Morgunblaðið - 07.07.1992, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VZÐSHPn/ATIflNNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992
Raflagnaeftii
1
sumarbústaðinn
RAFSÓL
Skipholti 33
S.35600
B/LALE/GA
Úrval 4x4 fólksbfla og station bfla.
Pajero jeppar o.fl. teg. Rickup-bllar
me3 einf. og tvöf. húsi. Minibussar og
12 sæta Van bflar. Farsfmar, kerrur f.
búslóðir og farangur og hestakerrur.
Reykjavík 686915
interRent
Europcar
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Fáðu gott tilboð!
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUQVELLI
OG Á RÁOHÚSTORGI
Hugbúnaður
Nýr hugbúnaður fyr-
ir víðavangshlaup
STRENGUR hf. verk- og kerfis-
fræðistofa hefur hannað sér-
stakan hugbúnað til notkunar í
víðavangs- og götuhlaupum.
Hugbúnaðurinn verður notaður
í Reykjavíkurmaraþoninu nú í
ágúst en það var frjálsíþrótta-
maðurinn Friðrik Þór Oskars-
son sem hannaði kerfið. Að sögn
Friðriks Þórs kemur hugbúnað-
urinn til með að spara mikinn
tima þegar unnið er úr úrslitum
eftir hlaup.
Hugbúnaðurinn er sá fyrsti
sinnar tegundar hér á landi og
einfaldar kerfið alla vinnu við
keppnishlaup. Friðrik Þór sem er
starfsmaður hjá Streng hf. sagði
að hugbúnaðurinn hafi verið
reyndur í fyrsta skipti með góðum
árangri í Landsbankahlaupinu sem
haldið var í byijun maí sl. „í mara-
þoninu sem fer fram í ágúst má
búast við miklum vinnuspamaði
því kerfíð flokkar keppendur eftir
tímum, aldri, rásnúmerum, kyni
og öðru því sem áhugavert er. Þá
prentar það út afreksslqol og ann-
að sem þörf er á í tengslum við
hlaupið.“
Strengur hf. verður styrktarað-
ili hlaupsins og mun leggja til tölv-
unarfræðing, vélbúnað og hug-
búnaðinn.
Vinnueftirlit ríkisins
NYR HUGBUNAÐUR — Friðrik Þór Óskarsson starfs-
maður Strengs hf. og Sigurður P. Sigmundsson framkvæmdastjóri
Reykjavíkurmaraþons handsala styrkarsamning milli aðilanna. Með
þeim á myndinni er Guðbjartur Guðbjartsson einn eigenda Strengs hf.
Leiðbeiningar um vinnuvemd
VINNUEFTIRLIT ríkisins hefur
gefið út leiðbeiningar um skyld-
ur og ábyrgð skv. lögum og regl-
um um vinnuvemd. Dregið er
saman allt það helsta sem lög,
reglur og réttarhefð segja um
ábyrgð og skyldur bæði
mzr
íslandspósturinn
kominn út
stjórnenda og starfsmanna
vegna öryggis og hollustu-
hátta á vinnustöðum. Enn-
fremur er greint frá lagaleg-
um skyldum aðila sem selja
og afhenda vélar og tæki,
annast hönnun og selja eða af-
henda hættuleg efni eða vömteg-
undir sem innihalda slík efni.
í fréttatilkynningu frá Vinnueft-
irlitinu segir að tilgangur útgáfunn-
ar sé að stuðla að betri framkvæmd
laga um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum með því að
gefa atvinnurekendum og verk-
stjórum sem gleggst yfirlit um
helstu kröfur sem til þeirra eru
gerðar. Aukin vitund í þjóðfélaginu
um skaðabótarétt auki þörf á góðri
þekkingu þeirra á efninu.
Útgáfa leiðbeininganna er liður
í áætlun Vinnueftirlitsins um að
hafa fyrirliggjandi handhægar leið-
beiningar um mikilvæg öryggisatr-
iði á vinnustöðum og framkvæmd
vinnuverndarlaganna. Þetta er
fyrsta leiðbeiningaheftið sem kem-
ur út á evrópsku vinnuverndarári
sem hófst 31. mars síðastliðinn. Öll
gögn gefin út af Vinnueftirlitinu
eru fáanleg hjá aðalskrifstofunni
að Bíldshöfða 16 í Reykjavík eða í
umdæmisskrifstofum stofnunarinn-
ar.
Ljósritun
Festa með nýjar
litaljósritunarvélar
ÍSLANDSBANKI, Verðbréfa-
markaður Islandsbanka og
Glitnír hafa gefið út nýtt frétta-
blað um fjármál, sem er ætlað
hlutverk í umræðunni um pen-
ingamarkaðinn og málefni
tengd honum.
íslandspósturinn er prentaður á
vistvænan pappír og er fyrirhugað
að gefa blaðið út fjórum sinnum
á ári. í fréttatilkynningu kemur
fram að tilgangur íslandspóstsins
sé að styrkja tengsl bankans, VIB
og Glitnis við viðskiptavini sína,
miðla gagnlegum upplýsingum á
sviði viðskiþta og greina frá þjón-
ustu þessara þriggja aðila.
Töflur um gengisþróun, leiðari
og fleira munu verða fastir liðir í
blaðinu. Ætlunin er að fá gesta-
HABPVI6XRVAL
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
penna til að skrifa um áhugaverð
málefni hverju sinni og í fyrsta
tölublaði íslandspóstsins fjallar
Finnur Sveinbjörnsson, skrifstofu-
stjóri í viðskiptaráðuneytinu, um
nýjar reglur á fjármagns- og gjald-
eyrismarkaði í tengslum við EES
samninginn. Þá er grein í blaðinu
um þróun hagvaxtar í Bandaríkj-
unum miðað við NAPM vísitölu frá
upphafi síðasta áratugar til loka
ársins 1991, frétt um hækkun á
verði skuldabréfa frá miðju síðasta
ári og afkomu íslandsbanka hf.
árið 1991.
FESTA ljósritunarstofa hefur
hafið innflutning á litaljósritun-
arvélum og prenturum sem eru
framleiddar af Colorocs og eru
frá Bandaríkjunum.
Um er að ræða vélar sem eru
hannaðar sérstaklega fyrir grafík
og því hentugar fyrir teiknara, arki-
tekta og til margs konar útgáfu-
starfsemi. Vélamar eru ekki leysi-
geislavélar og því lausar við leysi-
geislarákir. Þær ljósrita 7,5 eintök
á mín. í fullum lit en 22 eintök á
mín. í svarthvítu en Colorocs prent-
arinn prentar hins vegar 5 eintök
á mín. í fullum lit en 40 eintök á
mín. í svarthvítu.
HRÆRIVÉLAR — Verðlaunin fyrir elstu nothæfu Hobart
hrærivélina eru tækjabúnaður að verðmæti 300.000 krónur.
bosch'
VERKSTÆÐI
Lágmúla 9 sími 3 88 20
• Vélastillingar
• Smurþjónusta
• Rafviðgerðir
• Ljósastillingar
• Díselverkstæði
L
A
Samkeppni
Verðlaun fyrir elstu
Hobart hrærivélina
H.G. HEILDVERSLUN hefur
efnt til samkeppni sem felst í að
eigendur eða notendur eldri not-
hæfra Hobart hrærivéla upplýsi
um gerð og framleiðslunúmer
hrærivélanna sem eru í notkun.
Samsvarandi samkeppni fór fram
í Bandaríkjunum 1990 og voru þá
í notkun 110 Hobart hrærivélar sem
voru framleiddar á árunum 1919
til 1927. Fyrir nokkru var H.G.
Heildverslun færð að gjöf Hobart
hrærivél Model F230 sem framleidd
var árið 1923, en hrærivélin var í
eigu sælgætisframleiðslunnar
Kristall og er hún enn nothæf. Þar
sem vélin er nú í eigu heildverslun-
arinnar verður hún ekki með í sam-
keppninni.
Verðlaunin sem veitt verða fyrir
elstu nothæfu Hobart hrærivélina
eru Hobart tækjabúnaður að verð-
mæti 300.000 krónur. Upplýsingar
um hrærivélar eiga að berast til
H.G. Heildverslunar og er skila-
frestur til 30. september.