Morgunblaðið - 14.08.1992, Síða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992
Vísitala
framfærslu-
kostnaðar
er óbreytt
VÍSITALA framfærslukostnað-
ar er óbreytt í ágúst frá því sem
var í júlímánuði og er hún 161,4
stig. Hækkun vísitölunnar und-
anfarna þijá mánuði nemur
0,6%, sem jafngildir 2,3% verð-
bólgu á heilu ári en siðastliðna
tólf mánuði hefur vísitalan
hækkað um 2,7%. Miðað við
eldri vísitölugrunn er vísitala
ágústmánaðar 395,9 stig.
Af einstökum liðum lækkuðu
búvörur háðar verðlagsgrundvelli
um 0,1% en aðrar innlendar mat-
og drykkjarvörur hækkuðu um
0,6%. Innfluttar mat- og drykkjar-
vörur lækkuðu hins vegar um
2,2%.
Af öðrum breytingum má nefna
að húsnæðiskostnaður lækkaði um
0,6% en liðurinn önnur þjónusta
hækkaði um 0,3%.
Siðustu 12 mán.
Breytingar á vísitölu
framfærslukostnaðar
Janúar 1990 til ágúst 1992,
reiknaðar til árshækkunar
Almenningsvagnar bs. taka til starfa:
Samstarf í fólksfhitningum
á öllu höfuðborgarsvæðinu
NÝTT fyrirtæki í almenningssamgöngum, Almenningsvagnar bs.,
AV, mun taka til starfa á morgun, laugardag. Starfsvettvangur
þess er fólksflutningar á höfuðborgarsvæðinu fyrir utan Reykja-
vík og Seltjarnarnes. Samstarf verður nokkuð milli Almennings-
vagna og Strætisvagna Reykjavíkur og fyrstu merki þess eru
mánaðarkort, Græn kort svokölluð, sem munu gilda í allar ferðir
þessara tveggja samgöngufyrirtækja.
Almenningsvagnar bs. er
byggðasamlag sveitarfélaganna
Bessastaðahrepps, Garðabæjar,
Hafnarfjarðar, Kjalarneshrepps,
Kópavogs og Mosfellsbæjar. Fyrir-
tækin Hagvagnar hf. og Meirihátt-
ar hf. munu sjá um aksturinn og
hafa þau keypt 17 nýja strætis-
vagna til starfans. Auk þess að
samræma strætisvagnaferðir í of-
annefndum sveitarfélögum verður
reynt að samræma ferðir við ferðir
Strætisvagna Reykjavíkur.
Jafnframt er það markmið að
samræma gjaldskrár fyrirtækjanna
og byrjunin á því er sú að laugar-
daginn 15. ágúst verður byijað að
selja mánaðarkort í strætó svo kall-
að Grænt kort. Græna kortið gildir
í 30 daga á öllum leiðum Almenn-
ingsvagna og SVR og mun kosta
kr. 2.000 til 15. september en kr.
2.900 eftirleiðis. Grænu kortin fást
á skiptistöðvunum við Lækjartorg,
Hlemm, Mjódd, Grensás, skrifstofu
SVR Borgartúni 35, söluturninum
Hallanum Bókhlöðustíg, Bræðra-
borg í Hamraborg Kópavogi,
Bitabæ Ásgarði 1 Garðabæ, Holta-
nesti Melabraut 11 Hafnarfirði og
söluturninum Snælandi við Vestur-
landsveg Mosfellsbæ.
Hjá AV munu einstök fargjöld
fullorðinna kosta 100 kr. og tíu
miða kort 900 kr., það sama og
hjá SVR. Fyrir börn innan tólf ára
kosta einstök fargjöld 50 kr. og
tuttugu miða spjald 500 kr. Hægt
verður að taka skiptimiða, sem
gildir í 30-45 mínútur og börn inn-
an 6 ára fá ókeypis í fylgd með
fullorðnum.
AV ætlar að bjóða upp á nætur-
ferðir. Þá verður farið tvisvar á
aðfaranótt laugardags og sunnu:
dags frá miðbæ Reykjavíkur. í
þessar næturferðir, sem hefjast 4.
september, kostar 200 kr. og hvorki
miðar né græn kort munu gilda.
Á laugardag og sunnudag munu
Almenningsvagnar bs. bjóða
ókeypis í sína vagna og auk þess
verður eftirfarandi dagskrá á laug-
ardag:
Kl. 6.20 rennur fyrsti vagninn
úr hlaði frá skiptistöðinni við Fjarð-
argötu í Hafnarfirði.
Kl. 15 hefst dagskráin á tveimur
stöðum. Á skiptistöðinni við Fjarð-
argötu í Hafnarfirði mun fulltrúi
Hafnarfjarðar þakka Landleiðum
fyrir þá þjónustu, sem fyrirtækið
hefur veitt og í Bessastaðahreppi,
við Bjarnastaði, mun fulltrúi Bessa-
staðahrepps þakka Erlendi Björns-
syni sérleyfishafa fyrir unnin störf.
Kl. 15.15 þakkar fulltrúi Garða-
bæjar Landleiðum við Bitabæ í
Garðabæ og í Mosfellsbæ við Hlé-
garð mun fulltrúi Mosfellsbæjar
þakka Mosfellsleiðum samstarfið.
Kl. 15.30 þakkar fulltrúi Kópa-
vogs Strætisvögnum Kópavogs fyr-
ir þeirra þjónustu.
Kl. 16 munu þeir Sveinn Björns-
son fyrir hönd SVR og Örn Karls-
son fyrir hönd AV skrifa undir
samstarfssamning fyrirtækjanna.
Kl. 16.20 verður lagt af stað
með fulltrúa sveitarstjórnanna og
gesti þeirra frá skiptistöð í Mjódd
um akstursleiðir AV í Reykjavík
að Lækjartorgi.
Kl. 17 verður komið saman í
J Félagsheimili Kópavogs og boðið
upp á léttar veitingar.
Fjallgöngugarparn-
ir koma heim í dag
ISLENSKU fjallgöngumönnunum, sem undanfarnar fjórar vikur hafa
reynt við hæstu tinda fyrrum Sovétríkja, tókst ekki að ná lokatak-
marki sínu, að klífa hinn fræga Kommúnistatind, sem er 7495 metra.
Þeir koma til Islands í dag frá Kaupmannahöfn.
Eftir því sem Morgunbiaðið kemst
næst gekk ferðin með ágætum þó
veður hafi verið fremur óhagstætt.
Þeir félagar Björn Ólafsson og Einar
Stefánsson sem báðir eru þrau-
treyndir göngumenn klifu fyrst tind,
sem er um 6300 metrar á hæð og
nefnist Chetyreh 4. Sú ganga gekk
mjög vel og var að mikilvæg til að
geta aðlagast þunnu lofti og slæm-
um aðstæðum sem einkenndust af
miklum snjóþunga. Birni og Einari
tókst því næst að klífa tindinn Korz-
enewskoy sem er 7105 metra hár.
Þeir gengu upp á hann á aðeins
tveimur dögum.
Að klífa Kommúnistatindinn,
hæsta tind Samveldisríkjanna, var
lokamarkmið þeirra. Veður var
slæmt og snjóflóðahætta mjög mik-
il. Þeir komust upp í 6300 metra
hæð og urðu frá að hverfa eftir að
hafa beðið þar í tvo daga. Aðstæður
voru allar hinar verstu og því engin
ástæða að þeirra mati að taka neina
áhættu.
Félagarnir eru væntanlegir heim
í kvöld eftir viðkomu bæði í Moskvu
og Kaupmannahöfn. Þeir höfðu í
ferð sinni meðferðis sjónvarpsupp-
tökutæki og eru nokkrar líkur á því
að brot úr ferð þeirra verði sýnd í
fréttatíma Sjónvarpsins um helgina.
Forvarnakönnun heilbrig’ðisráðuneytisins:
Fæni hætta að reykja
en fleiri sleppa áfengi
Forvarnakönnun heilbrigðisráðuneytis 1992 hefur leitt í Ijós að til-
raunir fólks og árangur í að breyta lífsstíl sínum er í meginatriðum
óbreyttur frá síðustu könnun, er gerð var 1989, þótt einstakir þættir
hafi tekið breytingum. Einnig er tíðni aðvarana heilbrigðisstétta um
áhættuþætti óbreytt frá fyrri könnun. Niðurstöður könnunarinnar nú
eru sagðar vera, að efla þurfi upplýsingar og fræðslu í fjölmiðlum
um forvarnir langvinnra sjúkdóma og slysa. Þá skipti heilbrigðisstétt-
ir miklu máli í eftirliti, ábendingum og ráðleggingum um áhættu-
þætti og breyttan lífsstíl.
Tölfræðilega marktækar breyt-
ingar frá könnuninni 1989 eru þær,
að þátttaka og áhugi fólks á fundum
og fyrirlestrum um heilbrigðis- og
forvarnarmál hefur aukist. Aukin
fræðsla um heilbrigðismál á sér stað
gegnum fjölmiðla. Konur og eldra
fólk fer oftar í læknisskoðun í for-
varnarskyni og fólk í dreifbýli fer
nú jafnoft og fólk í þéttbýli. Fleiri
karlar en konur fá aðvörun um
hækkaða blóðfitu nú en áður, en
færri á aldrinum 65-75 ára fá nú
aðvörun um hækkaðan blóðsykur.
Aftur á móti hafa færri reynt að
hætta að reykja, einkum meðal karla
og meðal fólks á höfuðborgarsvæð-
inu. Yngra fólk reynir þó meira en
eldra að hætta reykingum. Færri í
aldurshópnum 65-75 ára reyna nú
að skera niður fítuneyslu. Yngra
fólk reynir nú frekar en eldra að
hreyfa sig meira og neyta minna
áfengis, og búsetumunur varðandi
hreyfívenjur er nú horfinn.
Þá tekst fólki í þéttbýli betur að
megra sig og skera niður fitu-, salt-
og sykurneyslu en fólki í dreifbýli.
Því er þó öfugt farið með áfengis-
neyslu, þar sem fólki í dreifbýli tekst
frekar að minnka áfengisneyslu sína
en fólki í þéttbýli.
Til sölu þessi einstaka bifreið
- ein af fáum í landinu - SEM NÝ
BMW 325i, órg. 1992, ekinn 5300 km.
Bíllinn er svartur, beinskiptur 5 gira, á
álfelgum, með rafdrifni sóllúgu, rafmagn
í rúðum og læsingum, ABS-bremsukerfi,
leðurinnrétting, fullkomin hljómflutnings-
tæki, CD spilari, BMW sound system,
splittað drif, 4 hauspúðar.
Sjón er sögu rfkari.
Upplýsingar í síma 676833 frá
kl. 10.00-19.00 alla daga vik-
unnar. Sveinn.
ÚTSALA
20-1 50% afsláttur
Iþróttagallar - Iþróttaskór - Bolir - Sundfatnaður - ÍJlpur og margt fleira.
»hummel1f an E
sportbúðin nýtt kortatímabil bafið Ármúla 40, sími 813555