Morgunblaðið - 07.07.1992, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992
fclk í
fréttum
COSPER
STYRKIR
Sparisjóður Keflavíkur styrkir
námsmenn
Hér eru Björn Ingi Gunnlaugsson (Bangsi) fyrrverandi skipstjóri,
formaður Islendingafélagsins í S-Florída, Ingibjörg Mohamed, sem
hátíð eftir hátíð stjórnar matseld og veitingum fyrir félagið og hef-
ur verið í stjórn þess um árabil og Þórir Gröndal, afar vinsæll ræðis-
maðiir íslands í S-Florída.
ISLENDINGAFELOG
17. júní vinafundir Is-
lendinga í Suður-Flórida
Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
J^okkrir tugir íslendinga komu vesturströnd Flórída og Orlando-
til 17. júní fagnaðar íslend-
ingafélagsins í Suður-Flórída laug-
ardaginn 20. júní.'Mótsstaðurinn var
á Danía-ströndinni í Hollywood, sem
er stórt byggðarlag á milli Miami
og Fort Lauderdale.
Ekki var um formlega dagskrá
að ræða en góðir vinafundir urðu í
skála með stráþaki rétt upp af
ströndinni, og margir brugðu sér í
sjóinn, sem nú er þarna um 28C.
Nokkrir komu alllangt að m.a. frá
svæðinu.
Grillaðstaða var á staðnum og
notfærðu gestir sér það eftir því sem
þá bar að garði, en félagið bauð upp
á grillaða kjúklinga og pylsur og
svaladrykki.
A þessum slóðum er oft erfitt að
efna til hátíðahalda útivið á þessum
árstíma því þátttaka er stopul ef
heitt er í veðri. Þennan dag var
þægileg hafgola og áttu gestir því
ánægjulegar samverustundir í lauf-
skálanum og á ströndinni.
Nýiega afhenti Sparisjóðurinn
í Keflavík þijá Liðveislu-
styrki og eina viðurkenningu til
námsmanna frá Suðumesjum sem
eru félagar í Liðveislu hans. Lið-
veisla er heiti á námsmannaþjón-
ustu Sparisjóðanna en til þess að
geta sótt um styrk í Liðveislu
Sparisjóðsins í Kefiavík þá þarf
viðkomandi að vera Suðurnesja-
maður og félagi í Liðveislu Spari-
sjóðsins í Keflavík. Á þriðja hundr-
að námsmanna eru nú skráðir í
Liðveislu Sparisjóðsins í Keflavík
sem starfað hefur síðan í ágúst
1991.
Þeir sem hlutu Liðveislustyrk-
inn 1992 eru: Albert Eðvaldsson
sem lokið hefur BS námi í raf-
magnstæknifræði frá Tækniskó-
lanum í Óðinsvéum, Edda Rós
Karlsdóttir sem er að ljúka Mast-
er-námi í þjóðhagfræði við Háskól-
ann í Kaupmannahöfn, Hrannar
Hólm sem er að ljúka Master-námi
í íþróttafræðum við Háskólann í
Tubingen í Þýskalandi. Einnig
fékk Sveinbjörg S. Ólafsdóttir
nemandi við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja viðurkenningu fyrir
góðan námsárangur á stúdents-
prófi.
Dómnefndin sem sá um valið á
styrkþegum var skipuð eftirtöld-
um aðilum: Hjálmar Árnason skól-
ameistari við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, sem var formaður
dómnefndar, Oddur Einarsson
framkvæmdastjóri Atvinnuþróun-
arfélags Suðurnesja og Guðjón
Guðmundsson framkvæmdastióri
SSS.
í ár eru styrkirnir þrír, hver upp
á 100.000 kr., ogein viðurkenning
upp á 50.000 kr.
/ SUND
Morgunuiauiu/ivooen. acnmiai
Bryndís Björnsdóttir með börnin og litla lambið sem hún er með í
fóstri.
í FÓSTRI
Með börn og lamb
í gönguferð
Heimalingar eru ekki óalgengir
í sveitinni eins og velflestir
vita, en það telst til tíðinda ef hei-
fnalningar eru fóstraðir í íbúðarhúsi
í þorpi. Bryndís Björnsdóttir er með
lítið lamb í fóstri sem fæddist mán-
uði fyrir tímann og var hafnað af
móðurinni.
Lambið er eitt af fjórum sem
ærin bar, en vegna smæðar sinnar
vildi ærin ekkert með það hafa en
tók hin þrjú í sátt. Bryndís segist
gefa lambinu mjólkurblöndu og að
það dafni áægtlega og sé sprækt.
Þegar fréttaritari rakst á Bryndísi
á gangi um daginn með börnin síh
og lambið var hún búin að fóstra
heimalninginn í tvo daga. „Börnin
eru hrifin og sækja mikið í það.
Eins og er dafnar það vel en ég
veit ekki hvernig verður með áfram-
haldið, það verður bara að koma í
ljós,“ sagði Bryndís.
R. Schmidt.
Á myndinni eru eftirtaldir aðilar f.v. Páll Jónsson sparisjóðs-
stjóri, Tómas Tómasson sparisjóðsstjóri, Albert Eðvaldsson, styrk-
þegi, Edda Rós Karlsdóttir, styrkþegi, Hallfríður Benediktsdóttir
tók við styrknum fyrir hönd Hrannars Hólm, Sveinbjörg S. Ólafs-
dóttir, styrkþegi, Hjálmar Árnason, skólameistari og formaður
dómnefndar og Sæmundur Benediktsson viðskiptafræðingur og
umsjónarmaður Liðveislu.
170 ungmenni á Lions-
sundmóti
Það var afar hresst og prútt
sundfólk sem setti svip á kauptún-
ið og hvatningarhróp og tilskipan-
ir úr gjallarhorni glumdu um stað-
inn. Sunddeild Kormáks á
Hvammstanga bar þungann af
mótshaldinu og annaðist skipuiag
og matseld aila. Morgunblaðið
náði tali af nokkrum aðkomnum
leiðbeinendum og bar þeim saman
um að allur aðbúnaður og skipulag
væri til sóma.
Stella Gunnarsdóttir frá Ár-
manni sagði m.a. að góður kostur
væri að fara á stað sem Hvamms-
tanga með yngra sundfólkið, vega-
iengdir á staðnum væru stuttar
og ekki þyrfti eins mikið að hafa
auga með þeim. Sundlaug
Hvammstanga er um tíu ára en í
svo góðri umhirðu að hún lítur út
sem ný.
Á hvítasunnudag var stutt helg-
istund sem sr. Kristján Björnsson
annaðist með aðstoð popphljóm-
sveitar og þátttöku víðstaddra.
- Karl.
Um 170 ungmenni dvöldu á
Hvammstanga um hvíta-
sunnu og kepptu á Lions-sund-
móti sem Lionsklúbburinn Bjarmi
hefur staðið fyrir um nokkurra ára
skeið.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Brynjólfur Sveinbergsson frá Lionsklúbbnum Bjarma á Hvamms-
tanga afhendir verðlaunin.