Morgunblaðið - 26.09.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992
Sammngur
um rekstur
við Bláa
lónið í höfn
Gríndavfk.
SAMNINGUR um rekstur bað-
hússins við Bláa lónið hefur tekist
milli Grindavikurbæjar og stjórn-
ar Hitaveitu Suðurnesja. Er hann
á svipuðum nótum og sá fyrri með
breytingum sem meirihluti stjórn-
ar HS sættir sig við.
Samningurinn fjallar almennt um
rekstur og framtíðaruppbyggingu við
Bláa lónið. Stjóm Hitaveitu Suður-
nesja hefur þegar samþykkt samn-
inginn ásamt bæjarráði Grindavíkur
og kvaðst Bjami Andrésson forseti
bæjarstjómar Grindavíkur ekki eiga
von á öðru en hann yrði samþykktur
í bæjarstjóminni þegar hún kemur
næst saman.
„Við erum náttúrlega ánægðir
með að hafa náð samkomulagi í
þessu máli sem náðist góð samstaða
um. Samningurinn er lítillega breytt-
ur frá þeim samningi sem var felldur
í stjóm HS á dögunum og eru það
aðallega áherslubreytingar. Bæjar-
stjómin í Grindavík hefur um tvo
mánuði til að koma með tillögur um
skipulagsbreytingar," sagði Bjami í
samtali við Morgunblaðið.
Grindavíkurbær tekur við rekstri
baðhússins við Bláa lónið 15. október
næstkomandi að öllu óbreyttu.
- FÓ
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Aðalstræti hefur verið opnað á
ný.
Umferð á ný
um Aðalstræti
OPNAÐ hefur verið fyrir bílaumferð
um Aðalstræti í Reykjavík en gatan
hefur verið lokuð frá því í vor vegna
endurlagningar. Aðalstrætið hefur
verið malbikað en upphaflega stóð
til að helluleggja götuna. í samtali
við Sigurð Skarphéðinsson gatna-
málastjóra kom fram að ekki hefði
væri hægt að helluleggja götuna í
sumar þar sem burðarþol jarðvegsins
hafí ekki verið nægilegt. Þegar fram-
kvæmdir hófust og byrjað var að
grafa hefðu komið í ljós fornleifar
sem gerðu það að verkum að ekki
var hægt að grafa nægilega djúpan
grunn undir hellulögn. Því hefði ver-
ið farin sú leið að malbika götuna
og ætlunin væri að fræsa upp þetta
malbik þegar fram líða stundir og
helluleggja.
í dag
Nýnasistar styðja Króata
Sveitir fíýnasista víðs vegar úr
heiminum berjast með króatíska
hernum. 21
UtanríkisráÖherra á allsherj-
arþingi SÞ_____________________
Við upphaf allsheijarþings lýsti
Jón Baldvin yfir vonbrigðum með
að áratugur fatlaðra hefði ekki
náð tilætluðum árangri 23
Enski boltinn beint____________
Beinar útsendingar úr ensku
knattspymunni hefjast á ný í dag 43
Leiöari
Myntbandalag í óvissu 22
Magnús Halldórsson sjómaður bjargaðist þegar bátur hans sökk
Magnús Halldórsson
helgina til að átta mig
luuigunuiauiu/ ivrrauuu
Hún var ekkert að slóra í fyrrakvöld þessi áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, f.h.: Benóný Ásgrímsson
flugstjóri, Hermann Sigurðsson aðstoðarflugmaður, Jón Baldursson læknir, Kristján Jónsson spilmaður
og Magni Óskarsson sigmaður.
Þarf nú að minnsta kosti
„MAÐUR er eiginlega ekki búinn að ná sér
eftir þetta helvíti, þarf nú að minnsta kosti
helgina til að átta sig,“ segir Magnús Hall-
dórsson sjómaður sem bjargað var um borð
í þyrlu Landheigisgæslunnar eftir að bátur
hans sökk á Faxaflóa á fimmtudagskvöld.
Magnús fékk ekki einu sinni kvef af volkinu
en sepr dálítinn taugatitring í sér eftir atvik-
ið.
„Ég geri út frá Tálknafírði á sumrin og var
á leið þaðan til Hafnarfjarðar í fyrrakvöld,“
segir Magnús og fellst með semingi á að segja
blaðamanni frá atvikinu suður af Breiðuvík,
nýkominn úr sjóprófum og finnst búið að þvæla
nóg um það. „Þetta er svona 22 tíma sigling
og ég átti kannski fjórðung eftir þegar havaríið
bytjaði,” segir hann.
“Það var fínasta veður og ég niðri í lúkar
að búa til kvöldmat þegar einhver hnykkur kom
á bátinn. Ég fór upp í stýrishús að athuga
málið og þar logaði viðvörunarljós við lensidæl-
una svo ég fór aftur í og sá að sjór var kominn
í vélarrúmið. Þá fór ég að leita hvar hann
streymdi inn, fór aftur niður í lest og taldi mig
hafa fundið hvar þyrfti að rífa frá klæðningu
til að laga bátinn. En báturinn var að fyllast,
farinn að halla og ekkert að gera nema koma
sér frá borði. Ég hafði nú skellt yfir mig vesti
svona til að fara í eitthvað og svamlaði í því upp
Nonni HF 35 sem sökk á Faxaflóa í vikunni.
í gúmmíbátinn. Annars var nú aðalspenningur-
inn að sjá hvort hann virkaði, maður hefur heyrt
alls konar ljótar sögur. En það gekk fínt, mér
tókst að skjóta upp neyðarblysum og svo komu
þeir á þyrlunni.
Vitleysan sem ég gerði var sú að vera alltof
lengi um borð, þetta mátti ekki tæpara standa.
Annars tapar maður öllu tímaskyni, ég vissi
ekkert hvort ég hafði eytt tíu mínútum eða
heilum tíma í að reyna að komast fyrir lekann.
í sjóprófunum áðan var nú aðallega spurt um
hvað langur tími hefði Iiðið frá þessu til hins
og ég sé núna að helst hefði ég þurft að vera
með augun á klukkunni. Auðvitað greip mig
hræðsla í þessu baksi og taugatitringurinn er
ekki úr manni,“ segir Magnús.
Eldsnöggir í þyrluna
Eins og sagt var frá í blaðinu í gær gekk
björgun Magnúsar úr gúmmíbátnum vel, varð-
skipið Týr heyrði neyðarkall frá bát hans, Nonna
HF 35, og gerði Landhelgisgæslunni viðvart
rétt upp úr átta í fyrrakvöld. Þótt áhafnarmeð-
limir þyrlunnar hafí verið heima hjá sér var
TF-SIF farin í loftið sautján mínútum seinna
og Magnús kominn um borð 27 mínútum eftir
það. Benóný Ásgrímsson flugstjóri þyrlunnar
var spurður hvemig þeir hefðu getað verið svona
snöggir?
„Þetta hefur verið að smáþróast hjá okkur,“
svarar hann, „fyrir fímm árum settum við mark-
ið við klukkustund frá hjálparbeiðni þar til við
værum komnir á loft. En reynslan sýnir að við
höfum verið fljótari, meðaltíminn á síðasta ári
var 35 mínútur í svokölluðum A- og B-útkölIum,
þar sem mikið liggur við.
í fyrrakvöld fengum við A-útkall og þá fíýta
menn sér eins og frekast er hægt. Það er á
ábyrgð hvers og eins að koma sér með hraði í
flugskýlið, þar er allt til reiðu, við steypum
okkur bara í gallana og leggjum í hann.
Það hefur stytt undirbúningstíma fyrir flug.
að stjómstöð Landhelgisgæslunnar kannar nú
veður fyrir okkur, upplýsingar um aðstæður
bíða á faxi-og á þessu ári var tekið í notkun
kallkerfí svo að áhöfn þyrlunnar getur borið sig
saman á leið út á völl og rætt við stjórnstöð.
Við höfum líka reynt að einfalda tékklistann sem
farið er yfír fyrir flugtakið."
Sala á eignum þrotabús Fiskimjölsverksmiðju Hornafjarðar hf.
Landsbankinn samþykkir
ekki óbreytta samninga
LANDSBANKINN tilkynnti í gær mjölsverksmiðju Hornaljarðar til
að hann féllist ekki að óbreyttu á heimamanna. Áð sögn Ragnars
samninga sem gerðir hafa verið H. Hall, skiptastjóra þrotabúsins,
um sölu á eignum þrotabús Fiski- var gengið til samninga um sölu
Lesbók
► Forsíðumynd eftir Sebastian -
Konur í sögum Jóns Trausta -
Hvemig tónverkið Könnun varð
til - Nýr arkitektúr - Sýning á
myndum einhverfra.
HUrgBoMabt^
Menning/Listir
► Afleiðingar virðisaukaskatts á
bækur - Donizetti og Lucia di
Lammermoor - Kynning á starfs-
ári Tríós Reylqavíkur - Viðtal við
Jón Þorsteinsson tenórsöngvara.
eignanna i júlímánuði í tvennu
lagi til heimamanna að höfðu sam-
ráði við bankann og aðra veðhafa.
Að sögn Ragnars virðist sem
bankamönnum hafi snúist hugur
í málinu frá því í júli því bankinn
hefur hafnað með öllu samningi
um sölu á Síldarsöltunarhúsi
þrotabúsins og gert kröfur um
sölu á fiskimjölsverksmiðju þrota-
búsins. Boðaður verður nýr fund-
ur veðhafa til að fjalla um hvern-
ig eignunum skuli ráðstafað.
Eftir að Fiskimjölsverksmiðja
Homafjarðar, sem var dótturfyrir-
tæki Kaupfélags A-Skaftfellinga, var
tekin til gjaldþrotaskipta snemma í
sumar voru eignir búsins auglýstar
til sölu. Helstu lánardrottnar, sem
voru opinberir sjóðir auk Lands-
banka, ákváðu að gangatil samninga
við heimamenn um kaupin og selja
eignirnar í tvennu lagi en taka ekki
öðru tilboði sem barst frá Suðurnesj-
um.
Fyrirtækin Borgey og Skinney
ásamt Húnaröst í Reykjavík buðu í
fiskimjölsverksmiðju búsins og var
gerður kaupsamningur með fyrirvara
um samþykki veðhafa um kaup
þeirra á henni fyrir 50 milljónir króna
í júlf, um leið og Borgey keypti sfldar-
söltunarhús búsins fyrir 32 milljónir
króna. Að auki var gerður samningur
um sölu á lausafé fyrir um 8 miHjón-
ir króna.
Að sögn Ragnars H. Hall hafa
samningamir síðan verið til skoðunar
hjá veðhöfum og lá samþykki ann-
arra fyrir þegar Landsbankinn hafn-
aði samningunum eins og þeir lágu
fyrir í gær. Að sögn Ragnars virðist
sem Landsbankinn hafi breytt um
afstöðu til málsins frá þvf í sumar.
Hann sagði að það verð sem samn-
ingurinn kvað á um hefði að mestu
leyti nægt til til greiðslu annarra
veðkrafna en 35 milljóna króna kröfu
Atvinnutryggingasjóðs útflutnings-
greina.
Ragnar H. Hall sagði að kröfulýs-
ingarfrestur væri nýlega liðinn og
kröfuskrá með kröfufjárhæðum væri
ekki tilbúin en þó virtist ljóst að
ekki yrði um verulegar greiðslur að
ræða til almennra kröfuhafa. Skipta-
fundur verður haldinn 28. október
en skiptastjóri kvaðst í gær stefna
að því að halda fund með veðhöfum
til að taka að nýju ákvörðun um
ráðstöfun eignanna.