Morgunblaðið - 26.09.1992, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.09.1992, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 NY EYROPA? eftirÞórhall Heimisson í bókinni „Veröld sem var“ lýsir rithöfundurinn Stefan Zweig þeirri Evrópu 19. aldarinnar er leið und- ir lok í hildarleik fyrri heimsstyrj- aldarinnar. Sú Evrópa var Evrópa keisaravelda og konungdæma og er nútíma Vesturlandabúum flest- um lítt hugnanleg. En á sama tíma var gamla Evrópa samtengd, frá Atlantshafi að Úralfjöllum. Um hana flæddu viðskipti og menning- arstraumar að mestu óhindrað og sköpuðu heild er ekki hefur þekkst frá hinu örlagaríka ári 1914. í dag er gamla Evrópa að rísa úr öskustó kommúnismans, nokk- uð lúin að vonum. Jámtjald kom- múnismans, eins og Churchill kall- aði landamæri Austur- og Vestur- Evrópu, skipti fyrrum iðandi menn- ingarsvæði í tvennt og kæfði öll eðlileg samskipti, alla eðlilega þró- un mannfélagsins. Nú er á ný tek- ið að hilla undir fyrrum athafna- frelsi eftir fall einræðisríkja sósíal- ismans. Um fomar æðar álfunnar streymir aftur næring viðskipta, hugmynda, listsköpunar og líkra mannlegra samskipta er kommún- istar óttuðust svo mjög. Um leið hefur gamall draugur vaknað úr dvala. Það er draugur þjóðemishyggjunnar er kostað hef- ur Evrópu meira blóð síðastliðinn 200 ár en nokkuð annað. Illur og svartur grettir hann sig í Júgó- Arnarfjörður 44 refir unnir á grenjum BQdudaL FJÖRUTÍU og fjórir refír voru unnir í Arnarfirði á grenjatímanum í sumar sem Iauk 31. júlí. Ekkert dýr vannst í Ketildölunum en tvö greni fundust í Bíldudals- hreppi. Að sögn grenjaskyttna hef- ur ref fækkað lítillega í Arnar- firði miðað við veiði síðustu ár. Fyrir grendýr em greiddar 975 kr., fyrir yrðling 430 kr. og fyrir hlaupadýr 1.360 kr. í Vestur-Barðastrandarsýslu veiddust árið 1990 145 refir, en á öllu landinu veiddust 2.730 dýr sama ár. Heildar- kostnaður við refaveiðar það ár nam 32,3 millj. kr. Fjölgun hefur orðið á ref á vestanverðu landinu og má gera ráð fyrir að stofnstærð sé að nálgast hámark þar. Fjölgun hefur haldið áfram og virðist nýliðun og stofnstærð þar hafa u.þ.b. þrefaldast á tímabilinu 1978- 1989. Fjárveiting á fjárlögum 1992 vegna hlutdeildar ríkisins í kostnaði við refa- og minka- veiðar á þessu ári nemur 22 milljónum króna. Heildar- kostnaður við refa- og minka- veiðar að óbreyttu fyrirkomu- lagi var áætlaður 50 milljónir króna. Samkvæmt 33. gr. laga nr. 1/1992 greiðir ríkissjóður helming kostnaðar við refa- og minkaveiðar. Aætlaður kostnaður ríkissjóðs á árinu að óbreyttu fyrirkomulagi nemur því 3 milljónum króna umfram fjárveitingu á fjárlög- slavíu, Þýskalandi, Rússlandi, um alla álfuna. Enginn veit hvort takst muni að særa hana burt með skjót- um hætti eða hvort enn sem fyrr þarf að fórna milljónum mannslífa til að kveða hann niður. Undirritaður sat ráðstefnu á vegum guðfræðideildar Árósarhá- skóla í Danmörku fyrstu daga septembermánaðar þar sem fjallað var um framtíð og stöðu „Evrópu- hússins" í kjölfar hruns einræðisins í austri. Þátttakendur komu allt frá Eistlandi og drógu upp mynd af brostnum vonum og örvænt- ingu. Evrópa er frjáls á ný. Hver er ávinningur frelsisins? Lítum á nokkrar hliðar þess í ljósi fyrr- greindrar ráðstefnu. Pólitísk frelsun Austur-Evrópa er ein rjúkandi rúst eftir harðstjóm kommúnism- ans. í þriðja sinn á öldinni þarf að reisa álfuna úr rústum. Við vit- um hveijar urðu afleiðingar fyrra og seinna heimsstríðs. En hverjar eru afleiðingar frelsunarinnar nú? Vissulega hafa mannréttindi fyrr- um þegna alþýðulýðveldanna auk- ist. En víða eru leyfar harð- stjómarinnar enn við völd. í öðmm löndum ríkir ringlureið aragrúa smáflokka líkt og gerðist á dögum Weimar-lýðveldisins í Þýskalandi og einræðisöfl til hægri á hinu pólitíska sviði eiga hægt um vik. Lýðræðið stendur höllum fæti. Efnahagsleg frelsun Ríkin er áður tengdust af Comecon, efnahagsbandalagi kommúnistaríkjanna, reyna nú mörg hver að beita hrossalækn- ingu vestræns k'apítalisma á hag- kerfi sín. Efnahagur þeirra er í rúst eftir áratuga óstjóm. Einka- væðing, lokun vinnustaða er ekki bera sig, uppsagnir og atvinnuleysi í kjölfar þessa hafa kallað fram örvæntingu og vonleysi. Borgar- amir eiga í erfíðleikum með að bregðast við þessu og fyllast minni- máttarkennd gagnvart nýjum kröfum og aðstæðum er þeir skilja ekki. Umbreytingin er óhugsandi án vestrænnar aðstoðar. En Vest- urlönd hafa aðeins rétt nágrönnum sínum litla fíngurinn. Spurningin er hvort markaðshyggjan sé eina lausnin. Um leið og allt er mælt á mælikvarða gróða og efnishyggju er lýðræðisumbótum stefnt í voða. Þess sjáum við dæmi bæði í Rúss- landi, fyrrum Austur-Þýskalandi og Póllandi. Frelsun menningarinnar Allt þar til fyrir fáum áram reyndu Sovétríkin að bijóta niður þjóðerniskennd minnihlutahópa á áhrifasvæði sínu. Bannað var að kenna á öðrum málum en rússn- esku í skólunum, rækt við menn- ingararfleifð þjóða og minnihluta- hópa lagðist af, aðeins trúnaður gagnvart alheimsríki öreiganna leyfðist. Nú hefur þjóðerniskennd- in fengið byr undir báða vængi. Þjóðemisrækt getur vissulega ver- ið af hinu góða virði hún aðra kynþætti og þjóðir. Hún getur verkað sem jákvæður hvati. En þjóðerniskennd dagsins í dag minnir óþyrmilega á brjálsemi fyrri hluta aldarinnar. „Þjóðernishreins- un“ er orð sem aldrei átti að heyr- ast á ný í Evrópu. Ætlar Evrópa að enda tuttugust öldina eins og hún hóf hana, með ofsóknum gegn minnihlutahópum og „þjóðernis- hreinsunum“? Frelsun trúarbragðanna Með öllum ráðum reyndu al- þýðulýðveldin að framfylgja þeirri trúarstefnu kommúnistmans að trúarbrögð væra af hinu illa. Kirkj- an var bönnuð, kirkjum lokað, nýj- ar að sjálfsögðu ekki reistar og kristnum mönnum gert allt til miska. En varðhundar alræðisins vanmátu styrk kirkjunnar og trú- arinnar, eins og þeir hafa reyndar alltaf gert. Kirkjan varð tákn og málsvari frelsisins. Svo fór að kirkjan varð sú þúfa er velti af stað þungu hlassi byltingarinnar í Austur-Þýskalandi og í Póllandi var kirkjan eina raunveralega stjórnarandstöðuaflið. Nú ríkir á ný trúarbragðafrelsi, alla vega í orði. En gamlar væring- ar hafa vaknað milli kirkjudeilda og þær taka sumar hveijar virkan þátt í deilum þjóðarbrota. Efnis- hyggjan er líka allsráðandi í aust- antjaldslöndunum fyrrverandi (og núverandi?), skilgetið afkvæmi kommúnismans og markaðshyggj- unnar, þó ótrúlegt sé að þessir erkifjendur hafí getið afkvæmi saman. Sumar kirkjudeildir hafa fallið í þá freistni að styrkja stöð- una milli kirkju og þjóðemis til þess að missa ekki völd sín. Víða Þórhallur Heimisson „Vid ættum að sjálf- sögðu að semja við Evr- ópu um viðskipti okkar í milli, en ekki selja okkur Evrópu á vald að fullu og öllu. Þá verður nú lítið um frelsi. Fullt frelsi fæst eingöngn með því að binda ekki trúss sitt við einn aðila, heldur bjóða öllum samskipti og sam- vinnu.“ er kirkjan þjóðernisleg stofnun, tengd þjóðeminu. Má nefna sem dæmi rússnesku rétttrúnaðarkirkj- una og rétttrúnaðarkirkjuna í Rúmeníu sem fer með offorsi gegn Ungveijum í Transylvaníu. En þetta á við um allar kirkjudeildir, því miður. Ekki má heldur gleyma þvi að múslimar og kristnir standa gráir fyrir jámum hvor frammi fyrir öðram eftir öllum suðurlandamær- um Rússlands og heyja blóðuga baráttu í fyrram Júgóslavíu. Þang- að vilja Tyrkir og fleiri íslömsk ríki senda heri til að styrkja trú- bræður sína. Öldin gæti hæglega endað með trúarbragðastyijöld í Evrópu, þó ómögulegt sé að segja milli hverra. Nýtt járntjald? Nýtt ,járntjald“ ógnar þeirri frelsisöldu sem drekkti kommún- ismanum. Það er járntjald auðsins. Jámtjald kommúnismans var ætl- að að halda þegnum alþýðulýðveld- anna inni, að koma í veg fyrir flótta. Nú loka ríki Vestur-Evrópu í sívaxandi mæli landamærunum fyrir fólki sem er að flýja efrtahags- kreppu í heimalandi sínu, en stöð- ugt fleiri flýja heimkynni sín í leit að betri lífskjöram, eða undan átökum og eijum. Flestir sækja til Vestur-Evrópu. Fólksflóttinn hefur vakið upp gömul deilumál, t.d. í Þýskalandi þar sem ný-nasistar hafa séð sér leik á borði. Gildir það reyndar einnig um önnur lönd Vestur-Evrópu. Svo er það ísland! Það sem nú er að gerast í Júgó- slavíu gæti hæglega verið vísbend- ing um það sem koma skal víðar í álfunni. Enginn veit hvaða ríki eða afl mun fylla valdatómið sem ríkir eftir fall kommúnismans þeg- ar til lengri tíma er litið. Efnahags- bandalagið hefur ekki sýnt burði til þess að fást við vanda álfunnar enn sem komið er, hvað sem verð- ur. Hver er staða Islands í þessu umróti þjóðanna? ísland getur nú sem fyrr tekið sér stöðu utah við sjálfan suðupottinn, ef íslendingar bera gæfu til að halda ró sinni. Við erum Atlantshafsþjóð fyrst og fremst með tengsl til austurs sem vesturs. Allt of sjaldan heyrast raddir sem vilja rækta þau góðu tengsl sem ríkt hafa milli íslands og Bandaríkjanna. Það er glám- skyggni að kasta því fyrir borð sem vel hefur reynst, til þess eins að stíga dans sem enginn veit hvaða stefnu tekur. Á menningarsviðinu höfum við um langt árabil átt góð samskipti við Norðurlöndin og þau má efla frekar en hitt, hvort sem frændur okkar gerast allir Efna- hagsbandalagsbúar eða ekki. Við ættum að sjálfsögðu að semja við Evrópu um viðskipti okkar í milli, en ekki selja okkur Evrópu á vald að fullu og öllu. Þá verður nú lítið um frelsi. Fullt frelsi fæst ein- göngu með því að binda ekki trúss sitt við einn aðila, heldur bjóða öllum samskipti og samvinnu. Inn- an NATO, með varnarsamninginn við Bandaríkin að baki og samning við Evrópubandalagið um viðskipti upp á vasann, þurfum við ekki að óttast óvissu og upplausn. Vel að merkja ef sá samningur felur ekki í sér valdaafsal. Því þá eigum við á hættu að dragast inn í átök og deilur þjóða sem við fáum engu um ráðið. Höfundur er fræðslufulltrúi þjóðkirkjunnar í Austfirðingafjórðungi. Er hægt að ráða við ríkið? eftir Þorstein Gylfason íslenzka ríkið er stofnun sem við innrætum bömum okkar að bera virðingu fyrir. Við segjum þeim að lögreglan sé góð og gæti okkar. Við förum með þau i skrúð- göngu á sautjánda júní með lúðra- blæstri og íslenzkum fánum á hverri stöng. Sautjánda júní á lýð- veldið- afmæli. Lýðveldið er ís- lenzka ríkið. En þetta íslenzka ríki er ekki allt þar sem það er séð. íslenzka ríkið rauf samninga á mennta- skólakennurum fyrir skemmstu með ljúfu geði, og afsökunin var sú ein að litlir hagsmunir hafí orð- ið að víkja fyrir miklum hagsmun- um. Hagsmunir ríkisins eru miklir og hagsmunir þegnanna litlir. Þá hætta réttlæti og ranglæti að skipta máli. Reykjavíkurborg kveinar sáran þessa dagana eins og stundum áður. Það þýðir ekkert fyrir borgina að semja við íslenzka ríkið. Þá er skrifað undir með ann- arri hendinni og samningurinn gerður að engu með hinni. Ríkið „íslenzka ríkið er að verða að ófreskju. En eftir því sem ég þekki til eru stjórnendur ís- lenzka ríkisins, alþing- ismenn og ráðherrar, engar ófreslgur. “ skapar vonir hjá ungu fólki um lán handa því til að standa straum af námi. Þessar vonir era ekki fyrr orðnar til, og áætlanir um framtíð- ina gerðar í krafti þeirra á hundr- uðum heimila, en ríkið kippir að sér hendinni. Það var allt í plati. Það hefur enginn aflabrestur, og heldur ekkert eldgos, valdið jafn sáram raunum á Islandi og linnu- laus rangsleitni islenzka ríkisins. Tilefni þessara orða er ekki mik- ið. Fyrir þremur árum tók íslenzka ríkið mikilsverða ákvörðun fyrir íslenzka menningu. Það aflétti virðisaukaskatti af bókum. Bækur urðu ódýrari. Útgefendum varð auðveldara en áður að gefa út stór- Þorsteinn Gylfason virki eins og íslenska alfræði og þýðingar Helga Hálfdanarsonar á verkum Shakespeares. En við meg- um ekki gleyma því að það var ríkið sem átti hlut að máli. Alþingi samþykkti stefnubreytinguna í skattamálum bókmenntanna ein- um rómi. Og íslenzka ríkinu má ekki treysta. Þremur árum eftir að bókavinir fógnuðu skattalækk- uninni sem tímamótaviðburði stendur fyrir dyrum að gera hana að^engu. Þar er ríkið að verki. íslenzka ríkið er að verða að ófreskju. En eftir því sem ég þekki til eru stjómendur íslenzka ríkis- ins, alþingismenn og ráðherrar, engar ófreskjur. Þeir mundu ekki gefa bömum sínum fyrirheit í dag og bregðast þeim á morgun. Það er ríkið sem hefur tekið völdin af þeim. Þeir eru hættir að ráða við það. En skyldi ekki vera hægt að ná tökum á ófreskjunni? Hvers vegna skyldum við láta ríkið komast upp með svik og pretti sem enginn heiðvirður maður mundi leyfa sér í lífí sínu? Hvernig væri að reyna að hafa hemil á því og byija strax í dag? Þá mætti til dæmis byija á því að afsegjalestrarskattinn nýja. Höfundur er einn af forvígismönnum hreyfingarinnar Rithöfundar gcgn lestrarskatti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.