Morgunblaðið - 07.07.1992, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið.
Hver er afstaða
Kvennalistans?
egar upp koma deilumál
á borð við úrskurð Kjara-
dóms um launakjör nokkurs
hóps stjómmálamanna og
embættismanna er ekki ein-
ungis gerð krafa til ríkis-
stjórnar um afstöðu og
ákvörðun heldur verður líka
að gera ráð fyrir, að stjórnar-
andstöðuflokkar, sem vilja
láta taka sig alvarlega, móti
afstöðu sína til málsins og
tali svo skýrt að skiljist.
Morgunblaðið birti í heild
sl. laugardag yfírlýsingu frá
þingflokki Kvennalistans
vegna málsins. Þar sagði
m.a.: „Á undanförnum árum
hafa forystumenn í stjórn-
kerfínu, með ráðherra í broddi
fylkingar, staðið gegn hvers
kyns leiðréttingum á launa-
kjörum einstakra hópa á
vinnumarkaði. í kjaraviðræð-
um hafa þeir ekki Ijáð máls
á öðm en heildarlausnum fyr-
ir allt launafólk, sem hafa
falið i sér mjög óverulegar
kauphækkanir. Það skýtur
því óneitanlega skökku við,
að þeir, sem mótað hafa þessa
stefnu skuli nú fyrstir allra
fá leiðréttingu á sínum laun-
um. Þeim ber því öðrum frem-
ur siðferðileg skylda til að
benda á leiðir til að taka á
þeirri stöðu, sem upp er kom-
in í kjaramálum, eigi þeir
ekki að glata öllu trausti og
trúverðugleika hjá launa-
fólki."
Hinn tilvitnaði kafli úr yfír-
lýsingu þingflokks Kvenna-
listans bendir óneitanlega til
þess með tilvísun til umræðna
um kjaramál og samninga,
sem gerðir hafí verið á vinnu-
markaðnum, að Kvennalist-
inn telji óeðlilegt, að úrskurð-
ur Kjaradóms nái fram að
ganga. En síðar í sömu yfir-
lýsingu segir: „Þingflokkur
Kvennalistans er sammála
þeirri grunnhugmynd í úr-
skurði Kjaradóms að afnema
beri aukagreiðslur og ákvarða
heildarlaun æðstu starfs-
manna ríkisins. Verði þessari
ákvörðun Kjaradóms fylgt
eftir þýðir hún launalækkun
hjá stórum hópi æðstu emb-
ættismanna. Þá telur þing-
flokkurinn, að dómurinn hafí
gert leiðréttingar á innbyrðis
launum þess hóps, sem undir
hann heyrir, sem m.a. þing-
menn, hvar í flokki, sem þeir
standa, hafa lengi talað um í
sínum hópi, að væru réttmæt-
ar.“
Loks segir í yfírlýsingu
Kvennalistans: „Þingflokkur
Kvennalistans er tilbúinn til
að standa að því, að þing
verði kallað saman þegar í
júlí og breyting gerð á lögum
um Kjaradóm, ef það má
verða til að leysa þann hnút,
sem launamál í landinu eru
nú komin í. Þingflokkurinn
er aftur á móti ekki tilbúinn
til að ógilda úrskurð Kjara-
dóms með lögum og hverfa
aftur til fyrra horfs.“
í ljósi þeirra tilvitnana, sem
hér hafa verið birtar í yfirlýs-
ingu þingflokks Kvennalist-
ans verður ekki hjá því kom-
izt að spyija hver afstaða
Kvennalistans til málsins sé.
Það er ómögulegt að komast
að raun um hver sú afstaða
er með því að lesa þessa yfír-
lýsingu!
í umræðum um úrskurð
Kjaradóms hefur mörgu verið
blandað saman. Talsmenn
verkalýðshreyfíngar og opin-
berra starfsmanna hafa gert
tekjumun í landinu að umtals-
efni í þessu sambandi. Aðrir
hafa fært fram rök fyrir því,
að sú launahækkun, sem
Kjaradómur úrskurðaði hafi
verið réttmæt. Þetta mál
snýst hvorki um tekjumun né
réttmæti þess að hækka laun
embættismanna og stjórn-
málamanna. Það er til þess
fallið að flækja umræður um
málið að blanda þessu saman.
Málið snýst einfaldlega um
það, að í ljósi umræðna um
kjara- atvinnu- og efnahags-
mál síðustu rúm tvö ár og
tvenna kjarasamninga, sem
gerðir hafa verið, er útilokað
að aðrar launabreytingar
verði í landinu en þær, sem
um var samið í kjarasamning-
unum í maímánuði sl.
Morgunblaðið/Bjami
Vigdís Finnbogadóttir heilsar upp á börn úr Lundarreykjadal. I baksýn sést kirkjan að Lundi.
Vigdís Finnbogadóttir eftir ferð um Borgarfjörð:
Gaman að vera með
fólkí og kynnast því
Morgunblaðið/Theodór
Gróðursett við leikskólann Klettaborg í Borgarnesi.
Morgunblaðið/Þorkell
Forseti ræðir við Elísabet Guðmundsdóttur í móttöku í Lyngbrekku,
Álftaneshreppi. Við hlið þeirra má sjá Jakob Skúlason.
FORSETI íslands frú Vigdís
Finnbogadóttir ferðaðist um
Mýrar og Borgarfjörð bæði á
laugardag og sunnudag. „Þessir
dagar eru .og verða mér ógleym-
anlegir," sagði Vigdís í samtali
við Morgunblaðið. Ferð hennar
þessa daga lá meðal annars um
Akranes, uppsveitir Borgarfjarð-
ar, sögustaðina Reykholt og
Borg á Mýrum og Borgarnes.
„Síðustu stundirnar verða ekki
síst fastar í minni, að fá að ganga
í gegnum garðinn góða, Skalla-
grímsgarð," sagði Vigdís á
sunnudag er hún lauk velheppn-
aðri ferð sinni í Borgarnesi.
Garður Rafveitu Akraness var
fyrstur staða sóttur heim á laugar-
dag og tók Magnús Oddsson raf-
veitustjóri á móti henni. Þar fór
gróðursetning fram í sérstökum
vinabæjalundi þar sem fulltrúar
fimm vinabæja Akraness gróður-
settu einnig. Byggðasafnið að Görð-
um var því næst skoðað. Leiðsögu-
menn forseta voru Guttormur Jóns-
son forstöðumaður safnsins og Þór-
dís Arthursdóttir.
Kirkjan á Leirá í Leirársveit var
skoðuð í fylgd séra Jóns Einarsson-
ar formanns héraðsnefndar Borgar-
fjarðarsýslu. Nú var ekið yfir í
Skorradal og Hvammur sóttur
heim, en þar hefur Skógrækt ríkis-
ins haft bækistöðvar um árabil.
Agúst Amason skógarvörður leiddi
forseta um staðinn, sem á 40 ára
afmæli um þessar mundir.
Hádegisverður undir beru lofti
Eftir að gróðursetning hafði far-
ið fram var léttur hádegisverður
snæddur undir berum himni. Agúst
þakkaði forseta íslands hennar
skerf að skógræktarstörfum og
taldi þau skila sér í auknum skiln-
ingi fólks á landgræðslumálum.
Úr Skorradalshreppi lá leiðin í
Lundarreykjadal og heim að hinu
foma prestssetri og þingstað Lundi
þar sem kirkjan var skoðuð og gróð-
ursetning fór fram. Vom þar saman
komnir margir íbúar dalsins en Jón
bóndi Gíslason í Lundi fór fyrir og
tók á móti forsetanum. Andakíls-
hreppur var næstur á dagskrá og
gróðursetning fór fram við félags-
heimilið Brún í Bæjarsveit þar sem
opnað var nýtt svæði til skógrækt-
ar.
Formleg móttaka fór því næst
fram að Reykholti en þangað hafði
fólki úr hreppum Borgarfjarðar-
sýslu verið boðið til kafíísamsætis
í Héraðsskólanum. Þórir Jónsson
oddviti Reykholtsdalshrepps tók á
móti forseta og Magnús B. Jónsson
á Hvanneyri flutti henni ræðu.
Freyjukórinn gladdi þar gesti með
söng sínum undir stjórn Bjarna
Guðráðssonar. Við Brúarás var
gróðursett að nýju með aðstoð
barna úr Hálsasveit en þar með
lauk yfirreið hennar um Borgar-
fjarðarsýslu.
Við þetta sama tækifæri bauð
formaður héraðsnefndar Mýra-
sýslu, Eyjólfur Torfí Geirsson í
Borgarnesi, forsetann velkominn.
Leiðin lá nú yfir Hvítá. í stuttu
spjalli við Morgunblaðið sagði Vig-
dís það hafa verið „...alveg einstakt
að ferðast um Borgarfjörðinn vegna
veðursældar og náttúrufegurðar og
ekki síst fyrir það hve fólkið hefur
tekið mér af mikilli hlýju og gest-
risni og reisn.“
Heimsókn forsetans í Mýrasýslu
hófst á Arnbjargarlæk þar sem
hjónin Davíð Aðalsteinsson bóndi
og Guðrún Jónsdóttir tóku á móti
henni. Forsetinn hélt nú í Borgar-
nes þar sem héraðsnefnd MýrasýSlu
bauð til kvöldverðar. Þar kom með-
al annars fram samkór Mýramanna
undir stjórn Bjöms Leifssonar. Við
þetta tækifæri var forseta íslands
afhent sameiginleg gjöf frá íbúum
sýslnanna beggja, höggmyndih
Fjailkonan, unnin af Páli Guð-
mundssyni á Húsafelli. í Borgar-
nesi lauk þar með öðrum degi heim-
sóknarinnar.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992
25
48 börn frá 12 þjóðum
Á sunnudag var farin skoðunar-
ferð í Hítardal á Mýram, og að
henni lokinni var móttaka í Lyng-
brekku fyrir íbúa Álftaness- og
Hraunhrepps þar sem oddviti Álfta-
neshrepps, Einar Ole Pedersen,
bauð forseta velkominn.
í Álftaneshreppi hefur undanfar-
in fjögur ár verið unnið að lagningu
vatnsveitu á bæi í hreppnum og
jafnvel út í eyjar. Erfitt var að ná
brannum og vatn víða slæmt og
af skomum skammti í hreppnum,
og því mikil bót að veitunni, sem
sækir vatn í Hraundalshraun. Síð-
asti bærinri verður tengdur vatns-
veitunni í haust.
Næsti viðkomustaður var Borg á
Mýram, og tók þar Árni Pálsson
sóknarprestur á móti forseta. Sýndi
hann forseta höggmynd Ásmundar
Sveinssonar, Sonatorrek, og að því
loknu gróðursetti forseti þrjú tré
við kirkjuna. í kirkjunni var sunginn
sálmur við undirleik Bjama Valtýs
Guðjónssonar organista.
í félagsheimilinu Þinghamri á
Varmaiandi tóku íbúar Norðurár-
dals, Stafholtstungna, Þverárhlíðar
og Hvítársíðu á móti forseta. í öðra
húsi gamla Húsmæðraskólans á
staðnum hafði aðsetur hópur 48
ellefu ára bama frá 12 löndum, sem
stödd eru á íslandi á vegum alþjóða-
samtakanna CISV, sem starfa í
tengslum við Sameinuðu þjóðirnar.
Heilsuðu bömin forsetanum íklædd
þjóðbúningum sínum og aðstoðuðu
hana við gróðursetningu.
Jón Þór Jónasson oddviti í Staf-
holtstungnahreppi bauð forseta vel-
kominn, og gestum vora boðnar
veitingar. Inger Traustadóttir flutti
ljóð eftir Halldór frá Ásbjarnarstöð-
um og Guðmund Böðvarsson á
Kirkjubóli, og Gísli Þorsteinsson
söng við undirleik Sverris Guð-
mundssonar.
Heimilismenn að Holti fagna
Sumardvalarheimilið Holt í Borg-
arhreppi, sem Þroskahjálp á Vest-
urlandi og svæðisstjóm fatlaðra
rekur, hýsir fatlaða á Vesturlandi
í 1-5 vikur á sumri hveiju. Vakti
heimsókn forseta þangað óblandna
ánægju heimilismanna, og hlaut
hún að gjöf mynd, gerða af Aslaugu
Þorsteinsdóttur.
Frá Holti var haldið að leikskól-
anum Klettaborg í Borgarnesi, þar
sem gróðursettar voru þijár hríslur.
Sex ára stúlka, Sigríður Dóra Sig-
urgeirsdóttir færði forsetanum
blómvönd.
Þá tók forseti fyrstu skóflu-
stungu að þjónustuíbúðum við Dval-
arheimili aldraðra, og formaður
stjómarinnar, Óli Jón Gunnarsson
bæjarstjóri, flutti ávarp. Að því
loknu var gengið gegnum Skalla-
grímsgarð.
Móttaka var í íþróttahúsinu, en
á þessu ári héldu Borgnesingar upp
á 125 ára verslunarafmæii staðar-
ins. Sigrún Símonardóttir forseti
bæjarstjómar flutti ávarp og færði
forseta koparslegið mjaðarhorn að
gjöf, gert af Sverri Vilbergssyni.
Þá færði Safnastofnunin forseta lít-
inn spunarokk sem Sverrir gerði.
Eftir að barnakór Grannskóla Borg-
amess hafði sungið nokkur lög við
undirleik og stjóm Birnu Þorsteins-
dóttur var boðið upp á veitingar.
Þá var farið í ökuferð um Borgar-
nes. Vigdís Finnbogadóttir og Sigr-
ún Símonardóttir reyndu m.a. ról-
umar á Bjössaróló, þar sem tré-
smiðurinn Bjöm Guðmundsson
ræður ríkjum og hefur hannað og
smíðað öll leiktækin.
Að lokum var farið í Safnastofn-
un Borgarfjarðar við Bjamarbraut.
Guðmundur Guðmarsson forstöðu-
maður flutti ávarp, og svo voru
söfnin skoðuð undir leiðsögn Guð-
mundar og Bjama Bachmann safn-
varðar. Ingibjörg Þorsteinsdóttir
lék á gamlan flygil og bornar voru
fram veitingar. Þá flutti Eyjólfur
Torfi Geirsson formaður Héraðs-
nefndar Mýrasýslu ávarp og þakk-
aði forsetanum kærlega fyrir heim-
sóknina. Að lokum flutti forsetinn
kveðjuávarp þar sem hún þakkaði
fyrir gjafir og höfðinglegar móttök-
ur.
-ÞJ/GL/TKÞ
Mokafli á land imdanfariö
Vestfirðir, Norðurland og Austfirðir:
MOKAFLI hefur komið á land á Vestfjörðum að undanförnu og hafa
handfæra- og línubátar fiskað sérlega vel. Aflabrögðin hjá bátum frá
Norðurlandi og Austfjörðum hafa einnig glæðst verulega á síðustu
dögum. Einar Oddur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hjálms á Flat-
eyri segir að svo mikill fiskur komi á land að hann keyri lausfrysting-
una í frystihúsinu í 20 til 24 tíma á sólarhring. Hann segir að öllum
beri saman um að um óvenju mikla fiskgengd á grunnslóð sé að ræða.
Jón Páll Halldórsson forstjóri Norðurtangans á Isafirði segir að Vest-
fjarðatogaramir hafi verið að landa á bilinu 120 til 200 tonnum, eftir
fárra daga úthald, sem sé mjög gott. Samkvæmt upplýsingum frá
Dalvik vom aflabrögðin hjá 19 handfærabátum sem þar leggja upp
þau bestu í síðustu viku síðan í vor. Og á Höfn i Hornafirði eru þær
fréttir að aflinn sé að glæðast veralega eftir dauft fiskerí i sumar.
„Það hefur verið rosalega mikill
afli að undanförnu og öllum ber sam-
an um að það sé óvenju mikil fisk-
gengd á grannslóð. Gyllir landaði hér
á Flateyri um helgina 120 tonnum
eftir fimm daga úthald, þar sem
meginuppistaðan var þorskur," sagði
Einar Oddur í samtali við Morgun-
blaðið. „Það sem takmarkar helst
vinnslugetuna hjá okkur era afköstin
Hrepparnir þrír eru Geithellna-
hreppur, sem nær frá Þvottárskrið-
um að Veiðilæk. Á kjörskrá vora
50 og greiddu 32 atkvæði eða 64%
íbúa. Af þeim vora 15 samþykkir
sameiningu eða eða 46,87% en 16
vora á móti eða 50%. Einn seðill
var auður. Sameining telst samþykk
Launahækk-
anir umf'ram
1,7% þýða átök
- segirBjörn
Grétar Sveinsson,
formaöur VMSÍ
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Verkamannasambands íslands
hefur sent frá sér ályktun þar
sem hún lýsir undrun sinni og
hneykslan á úrskurði Kjaradóms
og segir að þegar fjölmennustu
launþegasamtök þjóðarinnar
hafi samið um 1,7% launahækk-
un sé með öllu fráleitt að slíkir
dómar skuli upp kveðnir. Fram-
kvæmdastjórnin kom saman til
fundar í gær. Björn Grétar
Sveinsson, formaður Verka-
mannasambandsins, segir að
verði dóminum ekki hnekkt kalli
það á mögnuð og hatrömm átök
á vinnumarkaði.
Björn Grétar segir í samtali við
Morgunblaðið að allar hækkanir
umfram 1,7% meðan núverandi kja-
rasamningar séu í gildi, hljóti að
kalla á átök í þjóðfélaginu þar sem
almennt launafólk sætti sig ekki
við að menn hærra launaðir fái
margfaldar hækkanir.
Þá lýsir framkvæmdastjórn
Verkamannasambandsins yfír
furðu sinni á að ríkisstjómin ætli
sér að leysa þann vanda sem upp
sé kominn með umdeildum bráða-
birgðalögum sem ýmsir fróðustu
menn í lögum telji mjög hæpið að
standist. Krafa útifundarins hafi
verið að Alþingi yrði kallað saman
og framkvæmdastjórnin telji eðli-
legt að það hefði fjallað um málið.
„Við lýsum undran okkar yfir
þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar
en gerum okkur grein fyrir að þar
er valdið,“ segir Björn Grétar.
í lausfrystingu, því við erum að reyna
að vinna sem mest af þorkinum sem
lausfryst flök á Evrópumarkað. Við
erum því að breyta vinnslunni hjá
okkur í það að lausfrysta_20 til 24
tíma á sólarhring til þess að reyna
að hafa undan, meðan svo mikill
afli berst á land,“ sagði Einar Oddur.
Vestfírðingar hafa búið við þennan
mikla afla, allt frá því að tveggja
þó að meirihluti greiddra atkvæða
væri á móti í hreppnum, því sam-
kvæmt reglum teljast þeir sem
heima sitja samþykkir sameiningu.
Var þetta kynnt mjög rækilega
fyrir kosningu og telja menn að
kosningaþátttaka hafí verið dræm
vegna þess.
I Búlandshreppi sem nær að
Svartárhamri við Búlandsá vora
292 á kjörskrá. Af þeim greiddu
122 atkvæði eða 41,8% íbúa. Voru
111 eða 91% samþykkir samein-
ingu en 9 eða 7,3% á móti. Einn
seðill var auður og einn ógildur. í
Beruneshreppi sem nær austur að
Streitishvarfi voru 52 á kjörskrá.
Af þeim greiddu 38 atkvæði eða
73% íbúanna. Voru 18 samþykkir
sameiningu eða 47,4% en 17 vora
á móti eða 44,7%. Auðir seðlar
voru 3.
Úrskurður hefur borist um það
frá félagsmálaráðuneytinu að sam-
einingin teljist lögleg og er stefnt
að hreppsnefndarkosningu í hinum
nafnlausa nýja hreppi þann 15.
ágúst.
G.B.
------» ♦ ♦------
Mannbjörg-
er irilla sökk
NANNA HF 17, tæplega fimm
tonna trébátur, strandaði á
Hlöðu, skeri út af Streiti sunnan
við Breiðdalsvík, um kl. 4 aðfara-
nótt sunnudags og sökk í kjölfar-
ið. Eigandi bátsins var einn um
borð og var honum bjargað um
borð í trillu sem var í grennd-
inni þegar óhappið átti sér stað.
Maðurinn var á leið frá Berufirði
yfir til Breiðdalsvíkur úr róðri þeg-
ar báturinn strandaði. Talið er að
hann hafi sofnað við stýrið.
Að sögn lögreglunnar á Fá-
skrúðsfirði var maðurinn orðinn
nokkuð kaldur þegar honum var
bjargað en hann hafði þá verið í
sjónum í um 10 mínútur þar sem
honum tókst ekki að blása gúm-
björgunarbátinn upp. Maðurinn var
í vinnuflotgalla.
Ágætt veður var á þessum slóð-
um þegar báturinn strandaði.
vikna brælu í júní lauk, en fyrir þann
kafla vora aflabrögð einnig mjög
góð, að sögn Einars Odds.
Eggert Bollason á hafnarvoginni
á Ðalvík sagði að síðasta vika hefði
verið sú besta í sumar á handfæram.
„Menn voru að fá þetta upp í 1,5
tonn eftir sólarhringinn og að jafnaði
var dagaflinn um 750 kg. á móti
þetta 100-150 kg. eftir daginn fyrr
í sumar,“ sagði Eggert. „En það er
ekkert að hafa á grannslóðinni hér,
bátarnir vora að sækja þennan afla
langt út á haf og margir komust í
góðan físk í grennd við Kolbeinsey."
Samkvæmt upplýsingum frá
Heimi Karlssyni á hafnarvoginni á
Höfn í Homafírði hefur veiðin glæðst
töluvert á síðustu dögum eftir algera
ládeyðu í allt sumar. „Frá 1. júlí
hafa 21 bátur landað hér um 15 tonn-
um en fyrir þann tíma hafði enginn
fengið neitt að ráði,“ sagði Heimir.
Sjálfur fór Heimir í róður um helgina
og var dagsaflinn hjá honum og fé-
laga hans 1,7 tonn. „Við þurftum að
sigla um 40 mílur á haf út til að ná
þessum físki en þetta var fallegur
þorskur, um 1,2 tonn, og um hálft
tonn af ufsa.“
Jón Páll Halldórsson, forstjóri
Norðurtangans segir að reynt hafí
verið að keyra vinnsluna aðeins í
dagvinnu að undanförnu, en það sé
alveg sýnilegt að það verði að auka
vinnuna til þess að hafa undan í
vinnslunni. „Við önnum ekki öllu
þessu hráefni, nema einhver auka-
vinna verði unnin. Handfæraafli hef-
ur verið mjög mikill að undanfömu I
og togaramir hafa fískað mjög I
þokkalega einnig, eða komið með að í
landi svona 120 til 200 tonn eftir
fárra daga úthald," sagði Jón Páll.
Sigurður Viggósson framkvæmda-
stjóri Odda á Patreksfirði hefur sömu
sögu að segja af aflabrögðum og
þeir Einar Oddur og Jón Páll, en
hann segir að þeir í Odda hafi þó
ekki gripið til þess ráðs að keyra
vinnsluna á vöktum, þar sem þeir
telji það ekki nógu hagkvæmt. „Hér
hefur verið mikill afli á handfærabát-
um undanfamar þijár vikur, enda
margir fiskverkendur," sagði Sigurð-
ur.
Sigurður segir að óvenju mikið
framboð hafi verið af físki á Patreks-
firði að undanförnu, sem bæði hafí
verið unninn á staðnum og keyrður
burtu óunninn. „Menn hafa verið að
auka eitthvað aftur saltfiskverkunina
og draga úr frystingunni, þar sem
afkoma hennar er ekki nægilega
góð,“ sagði Sigurður Viggósson.
Suður-Múlasýsla:
Þrír syðstu hrepp-
amir sameinaðir
Djúpavogi.
KOSIÐ var um sameiningu þriggja syðstu hreppa í Suður - Múla-
sýslu á laugardag. Á kjörskrá voru 394 en atkvæði greiddu 192 eða
48,73%. Voru 144 samþykkir sameiningu í hreppunum þremur eða
75% og 42 á móti en 5 seðlar voru auðir og 1 ógildur.
Davíð Oddsson forsætisráðherra flytur Varðarfélögum ávarp sitt
í Langadal.
Setning bráðabirgðalaga vegna úr-
skurðar Kjaradóms:
Komið í veg fyrir að
slíkt endurtaki sig
- sagði forsætisráðherra í Varðarferð
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í sumarferð Landsmálafé-
lagsins Varðar í Þórsmörk á laugardag, að úrskurður Kjara-
dóms, um hækkun launa æðstu embættismanna ríkisins, kjörinna
fulltrúa og presta, hefði verið slys. Með ákvörðun sinni um setn-
ingu bráðabirgðalaga hefði ríkisstjórnin komið í veg fyrir að slikt
slys gæti endurtekið sig.
Forsætisráðherra sagði í ræðu
sinni að íslenska þjóðin hefði sýnt
því mikinn skilning að undanförnu
að menn yrðu að leggja harðar
að sér þegar á móti blési. „Það
var þess vegna sem órói, óánægja
og sárindi mögnuðust þegar
kjaradómurinn féll á dögunum.
Ekki vegna þess, að dómurinn
hefði í sjálfu sér verið rangur,
hann var rétt dæmdur eftir lögun-
um, heldur vegna þess að hann
gekk þvert á það sem allir aðrir
launþegar höfðu samið um. Mönn-
um fannst hann vera tákn um,
að það væru bara sumir sem ættu
að bera byrðarnar en ekki allir.
Þetta slys hefur orðið okkur öllum
umhugsunarefni og ég vonast til
að við höfum þegar, með ákvörðun
ríkisstjómarinnar um bráða-
birgðalög, girt fyrir að slíkt slys
geti endurtekið sig og um leið
gert það kleift að lagfæringar
verði gerðar án þess að menn
færu þá leið, sem margir stungu
upp á, að færa kerfið í það gamla
óheppilega far, að taka laun af
fólkinu með lögum. Það viljum við
sjálfstæðismenn ekki gera,“ sagði
Davíð.
Um 300 manns tóku þátt í hinni
árlegu sumarferð Landsmálafé-
lagsins Varðar, sem farin var í
bliðskaparveðri á laugardag undir
fararstjórn Höskuldar Jónssonar
formanns Ferðafélags íslands.
Lagt var af stað frá Reykjavík
árdegis og áð á Hellu, þar sem
Eggert Haukdal 6. þingmaður
Suðurlandskjördæmis ávarpaði
ferðamenn. Áð því loknu var ekið
inn i Þórsmörk, þar sem göngu-
ferðir með leiðsögumönnum voru
i boði. Áður en haldið var heim-
leiðis ávarpaði forsætisráðherra
Varðarfélaga og aðra Þórsmerk-
urfara í Langadal.