.
2. Ólöf Inga Guðbjömsdóttir 12 ára á
Mánadís frá Magnússkógum, 8,12.
3. Þorkell Andrésson 12 ára á Kvik frá
Neðri-Brunná, 8,05.
4. Kolbrún Þóra Ólafsdóttir á Skugga-
blakki frá Engihlíð. 7,87.
5. Atli Andrésson 10 ára á Léttfeta frá
Magnússkógum, 7,87. (keppti sem gestur)
Formaður félagsins, Grettir B. Guðmundsson, lengst til hægri sigraði
í töltinu á Drífanda en dóttir hans, íris, á Demon lengst til vinstri
varð í fimmta sæti, aðrir sem verðlaun hlutu eru Marteinn Valdimars-
son á Uglu, Björk Guðbjörnsdóttir á Gusti og Jón Ægisson á Þóru.
Verðlaunahafar í unglingaflokki frá vinstri talið íris og Demon,
Björk og Gustur, Birgir Már og Sindri, Gunnlaugur og Ljúfur og
Inga Heiða og Sleipnir.
Tölt
1. Grettir B. Guðmundsson á Drífanda
frá Hrappstöðum, 75,73.
2. Jón Ægisson á Þóru frá Gillastöðum,
65,60.
3. Björk Guðbjömsdóttir á Gusti frá
Stórholti, 70,66.
4. Marteinn Valdimarsson á Uglu frá
Búðardal, 70,93.
5. íris Hrund Grettisdóttir á Demon frá
Hólum, 65,60.
250 metra stökk
1. Amor frá Vatni, eigandi Jökull Sig-
urðsson, knapi Heiga H. Ágústsdóttir,
20,40 sek.
2. Hryðja, eigandi Ragnar Guðmunds-
son, knapi Jón Magnússon, 20,75 sek.
3. Funi frá Steintúni, eigendur Birgir
Már Bjarkason og Bjarki Jónasson,
knapi Ánna Berg, 21,11 sek.
300 metra stökk
1. Tvistur, eigandi og knapi Benjamín-
Markússon, 23,90 sek.
2. Hrífandi frá Vatni, eigandi Sigurður
Jökulsson, knapi Helga H. Ágústsdóttir,
24,20 sek.
3. Kólfur, eigandi Einar Karelsson,
knapi Stefán Sturluson, 25,34 sek.
300 metra brokk
1. Þrymur frá Hólum, eigandi Siguijón
Helgason, knapi Halldór Sigurðsson,
38,50 sek.
Hestamót Kóps á Sólvöllum:
Hátúnshestarn-
ir efstir í gæð-
ingakeppninni
Hestamannafélagið Kópur í Vestur-Skaftafellssýslu hélt sitt árlega
hestamót á Sólvöllum á laugardag í blíðskaparveðri. Framkvæmd
mótsins gekk með miklum ágætum en nú var í fyrsta skipti keppt
í tölti og var ágæt þátttaka í greininni og líklegt að framhald verði á.
Hestarnir frá Hátúnum voru sig-
ursælir á mótinu en Háfeti varð
efstur í A-flokki gæðinga, tölti og
valinn glæsilegasti hestur mótsins.
Þá fékk Þórunn Bjarnadóttir ásetu
skeifuna sem gefin er af systrunum
Fanneyju, Ólöfu og Kristínu Lárus-
dætrum fyrir góða ásetu og snyrti-
legan klæðnað. Þátttaka í kappreið-
um var frekar dræm og tímar ekki
sérlega góðir.
Úrslit urður sem hér segir:
A-flokkur gæðinga
1. Háfeti frá Hátúnum. F.: Gáski 920,
Hofsstöðum. M.: Stjarna, Hóli, eigandi
Jens Helgason, knapi Kristín Lárusdótt-
ir, 8,48.
2. Svala. F.: Kaktus, M.: Tinna, Svín-
hóli, A-Skaft. Eigandi Steinar Sigur-
geirsson, knapi Brynjar Sigurðsson,
7,32.
3. Gleði frá Kirkjubæjarklaustri. F.: Vin-
ur 953, Kotlaugum. M.: Gletta, Steinum.
Til stuðnings Kiaradómi
FORYSTA ESAB ER
TRYGGING FYRIR
GÆÐUM OG ÞJÓNUSTU
= HÉÐINN =
VE R SLU N
SELJAVEGI 2 SÍMI 624260
ESAB
eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson
Lög um Kjaradóm kveða á um,
að við úrlausn mála skuli Kjara-
dómur gæta innbyrðis samræmis
í launum þeim sem hann ákveður
og að þau séu í samræmi við laun
í þjóðfélaginu hjá þeim. sem sam-
bærilegir geti talist með tilliti til
starfa og ábyrgðar. Ekki er á því
nokkur vafi, að Kjaradómur fór
eftir þessum fyrirmælum við þá
ákvörðun, sem hann tók 26. júní
sl. Á sama hátt er ljóst, að ákvörð-
un dómsins hefði ekki orðið í sam-
ræmi við fyrirmæli laganna ef
launakjör þeirra embættismanna,
sem dómurinn ákveður, hefðu ver-
ið látin haldast óbreytt. Kjaradóm-
ur hlýtur núna gagnrýni fyrir að
hafa farið að lögum. Hann hefði
sjálfsagt koinist hjá þeirri gagn-
rýni með því að brjóta gegn þeim.
Það eru fullkomlega eðlileg sjón-
armið að baki ofangreindum laga-
fyrirmælum um ákvarðanir Kjara-
dóms. Um er að ræða ákvarðanir
um launakjör manna í æðstu emb-
ættum á vegum ríkisins, sem eru
í þeirri stöðu, að ekki kemur til
greina að launakjör þeirra séu
ákveðin með kjarasamningum.
Varla er nokkur maður andvígur
því, að innbyrðis samræmis sé
gætt í launum þeirra, eða hvað?
Og tæpast eru menn andvígir því
að viðmiðun um launakjör þeirra
sé höfð af þeim sem sambærilegir
geta talist með tilliti til starfa og
ábyrgðar. Þar er helst sá ann-
marki á, að erfitt er að finna slík-
ar hliðstæður annars staðar, því
að flest þau störf, sem Kjaradómur
fjallar um eru ábyrgðarmestu
störfin, sem fyrirfinnast með þjóð-
inni. Ef þau störf eru launuð sýnu
lakar en önnur ábyrgðarstörf leiðir
það einfaldlega til þess að hæfir
menn sækjast ekki eftir þeim störf-
um sem mestu skipta fyrir þjóðina.
„Og ef krafan um að
Alþingi komi saman og
ógildi dóminn felur það
í sér að fyrra ástandi
verði komið á, þá er
verið að krefjast þess
að leynimakkið og
aukasporslurnar séu
teknar upp aftur í stað
þeirra eðlilegu vinnu-
bragða, sem felast í
lagaákvæðunum um
Kjaradóm og þar með
ákvörðun dómsins frá
26. júní sl.“
Það er því augljós nauðsyn á að
hafa þarna hæfilega hliðsjón.
Kjaradómur stóð frammi fyrir
því, að í framkvæmd gilti ekkert
Jón Steinar Gunnlaugsson
innbyrðis samræmi milli embætt-
anna. Og það sem aflaga fór staf-
aði af því, að með alls kyns auka-