Morgunblaðið - 07.07.1992, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992
45
VELVAKANDI
BEINA
ÚTSENDINGU
FRÁ
TÓNLEIKUM
DONOVAN
Ásta Skúladóttir:
Ég vil koma því á framfæri
við Ríkissjónvarpið eða Stöð 2
að bein útsendin verði frá tón-
leikum Jason Donovan sem
verða í Glasgow hinn 7. desem-
ber næstkomandi.
ÁREKSTUR
Óskað er eftir vitnum að
árekstri milli tveggja bíla,
■grænnar Lödu og blárrar
’Momsu Chevrolet, sem varð á
gatnamótum Skógarhlíðar og
Flugvallarvegar miðvikudag-
inn 1. júlí um kl. 16.40. Þeir
sem urðu vitni að árekstrinum
eru vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 656290.
HJÓL
Dömureiðhjól, svo til nýtt
ljósgrænt og hvítt, af tegund-
inni Kiast, var tekið við Austur-
strönd 6 fyrir skömmu. Vin-
samlegast hringið í síma
611012 ef það hefur fundist.
LÝSTEFTIR
VITNUM
Dökkblár fólksbíll ók á
stúlku á reiðhjóli við Melatorg
kl- 7.50 mánudagsmorgunninn
29. júní. Ökumaðurinn eða þeir
sem urðu vitni að atburðinum
eru vinsamlegast beðnir að
hafa samband við Slysarann-
sóknardeild lögreglunnar.
ÚR
Gullúr tapaðist þriðjucjaginn
30. júní, sennilega við Skip-
holt, Þverholt eða Stakkahlíð.
Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 612163
eftir kl. 17.
KÖTTUR
Lúsífer er geltur fress, svart-
ur og hvítur, eins og sjá má á
myndinni. Hann hvarf frá
Vatnsendabletti 27 við Elliða-
vatn sunnudaginn 21. júní.
Þegar hann fór að heiman var
hann með bláa hálsól með
tveimur bjöllum en ekki merkt-
ur. Lúsífers er sárt saknað og
ef einhver getur gefið upplýs-
ingar um afdrif hans þá vin-
samlegast hafið samband við
Hallveigu í heimasíma 673621
eða vinnusíma 19200 eða lítið
vita í Kattholti í síma 672909.
KETTLINGUR
Svartur og hvítur kettlingur
tapaðist frá Vallartröð í Kópa-
vogi. Vinsamlegast hringið í
síma 43401 ef hann hefur ein-
hvers staðar komið fram.
HVOLPUR
Einstaklega stilltur og yndis-
legur hvolpur fæst gefins. Upp-
lýsingar í síma 670647.
AFKASTAGET-
AN 3,2 TIL 4,7
Sú villa slæddist inn í grein-
ina Nýjar leiðir í atvinnumálum
eftir Asgeir Leifsson, sem birt-
ist í þættinum Bréf til blaðsins
2. júní, að afkastageta Þeista-
reykjasvæðisins væri 365 millj-
ónir tonna á ári. Þarna átti að
standa að afkastagetan væri
3,2 til 4,7 milljónir tonna á
ári. Er beðist afsökunar á þess-
um mistökum.
Pennavinir
Fimmtán ára tékkneskur piltur
með mikinn íslandsáhuga. Safnar
einnig frímerkjum og hefur áhuga
á rokktónlist og íþróttum:
Karel Simek,
P.O. Box 35,
500 01 Hradec Kralove,
Gzechoslovakia.
Nítján ára þýsk stúlka með
áhuga á kvikmyndum, leikhúsi, ton-
list og íþróttum:
Ulrike Hiliebrand,
Feldstrasse 29,
W-4000 Diisseldorf,
Germany.
Sautján ára japönsk stúlka með
áhuga á ljósmyndun, tölvum, tón-
list, bréfaskriftum o.fi.:
Emiko Yuuki,
124-58 Katayachi,
Yamagata,
990 Japan.
LEIÐRÉTTING
Korthafar firrtir
tÓóni
í frétt Morgunblaðsins fyrir helg-
ina, þar sem skýrt var frá ákvörðun
stjómar Visa að firra korthafa tjóni
af viðskiptum við Flugferðir-Sólar-
flug, misritaðist orð, sem breytti
merkingu fréttarinnar. í fréttinni
sagði, að korthafar yrðu fyrir tjóni,
en þar átti að standa að þeir yrðu
firrtir tjóni. Beðist er velvirðingar
á þessari misritun.
Vlnnlngstólur laudAiTbiránn 4. júlí 1992
(ioL lÁÍ ÍT375 Í8)@P ^ ■ («)
\ VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 ^ 1 5.985.246
í n rvusÆ l 4. 4af 5* W3 211.614
3. 4af5 133 8.233
4. 3af 5 4.246 601
Heildarvinningsupphæð þessa viku- 10.266.923 kr.
upplýsingar:sImsvari91 -681511 lukkulína991002 i
Sérkenni íslendinga
Frá Richardt Ryel:
Eru íslendingar að einhveiju leyti
frábmgðnir öðrum þjóðum og er
hægt að greina einhver séreinkenni
í fari íslendinga?
Ég var nýlega boðinn að skoða
nýja íbúð í Danmörku. Allt var
snyrtilegt og eftir nýjustu tísku, en
það vantaði samt eitthvað.
Ég hafði orð á því við gestgjaf-
ann að svona íbúð fyndist varla á
íslandi. „Nú, að hvaða leyti er hún
frábrugðin íbúðum á íslandi",
spurði hann. „Jú, sagði ég, hér er
enginn bókaskápur og eina bókin
sem ég hef fundið er símaskráin."
Ólæsi er óþekkt á íslandi og allir
eiga bókaskáp, hann er hymingar-
steininn á mörgu heimili íslendinga.
íslendingar eru þjóðræknir.
Hvergi úti í heimi hefí ég rekist á
jafn einlæga föðurlandsvini (patri-
ota). Samheldnin er mikil meðal
íslendinga. Menn láta sig varða um
náungann. Enginn ísiendingur er
látinn afskiptalaus í neyð.
Líta útlendingar sömu augum á
okkur og við sjálf? Tæplega. Eyja-
skeggjar em þunglyndir, seinteknir
og tortryggnir. Þeir em hjátrúafull-
ir, feimnir og óframfærnir. Og svo
þola þeir enga gagnrýni. Þeir taka
hana sem perónulega móðgun. ís-
lendingar em örlagatrúar, en trúa
þess utan á álfa, huldufólk, drauga
og fylgjur manna.
Útlendingar skyldu helst hrósa
bæði landi og þjóð, því annars em
þeir staurblindir og þess utan hrein-
ar boðflennur.
En íslendingar em hugsandi
þjóð. Þeir eru ljóðelskir, listrænir
og skapandi. Þar sem sami maður-
inn er smiður, kóngur og kennari,
verða menn að vera úrræðagóðir
og listagáfan er greinilega tilorðin
vegna glímunnar við aðsteðjandi
vandamál.
Minnifháttarkenndin er að
hverfa. Þó em þessar eilífu spurn-
ingar við útlenda ferðamenn „hvort
Island sé nú ekki öragglega falleg-
asta landið í heimi“, vottur um van-
máttarkennd.
Verða íslendingar síðustu aðilar
í bræðralagi Evrópuþjóða? Vonandi
ekki. Við lifum þó ekki lengi á
fornri frægð og við megum ekki
sofna á verðinum. Við þurfum ekki
að óttast hin erlendu áhrif. Íslenska
stuðlabergið stendur enn á gömlum
merg.
Þjóð sem sprottin er upp úr ís-
lenskum jarðvegi mun ávallt varð-
veita séreinkenni sín.
RICHARDT RYEL,
Sollered park 12, 1-17
2840 Holti,
Danmörku.
BEsm heHjSuræktin
er að sofa á ekta rúmdýnu
sem passar hæð þinni og pyngd
Htis#a#nahöllin
BILDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVlK - SIMI 01-681199
SÍMINNHJÁ OKKZJR ER 91-68 11 99
Lokad
Vegna sumarleyfa starfsfólks verður
skrifstofa okkar og vöruafgreiðsla lokuð
frá 13. júlí til 17. ágúst nk.
Agnar Ludvigsson hf.,
Nýlendugötu 21, sími 12134.
PARKETTPARKETTPARKETTPARKETTPARKETTPARKETTPARKETT
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Sumamómskeið í hraðlestri hefst miðvikudaginn 15. júlí nk.
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn og auka ánægju við allan lestur?
Vilt þú bæta námsárangur þinn og auðvelda námið næsta vetur?
Nú er tækifæri fyrir þá sem vilja margfalda lestrarhraða sinn,
en hafa ekki tíma til þess á veturna.
Skráning í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINIM
UU 10 ÁRA ”