Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992
DEILUR I KEFLAVIKURSOKN
Fyrstu sáttatilraun-
irnar út um þúfur
SAFNAÐARSTARF í Keflavíkurprestakalli hefur
verið í brennidepli undanfarið vegna deilna sem
upp hafa risið milli sóknarnefndar annars vegar,
og sr. Olafs Odds Jónssonar sóknarprests hins
vegar. Málið komst í hámæli í júní síðastliðnum,
þegar sóknarnefndin hótaði að segja af sér nema
sr. Olafur léti af embætti. Nefndin sagði af sér frá
og með 1. júlí, en frestaði afsögninni til 1. ágúst
að beiðni kirkjuyfirvalda. Þann 29. júlí var efnt
til aukasafnaðarfundar til að kjósa nýja nefnd, en
þá féllst gamla nefndin á endurkjör. Leit því út
fyrir að nokkrar sættir hefðu tekist í málinu. Á
þriðjudag var hins vegar gerð opinber í fjölmiðlum
greinargerð séra Ólafs um málið. Þótti sóknar-
nefnd og fleirum þar að sér vegið og færðust þá
deilur í aukana að nýju.
Morgunblaðið leitaði álits málsaðila og nokkurra
vegfarenda í Keflavík um málið. Sr. Ölafur vildi
ekki tjá sig um það frekar, og vísaði til greinar-
gerðar sinnar. Ekki náðist í hr. Ólaf Skúlason,
biskup, vegna málsins í gærkvöldi né heldur sr.
Braga Friðriksson prófast.
Séra Ólafur Oddur hefur þjónað Keflavíkur-
prestakalli í sextán ár, en hefur verið í leyfi frá
störfum síðastliðið ár. Til stóð að hann tæki við
störfum á ný þann 1. september, og var sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir ráðin aðstoðarprestur til þess
tíma. Á miðvikudag ákvað sr. Ólafur að taka við
embætti að nýju.
Svo virðist sem deilurnar snúist ekki fyrst og
fremst um embættisfærslu hans út á við eða guð-
fræðikenningar, heldur frekar um tengsl prestsins
við nánustu samstarfsaðila. Þá hefur einnig borið
á ágreiningi vegna fyrirhugaðrar stöðu aðstoðar-
prests við sóknina, ekki síst þar sem sr. Helga
Soffía hefur hætt við að sækja um þá stöðu, og
ber því við, að hugmyndir hennar og séra Ólafs
um starfið hafi ekki farið saman.
Varaformaður
sóknamefndar:
Eitthvað er
enn ekki
komið fram
í dagsljósið
„MÁLIÐ er á mjög alvarlegu
stigi,“ sagði Birgir Guðnason,
varaformaður sóknarnefndar
Keflavíkur. „Það er okkar mat,
að eitthvað alvarlegt sé að, sem
enn er ekki komið fram í dags-
ljósið," sagði hann.
Birgir sagði að sóknamefnd hafí
átt fund með biskupi á fimmtudag
í síðustu viku, og þar hafi verið
samþykkt að gera allt sem í valdi
málsaðila stæði til að stuðla að
áframhaldandi samstarfi við Ólaf
Odd með því skilyrði að farið yrði
að þejm leikreglum sem biskup
setti. Á mánudag hafi prófastur svo
fundað með sóknamefnd og komist
að sömu niðurstöðu. „Á þriðjudag
birtist hins vegar greinargerð Ólafs
í Tímanum, og þá var sem sprengju
hefði verið varpað,“ sagði Birgir,
og þá hafi sáttaleið sú, sem virtist
í uppsiglingu, horfið.
Áðspurður sagði Birgir að sam-
starfið við aðstoðarprestinn, Helgu
Soffíu Konráðsdóttur, hefði gengið
vel. „Það kom eins og ferskur blær
með Helgu,“ sagði hann, „því fram
að þeim tíma höfðum við þurft að
þola upphlaup prests." Aðspurður
um dæmi slíks sagði Birgir að nokk-
uð margir hefðu hætt í sóknarnefnd
eftir deilur við prest og borið hefði
á því í vaxandi mæli að sóknarbörn
hafi leitað út fyrir sóknina eftir
prestsþjónustu.
„Við höfðum búist við því, að
með byggingu nýs safnaðarheimilis
ykist safnaðarstarf til muna, og þá
þyrfti nýjan prest,“ sagði Birgir.
„Yngri menn hafa ferskar hug-
myndir.“
Hann kvað sóknina vera fjöl-
mennasta einsetna prestakall lands-
ins. „Þetta er tæplega 8 þúsund
manna sókn, og varla á eins manns
færi að annast hana,“ sagði Birgir.
„Okkar annars ágæti prestur sr.
Ólafur hefur ekki haft tíma eða tök
á að sinna henni að fullu.“
Birgir. sagði að gefín hefði verið
heimild til að ráða aðstoðarprest til
kallsins, því löngu hafi verið ljóst
að fleiri þyrfti til starfans. „Ég legg
mikla áherslu á, að það var búið
að ná samkomulagi í sóknarnefnd
um að nýta sérstaka kunnáttu Ólafs
á sérstökum þáttum kirkjustarfs-
ins.“
„Ég hef verið persónulegur vinur
Ólafs í mörg ár, og notið hans þekk-
ingar til langs tíma,“ sagði Birgir.
„En vaxandi upphlaup hans á fund-
um og það að yfírgefa fundarstaði
svo ekki var hægt að afgreiða mál,
var að mínu mati óþolandi.“
Birgir kvað næsta skref vera í
höndum biskups. „Á sáttafundi sem
haldinn var með prófasti kom með-
al annars fram sú hugmynd, að
prestur framlengdi frí sitt meðan
gengið væri frá farsælli lausn máls-
ins. Þarna hafði hann tækifæri á
að þiggja þessa lausn, svo ásættan-
leg niðurstaða fengist."
Birgir kvað sóknarnefndina hafa
verið viljuga til að draga sig í hlé
ef það mætti verða til sátta, enda
hafi nefndin sagt af sér frá og með
1. júlí. „Sá frestur var framlengdur
til 1. ágúst að beiðni kirkjuyfír-
valda, en á safnaðarfundi 29. júlí
var nefndin endurkjörin.“ Birgir
kvað það reginfirru að „smalað"
hefði verið á fundinn, eins og fram
hafi komið í greinargerð sr. Ólafs.
„Það er engin leið að svara því
hvernig fer með vetrarstarfið, sem
á að hefjast 1. september,“ sagði
Birgir. „Það er hins vegar númer
eitt, tvö og þijú að friður geti hald-
ist. Virðing mín fyrir prestsembætt-
inu er mikil, og það má ekki spila
grimma pólitík í þessu sambandi.“
Ritari
sóknarnefndar:
Meginmálið
að friður
komist á
RITARI sóknarnefndar, Kristján
Hansson, sagðist í samtali við
Morgunblaðið fyrst og fremst
vera ieiður yfir því hvernig mál-
ið hefur þróast. „Ég hef ekkert
út á embættisfærslu prestsins
sem slíka að setja, en framkoma
hans gagnvart sóknarnefndinni,
meðhjálpurum og organista hef-
ur ekki alltaf verið sem best,“
sagði Kristján.
„Svo virðist að séra Ólafur hafi
býsna einstrengingslegar skoðanir
á ýmsum málum, og hefur það leitt
til leiðinda í safnaðarstarfinu. Hins
'vegar væri ég tilbúinn til að taka
þátt í næstum hveiju 'Sem er til að
aftur komist á friður í söfnuðinum,
Stuttgart - Svartiskógur
BOSS verksmiðjurnar - Villibráðaveisla
Innifaliö: Flug KEF-ZRH, FRA-KEF, gisting í
Stuttgart í fjórar nætur, ferðir til og frá flugvelli,
skoöunarferðir, villibráðaveisla og íslensk
fararstjóm. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
* Flugvallarskattur kr. 1.480 ekki innifalinn.
Hafið samband við söluskrifstofur okkar eða farskrárdeild í síma 690300.
Verð:
36.900:-
Miðað við tvo í herbergi
Dagskrá:
Laugardagur 22. ágúst: Flogið frá Keflavík til Ziirich
kl. 07:40 Rútuferð þaðan til Stuttgart
Sunnudagur 23. ágúst: Skoðunarferð um Svartaskóg
og Villibráðaveisla
Mánudagur 24. ágúst: Frjáls dagur í Stuttgart
Þriðjudagur 25. ágúst: BOSS verksmiðjumar
heimsóttar og gerð kjarakaup.
Miðvikudagur 26. ágúst: Flogið frá Frankfurt
til fslands kl. 14:20
FLUGLEIDIR
- Traustur íslenskur ferðafélagi
Birgir Guðnason
Sævar Reynisson
hvort sem það væri að allir málsaðil-
ar drægju sig í hlé, eða að nefndin
starfi áfram með séra Ólafí. Hann
á skilið að fá sitt tækifæri eins og
allir aðrir, en fyrst þyrfti hann að
sjá einhvetja sök á ástandinu hjá
sér, og mér finnst afar leitt að hann
kenni söfnuðinum eða séra Helgu
Soffíu á einhvern hátt um ástandið.
Ég hef verið í þjónustustörfum í
Keflavík í 40 ár, og allt það fólk
sem ég hef kynnst er gott og heilt.
En mejginmálið er að koma á friði
á ný. Eg á satt best að segja erfitt
með að trúa því að ástandið sé orð-
ið eins slæmt og það er.“
Gjaldkeri
sóknarnefndar:
Er ekki eins
o g maður
vill að
prestur sé
„ÞETTA blasir þannig við mér,
að ég hefði ekki farið inn í sókn-
arnefnd, hefði ég vitað hvernig
ástandið var,“ sagði Sævar Reyn-
isson, gjaldkeri nefndarinnar.
„Það vantar mikið uppá, að eðli-
leg samskipti séu milli sóknar-
prests og annarra aðila.“
„Hann springur á fundum yfir
Einar Örn Einarsson
ólíklegustu málum,“ sagði Sævar.
„Virðing manna fyrir sóknarpresti
er mikil, og fólk koðnar niður og
gerir ekkert. S.vona hefur þetta
verið í mörg ár.“
Sævar kvað Keflvíkinga hafa
skynjað hvernig í málum lægi.
„Prestur blandar litlu geði við sam-
starfsmenn og hefur skrifstofu sína
heima. Hann er hins vegar mjög
hæfur í að meðhöndla sorgina og
góður ræðumaður, enda skarp-
greindur og vel gefínn. Góðu kost-
irnir gleymast hins vegar í umræð-
unni því einblínt er á þá slæmu.“
Að sögn Sævars sinnir Ólafur
hvorki bamastarfínu né gamla fólk-
inu, kemur ekki heim í hús til að
skíra, og „er ekki eins og maður
vili að prestur sé.“ Þó væru margir
sem ekki hefðu neitt slæmt af presti
að segja, enda væri það fólk sem
stæði honum nær, sem flest væri í
miklum vandræðum.
„Það hefur ekkert upp á sig að
tíunda einstök dæmi um upphlaup
og vandræði," sagði Sævar. „Þetta
er margra ára vandamál. Forveri
minn hætti til dæmis vegna þessa,
en hann var búinn að vera gjald-
keri sóknarnefndar í 30 ár áður en
hann flæmdist burtu. Það er þetta
sem er svo ömurlegt og menn geta
ekki sætt sig við.“
Aðspurður kvað Sævar ekki sjá
neina leið til að hafa samband við
sr. Ólaf að fyrra bragði eða öfugt.
„Biskup á næsta leik. Á fimmtudag-
inn í síðustu viku bað biskup okkur
um að segja ekki af okkur, heldur
finna sáttagrundvöll. Nú er hins
Rögnvaldur Olafs-
son heildsali látinn
RÖGNVALDUR Ólafsson heildsali
lést á heimili sínu í Reykjavík í
fyrradag eftir erfið veikindi.
Hann hefði orðið fimmtugur í dag.
Rögnvaldur fæddist í Reykjavík
þann 14. ágúst 1942, sonur hjónanna
Sólrúnar Elínar Rögnvaldsdóttur og
Ólafs H. Stefánssonar.
Rögnvaldur lauk verslunarprófi
frá Verslunarskóla íslands árið 1963
og hóf þá skrifstofustörf hjá Kassa-
gerð Reykjavíkur og starfaði þar uns
hann réðist sem skrifstofustjóri til
Dalvíkurhrepps. Rögnvaldur var um
skeið skrifstofustjóri hjá Prenthúsi
Hafsteins Guðmundssonar og starf-
aði hjá Flugleiðum uns hann réðist
til ferðaskrifstofunnar Útsýnar sem
aðalgjaldkeri. Þaðan réðist hann að
Hótel Borg, sem hótelstjóri og starf-
aði þar til ársins 1987 er hann sneri
sér að rekstri fyrirtækis, sem hann
hafði stofnað og ber nafnið Heild-
verslunin R. Ólafsson. Það fyrirtæki
rak hann til dauðadags.
Rögnvaldur Ólafsson starfaði um
árabil innan Oddfellowreglunnar.
Rögnvaldur Ólafsson lætur eftir
sig eiginkonu, Þóreyju Erlu Ragnars-
dóttur, og fjögur uppkomin börn.