Morgunblaðið - 07.07.1992, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992
Skýrar forsendur
bráðabírgðalaganna
— segir Magnús Gunnarsson formaður ,
MAGNÚS Gunnarsson, formaður Yinnuveitendasambands íslands,
sagði að forsendur bráðabirgðalaganna virtust það skýrar að niður-
staðan ætti að vera nokkuð ljós. Betra væri þó að segja sem minnst
fyrc en vitað er hvernig nýr úrskurður Kjaradóms verður.
„Eg geri ráð fynr því að ríkis-
stjórnin hafí farið í gegnum þá
kosti sem hún hafði og ég tek það
svo að mikill vilji sé fyrir því innan
ríkisstjórnarinnar að snúa þessum
úrskurði við þannig að niðurstaðan
verði í samræmi við það sem hefur
verið að gerast í þjóðfélaginu und-
anfarna mánuði. Ég verð að ganga
út frá því að að ríkisstjómin hafi
metið það svo að þetta væri sú
leið sem skilaði þéim þeirri niður-
stöðu sem ég vænti að flestir eigi
von á að komi út úr þessu," sagði
Magnús.
„Ég held að það sé engin spum-
ing að ríkisstjórnin hefur skynjað
að úrskurður Kjaradóms var ekki
í takt við það sem hefur verið að
gerast í þjóðfélaginu almennt. Það
er hins vegar allt önnur umræða
hver launakjör þessara aðila eiga
að vera. Það eru stórir hópar sem
vafalaust telja sig eiga að bera
meira úr býtum og þeir hafa þurft
að lúta þessum kringumstæðum.
Þessi lögmál gilda einnig um þann
hóp sem Kjaradómur ákveður laun
fyrir,“ sagði Magnús.
Aðspurður um hvort hann væri
sáttur við þessa niðurstöðu sagði
Magnús að betra væri að segja sem
minnst þar til séð væri hver niður-
staðan yrði. „Ég held að miðað við
allar aðstæður þá sé þetta sú leið
sem var fær ef litið er á lagalega
möguleika," sagði Magnús.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, kvaðst undrast
það að sú leið að setja bráðabirgða-
lög, sem ríkisstjórnin hefði áður
hafnað, skyldi farin. „Þær breyt-
ingar sem gerðar hafa verið á
starfsháttum Alþingis miðuðu ein-
mitt að því að unnt væri að kveðja
þing saman til stuttra funda, eins
og gerist í nágrannalöndunum. Það
kom því á óvart að sú leið skyldi
ekki vera farin,“ sagði Þórarinn.
„Það hvarflar ekkert annað að mér
en að ríkisstjómin sé að láta undan
þrýstingi. Hún var búih að taka
eina ákvörðun fyrir nokkru og tek-
ur aðra ákvörðun nú og á því er
engin önnur skýring en að ólgan
í þjóðfélaginu. Ég var sammála
þessu mati. Ég hafði áhyggjur af
því að sú sátt sem náðst hafði í
þjóðfélaginu gæti brostið, ekki
vegna úrskurðarins sjálfs, heldur
vegna þess að það væri óþolandi
staða fyrir ráðherra, sem sjálfir
fengju svo og svo mikla hækkun,
að útskýra samdrátt og niðurskurð
vegna minnkandi þjóðartekna,"
sagði Þórarinn.
Laun opinberra starfsmanna
áður fyrr ákveðin með lögum
ÞINGMENN skömmtuðu sjálfum sér laun úr ríkissjóði með laga-
setningu þangað til fyrir um tólf árum. Laun allra opinberra
starfsmanna á íslandi voru einnig ákveðin með lögum frá Al-
þingi áður og fyrr, eða fram til 1963. Þetta er væntanlega sá
„gamli farvegur“ sem Davíð Oddsson forsætisráðherra á við þeg-
ar hann segir í Morgunblaðinu sl. föstudag: „Það er ekki mjög
eftirsóknarverð aðferð fyrir þjóðfélagið að þingmenn og ráðherr-
ar fari að skammta sjálfum sér og embættismönnum framvegis
laun með lögum. Það endar í þeim gamla farvegi, sem allir höfðu
mikla skömm á.“ Úrskurður kjaradóms, sem kveðinn var upp 26.
júní síðastliðiiin, náði til þriggja hópa; presta, alþingismanna og
embættismanna í æðstu stjórn ríkisins, þar á meðal forseta ís-
lands. Hugmyndir hafa verið viðraðar um að hnekkja þeim úr-
skurði með lögum.
Laun opinberra starfsmanna á
Islandi voru ákveðin með lögum
frá Alþingi, svokölluðum launa-
lögum, frá seinni hluta nítjándu
aldar og fram á miðja þessa öld.
Síðustu launalögin voru sett 1955
og fengu opinberir starfsmenn
laun samkvæmt þeim allt fram
til ársins 1963, en þá kvað kjara-
dómur í fyrsta sinn upp úrskurð.
Dóminum hafði verið komið á
árið 1962 með nýjum lögum. Með
þeim fékk meginþorri opinberra
starfsmanna takmarkaðan samn-
ingsrétt. Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja, sem hafði verið
stofnað 1942, fékk þá samnings-
rétt fyrir hönd opinberra starfs-
manna, en semdist ekki með
BSRB og ríkinu innan ákveðins
tíma á hveiju samningstímabili
var kjaradómi falið að úrskurða í
deilunni.
Sumir æðstu embættismenn
ríkisins fengu þó engan samnings-
rétt 1962, heldur fengu laun sam:
kvæmt úrskurði kjaradóms. í
fyrstu var aðeins um að ræða
ráðherra, hæstaréttardómara og
ríkissaksóknara, en síðan hefur
þróunin verið í þá átt að fleiri og
fleiri háttsettir embættismenn
hafa þegið laun samkvæmt kjara-
dómsúrskurði. Er embætti ríkis-
sáttasemjara var stofnað 1979 var
ákveðið að sáttasemjari skyldi
hafa kjör hæstaréttardómara.
Árið 1971 voru laun forseta ís-
lands lögð undir kjaradóm, en þau
höfðu verið ákveðin með lögum
frá Alþingi. Laun ráðuneytisstjóra
hafa verið ákveðin af kjaradómi
frá 1978, en þeir voru áður á
ráðherralaunum, samkvaemt
ákvörðun fjármálaráðherra. Árið
1981 bættist biskup íslands í hóp
þeirra, sem þiggja laun sam-
kvæmt kjaradómi, en um laun
hans var áður samið við Presta-
félag Islands.
Að sögn Sigrúnar Ásgeirsdótt-
ur, deildarstjóra hjá starfsmanna-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins,
var stærsta skrefið í þá átt að
kjaradómur ákveði laun háttsettra
embættismanna stigið 1984. Þá
var afnuminn samningsréttur
þessara ríkisstarfsmanna: Rekt-
ors Háskóla íslands, lögreglu-
stjórans í Reykjavík, ríkisskatt-
stjóra, póst- og símámálastjóra,
yfirborgardómarans í Reykjavík
(nú dómstjóri), yfírborgarfóget-
ans í Reykjavík (nú sýslumaður),
tollstjórans í Reykjavík, tollgæzlu-
stjóra, borgardómara, borgarfóg-
eta, sakadómara, sýslumanna,
bæjarfógeta, héraðsdómara,
rannsóknarlögreglustjóra, lög-
reglustjórans á Keflavíkurflug-
velli, flugmálastjóra, sendiherra,
skattrannsóknastjóra og forstöðu-
manna ýmissa ríkisstofnana.
Fram til 1984 höfðu einstök stétt-
arfélög samið um kaup og kjör
þessara embættismanna, til dæm-
is voru dómarar í Lögfræðingafé-
laginu fram til 1984.
Annar hópurinn, sem hinn um-
deildi úrskurður kjaradóms tekur
til, er alþingismenn og forseti
Alþingis. Alþingismenn ákváðu
þingfararkaup sitt sjálfír með lög-
um fram til 1980, en þá voru sett
lög um að Kjaradómur dæmdi
þingmönnum laun. „Þingmennim-
ir voru í raun að afsala sér beizk-
um bikar. í hvert sinn sem þeir
ákváðu sjálfum sér laun varð dá-
lítil sprenging í þjóðfélaginu,"
segir Halldór Grönvold stjórn-
málafræðingur, sem kennir nám-
skeið um hagsmunasamtök og
kjaramál við Háskóla íslands.
Loks ákvað kjaradómur laun
presta 26. júní síðastliðinn. Frum-
varp um að ákvörðun um kjör
þeirra skuli lögð í kjaradóm var
samþykkt á Alþingi í fyrra. Áður
hafði Prestafélagið, Bandalag há-
skólamenntaðra ríkisstarfs-
manna, og þar áður BSRB, gert
kjarasamninga fyrir hönd presta.
Að ósk presta sjálfra var fyrir-
komulaginu breytt. Þeir hafa talið
að það samræmist ekki stöðu
þeirra að taka þátt í kjarabaráttu
og kröfugerð á hendur atvinnu-
rekendum með tilheyrandi samn-
ingaþrefi. Prestar töldu sig ekki
geta nýtt verkfallsrétt sinn vegna
eðlis starfs síns; að vera í nánu
samstarfí við sóknarbörn og sinna
sálgæzlu og félagslegri aðstoð.
Sæmileg’ úthafskarfaveiði
segir forstjóri Sjóla í Hafnarfirði
JÓN Guðmundsson, forstjóri
Sjólastöðvarinnar í Hafnarfirði,
segir að sæmileg veiði sé iyá
skipum félagsins, sem eru á út-
hafskarfaveiði á djúpslóð. Hann
segir að viðunandi verð fáist
fyrir aflann, sem aðallega sé
seldur til Japans.
Að sögn Jóns eru nú 8 eða 9
íslenskir togarar á karfaveiðum,
þar af tveir togarar Sjólastöðvar-
innar, Sjóli og Haraldur Kristjáns-
son. Hann segir að hjá þeim sé
sæmilegur reytingur, að minnsta
kosti sé hagstæðara að halda skip-
unum úti heldur en að láta þau
liggja í landi. Úthaldið standi í 3
til 4 vikur og hann búist við að
skip stöðvarinnar eigi eftir að fara
út einu sinni nú í sumar.
Jón segir að skipin komi venju-
lega með á milli 250 til 300 tonn
af frystum físki eftir úthaldið og
verð sé viðunandi, þó það hafí lítil-
lega lækkað að undanförnu. Að
jafnaði fáist milli 90 til 100 krónur
fyrir kílóið. Aðallega sé selt til
Japans, enda fáist þar besta verðið.
Ólafur Spur Sigurjónsson, sellóleikari, Hlíf Sigurjónsdóttir,
fiðluleikari og Simon H. Ivarsson, gítarleikari.
Listasafn Signrjóns Ólafssonar:
Fiðla, selló og g'ítar á
þriðjudagstónleikum
HLÍF Sigurjónsdóttir, fiðluleikari, Ólafur Spur Siguijónsson,
sellóleikari og Símon H. Ivarsson, gítarleikari, koma fram á
þriðjudagstónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar i kvöld
kl. 20.30.
Á efnisskrá tónleikanna er són- Giuliani.
ata í a-moll fyrir fíðlu, gítar og Tónleikamir standa í um það
fylgirödd (selló) eftir Hándel ópus bil eina klukkustund. Kaffistofa
1 nr. 4, einleikssvíta fyrir selló safnsins verður opin og í efri sal
eftir Bach nr. 3 í c-dúr og dúó er sýning á æskuverkum Sigur-
fyrir fíðlu og gótar ópus 25 eftir jóns Ólafssonar.
Húnavatnssýslur:
Tveir sviptir ökuleyfi
vegna hraðaksturs
TVEIR ökumenn voru sviptir
ökurétindum eftir glannaakstur
i Húnaþingi um helgina. Annar
ók á 143 km hraða skammt sunn-
an Blönduóss en hinn mældi rad-
ar lögreglunnar á 147 km/klst
hraða í Víðidal.
Talsverðar annir voru hjá lög-
reglu í Húnavatnssýslum, að sögn
Kristjáns Þorbjömssonar aðalvarð-
stjóra, einkum vegna mikillar um-
ferðar en alls vom 43 ökumenn
kærðir vegna hraðaksturs. Hins
vegar komu ekki upp teljandi
vandamál vegna ölvunar eða mann-
safnaðar í héraðinu.
VANNMN
FJÖLSKVLDAÍ
Heildarvinníngsupphæðin :
128.385.400 kr.
Röðin :12X-1X1-222-12X2
13 réttir: 4 raðir á 14.980.780 - kr.
12 réttir: 177raðirá ~ 90.070-kr.
11 réttir: 2.752 raðirá 6.130 - kr.
10 réttir: 24.540 raðir á 1.450 - kr.
Um næstu helgi hefst hópleikur íslenskra getrauna. Þeir sem
hafa gömul hópnúmer eru beönir um aö staöfesta þau og
þeim sem hafa áhuga á aö vera meö er bent á skrifstofu
okkar, sími 91 -688322 grænt númer 99-6883