Morgunblaðið - 14.08.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992
27
Egill Pálsson, Borg-
arnesi - Minning
Fæddur 6. september 1912
Dáinn 7. ágúst 1992
Egill Pálsson var fæddur að Búð-
um á Snæfellsnesi þann 6. septem-
ber 1912 og var því mánuði fátt í
áttrætt er hann lést á Sjúkrahúsi
Akraness þann 7. ágúst sl. Foreldr-
ar Egils voru Páll Pétursson (1861-
1925) og Guðveig Guðmundsdóttir
(1885-1950) en ættir þeirra beggja
voru borgfirskar. Egill var yngstur
þriggja alsystkina, en einn hálf-
bróðir var yngri, sammæðra. Öll eru
systkinin nú gengin á fárra ára
bili. Þau voru auk Egils, Pétur, sem
var elstur og bjó lengst af í Kópa-
vogi, Jórunn, sem bjó í Borgamesi
og yngstur var hálfbróðirinn Guð-
mundur Viðar Guðsteinsson sem
bjó í Reykjavík.
Guðveig og Páll slitu samvistir
þegar Egill var þriggja ára gamall
og flutti Guðveig í Borgames með
börnin þrjú og var heimili hennar
þar eftir það. Árið 1926 giftist
Guðveig síðan Guðsteini Friðriks-
syni (1863-1940) og var Guðmund-
ur Viðar sonur þeirra.
Páll Pétursson faðir Egils var
ráðsmaður á Barðastöðum í Staðar-
sveit þar sem tvö eldri böm hans
fæddust en var fluttur að Búðum
með fjölskyldu sína þegar Egill
fæddist. Þar var hann þurrabúðar-
maður, en fluttist síðar í Borgar-
fjörð og dvaldi síðustu árin heilsulít-
ill að Hamri í Borgarhreppi. Hann
lést í Reykjavík árið 1925.
Egill Pálsson vandist snemma
öllum verkum og viðfangsefnum
lífsbaráttunnar og varð snemma
eftirsóttur til allra verka. Best létu
honum öll bústörf. Móðir hans hélt
alla tíð skepnur í Borgarnesi og í
félagi við hana og síðar einn við-
hélt Egill sjálfsþurftarbúskap enda
marga munna að metta þegar á leið.
Þegar Egill stóð á tvítugu hafði
heimskreppan náð til íslands og
möguleikar ungra manna fáir af
þeim sökum. Það var því bæði rök-
rétt og eðlilegt að næstu ár var
Egill í vinnumennsku, lengst af í
Sólheimatungu. Þar hafði hann
reyndar fyrst dvalist sumarlangt
þrettán ára gamall og alltaf haldið
tengslum við það heimili síðan. Var
hann því fyrst hjá Jónasi og síðan
Tómasi syni hans og við Sólheima-
tungubræður af þriðja lið þá Jónas
og Sigurð Tómassyni hélt hann
sambandi allt fram á siðasta dag.
í Borgarnes fór Egill aftur þegar
daglaunavinna fékkst og hóf fyrst
störf utanbúðar hjá Verslunarfélagi
Borgarfjarðar og leið þá skammur
tími að stærstu tímamótunum i lífi
hans.
Þann 29. apríl 1939 giftust þau
Egill og eftirlifandi kona hans Jó-
hanna Lind, sem er fædd 11. sept-
ember 1916 í Svíney í Færeyjum
dóttir Pouls Lind og Kristínar Lind
konu hans sem þar bjuggu. Egill
og Jóhanna stofnuðu heimili sitt í
Borgamesi og eignuðust fimmtán
börn, en Jóhanna átti eina stúlku
fyrir, sem ólst upp í Færeyjum. Tvo
drengi misstu þau unga, en þrettán
böm komust upp, sjö drengir og
sex stúlkur. Öll bera þau nafnið
Lind sem skimarnafn til viðbótar
sínu íslenska nafni. Barnabömin
eru orðin þijátíu og þijú og bama-
barnabörnin sjö, auk þess sem
barnabörn Jóhönnu í Færeyjum
urðu þijú, eitt lést í æsku, en barna-
barnabömin þar em tvö.
Árið 1944 hóf Egill störf hjá
Kaupfélagi Borgfírðinga og þar
starfaði hann allt til ársins 1982
er hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir. Framan af var Egill utanbúð-
ar hjá kaupfélaginu og við fláningu
í sláturhúsinu á haustin. Egill var
mikill kappsmaður og afburða flán-
ingsmaður. En óhætt er að fullyrða
að aldrei var kappið án forsjár eða
magnið á kostnað gæðanna. Til
marks um það má geta þess að
Egill var fenginn til þess að leið-
beina við fláningu bæði á Höfn í
Hornafirði og á Patreksfirði því
sláturhús Kaupfélags Borgfirðinga
stóð þá sem nú á traustum fagleg-
um grunni. Síðar hóf Egill störf í
kjötvinnslu kaupfélagsins og þar
vann hann til starfsloka.
Egill var alla tíð með skepnur
fyrir heimilið eins og áður sagði,
framan af hafði hann kýr, kindur,
hesta og hænsni eins og títt var í
Borgarnesi fyrr á ámm. Slægjur
hafði hann m.a. í landi Bjargs og
Hamars en árið 1963 hætti hann
með kýrnar og nokkmm ámm síðar
flutti hann fjárbúskap sinn upp í
Bjargsland þar sem hann átti bæði
peningshús og slægjur. Börnin
eignuðust líka hesta og lögðu bú-
skapnum lið og þannig var undir-
staða hestamennskunar lögð hjá
þeim Egilsbræðmm. Haustið 1983
lét Egill lokið fjárbúskap sínum og
framseldi Borgarnesbæ land sitt og
lét frá sér síðustu kindurnar, sáttur
við sitt hutskipti enda hans eigin
ákvörðun.
Lífshlaup Egils Pálssonar var í
senn venjulegt og óvenjulegt. Það
var venjulegt að því leyti að við-
fangsefni hans vom nær öll í því
umvherfi og af þeim toga sem hann
hafði alist upp við enda stóð hugur
hans til þess. Það óvenjulega við
lífshlaup hans var umfang ævi-
starfsins og sú atorka og farsæld
sem einkenndi það.
Barnabörn Egils Pálssonar og
Jóhönnu Lind hafa réttilega heyrt
margt af dugnaði og hreysti afa
síns, sem alltaf sá heimili sínu far-
borða þrátt fyrir mikla ómegð og
af ljúflyndi og ósérhlífni ömmu
sinnar sem gæddi baráttuna lífs-
gleði. Saman skópu þau það verk
sem lifír með börnum þeirra og
afkomendum. Egill Pálsson tók
hlutverk sitt alvarlega sem fjöl-
skyldufaðir og var trúr yfir öllu sem
honum var falið. Gæfa hans var sú
að hvað studdi annað, vinnugleðin
og verkin, hvert sem verkið var
enda þótt bústörf og skepnuhirðing
væm hans líf og yndi. Hann bjó
við öryggi og sálarró og miðlaði því
til annarra. Bamgóður var hann og
með mannkostum sínum ávann
hann sér virðingu allra sem honum
kynntust.
Egill var sáttur við Guð og menn
þegar kallið kom. Megi minningin
um hann styrkja tengdamóður mína
á skilnaðarstund. Blessuð sé minn-
ing Egils Pálssonar.
Magnús Ingólfsson.
í dag er borinn til grafar afi
minn, Egill Pálsson frá Borgarnesi.
Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness
eftir stutta sjúkralegu, tæplega átt-
ræður að aldri.
Það er hægt að koma ævisögu
afa fyrir í fáum línum. Hann átti
þó langa og viðburðarríka ævi. Af-
rekin sem hann vann eru mörg.
Kannski er mesta afrekið að koma
til manns 13 heilbrigðum börnum.
Þau, og barnabörnin hans, eiga
honum mikið að þakka. Borgarnes-
bær á honum einnig mikið að
þakka. Hann várði stærstum hluta
starfsævi sinnar í Borgarnesi og tók
virkan þátt í uppbyggingu bæjar-
ins. Afi á einnig þakkir skildar frá
Kaupfélagi Borgfirðinga. Ég held
að það sé varla hallað á neinn þó
sagt sé að afi hafi verið einn traust-
asti og besti starfsmaður þess fé-
lags í áratugi. Samfélagið, og við
sem njótum lífsgæða sem menn af
kynslóð afa sköpuðu, stöndum einn-
ig í þakkarskuld við afa fyrir allt
það starf sem hann vann með sínum
•stóru og sterku höndum.
Afi fæddist 6. september 1912,
sonur Páls Péturssonar og Guðveig-
ar Guðmundsdóttur. Hann átti tvö
systkini, Pétur og Jórunni, sem
bæði eru látin. Afi fór að vinna
strax og hann hafði aldur til. Hann
var á unglingsárum og fram eftir
aldri vinnumaður á bæjum í Borgar-
firði, lengst af í Sólheimatungu.
Árið 1939 kvæntist hann Jóhönnu
Lind Pálsson og fluttist þá í Borgar-
nes og vann þar verkamannavinnu
upp frá því. Afi hafði allt fram á
síðustu ár fjárbú ofan við Borgar-
nes og lengi átti hann einnig tvær
kýr sem hann geymdi í Borgarnesi
skammt frá heimili sínu. Afí bjó
lengst af á Gunnlaugsgötu 10, en
þar reisti hann stórt hús fyrir fjöl-
skyldu sína.
Egill og Jóhanna eignuðust sam-
an 15 böm: Ólafur fæddur 1939,
bóndi á Hundastapa í Mýrasýslu,
kvæntur Ólöfu Guðmundsdóttur.
Þau eiga fímm böm og átta bama-
börn. Hilmar fæddur 1940, verka-
maður í Borgamesi. Kristinn fædd-
ur 1941, bóndi í Örnólfsdal í Þverár-
hlíð, kvæntur Iðunni Jónmundsdótt-
ur. Þau eiga þijú börn. Guðmundur
fæddur 1943, bifreiðarstjóri í Borg-
arnesi, kvæntur Kristínu Halldórs-
dóttur. Þau eiga fjögur börn. Páll
fæddur 1944, verkamaður í Borgar-
nesi. Rannveig fædd 1946, skrif-
stofumaður í Reykjavík, gift Elíasi
B. Elíassyni. Þau slitu samvistir og
eiga fjögur börn. Þorbergur fæddur
1947, bifreiðastjóri í Borgarnesi.
Hann á eitt bam. Sigrún fædd
1948, hjúkrunarfræðingur í
Reykjavík, gift Magnúsi Ingólfs-
syni. Þau eiga fjögur böm. Eygló
fædd 1950, starfsmaður á elliheim-
ili í Borgamesi, gift Róbert Crosby.
Hún var áður gift Sigurði Sigurðs-
syni. Eygló á'sjö börn. Sonja fædd
1951, verslunarmaður í Bretlandi,
gift Peter Carter. Sólrún fædd
1953, verkakona í Borgarnesi. Hún
á einn son. Hans fæddur 1955, en
hann lést á fyrsta ári. Hans fæddur
1957, vélstjóri í Borgarnesi, kvænt-
ur Sveinbjörgu Stefánsdóttur. Þau
eiga tvö börn. Jenný fædd 1959,
snyrtifræðingur í Borgamesi, gift
Gunnari Ringsted. Þau eiga tvö
börn. Auk þess eignuðust Jóhanna
og Egill eitt andvana barn.
Fyrir síðustu jól sá ég um að
vinna efni fyrir blað sem gefíð var
út á Vesturlandi. Mér datt þá í hug
að taka viðtal við afa og ömmu og
spyija þau út í gamla tíma. Þau
tóku málaleitan minni ljúflega og
við spjölluðum saman eitt síðdegi
um jólin fyrr á tíð, brauðstritið og
afkomendurna. Eftir þetta samtal
gerði ég mér betur grein fyrir því
hve afí þurfti að leggja á sig gífur-
legá mikla vinnu til að sjá stórri
fyölskyldu sinni farborða.
Ég spurði afa hvort vinnudagur-
inn hefði ekki oft verið langur.
Hann játti því. Sagðist hafa farið
eldsnemma á fætur til að mjólka
kýmar og gefa skepnunum. Síðan
hefði hann farið í vinnuna um líkt
leyti og aðrir menn. Að loknum
vinnudegi tóku við kvöldgegning-
amar. Það var því yfírleitt langt
liðið á kvöld þegar hann kom heim
og þá átti eftir að koma börnunum
í rúmið. Að auki hirti afí í allmörg
ár skepnur fyrir nágranna sína í
Borgamesi. Hádegið var oft notað
til að sinna þessari aukavinnu. Afí
vildi ekki gera mikið úr því að hann
hefði verið þreyttur eftir þennan
langa vinnudag, en viðurkenndi þó
að hann hefði stundum ekki haft
mikinn tíma til að borða í hádeginu
þau ár sem hann sinnti skepnum
fyrir nágranna sína.
Afí sagði mér að sumarleyfí
hefðu verið óþekkt fyrirbæri á
fyrstu búskaparárum sínum. Frí var
aðeins á sunnudögum og oftast nær
eftir hádegi á laugardögum. Sú
spurning vaknaði því í huga mér
hvenær hann hefði fundið tíma til
að heyja handa skepnunum fyrst
engin vom sumarfríin. Hann svar-
aði því til að hann hefði vaknað
fyrir allar aldir, dregið fram orfíð
og slegið þangað til tími var til
kominn að mæta í vinnuna. Jóhanna
hefði síðan snúið heyinu ef þurrt
var í veðri.
En hvað með matinn, var alltaf
til nógur matur handa öllum þessum
börnum, spurði ég. Já, já, það var
alltaf til nógur matur sögðu gömlu
hjónin og lögðu áherslu á orðin. Þau
sögðu hins vegar að það hefði þurft
mikinn mat. Tíu lítra af mjólk hefði
þurft til heimilisins á dag. Kartöflur
hefðu verið soðnar í tveimur pott-
um. Allt Iqöt, kannski 25-30 lamba-
skrokkar af hjörðinni upp á Egils-
túni, hefði horfið ofan í börnin á
einum vetri.
Ég held að það sé enginn vafí á
að afí hafði gaman af því að vinna.
Þegar krafturinn fór minnkandi
fyrir rúmum tíu ámm og læknar
sögðu honum að hann yrði að
minnka við sig vinnu, þá tók hann
því illa. Hann kunni ekki að slaka
á og hvíla sig. Að vinna var það
eina sem hann kunni og þekkti.
Hann lofaði læknunum að vinna
aðeins hálfan daginn, en hann kunni
því illa að fara heim á miðjum degi
þegar verkefnin í kjötvinnslunni
voru næg. Afi lærði þó um síðir að
slaka á og hann átti ánægjulegt
ævikvöld. Eg hygg reyndar að afí
hafí verið hamingjusamur allt sitt
líf. Hann átti einstaklega góða og
duglega konu. Hún syrgir nú mann
sinn umvafin börnum og barnabörn-
um.
Dæmi um það hvað afí hafði
gaman af því að vinna er saga sem
hann sagði stundum. Hann vann í
mörg ár við fláningu á haustin.
Með honum unnu oftast nær sömu
menn, allt afkastamiklir flánings-
menn. Og auðvitað var keppst við
hver næði að flá flest lömb yfír
daginn. Venjan var sú að flánings-
maðurinn safnaði dindlum af skepn-
um og þau voru notuð sem sönnun-
argagn fyrir því hvað mikið hver
og einn hefði flegið. Afi sagði frá
því með nokkru stolti að hann hefði
nær alltaf átt flesta dindlana að
kvöldi. Þó hefði það komið fyrir
eitt haustið að einn vinnufélaginn
hefði átt fleiri. Það átti þó sínar
skýringar. Hann hafði nefnilega
keypt dindla af öðrum vinnufélaga
til að reyna að slá Agli Pálssyni við.
Ég vil fyrir hönd barnabarna
Egils og Jóhönnu þakka afa fyrir
samfylgdina. Blessuð veri minning-
in um sterkan og góðan afa.
Egill Ólafsson.
S I Ð A S T I D A G U R I
A G !
í Fimm fræknum tilboðum
Nýherja gefst þér einstakt
tækifæri til að eignast
hágæða IBM tölvur á hreint
ótrúlegu verði. Þetta er
tækifæri sem þú mátt ekki
missa af. Komdu í Nýherja,
Skaftahlíð 24, strax í dag
og kynntu þér málið.
MUNDU FIMM FRÆKIIU
TÖLVUTILBOÐ
IUÝHERJA
JaiiI
M
NÝHERJI
SKAFTAHLlO 24 • SlMI 69 77 00
AUtaf akrefi á undan