Morgunblaðið - 07.07.1992, Síða 44

Morgunblaðið - 07.07.1992, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JULl 1992 ftœmwi Er ekki óhætt að segja hon- um núna, að hann sé ætt- leiddur ...? Nei farangurinn er ekki týndur. Töskurnar eru ýmist i New York, Sidney eða Tókýó... HÖGNI HREKKVÍSI // þE/R. Vö&CJ /?£> OPPGÖTVA A£> 'ARJ£> HAP/ VB/&Ð Æ/ZFiTr. BREF ITL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Þegar fortíðin verður nútíð- inni yfirsterkari Frá Marínó G. Njálssyni: Um síðustu áramót bað Morgun- blaðið nokkra áberandi einstaklinga í íslensku atvinnulífi að segja hug sinn um ástandið í þjóðfélaginu. Af öllum þeim fjölda sem rætt var við voru aðeins einn eða tveir sem horfðu á ástandið út frá lausnum, hinir kepptust við að barma sér yfir vandamálinu sem þá blasti við. í sumarbyijun braut aftur á íslensku atvinnulífi þegar í ljós kom að búið var að að ganga fullnærri þorsk- stofninum. Og hver voru þá við- brögðin? Jú, menn kepptust við að barma sér. Það hefur oft verið viðkvæðið að menn verði að barma sér til að hljóta ekki öfund annarra. Svo rammt kveður að þessu að það er sama hversu vel gengur, alltaf eru menn að væla. Sumir hafa jafnvel fengið það orð á sig að þeim takist örugg- lega að væla útaf öllu. Svo loksins þegar illa gengur er maður alveg hættur að trúa því að það gangi iila. Það er búið að kalla úlfur, úlfur of oft. Annar stór galli er þetta að benda alltaf á næsta mann. Einbjörn, Tví- björn og Þríbjörn eru bræður sem leynast víða í þessu þjóðfélagi. Ná- skyld þeim eru Eiginhagsmunavarsi- an og Fyrirgreiðslukarl, par sem þrifist hefur með ágætum í æðstu stjórnstöðum. Þjóðarskútan er búin að steyta á nokkrum skerjum nýlega og áhöfnin virðist upptekin við að varpa ábyrgð- inni yfir á aðra. Skipstjórinn bendir á gamla skipstjórann og segir að þetta sé nú allt honum að kenna (þó svo að vandamálið sé að hluta til miklu eldra en það). Skipsveijar kenna matsveininum um að það hafi minnkað svo mikið í búrinu að skammta þarf matinn. Það kemur málinu ekkert við að þeir hafi borð- að of mikið á milli mála. Að sjálf- sögðu krefjast allir að þeirra kostur sé látinn óskertur, vegna þess að þeirra starf er svo mikilvægt og Yíkveiji Einn af viðmælendum Víkveija hefur ítrekað haft á orði, að nauðsynlegt væri að leggja varan- legt slitlag á veginn yfír Lyngdals- heiði. Hér sé um fjölfarna leið að sumarlagi að ræða. Auk þess, sem skemmtilegt sé að aka um Lyng- dalsheiði og þá ekki sízt fyrir er- lenda ferðamenn, sem séu óvanir slíku umhverfi liggi beint við að tengja saman Þinvelli, Geysi og Gullfoss með þessum hætti. Viðmælandi Víkveija bendir á, að mikill fjöldi ferðamanna hafi hér stutta viðdvöl og auk þess að skoða höfuðborgina og nágrenni fari þeir gjarnan í ferð til Þingvalla og síðan að Gullfossi og Geysi. Eigi þetta ekki sízt við um farþega á þeim stóru skemmtiferðaskipum, sem koma hingað og eyða hér nokkrum klukkustundum. Þessi hópur ferða- manna sé orðinn svo stór, að ástæða sé til að leggja í nokkra fjárfestingu til þess að auðvelda þessar ferðir. Ef ekki sé ekið um Lyngdalsheiði frá Þingvöllum til Geysis og að Gullfossi, þurfi Iangferðabílarnir að taka á sig stóran krók. Þessi áhuga- maður um varanlegt slitlag á Lyng- dalsheiði kvaðst sannfærður um, að slík fjárfesting mundi skila sér þeir verði að halda fullum kröftum. Enginn snýr sér að því að þétta í götin, svo skútan sígur sífellt neðar og neðar. Þar með kemst skútan ekkert áfram og kosturinn minnkar. Allir horfa á manninn í brúnni og bíða eftir að hann gefi fyrirskipun. Hann virðist helst horfa upp til himna og bíða eftir kraftaverkinu. Einn og einn yfirmaður reynir að koma með tillögur, en helst virðist sem þeir tali fyrst og hugsi svo. Þegar þeir átta sig á því að hlutirn- ir eru ekki eins og þeir héldu reyna þeir að breyta raunveruleikanum svo hann falli að þeirra orðaforða í stað- inn fyrir að bæta nýjum orðum í safnið sitt. Og viti menn, vandamál- ið hverfur ekki. Furðulegt nokk! Eftir að þörskurinn „hvarf“ hafa menn verið að keppast við að finna einhvern sökudólg. Kvótakerfið er gjarnan nefnt og því kennt um. Fiskifræðingar fá líka sína ádrepu, en samt halda sjómenn því ailtaf fram að það sé miklu meiri fiskur í sjónum en fiskifræðingar hafa reikn- að út. Aumingja fiskifræðingarnir urðu að fá fína sérfræðinga utan úr hinum stóra heimi til að koma með .svartsýnisspá, svo sægreifar og smákóngar tækju nú einu sinni mark á spám þeirra. „Já, auðvitað er það fiskifræðingunum að kenna að þorskurinn „hvarf“. Eg notaði bara stóru, fínu, tölvustýrðu ryksuguna mína til að ná honum og ef hann slapp í fyrsta umgang, fékk ég mér bara sterkari mótor á ryksuguna og þá slapp hann sko ekki.“ Betur má ef duga skal Vissulega verða þingmenn og aðr- ir hagsmunapotarar að gæta þess að umbjóðendur þeirra beri ekki skertan hlut frá borði, en það er líka heiiög skylda þeirra að sjá hið stærra samhengi. Þetta snýst um margt meira en fáein tonn af þorski eða byggðapólitík. Þetta snýst um það að skoða vandamálið út frá hags- munum allra. Hugsa fyrst og tala svo. Sætta sig við að sumar lausnir skrífar betur en jarðgöngin á Vestfjörðum, svo að dæmi væri nefnt. Þessum sjónarmiðum er hér með komið á framfæri, en fróðlegt væri að fá fram skoðanir þeirra, sem annast móttöku erlendra ferðamanna á því, hvort varanlegt slitlag á Lyng- dalsheiði mundi greiða fyrir umferð ferðamanna um hinn gullna þrí- hyrning, sem svo er stundum nefnd- ur þ.e. Þingvöll, Gullfoss og Geysi. xxx Töluvert er nú rætt um, að er- lendum ferðamönnum fækki verulega á þessu sumri. Margar ástæður eru gefnar til skýringar á því m.a. þær, að nú kreppi að í efnahagslífi Évrópuríkja og þess vegna sé minna um ferðir hingað. Einnig er haft á orði, að veðrið í norðanverðri Evrópu hafi verið leið- inlegt í sumar og þess vegna leiti fólk í sólina sunnar í álfunni. Loks er bent á , að ríkin í austurhluta Evrópu séu að opnast sem ferða- mannasvæði. Þar sé ótrúlega ódýrt að vera og þess vegna kunni ferða- menn að leita þangað. Hver sem skýringin kann að vera er augljóst, að fækkun á erlendum eru góðar, þó þær séu í pólitískri andstöðu við manns eiginn vilja. Það vill nefnilega brenna við að bara er horft á eina hlið og viðfangsefnið afmarkað út frá því. Það voru gerð mistök. Viðurkenn- um þau og reynum að læra af þeim. Vissulega væri gott að finna ein- hvern sökudólg, en hvar stæðum við hin þá? Vandamálið er enn þá til staðar þó svo að vitsmunalegar skýr- ingar hafi fengist á því. Og lausnin er jafn langt í burtu. Skyldi einhver annar hafa lent í svipaðri stöðu? Getum við lært eitt- hvað af reynslu annarra? Eða er kannski bara sterkasti leikurinn að muna nú vendilega hvaða mistök við gerðum? Það er néfnilega mannlegt að gera mistök, því miður virðist það vera ofurmannlegt að læra af þeim. Við höfum áður staðið í sporum kreppu og stöðnunar. Það hafa önn- ur þjóðféjög lent í þessu. Fyrir einu ári vildi fjármálaráðherra endilega horfa til Danmerkur og læra af reynslu Dana. Það væri forvitnilegt að vita hvort hann gerði það. Kannski eru önnur svona tilfelli. Ef einstaklingar geta lært hver af öðr- um, hvað kemur þá í veg fyrir að þjóðfélög geti lært? Einstaklingur í tilvistarkreppu leitar gjarnan á ný mið. Hann af- markar líf sitt upp á nýtt. Þeir sem læra af reynslunni öðlast þroska, hinir gera sömu mistökin aftur. Þjóð- félag í tilvistarkreppu getur líka róið á ný mið, en fyrst og fremst þarf það að skilgreina stöðu sína og stefnu, annars vegar inn á við og hins vegar meðal þjóða heims. Hvar getum við keppt og náð árangri? Höfum við eitthvað fram að færa sem enginn annar hefur? Getum við boðið betur en einhver annar? Mörg fyrirtæki hafa einmitt uppgötvað mikilvægi þess að aðgreina sig til að ná markaðslegri sérstöðu þegar illa hefur árað. MARINÓ G. NJÁLSSON Tjarnarbóli 6, Seltjarnarnesi ferðamönnum þýðir umtalsvert tekjutap fyrir þjóðarbúið, fyrirtæki og einstaklinga. Víða um land hefur verið lagt í verulega íjárfestingu til þess að gréiða fyrir móttöku er- lendra ferðamanna og er vonandi, að sú fjárfesting skili sér betur í framtíðinni en þeir fjármunir, sem lagðir hafa verið í fiskeldi og loðdýr- arækt. Annars eru flestir sammála um, að hár matarkostnaður hér valdi okkur verulegum erfíðleikum, þeg- ar reynt er að laða erlenda ferða- menn til landsins. Það vandamál verður ekki leyst fyrir erlenda ferðamenn eingöngu, það tengist að sjálfsögðu almennt spurningunni um matvælaverð í landinu. XXX Víkveiji veitti því athygli á leið með Flugleiðavél til Vest- mannaeyja um helgina, að veruleg- ur hluti farþega voru erlendir ferða- menn. Síðar um daginn mátti sjá myndarlegt skip á siglingu í kring- um Eyjarnar fullt af erlendum ferð- amönnum. Þetta er lítið dæmi um fjárhagslega þýðingu heimsókna erlendra ferðamanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.