Morgunblaðið - 26.09.1992, Page 12

Morgunblaðið - 26.09.1992, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 Ný bók um Reykjavíkurtj örn Saga Tjarnarinnar, lífríki og framtíð Á TJÖRNINNI I Reykjavík synda nú nokkuð færri endur en síð- ustu ár, fimm tegundir, en á Tjarnarsvæðinu verpa alls tuttugu tegundir fugla. Ef Vatnsmýrin yrði öll lögð undir mannvirki myndu tólf tegundir hverfa og hefur 7 hektara svæði umhverfis Vatnsmýrarljörn verið friðað til að tryggja framtíð varpfugl- anna. Og vaðfuglum veitir ekki af þeim óræktarspildum sem eft- ir eru sunnan flugvallar. í bókinni „Tjörnin, saga og lífríki" sem nýkomin er út á vegum Reykjavíkurborgar greinir frá þessu og fjölmörgu öðru sem tengist Tjörninni. Eggert E. Laxdal Eg’g’ert E. Laxdal sýn- ir í Eden EGGERT E. Laxdal sýnir mál- verk í Eden í Hveragerði dagana 1.-12. október. Þetta er þriðja sýning Eggerts í Eden en hann er búsettur í Hveragerði. Eggert hefur haldið margar sýn- ingar í Reykjavík og auk þess all- margar sýningar erlendis, t.d. í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finn- landi og Belgíu. Nýlega hefur Eggert komist í samband við listaverkasala í París og Lausanne í Sviss, sem ætla að vinna að kynningu verka hans er- lendis. Mynd eftir Eggert verður prent- uð í alþjóðlegri listaverkabók, sem prentuð verður í Sviss og kemur út í haust eða snemma á næsta ári. Þetta er fímmta einkasýning Sigurðar og á henni verða um 40 olíu- og vatnslitamyndir, allar unn- ar á þessu ári. Sigurður á verk í ýmsum stofnunum og fyrirtækjum. Sýningin, sem er sölusýning, Fyrstu æfingar haustsins eru að hefjast hjá kórum landsins. Og framundan er stórt verkefni hjá sunnlenskum kórum, en Sunn- lenskir söngdagar verða á dag- skrá í Iok október og byijun nóv- ember. Þá munu sunnlenskir kórar slá sér saman, einn eða fleiri og heimsækja hver annan yfir sýslumörk. Hugmyndin að Sunnlenskum söngdögum fæddist á Ári söngsins. Söngáhugafólk á Suðurlandi vildi efla kynni milli kóra frá mismun- andi byggðum á Suðurlandi og einn- ig vekja athygli á þeirri miklu starf- semi sem þar fer fram. Menningar- samtök Sunnlendinga, kórstjórar og söngáhugafólk funduðu um málið í mars sl. Ákveðið var að halda Sunnlenska söngdaga og Bókin er afrakstur samstarfs margra, en að beiðni Davíðs Odds- sonar þáverandi borgastjóra var stofnaður vinnuhópur sem starfaði frá marsmánuði 1987 þar til í apríl í ár. Hópinn skipuðu fulltrúar borgarinnar og Náttúruverndar- ráðs og réðu til samstarfs ýmsa sérfræðinga til að kanna vatnasvið Tjarnarinnar og lífríki og áhrif framtíðarbyggðar á flugvallar- og Háskólasvæði. Tjömin lokaðist af sem vatn um árið 800 og virðist ætíð hafa verið álíka djúp. Eftir því sem botnset þykknar hæ.kkar yfírborð sjávar og vatnsborð Tjarnarinnar og líkur benda til að sjór flæði í hana eftir 300 til 500 ár. Höfundar bókarinn- ar um Tjörnina segja því ekki ástæðu til að raska frekar Tjamar- botninum til dýpkunar. Þeir segja að lífríki Tjamarinnar þoli ekki að fyllt sé megi upp í hana, enda hafí borgaryfírvöld ekki slík áform. Varpfuglastofnar við Tjörnina hafa minnkað um 16% og fímmt- ungi færri ungar komast nú upp en áður. Hins vegar fjölgar öðrum fuglum, eins og kríu, hettumáfí, álft og grágæs, eða fækkar að verður opnuð kl._ 14 á morgun, laugardag. Tónlistaratriði verður við opnunina og kaffiveitingar á staðnum. Sýningin er opin kl. 14-20 alla sýningardagana. (Fréttatilkynning) nefnd skipuð til undirbúnings. Fyrirkomulagi Sunnlenskra söngdaga er þannig háttað: Suður- landi verður skipt í 12 svæði, 6 austan og 6 vestan Þjórsár. Vest- mannaeyjar teljast með svæðunum að austan. Kórar af hveiju svæði vinna saman að undirbúningi dag- skrár og fá heimsóknir frá öðrum kómm á víxl. Fleira söngáhugafólk fær þannig tækifæri til að kynnast. Kórum innan hvers svæðis er í sjálfsvald sett, hvort þeir skipta með sér verkum eða ekki. Til dæm- is getur annar kórinn séð að mestu um söngdagskrána þegar hann fer í heimsókn, á meðan hinn er meira í gestgjafahlutverkinu. Einnig geta kórar heimsótt fleiri svæði, ef vilji og áhugi er fyrir hendi. (Úr fréttatilkynningu . frá MENSA) minnsta kosti ekki. Til að vaðfugl- ar hafí einhvers staðar varpland leggja bókarhöfundar til að borgin semji við yfírvöld Reykjavíkurflug- vallar um að eyðileggja ekki meira óræktarspildur sem eftir eru á vallarsvæðinu, sérstaklega við Njarðargötu og í Seljamýri sunnan flugvallar. Grafa á síki meðfram friðlandi í Vatnsmýrinni að Njarðargötu og Hringbraut og byggja yfír það nokkrar brýr sem taka má upp í apríl og fram í júlí til að vemda varp fugla í mýrinni. Síkið þarf að útbúa að vetri til en óvíst er hvort takist að gera nokkuð í vet- ur. Stækka á Hústjörn við Nor- ræna húsið, þannig að hún nái að Sæmundargötu við kringluna framan við aðalbyggingu Háskól- ans. En sunnan Norræna hússins ætlar skólinn að byggja nokkur lágreist hús, samtals 30-40.000 fermetra og hafa opið svæði mitt milli þeirra. Á næstu árum verða reist hús fyrir náttúru-, líf- og jarðfræði og verða þau austan Norræna hússins. í Tjarnarhópnum voru þeir Ein- ar E. Sæmundsen landslagsarki- tekt og dr. Gísli Már Gíslason pró- fessor skipaðir af Náttúruverndar- ráði en Halldór Torfason jarðfræð- ingur, Jóhann Pálsson garðyrkju- stjóri og Ingi Ú. Magnússon á vegum borgarinnar. Ingi veitti vinnuhópnum formennsku. Dr. Ólafur K. Nielsen sá um ritstjórn bókarinnar um Tjörnina. Hún er 200 blaðsíður og prýdd fjölda mynda og skýringarkorta. Bókin kostar 5.500 krónur og fæst í bókabúðum. ------» ♦ ♦---- * I úthlutunar- nefnd Kvik- myndasjóðs STJÓRN Kvikmyndasjóðs ís- lands hefur skipað úthlutunar- nefnd sjóðsins til ársins 1992/1993. ' í nefndinni eiga sæti Ámi Þór- arinsson ritstjóri, Kristbjörg Kjeld leikkona og Laufey Guðjónsdóttir dagskrárfulltrúi. Inga Þórey sýnir í Gall- eríi 11 M-hátíð í Sandgerði SYNING á verkum Sigurðar Arnar Leóssonar verður í húsi slysa- varnafélagsins í Sandgerði dagana 26.-27. september og 3.-4. október á vegum M-hátíðarnefndar í Sandgerði. Sunnlenskir söngdagar Myndir Hrings Jóhannes- sonar í Fold í tengslum við sýningu Hrings Jóhannessonar í Norræna húsinu er úrval nýrra pastelmynda eftir hann til sýnis og sölu hjá Fold, list- munasölu, Austurstræti 3. Fold er opin um helgina, laugar- dag kl. 11.00-18.00 og sunnudag kl. 13.00-18.00. INGA Þórey Jóhannsdóttir opnar málverkasýningu í Galleríi 1 1 við Skólavörðustíg í dag, laugar- dag, kl. 14. Inga Þórey útskrifaðist úr ný- listadeild Myndlista- og handíða- skóla íslands árið 1988, hélt síðan til framhaldsnáms við Hochschule fúr angewandte Kunst í Vínarborg 1988-1989. Þetta er fjórða einka- sýning Ingu. Málverkin á sýning- unni eru öll unnin í Glasgow á síð- asta vetri. Sýningin stendur til 8. október og er opin kl. 14-18 alla daga. Jerzy Wielunski Guðmundur Daníelsson Fjölþýðingar Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Jerzy Eligiusz Wielunski: „MONDO GANE“. Tristana Publishing House. Lublin 1990. Á borðinu liggur 170 blaðsíðna handrit, tölvuprentað, bundið sam- an í kjölinn. Enn þá hefur þetta verk ekki verið gefið út — og verð- ur líklega aldrei gefið út í óbreyttri mynd. Efni þess er ljóð úr ýmsum tungum og frá ýmsum tímum, þýdd á pólsku og ensku. Þau eru sundurleit og í rauninni mismiklar bókmenntir. Samt er þetta verk athyglisvert, líklega fyrst og fremst vegna sérkennilegs áhuga og óvenjulegrar eljusemi þýðand- ans, Jerzy Eligiusz Wielunskis. Hér er t.a.m. „The Fire Sermon“ eftir T.S. Eliot, þýtt á pólsku, „Úber allen Gipfeln" (Tign er yfir tindum) eftir Goethe og „To be a Lyric" eftir Suleyman Stalski — og meira að segja „Lady Ma- donna“ eftir Paul McCartney. Með ljóðunum fylgja stundum útskýr- ingar og rakin eru æviatriði sumra skáldanna. Tungumálin sem Wiel- unski þýðir úr eru hvorki fleiri né færri en 119 — sagt og skrifað eitt hundrað og nítján! Meðal þeirra eru jafn sjaldheyrð tungu- mál og korsíska, baskneska, lúx- emborgska, ossetíska og sikil- eyska. Jerzy Wielunski er efnafræðing- ur að mennt, lauk prófí frá Marie Curie-Klodowska háskólanum í Lúblín. Hann hefur ritað um bar- áttu Kelta fyrir máli sínu og menn- ingu og hefur oftar en einu sinni fengið verðlaun í skáldakeppni. Hann hefur sýnt íslenskum bók- menntum töluverðan áhuga, m.a. þýtt „Stundarfrið“ eftir Guðmund Steinsson sem var sýnt í sjónvarpi í Varsjá 1992. Ásamt Guðmundi Daníelssyni hefur hann gefíð út tvær bækur; ljóðasafn og skáld- sögu eftir úkraínska skáldið M. Kociubynski. Og er þá ekki allt talið. Meðal annarra íslenskra höf- unda sem Wielunski hefur þýtt verk eftir eru Matthías Johannes- sen, Thor Vilhjáhnsson, Kristján frá Djúpalæk og Ingibjörg Har- aldsdóttir. Hvað vakir svo fyrir höfundin- um með þessu verki? í blaðavið- tali segist Wielunski hafa rannsak- að mælikvarða gagnrýnenda á bókmenntagildi þýðinga. Niður- staða hans er sú að hvorki gagn- rýnendur né þýðingarfræðingar búi yfír neinum algildum reglum um þýðingar. Þetta hefur gefið Wielunski fijálsræði til að þróa sínar eigin aðferðir þar sem hann styðst við ákveðnar stærðfræði- reglur. Orð eru að mati Wielunsk- is aðeins hlutir sem hægt er að mæla, endurtaka og greina, t.d. með tölvum. Með þetta að leiðar- ljósi hefur hann reynt að finna samnefnara fyrir frumsamin verk og þýðingar þeirra. I þessum pistli verður enginn dómur lagður á verk Wielunskis, hvorki efnisval né aðferðir hans við þýðingar — enda stendur slíkt utan tungumálafærni þess sem hér ritar. Þó má vel meta þetta óvenju- lega framtak að verðleikum og vona að eljusemi höfundarins kveiki áhuga hjá þýðendum og þýðingarfræðingum. í lokin ska! birt úr verkinu fyrsta erindi Ijóðsins „Hið eina“ eftir Guðmund Daníelsson á þrem- ur tungum, íslensku, ensku og pólsku: Eg bið um aðeins eitt, - For but a trifle I pray - Ojedno blagam Cie, um alit þó sönnu nær: For all, to be precise, Co wszystkim jest, to fakt. Ég bið þig, list, mér ljúkist upp I beg you, Art, I wish I could Wez, zbliz mi tylko, Muzo, mórz þinn leyndardómasær. See through your secret’s tide. Tajemic Twoich dna. Inga Þórey við eitt verka sinna. )

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.