Morgunblaðið - 19.07.1992, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
SUNNUDAGUR 19. JULI 1992
IÞROTTIR FATLAÐRA
Það verður erfttt að gera jafn
vel og á leikunum í Seoul
-segir Sveinn Áki Lúðvíksson aðalfararstjóri fötluðu íþróttamannanna sem fara til Barcelona í september
UNDIRBÚNINGUR íslensku
íþróttamannanna sem keppa
munu á Paralympics leikunum,
Alþjóðaleikum fatlaðra íþrótta-
manna f Barcelona í septem-
á ber, er nú ífullum gangi, og
sama má segja um undirbúning
þeirra íslensku iþróttamanna
sem fara á Alþjóðaleika
þroskaheftra, en þeir verða
haldnir ífyrsta skipti í Madrid
13.-22. september. íslensku
keppendurnir voru í æfinga-
búðum á Laugarvatni fyrir
nokkru, þar sem keppendur,
þjálfarar og fararstjórar stilltu
saman strengi sína auk þess
sem keppendur æfðu af mikl-
um krafti. Þar hitti Morgun-
blaðið nokkra úr hópnum að
máli.
Tólf fatlaðir íþróttamenn munu
keppa fyrir íslands hönd í
Barcelona, en átta halda uppi merki
mgggmm landsins í Madrid.
Eftir Alls munu 4.000
Stefán keppendur frá 94
Eiríksson löndum keppa á
leikunum í Barcel-
ona, og hafa þeir aldrei verið fleiri.
íslendingar stóðu sig mjög vel á
síðustu leikum, sem haldnir voru í
Seoul 1988. Frá keppninni í Seoul
hefur mikil áhersla hefur verið lögð
á þátttöku á sterkum mótum er-
1 lendis og hafa flestir þátttakendur
því mikla keppnisreynslu. Fimm ís-
lenskir heimsmethafar úr röðum
hreyfihamlaðra og einn úr hópi
sjónskertra munu keppa í Barcel-
ona, og þrír heimsmethafar úr
flokki þroskaheftra verða á leikun-
um í Madrid.
Leikamir í Seoul stórkostleg
upplrfun
Sveinn Áki Lúðvíksson er aðal-
fararstjóri hópsins sem fer til Barc-
elona. Hann var það einnig á síð-
ustu leikum í Seoul, og segir það
hafa verið stórkostlega upplifun.
„í Seoul voru leikamir haldnir í
fyrsta skipti á sama stað og af sama
' fólki og hélt sjálfa Ólympíuleikana.
Ólympíufáninn blakti alla leikana
og mun gera það einnig nú, auk
þess sem Ólympíueldurinn fær að
lifa fram yfir okkar leika,“ sagði
Sveinn.
„Það var heilmikið ævintýri fyrir
hópinn að fara til Kóreu. Hvar sem
I
Stund milli strída
Morgunblaðið/Sverrir
Sundfólkið sem fer til Barcelona og Madridar æfir stíft þessa dagana, en hluti hópsins gaf sér engu að síður tíma til að slappa af í Kópavogslaug stutta stund og
brosa framan í ljósmyndara Morgunblaðsins.
komum hópuðust mörg hundruð
krakkar í kringum íþróttamennina,
og vildu fá eiginhandaráritanir hjá
þeim. Það var litið á þau sem stjöm-
ur, og fyrir þau var þetta gífurlega
skemmtileg upplifun."
Vissum að við vorum með
efnisfólk í höndunum
Sveinn sagði að mikið hefði verið
lagt í að undirbúa íslensku keppend-
uma fyrir leikana í Seoul. „Við viss-
um að við vorum með efnisfólk í
höndunum og vildum standa okkur.
Liður í undirbúningnum var að láta
þau taka þátt í alls konar mótum
erlendis, því reynsluleysið hefur
alltaf háð íslendingum. En undir-
búningurinn gekk vel upp. Við feng-
um tvö gull, tvö silfur og sjö brons
á leiknum, sem segir meira en flest
orð.
Undirbúningurinn fyrir þessa
leika hófst strax og við komum
heim frá Seoul. Við höfum haldið
þessum kjarna sem fór til Seoul
saman, auk þess sem efnilegir nýlið-
ar hafa bæst í hópinn, og þjálfarar
vom ráðnir nánast strax við heim-
komuna.“
íslensku keppendumir munu
gera sitt besta
Sveinn sagði að það yrði erfitt
Morgunblaðið/Sverrir
fyrir íslensku keppendurna að
standa sig jafn vel og þeir gerðu í
Seoul. Ástæðan væri þessi mikla
fjölgun keppenda, og auk þess
hefðu framfarir í flestum greinum
verið miklar síðustu ár.
„Það verður erfitt fyrir okkar
fólk að standa sig jafn vel og á síð-
ustu leikum. Þarna verða um fjögur
þúsund keppendur frá 94 þjóðum,
sem er mikil fjölgun síðan síðast.
Þar að auki eru framfarirnar gífur-
legar nú á síðustu árum, og afreks-
fólk að koma upp í flestum löndum.
Þegar við fórum til Seoul gerði þjóð-
in sér ekki miklar vonir um að af-
rek yrðu unnin, en þau stóðu sig
frábærlega síðast og þjóðin ætlast
til að þau geri það líka núna. Ég
get engu lofað um verðlaunasæti,
en þau munu öll leggja sig fram
og reyna að gera sitt besta. Þetta
er prúður og hraustur hópur og ég
get lofað því að þau verða þjóð sinni
til mikils sóma hvar sem þau koma,“
sagði Sveinn Áki Lúðvíksson.
Þjálfarar íþróttamannanna:
Keppnin er
orðin harðari
^Jrlingur Jóhannsson sér um
þjálfun fötluðu sundmannanna
ásamt Kristínu Guðmundsdóttur.
Erlingur sagði að enginn munur
væri á æfingum fatlaðra og ófatl-
aðra, fötluðu sundmennirnir leggðu
alveg jafn mikið á sig og aðrir sem
væru að æfa sund af einhverri al-
vöru.
Aðspurður sagði Erlingur að sem
betur fer væri keppnin í sundi fatl-
aðra orðin harðari, en keppendur
þyrftu á móti að leggja harðar að
sér og þau hefðu jafnframt aukið
kröfumar. Hann sagði að vegna
hinnar hörðu keppni byggist hann
ekki við sömu verðlaunasúpunni og
á síðustu leikum.
Um möguleika einstakra kepp-
enda sagði Erlingur að allir ættu
raunhæfa möguleika á að komast
í úrslit, og sumir jafnvel á verð-
launapall. „Þau hafa ferðast og
keppt mikið og öðlast þannig
ómetnalega reynslu, og vita því flest
að hveiju þau ganga,“ sagði Erling-
ur.
Frjálsíþróttamennimir eru í
góðuformi
Þjálfari frjálsíþróttamannanna
sem fara til Barcelona er Stefán
Jóhannsson. Hann sagðist búast við
verðlaunum, Haukur Gunnarsson
væri í góðu formi, og Geir Sverris-
son, sem ekki hefur keppt í fijálsum
á stórmóti eriendis áður, ætti eftir
að koma á óvart.
„Haukur er í góðu formi og fast-
lega má búast við því að hann kom-
ist á pall, sérstaklega í 400 m
hlaupi. Miðað við þann tíma sem
Geir hefur verið að ná að undan- -
förnu á hann góða möguleika á að
komast í úrslit. Hann stefnir að
sjálfsögðu á pall, en ég held að
hann eigi eftir að koma sjálfum sér
mest á óvart," sagði Stefán.
Erllngur Jóhannsson, þjálfari sundfólksins, tekur hér púlsinn á Báru B. Erlingsdóttur.