Morgunblaðið - 07.07.1992, Page 16

Morgunblaðið - 07.07.1992, Page 16
16 MORGöNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 Minning: Erla Gestsdóttir leikskólastjóri Einn af eftirminnilegustu dögun- um í lífi mínu var um vorið 1969. Vorið er hann Ármann bróðir minn kvæntist henni Erlu mágkonu. 1 leiðinni var skírður lítill og fallegur sonur þeirra, frumburðurinn Jón Gestur. Þann dag var ég sjálf að- eins 11 ára og fannst eins og sú ótrúlega ósk hefði ræst að þá hefði ég allt í senn eignast bæði eldri systur og lítinn bróður. Þau bönd hafa veitt mér mikla gleði og ör- yggi á lífsleiðinni. I þeirri góðu veislu, sem haldin var í því tilefni, hlustaði ég á Erlu- ljóðið með öðru hugarfari og lærði fyrst þá, að þykja vænt um það. Þetta ljóð mun ávallt vekja hjá mér góðar minningar um einstaklega skemmtilega og elskulega mág- konu, traust eins og klettur, alltaf besta vinkonan hvernig sem á hefur staðið í mínu lífi. Erlu voru margir kostir gefnir. Jákvæðar lífsskoðan- ir, látlaust og heillandi viðmót gáfu henni fjöldann allan af nánum vin- um allt frá blautu barnsbeini. Erla var ekki sú manngerð, sem sagt er um, að trani sér fram, en lífsgleði hennar og persónutöfrar sáu til þess að hlutverk hennar var iðulega að skemmta á gleðistundum og í góðum hóp. Flestir sem þekktu Erlu geta minnst hennar syngjandi kátrar með gítarinn í kjöltunni. Þar sem Erla þó naut sín hvað allra bests var á meðal barna. Hún hafði þar ótæmandi orku og áhuga á að vera með þau bæði í leik og alvöru, enda naut hún mikilla vin- sælda. Fyrir aðeins ári sátum við hér í garðinum í Herlev, í sumarblíðu og ræddum um lífið og tilveruna, í þetta skipti þó aðallega um störf okkar og menntun. Erla var ein af fáum manneskjum, sem ég hef hitt, sem allt frá bernsku var fullkom- lega viss um hvað hún ætlaði sér að verða. Og í rúm 20 ár sem fóstra hefur hún verið hamingjusöm í starfi með börnunum, rétt eins og hún ætti þau öll. Sínum eigin börnum var Erla einlæg og góð móðir, urnfram allt umhyggjusöm og ástrík. Þó söknuðurinn og missirinn séu óbærilegur þá er víst að þegar versti sársaukinn er um garð genginn þá eru þessar 3 ungu manneskjur vel útbúnar af því veganesti sem móðir þeirra náði að færa þeim í lifanda lífí. Er ég hugsa til baka finnst mér svo ótrúlega stutt síðan ég sat með móður Erlu, henni Jónu, í heilt kvöld og heila eftirminnilega nótt og spil- aði „manna“. Þetta var. yndisleg sumarnótt síðast í júlí 1974. Allt lék í lyndi. Ég var aðeins 17 ára á íslandi, í þeim tilgangi að taka bíl- próf, og snemma þennan morgun eignuðust Ármann og Erla dóttur sína Steinunni Eir. Einu og hálfu ári síðar, í apríl 1976, bárust okkur þau gleðitíðindi hingað til Kaupmannahafnar að þau að nýju hefðu eignast bam, sem hlaut nafnið Hermann. Eins var það mörgum árum síðar mikil gleði fyrir Erlu er við Jón eign- uðumst Silju dóttur okkar. Fyrir Silju er það mikill missir að geta ekki vænst framar bréfanna góðu frá Erlu eða geta skrýtt sig öllum þeim fallegu fötum sem Erla frænka saumaði og prjónaði. Og alveg man Silja jafn vel og aðrir er Ármann og Erla sungu með kór Víðistaðakirkju í stofum okkar á Hojergaarden í Herlev á liðnu ári. Þegar við sögðum Silju frá and- láti Erlu frænku, voru viðbrögð hennar eins og við er að búast frá 6 ára barni. Henni þótti verst að Alfa litla frænka átti þá ekki ömmu lengur. Alfa Karitas, dóttir Stein- unnar Eirar, litli sólargeislinn og fyrsta barnabarn Erlu, sólargeislinn sem lýsti og gladdi í þessari vón- lausu baráttu. Efst í huga Silju var sú hugsun að Erla gæti nú hjá guði verndað þær báðar. Einnig fannst henni að Erla gæti einnig núna og alltaf séð hana, jafnvel þó að Silja eigi heima í Danmörku. Ég fyllist sorg og mig skortir skilning þegar ég hugsa til þessarar lífsglöðu konu, sem svo innilega vildi halda áfram að vera á meðal okkar, að hún hafi ekki fengið að vera lengur samferða eiginmanni, börnum, foreldrum og fjölskyldu. Fjölskylda okkar hefur misst mikið og á þessari erfíðu stundu leita ég huggunar og styrks í minni barnatrú. Eg leita þess skilnings að svona góð manneskja hljóti að vera kölluð burt af jörðinni til æðri starfa. Erla góða Erla ég á að vagga þér svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. (Stefán frá Hvítadal.) í einlægri von um styrk og bless- un guðs, ljölskyldu og ástvinum hennar til handa. Erla Eiríks mágkona. Hún lifír í minningunni, þótt leið- ir hafi skilið um stundarsakir. Allt- af svo blátt áfram, brosmild og kát en um leið föst fyrir og ábyrgðar- full, dugmikil og verkdtjúg en á sama tíma ljúf og blíð í samskipt- um. Þetta og svo margt fleira kem- ur í hugann, þegar rifjuð eru upp áralöng og ánægjuleg samskipti við Erlu Gestsdóttur, forstöðumann leikskólans Smáralundar, sem kvaddi 28. júní síðastliðinn. Erla var kjölfestan í starfsemi Smáralundar allt frá stofnun leik- skólans. Hún stjórnaði þar málum með mikilli röggsemi, en þó þannig að hún var hluti af hópnum. Setti sig ekki skör hærra, en tók lifandi þátt í því mikilvæga uppeldissiarfí sem þar hefur farið fram, var ævin- lega í smáu og stóru virkur þátttak- andi með starfsfólkinu í leik og starfi. Hún var og metnaðarfull fyrir hönd Ieikskólans, stóð vörð um „konurnar sínar“ og þeírra hagsmuni, þegar á þurftí að hálda og vildi umfram allt að börnunum liði vel og þau nýtu þess í nútíðinni og ekki síður í framtíðinni að hafa dvalið um lengri eða skemmri tíma fyrstu ár ævinnar á Smáralundi. Við Erla, sem samstarfsmenn hjá Hafnarfjarðarbæ, áttum oft viðræð- ur um rekstur leikskóla; markmið og leiðir í þeim efnurri. Oftar en ekki vorum við sammála. Styrkur Erlu lá ekki síst í því, að hún greindi aðalatriði frá aukaatriðum. Fjögur börn okkar hjónanna hafa á liðnum árum notið leiðsagnar og umönnunar hjá henni Erlu á Smára- iundi og hennar góða starfsfólks þar á bæ. Öllum leið þeim þar vel og hafa búið að því góða atlæti þegar frá hefur liðið. Smáralundsbörnin öll, sem þar hafa verið fyrr eða síðar, hafa misst mikið, þegar þau sjá nú á bak henni Erlu yfir móðuna miklu. Góðar sam- starfskonur á Smáralundi sakna vinar í stað. Megi þær fá styrk og stuðning á þessum erfiðu tímum. Við hjónin minnumst þess sér- staklega með alúðar þakklæti hversu hún Erla, fóstrurnar hennar og starfsstúlkur, sýndu okkur mik- inn stuðning og styrk, þegar við misstum drengina okkar tvo árið 1985. Sá kærleikur og samúð sem frá þeim streymdi við þær aðstæður verður okkur ógleymanlegur. Þá fundum við svo vel og höfum skynj- að það enn betur síðan, að börnin á Smáralundi, eru börnin hennar Erlu og samstarfskvenna; ekki bara nöfn sem koma og fara, heldur ein- staklingar með tilfinningar og þrár sem þeim þykir vænt um og þær hlúa að. Eigi má sköpum renna. Runnin er upp kveðjustund. Það er tregi í huga. En mestur er þó missir nán- ustu ættingja og vina. Samúðar- kveðjur og huggunarorð fá þar litlu breytt. En minning góðrar konu lif- ir. Við Jóna Dóra óskum þess að góður Guð vaki yfír og mildi sára sorg Ármanns eiginmanns Erlu, barna þeirra og bamabarns, for- eldra hennar, svo og annarra ætt- ingja og vina. Guð veiti látnum ró og þeim líkn sem lifa. Blessuð sé minning Erlu Gestsdóttur. Guðmundur Árni Stefánsson. Kveðja frá kór Víðistaðasóknar „Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans getur orðið þér Ijósara i fjarveru hans, eins og fíallgöngumaður sér fjallið best af sléttunni." (Úr Spámanninum eftir Kahlil Gibran). Það er komin kveðjustund. Kór Víðistaðasóknar hefur misst eina af sfnum styrku stoðum í söngnum og ekki síður afburða góðan félaga. Fyrir sex árum kom Erla í okkar hóp og eftir stuttan tíma var eins og hún hefði alltaf verið með okk- ur. Éðlisþættir hennar nutu sín vel í okkar samfélagi. Þegar litið er til baka kemur upp í hugann mynd af vandaðri og hlýrri konu með stórt hjarta og ekki síður hre'ssu og kátu stelpunni sem var alltaf hrókur alls fagnaðar. Eftir að Ármann eiginmaður hennar bættist í hópinn var yfirleitt talað um Erlu og Ármann í sama orðinu. Við minnumst Erlu á góðum stundum spilandi á gítarinn sinn sem hún hafði alltáf nálægt þegar eitthvað stóð til. Þær leita sterkt á minningarnar frá ferðalagi kórsins til Danmerkur fyrir rúmu ári síðan. Þetta var eina utanlandsferðin sem Erla fór með okkur og hún setti svo sannarlega svip sinn á hana eins og ávallt þegar við komum saman. Einnig minnumst við ferða okkar í Skálholt. Erla vildi hafa röð og reglu á hlutunum og tók hún að sér að sjá um að nótur kórfélaga væru ekki út um allt og var stund- um sagt að Erla væri alltaf með á nótunum. Elsku Jóna og Gestur, þið áttuð einstaka dóttur, Guð gefí ykkur styrk. Elsku Ármann, Jón Gestur og Ásta, Hermann, Steinunn Eir og Alfa Karitas, megi allar góðu minningarnar um Erlu verða ykkur ljós á lífsleiðinni. Guð blessi ykkur öll. Við kveðjum Erlu með söknuði og söng. „Dýrðlega þig dreymi og drottinn blessi þig.“ (Stefán frá Hvítadal.) Kórfélagar. Mér er þungt um hjartarætur er ég sest nú niður til að minnast æskuvinkonu minnar, Erlu Guðrún- ar, sem lést 28. júní síðastliðinn eftir erfíð veikindi. Af hvérju hún? Hún sem átti svo mikið eftir að gera, var alltaf að fást vð eitthvað líflegt og skemmtilegt, áhugamálin voru svo mörg. Af hveiju hún? Einkadóttir foreldra sinna og hún var sjálf nýorðin amma yndislegrar lítillar stúlku sem var svo sannar- lega augasteinn ömmu sinnar og gleðigjafí fjölskyldunnar þessa erf- iðu síðustu mánuði. Erla fæddist á Hrauni, Kirkjuvegi 8 í Hafnarfírði, þann 22. október 1948. Var dóttir hjónanna Gests Gam- alíelssonar og Jónu Guðmundsdótt- ur. Þau eignuðust nokkrum árum síðar soninn Gamalíel sem lést fárra vikna. Erla byijaði snemmaað passa böm systkina minna, var sérlega barngóð og valdi sér síðan fóstru- nám og starfaði við það síðan. Ekki er langt síðan Erla skrifaði sjálf yndisleg kveðjuorð um aðra æskuvinkonu úr litlu götunni okkar sem þessi hræðilegi sjúkdómur hef- ur tekið svo allt of marga úr. í gegnum huga mér renna allar minningarnar frá æskuárunum okkar á Kirkjuveginum, allar stund- irnar sem við áttum saman, alltaf var ég velkomin út á Hraun og það voru ekki fá skipti sem við sátum öll fjögur og spiluðum langt fram á nótt, það var alltaf gaman og gott að koma út á Hraun. Við fórum líka oft í heimsókn upp á Norður- braut til Helgu ömmu, þangað var gaman að koma og fá að heyra sögur og frásagnir hjá henni, hún átti alltaf nóg af sögum handa litlu telpunum sínum. Aldrei leið svo aðfangadagskvöld að Erla kæmi ekki yfír til okkar í heimsókn, þar var meira líf og fjör, enda vorum við systkinin fímm, samt var beðið eftir að Erla kæmi yfir götuna, hún hélt þeim sið að koma til okkar þetta kvöld alveg þar til hún stofn- aði sitt eigið heimili. Hún var ætíð trú og góð vinkona, kát og hress í viðmóti. Erla giftist árið 1969 Ármanni Eiríkssyni og eignuðust þau þijú mannvænleg börn, Jón Gest, Stein- unni Eir og Hermann. Þegar við eignuðumst okkar fyrstu börn flutt- um við báðar á Arnarhraun og bjuggum þá aftur hlið við hlið eins og í gamla daga og urðu synir okk- ar þá leikfélagar og góðir vinir al- veg eins og við vorum. Elsku Jóna, Gestur, Ármann og börn, það er erfitt að sjá á eftir góðri vinkonu, dóttur, eiginkonu og móður. Ég bið góðan Guð að styrkja ykkur öll. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Bryndís Ólafsdóttir. Vinkona mín, Erla Gestsdóttir, er látin. Krabbameinið hremmdi hana og dauðinn hrifsaði hana til sín nokkrum mánuðum seinna. Hel- fregnin gerði mig magnlausan og yfír mig þyrmdi, ég fylltist sárs- auka, eftirsjá, gremju og kökkur hljóp í háls mér. Álengdar stend ég hnípinn og drúpi höfði. Mér fínnst ég vera vitni að vondum ör- lögum. Hrifin er burt einkadóttir foreldra sem áður hafa misst einka- sóninn, eiginkona og móðir þriggja barna, tveggja á viðkvæmum aldri, sem hún átti eftir að skila frá sér út í lífið, amma hvítvoðungs sem hún hlakkaði til að njóta samvista við, þroska og leiða. En okkur er ekki gefíð að skilja; drottinn gaf og drottinn tók — okkar er að taka því sem að höndum ber. En ekkert líf er án dauða og enginn dauði án lífs. Lífíð felur í sér dauðann og á undan dauðanum kemur lífshlaupið. Ég eignaðist hluta í lífi Erlu og fyrir það er ég þakklátur: Minningarnar standa eftir, breytast svolítið, verða nú ljúfsárar en ylja áfram. Bautasteinninn sem Erla reisti sér á ævigöngu sinni er bjartur og fagur. Hún ólst upp á sannkristnu heimili. Foreldrar hennar eru kirkj- unnar fólk, kirkjuræknir þjónar þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði í fjöm- tíu og fímm ár auk starfa fyrir KFUM. Til uppeldis í foreldrahúsum sótti hún því guðsótta og góða siði en að eðlisfari var hún einstaklega kát og skemmtileg, greind, hafði næma tilfínningu fyrir tónlist, dug- leg og drífandi. — Erla Gestsdóttir hafði góða nálægð. Kynni okkar Erlu hófust fyrir tuttugu og fímm árum þegar Ár- mann vinur minn og æskufélagi kynntist henni. Við erum af sextíu og átta kynslóðinni og af sjálfu leið- ir lágu leiðir þeirra saman í Glaumbæ, sem var félagsmiðstöð, hjúskaparmiðlun og skemmtistaður okkar kynslóðar. Við vorkenndum honum svolítið félagarnir, fyrst af því hún átti heima í Hafnarfírði, en þá tíðkaðist það að herrarnir fylgdu dömunum heim eftir dans- leik og leigubíll í Fjörðinn var svo dýr. En Ármann vissi að hún var meira virði en fargjald nokkurra leigubíla og þegar hann ráðgerði að flytja til hennar í Hafnarfjörð skildum við loks vesturbæingarnir í Reykjavík að eitthvað meira en lítið var í hana spunnið úr því hún gat fengið hann til þess. Nokkru áður hafði ég fest mér konu og varð okkur hjónaleysunum strax vel til vina. Fyrir glettni örlaganna gift- um við okkur síðan sama daginn og áttum 23 ára brúðkaupsafmæli 24. maí sl. Gagnkvæmar heimsókn- ir voru strax upp teknar, spila- mennska, ferðalög og ýmis önnur skemmtilegheit hafa síðan fylgt okkur alla tíð, aldrei komið upp ósætti, aldrei neinn móðgaður eða í fýlu, engin vandræði eða vand- ræðagangur. Það einfaldlega þreifst ekkert þvíumlíkt í návist Erlu. Minnstu og ótrúlegustu atvik urðu okkur að skemmtiefni, jafnvel upplestur úr bókum um læknisfræði varð að skemmtidagskrá. Og svo kunni hún á gítar; var góður gítar- eigandi. Kunnátta hennar á hljóð- færið undraði mig alltaf. Sama hvaða lag hún var beðin um að spila; annaðhvort kunni hún lagið eða lærði það á staðnum. Svo kunni hún flesta texta; dægurlögin lærði hún af útvarpinu, þjóðlögin, ætt- jarðarlögin og sálmana af foreldr- um sínum og barnalögin tilheyrðu fóstrustarfínu. Hún söng lagið eða milliröddina, allt eftir þörfum þeirra sem sungu með henni hveiju sinni. Og hún fór rétt með ljóðin og text- ana. Stundum spilaði hún á gítarinn þar til blæddi úr fingrunum. Ég sem engu lagi held og kann bara hrafl úr textum fannst það alltaf svolítil galdur að hlusta á Erlu spila og syngja, fyrirhafnarlaust að því virt- ist. Sjálfri fannst henni aldrei neitt til koma, hélt því fram að textarnir hefðu einhvernveginn síast inn og gítarkunnáttan væri nokkur vinnu- konugrip. — Hógværðin og lítillætið var hennar fylgikona. Svo söng hún í kór Víðistaðakirkju, dreif með sér í kórinn Ármann og eiginkonu mína en mér kenndi hún að hlusta á og meta tónlist upp á nýtt, svo fyrir mér opnaðist nýr heimur. — Það er ekki ónýtt að eiga svona vin. Réttlætiskennd var ríkur þáttur í fari Erlu. Mismunun kynjanna var ekki látin í friði, hún rakst illa í flokkspólitík því samherjarnir fengu um það að vita ef hún taldi þá á villigötum og andstæðingarnir nutu sannmælis. Þetta skildu ekki allir. Hún sagði mönnum ekki á bak það sem hún sagi ekki við þá sjálfa. Hún var umtalsfróm og baktalaði ekki fólk. Dýravinur var hún og mátti ekkert aumt sjá. Erla Gestsdóttir var fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún unni bænum sínum, mannlífínu og fólk- inu sem þar bjó, en hún virtist þekkja flesta innfædda. Kunni hún frá mörgu broslegu að segja um Hafnfírðinga, engu þó rætnu. Hún var gegnheill Hafnfírðingur og stolt af því. Hún var fóstra og þar á réttri hillu, starfaði sem slík í Hafn- arfírði og hin síðari ár sem forstöðu- kona Smáralundar. Foreldrar henn- ar eru Gestur Gamalíelsson trésmið- ur sem lengst af starfaði við kirkju- garðinn í Hafnarfírði, ættaður úr Villingaholtshreppi, og Jóna Guð- mundsdóttir úr Hafnarfirði, hús- móðir og starfsmaður fógeta um langt árabil. Erla giftist Ármanni Eiríkssyni skrifstofumanni úr Reykjavík 24. maí 1969. Börn þeirra eru Jón Gestur, fæddur 28. janúar 1969, bæklunarskósmiður, í sambúð með Ástu Bimu Ingólfs- dóttur skrifstofumanni, Steinunn Eir, fædd 31. júlí 1974, nemi, og Hermann, fæddur 13. apríl 1976. Steinunn Eir á eina dóttur, Ólöfu Karitas Stefánsdóttur, fædda 24. desember 1991. (SJA SÍÐU 36)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.