Morgunblaðið - 14.08.1992, Qupperneq 25
__________ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992_
Hannes nálgast stórmeistaratitilinn
___________Skák_______________
Margeir Pétursson
EFTIR afar lélega byijun á
alþjóðlega mótinu í Altensteig
í Þýskalandi náði Hannes Hlífar
Stefánsson frábærum enda-
spretti og komst upp í fimmta
sætið á mótinu. Sigurvegari
varð hinn kunni úkraínski stór-
meistari Oleg Romanishin.
Hannes náði því að hækka veru-
lega á stigum, en það skiptir
hann nú afar miklu máli. Um
leið og hann nær 2.500 stigum
á lista Alþjóða skáksambands-
ins hefur hann náð stórmeistar-
atitli. Eftir árangurinn í Altens-
teig má ætla að hann sé með
2.480-2.485 stig og ætti að
verða hægðarleikur fyrir hann
að ná því sem upp á vantar á
mótum fram til 1. desember.
Ungverski jafntefliskóngurinn
Zoltan Ribli tók snemma foryst-
una á mótinu í Altensteig. En
honum brást kjarkur til að fylgja
henni eftir, seinni helming móts-
ins gerði hann allar skákir sínar
jafntefli, flest alveg baráttulaus.
Romanishin notaði tækifærið, tók
mikla áhættu í mörgum skáka
sinna, skrapaði t.d. jafntefli á afar
slæmar stöður gegn Þjóðverjun-
um Gabriel og Vogt. En vogun
vinnur, vogun tapar, þeir Stangl
og Sadler voru alveg heillum
horfnir gegn Romanishin, töpuðu
fyrir honum í rúmlega 20 leikjum
og hann náði að vinna yfirburða-
sigur.
Um einstök úrslit vísast til
meðfylgjandi töflu. Fimm stór-
meistarar tóku þátt á mótinu, en
hinir keppendurnir sjö eru alþjóð-
legir meistarar. Það olli Þjóðverj-
um nokkrum vonbrigðum að eng-
inn af þeirra ungu og efnilegu
meisturum tókst að ná áfanga að
stórmeistaratitli.
Hannes vann sér rétt til þátt-
töku með því að deila efsta sætinu
á móti ungra meistara í sömu
borg í vor. Að þessu sinni var
afar heitt í veðri og tók það Hann-
es talsverðan tíma að venjast því.
Mjólkurkýr íslenskra
skákmanna
Við skulum líta á viðureign
Hannesar við Þjóðveijann Thomas
Luther. Hann varð í þriðja sæti á
mótinu í fyrra og náði þá áfanga
að stórmeistaratitli, en gekk ekki
eins vel nú. Upp kom afbrigði af
Sikileyjarvörn sem oft hefur kom-
ið upp í skákum íslendinga upp á
síðkastið. Það hefur reynst okkar
mönnum afar farsælt bæði með
hvítu og svörtu, jafnvel þó staðan
upp úr byijuninni hafi stundum
virst óhagstæð. Úr sex skákum
er árangurinn fimm vinningar.
Fyrst vann Jóhann Hjartarson
Danann Mortensen í þriðju um-
ferð Ólympíumótsins í Manila.
Þeir Jón L. Árnason og Rússinn
Vyzmanavin gerðu jafntefli í 11.
umferð þess, Hannes og Þjóðveij-
inn Lutz gerðu jafnteflr í þeirri
tólftu eftir að Hannes hafði látið
öruggan vinning sér úr greipum
ganga og loks vann Jón L. Ion-
escu frá Rúmeníu í næstsíðustu
umferð. íslendingarnir höfðu hvítt
í öllum þessum skákum, en á
svæðamótinu í Östersund tefldi
Jóhann byijunina með svörtu
gegn Ernst og hafði sigur að lok-
um eftir langa og stranga vörn.
í skýringunum hér á eftir er vitn-
að til allra þessar skáka:
Hvítt: Thomas Luther
Svart: Hannes H. Stefánsson
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5 2. Rf3 - e6 3. d4 -
cxd4 4. Rxd4 — a6 5. Bd3 —
Rf6 6. 0-0 - Dc7 7. De2 - d6
Það er rúmenski stórmeistarinn
Florín Gheorghiu sem gert hefur
þessa broddgaltaruppstillingu vin-
sæla.
8. c4 - g6 9. Rc3 - Bg7 10.
Hdl - 0-0 11. Rf3 - Rc6
Athyglisverður mögulejki hér er
II. — Rg4!? 12. Bf4 (Ónákvæm-
ara er 12. h3?! — Re5 13. Rxe5
- de5 14. Be3 - Bd7 15. Hacl
- Rc6 16. Rd5 - exd5 17. cxd5
og skák Jóns L. Árnasonar og
Rússans Vyzmanavins í 11. um-
ferð Ólympíumótsins leystist fljót-
lega upp í jafntefli.) 12. — Re5
13. Hacl - Rbc6 14. b3 - De7
(Eftir 14. - Rxf3+ 15. Dxf3 -
Re5 16. De2 - Bd7 17. Bbl -
Hfd8 18. h3 - Be8 19. Be3 fann
svartur enga áætlun í skák Jóns
L. Árnasonar og Rúmenans Io-
nescus í 13. umferð ÓL og hvítur
vann á sókn.) 15. Bbl — Hb8 16.
Khl! (Nákvæmara en 16. h3 —
Hannes Hlífar Stefánsson
b6 17. De3 - Kh8 18. Re2 -
f5!? 19. Rfd4 - Rxd4 20. Rxd4
— Bb7, með færum á báða bóga,
Jóhann Hjartarson- Mortensen,
Danmörku, 3. umferð ÓL.) 16. —
b6 17. Bg5! - f6 18. Be3 - Kh8
19. Rd4 — Rxd4 20. Bxd4 — Rc6
21. Be3 - f5 22. Dd2 - Hd8 23.
f3 og hvítur stendur nokkru bet-
ur, Ernst-Jóhann Hjartarson,
svæðamótinu í Östersund. Nokkru
síðar í skákinni vann Ernst peð,
en honum fórst úrvinnslan svo
óhönduglega að hann missti skák-
ina alla leið niður í tap.
12. h3
Hannes Hlífar lék sjálfur 12.
Bf4 í stöðunni gegn hinum nýbak-
aða þýska stórmeistara Lutz í 12.
umferð ÓL. Þjóðverjinn svaraði
með 12. — e5! 13. Be3 — Bg4
14. Bc2 — Rd7 og náði að jafna
taflið.
12. - Rd7 13. Bf4 - Rce5 14.
Hacl - b6 15. b3 - Bb7 16.
Bbl - f5!?
Hannes reynir að flækja taflið,
en þetta er beggja handa járn því
hann veikir eigin stöðu í leiðinni.
17. Rd4 - Hae8 18. Dd2 - Rf7
19. Rde2?!
Hér missir Luther þráðinn í
skákinni og Hannes nær með
þvinguðum leikjum að hrifsa til
sín frumkvæðið. Það hefði gert
hvítum talsvert auðveldara um vik
ef hann hefði skotið 19. exf5 —
gxfö inn. Þá á hann ýmsa athygl-
isverða möguleika, t.d. 20. Rd5!?
- Dd8! (En ekki 20. - exd5? 21.
cxd5 og næst 22. Re6 með geysi-
sterkri stöðu fyrir manninn og
ekki, því ekki gengur 21. — Rc5
22. b4.) 21. Rxe6 - Hxe6 22.
Bxf5 og hvítur hefur tvö peð og
sterka stöðu fyrir mann. Hann
getur einnig farið rólegar í sakim-
ar, t.d. hindrað 20. — e5 með 20.
Dc2!?
19. - e5! 20. Bh2 - Bh6 21. f4
— fxe4 22. Bxe4 — Bxe4 23.
Rxe4 - exf4 24. R2c3 - f3 25.
Bf4 - Bxf4 26. Dxf4 - Rfe5
Svartur hefur peði meira, en
þyngra vegur þó að kóngsstaða
hans er mun traustari. Hannes
skilar líka fljótlega peðinu til baka
en heldur öruggu frumkvæði.
27. Dg3 - Rc5 28. Hxd6
25
28. - Kh8
Allur er varinn góður. Hannes
lætur ekki bæði svörtu hjónin
horfast í augu við hvítu drottning-
una. Það yrði dýrkeypt eftir 28.
- Red3? 29. Hxg6+! - hxg6 30.
Dxc7. Nú er 29. — Red3 hins
vegar raunveruleg hótun.
29. Hfl - b5?
Gefur hvítum færi á að rétta
úr kútnum. Áður en hvítur nær
að valda drottninguna var upplagt
að leika 29. — Rxe4 30. Rxe4 —
Rxc4 31. bxc4 — Hxe4 32. Hxf3
(Þvingað, því nú gengur 32.
Hxg6? ekki vegna 32. — Dxg3
33. Hxg3 - f2+! 34. Kh2 - Hel.)
32. - Hxf3 33. Dxf3 - Dc5+!
34. Kfl — Dxc4 og svartur vinn-
ur peð með skák og áframhald-
andi frumkvæði.
30. cxb5 - axb5 31. Kh2 -
Rxe4 32. Rxe4 - Hf5 33. Hf6?
Tapleikurinn. Eftir 33. gxf3 —
Hef8 34. f4 — g5 eru vinnur svart-
ur peðið til baka og staða hans
er eitthvað betri, en baráttunni
engan veginn lokið.
33. - De7! 34. Hxf5 - gxf5 35.
Rg5 - Hg8 36. Hel - Hxg5
37. Dxe5+ — Dxe5+ 38. Hxe5
— f2 og hvítur gafst upp.
Altensteig 1992 Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. Röð
1. Romanishin, Úkraínu 2.555 0 1 'h 1 'h 1 'h 1 1 'h 1 8 1.
2. Ribli, Ungveijalandi 2.610 1 'h 'h 'h 'h 'h 'h 'h 'h 'h 1 6'/: 2.-4.
3. Kindermann, Þýskalandi 2.505 0 'h 1 1 1 'h 1 0 1 'h\ 61/: 2.-4.
4. Schlosser, Þýskalandi 2.500 'h 'h 0 1 'h 'h 'h 1 'h 1 'h 61/: 2.-4.
5. HannesHlífar 2.445 0 'h 0 0 'h 1 'h 1 'h 1 1 6 5
6. Vogt, Þýskalandi 2.530 '/: 'h 0 'h 'h 'h 'h 1 'h '/2 'h 5>/2 6.-7.
7. Stangl, Þýskalandi 2.475 0 'h 'h 'h 0 'h 0 'h 1 1 1 5*/2 6.-7.
8. Gabriel, Þýskalandi 2.490 'h 'h 0 'h 'h 'h 1 'h. 'h 0 'h 5 8.
9. Muller, Þýskalandi 2.490 0 'h 1 0 0 0 'h 'h 'h 1 'h 4'/: 9.-10.
10. Brunner, Sviss 2.490 0 'h 0 'h 'h 'h 0 'h 'h 1 'h 4>/2 9.-10.
11. Sadler, Englandi 2.515 'h 'h 1 0 0 'h 0 1 0 0 'h 4 11.
12. Luther, Þýskalandi 2.435 0 0 'h 'h 0 'h 0 'h 'h 'h 'h 3>/2 12.
Afmæliskveðja:
Helga Olafs
Akureyri - 100 ára
Hver vildi ekki verða hundrað
ára, ef sá hinn sami héldi eldmóði
æsku, andlegri og líkamlegri orku,
og nyti sama vinfengis og vin-
sælda alla sína löngu æfi?
Helga er hrein goðgá. Læknar
og vísindamenn um allan heim
leitast við að afhjúpa ástæðuna
fyrir heilbrigðu og löngu lífi. Ég
held þeir ættu að skreppa upp á
dvalarheimilið Hlíð á Ákureyri í
dag, þar geta þeir vaflaust fundið
svarið.
Fislétta á fæti, og brosmilda af
kæti, þannig man ég Helgu best.
Bæjarlækurinn í Búðargilinu var
lengst af næsti nágranni Helgu.
Hann gat yglt sig á vorin, en litla
dúkkuhúsið hennar Helgu stóð af
sér öll áhlaup og hvergi var heimil-
isylurinn meiri en hér.
Nú veit ég að vísu kæra Helga
að hæverska þín og lítillæti fyrir-
býður mér að rekja æfisögu þína,
en örfá þakkarorð á eigin vegum
og fjölskyldunnar, vona ég þó að
þú líðir mér.
Helga þekkti alla, og allir bæj-
arbúar Akureyrar þekktu Helgu í
mannsaldur. I dag spyija menn
um ætt og uppruna. Foreldrar
Helgu voru Ólafur Þorsteinsson
söðlasmiður og Sigurborg Ólafs-
dóttir kona hans. Bróður átti
Helga, Harald að nafni, en hann
fluttist vestur til Kanada ungur
að árum, og leit aldrei gamla land-
ið aftur.
Helga skrapp að vísu vestur um
haf í boði bróður síns, en ekki vildi
hún ílendast þar, og sneri heim
aftur að ári. Hún hefur alla tíð
síðan sett svip sinn á bæjarlífið í
höfuðborg Norðurlands.
Helga Ólafs eða Helga Ryel,
hver er nú hver? Helga er nátengd
,nei hún tilheyrir Ryels fjöl-
skyldunni, og það er því ósköp
eðlilegt að hún gegni báðum nöfn-
um jöfnum höndum.
Það þarf ekki að bera oflof á
Helgu. Fyrir þeim óeigingjarna og
samviskusama getur fjálglegt ta!
verkað neikvætt.
En gömlu góðu tímarnir eru
liðnir hjá. í dag taka menn það
ekki eins og sjálfsagðan hlut að
starfsfólkið vinni af hollstu og
samviskusemi myrkranna á milli
meðan húsbóndinn er fjarverandi,
oft 3-4 mánuði af árinu.
Það veit a.m.k. að faðir minn
átti engu og engum velgengni sína
meira að þakka en Helgu Ólafs.
Fyrir alla þá hollustu í garð föður
míns og fjölskyldunnar færi ég þér
í dag, kæra Helga, mínar innileg-
ustu þakkir.
Gjarna hefði ég viljað skreppa
norður í dag til að heilsa upp á
þig kæra Helga. Við konan mín,
og nafna þín, munum þó vera hjá
þér í huganum, og vonandi færðu
hugskeytið með góðum skilum.
Lifðu bæði vel og lengi lengi.
Richardt.
Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson
Árni Gunnarsson (t.v.) og Sturlaugur Þorsteinsson undirrita sam-
komulagið um neyðarsímaþjónustu fyrir hönd Slysavarnafélags ís-
lands og viðsemjenda í Austur-Skaftafellssýslu.
Samningnr um neyð-
arsímaþjónustu á Höfn
ÁRNI Gunnarsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélags íslands, og
Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri á Höfn, undirrituðu miðvikudag-
inn 12. ágúst samning milli Slysavarnafélagsins og bæjarstjórans á
Höfn fyrir hönd viðsemjenda í Austur-Skaftafellssýslu um neyðarsíma-
þjónustu í sýslunni.
Slysavarnafélagið tekur að sér að
vakta neyðarsímann 81919 allan sól-
arhringinn alla daga ársins og koma
áleiðis hjálparbeiðnum. í þetta númer
geta allir hringt er þurfa á neyðarað-
stoð að halda hvort sem er hjá lög-
reglu, slökkvilíði, lækni eða vegna
sjúkraflutninga.
Erfiðleikar hafa verið með neyðar-
þjónustu hér undanfarið og er verið
að leita leiða til að bæta úr brýnni
þörf. Nú er unnið að tæknilegum
undirbúningi en formlega á þjónust-
an að hefjast 1. október nk. Slysa-
varnafélagið annast tæknilegan und-
irbúning en bæjarfélagið á Höfn
greiðir kostanð. Eftirþriggja mánaða
reynslutíma mun ákvörðun um gjald
fyrir þjónustu SVFÍ verða tekin.
Nú munu yfir 170 neyðarsíma-
númer vera skráð á landinu en að
sögn Árna Gunnarssonar væri æski-
legast að einungis eitt númer gilti
fyrir landið og þá sama númer og
verður í gildi í Evrópu, það er 112.
- JGG