Morgunblaðið - 14.08.1992, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992
17
Séra Helga Soffía Konráðsdóttir
vegar svo komið að erfitt er að
ímynda sér hvernig bæjarfélagið
geti haft þennan prest, enda bæj-
arbúar sárir yfir því sem sagt er í
greinargerð hans.“
„Ef það kemur hingað annar
prestur, hef ég engar áhyggjur af
að geta ekki starfað með honum —
næstum sama hver það er,“ sagði
Sævar. „Þetta er bara spurning um
að geta rætt málin án þess að það
verði sprenging eða þau afgreidd
með valdboðum.“
Organistinn:
Tillögur og
ununæli
kosta uppþot
og stór orð
„EG er búinn að vera tvö ár í
Keflavík. Þegar ég kom til starfa
tók ég iöulega upp hanskann
fyrir prestinn, en fór fljótlega
að átta mig á skapgerðarbrestum
hans,“ sagði Einar Orn Einars-
son, organisti.
Einar tekur sem dæmi, að þegar
hann stóð að tillögu um starfs-
mannanefnd á vegum sóknarinnar,
hafí hann ekki fengið ráðrúm til
að skýra tillögur sínar fyrir presti.
„Hann hefur ekki beðist afsökunar
á ummælum sínum um mig þá, og
á meðan standa þau ummæli," sagði
hann. „Ég nenni ekki að vinna und-
ir slíku.“
Auk þess sem hann er organisti
stýrir Einar kirkjukórnum, og kvað
hann málið einnig hafa snert ein-
staklinga innan kórsins.
„Þegar haldin vár menningarhá-
tíð Keflavíkurkirkju, voru í nokkra
daga fengnir til liðs við hana lista-
menn á ýmsum sviðum til að sam-
eina listirnar í þágu kirkjunnar,"
sagði Einar. „Viðbrögð prests voru
hins vegar þau, að hann sagði að
vonandi gæti ég lært af mistökun-
um. Það skilur enginn svona um-
mæli, og þetta er eins og að fá
blauta tusku í andlitið."
Einar hafði sagt starfi sínu lausu,
en uppsögnin væri nú fallin úr gildi
að svo stöddu. „Mér fellur vel í
Keflavík og við fólkið þar. Þar er
gott að starfa og ég vil sjá hvað
Morgunblaðið/Þorkell
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Hann var prófdómari minn í
guðfræðideildinni, og þar er
hann í miklu áliti sem kennari,
enda er honum margt til lista
lagt.“
Helga Soffía sagði það vissulega
vera erfitt fyrir sig að dragast inn
í deilumál af þessu tagi. „Þetta mál
er afskaplega leiðinlegt fyrir alla
aðila og fjölskyldur þeirra, og það
á ekki síst við um sr. Ólaf sjálfan.
Hins vegar hef ég haft gaman af
störfum mínum hér <s_ókninni, og
hef kynnst mörgu góðu fólki," seg-
ir hún. „Ég mun verða um kyrrt í
Keflavík fyrst um sinn, og hef ráð-
ið mig sem kennara í vetur.“ Hvað
sóknarnefndina varðar segist hún
hafa átt ágætt samstarf við hana.
Hún tekur upp hanskann fyrir
nefndina í þeim deilum sem risið
hafa, og segir útilokað að tólf
manna hópur sem vill kirkjunni
sinni vel taki það upp hjá sjálfum
sér að ráðast á mannorð sóknar-
prestsins án nokkurs tilefnis. „Ég
veit að þetta fólk ber hag sóknar-
innar og bæjarins fyrir bijósti, sem
sést best á samþykki þeirra að
starfa áfram í sóknarnefnd eftir það
sem á undan er gengið,“ sagði
Helga Soffía. „Niðurstaða sóknar-
fundarins var að mínu mati eindreg-
inn stuðningur við sóknarnefndina."
setur, því biskup og æðstu ráða-
menn verða að taka á þessu máli
á einhvern hátt. Urlausn verður að
fást fljótt, því fólk getur reynt að
gera sér í hugarlund hvernig það
er, að þegar bornar eru fram tillög-
ur eða eitthvað sagt, kosti það upp-
þot og stór orð á annan veginn.“
„Það sem heldur mér við efnið
er að ég lít á mig sem starfsmann
safnaðarins þar sem eru þúsundir
manna. Söfnuðurinn er meira en
einn prestur, og það verður að
hugsa um hina líka,“ sagði Einar.
Séra Helga Soffía
Konráðsdóttir:
Erfitt að
dragast inn
í deilumál af
þessu tagi
„ÉG vil taka það fram að ég
þekki séra Ólaf Odd ekki vel,“
sagði séra Helga Soffía Konráðs-
dóttir, sem hefur leyst séra Ólaf
Odd af undanfarna mánuði, i
Skarphéðinn H. Ein-
arsson:
Hefur
unnið störf
sín vel
„ÉG held að séra Ólafur Oddur
sé hinn mesti sómamaður. Ég hef
hlýtt á messur hjá honum, og
einnig þurft að
sækja til hans
sjálfur, og mér
hefur fundist
hann vinna störf
sín vel,“ sagði
Skarphéðinn H.
Einarsson sem
Morgunblaðið
hitti á förnum
vegi í Keflavík.
„16 ár er langur tími, og sérkenni-
legt að fyrst núna skuli sjóða upp
úr. Mér segir svo hugur að eitt-
hvað sé að hjá öðrum en honum."
„Ég veit ekki hvað býr að baki þessu
róti núna, en Ólafur hefur þótt góð-
ur prestur þá tíð sem hann hefur
þjónað hér,“ sagði Skarphéðinn enn-
fremur. „En ég vona að málið fái
farsælan endi, og að séra Ólafur
Oddur fái að starfa hér áfram óá-
reittur, svo fremi hann kærir sig um
það.“
Skarphéðinn
Gylfi Kristinsson:
Einhverjir
hafaekki
komið hreint
fram
„ÞAÐ hefur ekki farið mikið fyr-
ir þessu máli fyrr en nú,“ sagði
Gylfi Kristinsson.
„Almenningur
hefur ekki tekið
eftir neinu fyrr
en þetta kemur
fram nú, og er
slegið upp í blöð-
um. Þetta kom
flatt upp á mig,
en sjaldnast veld-
ur einn þá tveir Gy"
deila.“
„Ég hef ekki miklar áhyggjur af
þessu. Ég er í fyrsta árgangnum sem
Ólafur fermdi hér og hann hefur
reynst mér vel þegar ég hef þurft á
honum að halda,“ sagði Gylfi. „Þetta
er leiðindamál sem sennilega hefði
verið hægt að afgreiða án þess að
gera úr þessu blaðaskrif."
Gylfi kvaðst telja erfitt að mynda
sér skoðun á máli sem ekki væri
betur kynnt, en sér virtist vandinn
frekar liggja í stærð sóknarinnar.
Þörf væri á tveimur prestum í sókn-
inni og vel mætti vera að verkefnin
væru of mörg og of stór til að einn
prestur valdi þeim.
„Einhverjir hafaekki komið hreint
fram,“ sagði Gylfi. „Það hefði verið
hægt að ræða málin á annan hátt
en nú hefur verið gert. Kirkjumál
eru alltaf viðkvæm, og þetta er leið-
indamál fyrir bæjarfélagið."
Sveindís
Pétursdóttir:
Hræðilega
farið að
manninum
„MÉR finnst hreint hræðilega far-
ið að manninum," sagði Sveindís
Pétursdóttir,
þegar Morgun-
blaðið hitti hana
í Keflavík í gær.
„Ég bý reyndar í
Vogum, en hef
starfað mikið
með öldruðum á
Suðurnesjum, og
hef lítillega
kynnst störfum
prestsins í gegnum það.“
„Hann hefur messað fyrir þá hópa
sem ég hef starfað með, og fólk
hefur látið vel af störfum hans. Þetta
mál líkist einna helst aðför að sókn-
arprestinum, og mér hefur fundist
illa vegið að honum," sagði Sveindís
ennfremur.
Sveindís
Lárns
Guðmundsson:
Ekkiof mikil
ánægja með
prestinn
„MENN sem ég hef hitt hafa lít-
ið blandað sér í þetta mál, en þó
finnst mér held-
ur meira um að
mönnum finnist
að presturinn
ætti að hafa sig
á brott,“ sagði
Lárus Guð-
mundsson sem
ekur leigubíl í
Keflavík. „Þó
hittir maður einn
og einn sem tekur upp hanskann
fyrir hann, og finnst að honum
vegið.“
Lárus sagði, að almennt væri málið
ekki mjög mikið rætt. Sjálfur væri
hann úr Njarðvík, og því snerti
þetta ekki hans sókn. „Mér hefur
þó heyrst að Keflvíkingar hafi ekki
verið of ánægðir með störf séra
Ólafs.“
Lárus
Mest seldu steikur á Islandi
Nauta-, lamba*- og svínagrillsteikur m. bakabri kartöflu, hrásalati og kryddsmjöri.
Tilbobsverb: 69®,-
krónur.
Vib seldum um þaö bil 6.000 steikur í júií.
Jarlinn, Sprengisandi, er því oröinn
aö stœrsta steikhúsi landsins.
Viö þökkum frábœrar undirtektir
og framlengjum steikartilbobib út ágústmánub.
‘Lambakjöt ófáanlegt í bili.
V E I T I N G A S T O F A
Sprengisandi - Kringlunni