Morgunblaðið - 26.09.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.09.1992, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 Bandarísk þingnefnd vill skerða framlag til Mannvirkjasjóðs Þarf ekki að þýða minnk- un framkvæmda hérlendis - segir skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofunnar „ÞESSI niðurstaða nefndar beggja deilda Bandaríkjaþings, að leggja aðeins 60 milljónir dollara til Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalags- ins, NATO, þarf ekki að þýða niðurskurð á framkvæmdum hér heima. í fyrsta lagi á enn eftir að koma í ljós hvort Bandaríkjaforseti sam- þykkir fjárlagafrumvarpið í þeirri mynd, sem þingið hefur nú sent frá sér, eða hvort hann beitir neitunarvaldi. í öðru lagi á eftir að koma i Jjós hvort NATO skerðir framlag til framkvæmda hér, jafn- vel þótt þingið fái sínu framgengt. Innan NATO er mikill stuðning- ur við framkvæmdirnar," sagði Róbert Trausti Árnason, skrifstofu- stjóri vamarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, í samtali við Morgunblaðið. íslenskir aðalverktakar ákváðu í sumar að hefja framkvæmdir vegna flugskýla og eldsneytisdreifingar- kerfís á' Keflavíkurflugvelli, þó ekki lægi fyrir heimild frá Mannvirkja- sjóði NATO. Með þessu vildi fyrir- tækið koma í veg fyrir verkefna- leysi og að undirbúningur verksins tefðist vegna frosts í jörðu þegar og ef heimild fengist. Heildarkostn- aður við framkvæmdimar er áætl- aður um 3,5 milljarðar króna. Bandaríkjamenn hafa lagt fram um 27% af fjármunum Mannvirkja- sjóðsins. Nefnd á vegum beggja þingdeilda hefur nú fjallað sameig- inlega um fjárlagafrumvarp Banda- ríkjastjórnar, þar á meðal um fram- lag til Mannvirkjasjóðsins. Farið var fram á að það yrði 221,2 milljarðar dollara, en nefndin lagði til að það yrði 60 milljónir dollara. „Snemma í næstu viku fær Bandaríkjaforseti frumvarpið til samþykkis eða _synjunar,“ sagði Róbert Trausti Ámason. „NATO getur ekkert gert núna nema beðið þeirrar niðurstöðu. Fari svo, að framlag Bandaríkjamanna verði aðeins 60 milljónir dollara í stað rúmlega 221 milljónar, er samt óvíst hvort niðurskurðurinn kemur illa niður á framkvæmdum hér á landi. NATO gæti hert sultarólina annars staðar, enda er mikill stuðn- ingur innan bandalagsins við bygg- ingu flugskýla og Helguvíkurfram- kvæmdirnar. Við getum ekkert gert nema beðið og séð hvemig málið þróast og það er ástæðulaust að fyllast svartsýni strax,“ sagði Rób- ert Trausti. VEÐUR V f DAG kl. 12.00 NeimiW: Veðurstofa fslands f f (Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFURIDAG, 26. SEPTEMBER: YFIRLIT: Við strönd Grænlands vestur af Snæfellsnesi er heldur vax- andi 985 mb lægð sem hreyfist litið en hæðarhryggur milli íslands og Skotlands þokast austur. SPÁ: Sunnanátt, stinningskaldi og rigning um austanvert landið, einkum suðaustanlands, en hægari suðvestanátt og skúrir vestan til. Hiti 8-13 stig. Norðan- og norðaustanátt, kaldi eða stinningskaldi vestast en allhvasst eða hvasst annars staðar. Rigning verður austan lands, skúrur norðvest- an til en suðvestanlands verður skýjað en þurrt. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðaustlæg átt, víða strekk- ingsvindur. Skúrir víða um land, síst á Norðurlandi. Hiti víðast é bilinu 5-10 stig, hlýjast norðanlands. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. Ö Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað / / / * / * / / * / / / / / * / Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Skúrir Slydduél El Sunnan, 4 vindstig. Vindórin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrir, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig v Súld = Poka j FÆRÐA VEGUM: <ki.i 7.301 gær> Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú greiðfærir. Ýmsir hálendisvegir eru ennþá taldir þungfærir eða ófærir vegna snjóa. Má þar nefna Sprengisandsveg norðanverðan, Eyjafjarðarleið, Skagafjarðarleið og Kverkfjallaleið en Kjalvegur er fær fjallabílum. Fjallabaksleiðir, nyðri og syöri, eru snjólausar og sama er að segja um Lakaveg. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og i grænní Itnu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA kl. 12,00 ígær UM HEIM að í$l. tíma híti veður Akureyri 8 alskýjað Reykjavlk 8 úrkoma Bergen 14 alskýjað Helsinki 13 þokumóða Kaupmannahöfn 17 skýjað Narssarssuaq 2 skýjað Nuuk 0 slydduél Ósló 14 þokumóða Stokkbólmur 16 þokumóöa Þórshöfn 8 alskýjað Algarve 23 skýjað Amsterdam 18 alskýjað Barcelona 24 léttskýjað Beriín 16 skýjað Chicago 9 léttskýjað Feneyjar 23 heiðskírt Frankfurt 19 léttskýjað Glasgow 13 skýjað Hamborg 20 léttskýjað London 11 rigning LosAngeles 18 heiðskirt Lúxemborg •20 hátfskýjað Madríd 24 skýjað Malaga 25 skýjað Mallorca 27 skýjað Montreal 6 léttskýjað NewYork 11 alskýjað Orlando 24 alskýjað Parls 22 skýjað Madelra 21 skýjað Róm 26 heiðskírt Vín 21 skýjað Washington 13 alskýjað Winnipeg 15 iéttskýjað Kjarasamningar járniðnaðarmanna í hnút Morgunblaðið/Ámi Sæberg Slátursalan í fullum gangi Slátursala á vegum Sláturfélags Suðurlands hófst í verslun Hagkaups í Skeifunni nú í vikunni, en þar fer öll sala SS á ófrosnu slátri fram. Slátur frá Goða hf. er hins vegar selt í verslunum Nóatúns ásamt Miklagarði og Kaupstað í Mjódd og hófst salan þar í síðustu viku. Verðið á ófrosnu slátri er 566 kr. stykkið, sem er nánast sama verð og í fyrra, en fímm frosin slátur í kassa kosta 2.990 kr. Á myndinni sést Helgi Straumfjörð, starfsmaður sláturfélagsins, við slátursöluna Tel að VSÍ hafi fellt samninginn úr gildi - segir formaður Félags járniðnaðarmanna ORN Friðriksson, formaður Félags járniðnaðarmanna, telur að Vinnu- veitendasamband íslands hafi nú fellt samning þann sem undirritaður var við járniðnaðarmenn 1. september. Að sögn Arnar hefur VSÍ lýst því yfir bréflega að samningur hafi ekki komist á. Umræða hefur verið um túlkun á 2. grein samningsins sem kveður á um að laun umfram kauptaxta haldi gildi sínu og breytist í samræmi við miðlunartillögu ríkissáttasemjara. í viðræðum sem VSÍ og samninga- nefnd járniðnaðarmanna áttu af þessum sökum kom fram að ekki væri efnislegur ágreiningur um túlk- un á innihaldi samningsins. Öm segir að VSÍ hafi hins vegar gert þá kröfu að 2. grein samnings- ins hefði tímabundið gildi og væri ekki hluti af kjarasamningnum. Fé- lag jámiðnaðarmanna hafí ekki get- að fallist á að þetta grundvallaratriði væri tekið út úr samningi sem ný- búið var að undirrita. „Samningurinn var því lagður e1ns og hann var við undirskrift fyrir fund í félaginu og samþykktur samhljóða 22. septem- ber eins og eðlilegt er að gera,“ seg- ir Örn. Að sögn Amar skilyrti VSÍ hins vegar samþykki sitt með tilvísun í einhliða bókun þar sem fram kemur að 2. grein hafi tímabundið gildi og væri ekki hluti kjarasamnings. Félag járniðnaðarmanna ályktaði á móti að það væri ekki skuldbundi'ð af þess- ari bókun. Og í framhaldi af þessari ályktun kom síðan bréf VSÍ þar sem lýst er yfir að samningur hafí ekki náðst. „Standist þessi túlkun VSÍ er ljóst að framkvæmdastjórn Vinnu- veitendasambandsins hefur fellt samninginn sem undirritaður var 1. september," segir Öm. Olafsvíkurbær selur heimamönnum tvo báta ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Snæfell- ingur hf. í Ólafsvík hefur selt heimamönnum hiutabréf sín í út- gerðarfélögunum TungufeUi og Varakolli og þar með bátana Garðar II. SH 164 og Gunnar Bjarnason SH 25 með samtals um 1.000 þorskígildistonna kvóta. Kaupandi er Steinunn hf. í Ólafs- vík. Snæfellingur hf. er í eigu bæjarsjóðs Ólafsvíkur. Félagið var stofnað til að halda skipum og kvóta í bænum og koma f hendur einkaaðila og að sögn Stefáns Garðarsonar hefur með þessari sölu sem gengið var frá í gær- kvöldi mikilvægum markmiðum verið náð. Útgerðarfélagið Snæfellingur hf. var stofnað eftir gjaldþrot Hrað- frystihúss Ólafsvíkur hf. Markmið bæjarstjórnar vom að sögn Stefáns Garðarssonar, bæjarstjóra og stjórn- arformanns Snæfellings, að koma vinnslu í frystihúsinu af stað, halda togaranum Má í byggðarlaginu, halda bátum frystihússins í bænum og koma í hendur einkaaðilum og loks stofna fiskmarkað. Stefán sagði að með sölunni í gærkvöldi hefði mikilvægur áfangi náðst því áður hefði verið búið að koma vinnslunni í gang og stofna fiskmarkað. Næst á dagskrá væri að treysta útgerð togarans helst af öllu að koma henni í hendur einkaaðila á staðnum. Útgerðarfélagið Steinunn hf. gerir út samnefndan bát. Stefán vildi ekki gefa upp kaupverð hlutabréfanna. Hann fullyrti þó að með sölunni fengi bærinn til baka allt það fé sem hann hefði lagt í kaupin á útgerðarfélög- unum og rekstur þeirra þanh tíma sem hann var á hendi bæjarins. ----» »■ ♦ „ Gjaldþrot Rækiustöðvarinnar Búsljóri ráðinn BÚIÐ er að ganga frá ráðningu á búsljóra fyrir þrotabú Rækju- stöðvarinnar hf. á ísafirði. Það er Skarphéðinn Þórisson hrl. í Reykjavík sem ráðinn hefur ver- ið. Ekki er búið að ákveða hve- nær fyrsti skiptafundur verður. Að sögn Guðmundar Agnarsson- ar, framkvæmdastjóra Rækjustöðv- arinnar, liggur ekkert fyrir um að eigendur fyrirtækisins ætli sér að reyna áfram rekstur rækjuvinnslu á Isafírði. Hann telur raunar mjög ólíklegt að svo verði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.