Morgunblaðið - 26.09.1992, Síða 18

Morgunblaðið - 26.09.1992, Síða 18
'i 18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 Logi Eiðsson starf- ar áfram hjá RUY GENGIST var fyrir undirskriftasöfnun meðal starfsmanna Sjónvarps í gær þar sem ákvörðun útvarpsstjóra um ráðningu í starf íþróttaf- réttamanns Sjónvarps var harðlega mótmælt. Alls skrifuðu 89 manns sig á listann, sem afhentur var Heimi Steinssyni útvarpsstjóra. í framhaldi af því hefur útvarpssljóri lýst þvi yfir að hann ætli að beita sér fyrir því að Logi Bergmann Eiðsson starfi áfram hjá stofn- uninni, en ekki er frágengið í hveiju störf hans verða fólgin. Morgunblaðið/Bjarni Með kaffi, pönnukökur og plögg á setningarfundi landsþings Kvenréttindafélags íslands í fyrrakvöld, f.v. Inga Jóna Þórðardóttir, formaður félagsins, Salome Þorkelsdóttir alþingismaður og Jóhanna Sigurð- ardóttir félagsmálaráðherra. Landsfundur Kvenréttindafélagsins EES opnar leið til að beita jafnréttislögum HEILDARLAUN kvenna á íslandi eru um 60% af launum karia og það er lægra hlutfall en í nokkru Evrópubandalagslandi samkvæmt tölum sænsku hagstofunnar. Þetta kom fram í erindi Birnu Hreiðars- dóttur, framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs, á landsfundi Kvenréttinda- félags íslands í umræðu um konur í breyttri Evrópu. Bima kvaðst tejja að gerist ísland aðili hins Evrópská efnahagssvæðis (EES) opn- ist leið til að beita jafnréttislögum gegn launamisréttinu. „Ég mun beita mér fyrir því að við fáum notið starfskrafta Loga Bergmann Eiðssonar áfram eftir því sem til vinnst á komandi tíð. Málið er ekki komið lengra en sem nemur þessari viljayfirlýsingu en hún er líka ótvíræð. Ég ætla mér að standa á bak við hana í reynd," sagði Heimir. Ingólfur Hannesson, forstöðu- maður íþróttadeildar Sjónvarpsins, sagði að þetta væri niðurstaða sem væri eins góð og hugsast gæti mið- að við þá klípu sem stofnunin hafði komið sér í. Þetta væri áfangasigur fjmir starfsmenn ríkisútvarpsins. Hitt væri annað mál og óskylt hvort Borgarstjóm: Tillaga um aðkynna gönguleið- ir í miðbæ NÝR Vettvangur lagði til á sein- asta fundi borgarsljómar að efnt yrði til ítarlegrar kynningar á framtíðarskipulagi göngusvæða í Kvosinni. Að því loknu yrði efnt til skoðanakönnunar eða kosn- ingar um framtíð Austúrstrætis og nærliggjandi svæða og niður- stöðumar yrðu leiðbeinandi fyrir borgarstjóm þegar kæmi að því að ákvarða framtíð götunnar. Sjálfstæðismenn lögðu fram breytingatillögu við tillögu Nýs vett- vangs þar sem segir: „Staðfest deili- skipulag liggur fyrir af miðbænum, þar sem m.a. eru sýndar gönguleið- ir á svæðinu. í samræmi við skipu- lagið hafa á síðustu mánuðum verið opnaðar gönguleiðir milli Austur- vallar og Ingólfstorgs og Ingólf- storgs og Víkurgarðs. Sjálfsagt er að kynna gönguleiðir í miðbænum sérstaklega í Geysishúsinu ásamt öðrum skipulagsverkefnum í mið- bænum og næsta nágrenni." Sam- þykkt var með 10 samhljóða at- kvæðum að vísa tillögunni, svo breyttri, til skipulagsnefndar. hún segði eitthvað um stofnunina sem slíka og vinnubrögðin sem við- hefð væru. Logi Bergmann Eiðsson kvaðst sætta sig við að halda áfram störf- um hjá ríkisútvarpinu. „Það er hins vegar óþægileg staða þegar ég kem fyrir sjónir almennings að þar fari maður sem útvarpsráð treysti ekki fyrir þessu verki," sagði Logi. Stjóm Félags fréttamanna sendi frá sér ályktun í gær vegna af- skipta útvarpsráðs af ráðningu fréttamanna í gær. „Við erum afar ósátt við þetta. Fréttamannastöður eru einu störfín sem útvarpsráð hefur eitthvað um að segja. Okkur fínnst það fáranlegt fyrirkomulag að fréttastjórum sé ekki treyst fyr- ir því, eins og yfirmönnum annarra deilda, að ráða til sín fólk. Og mér þykir mjög miður að útvarpsstjóri skuli taka umsagnir útvarpsráðs fram yfír umsagnir fréttastjóra og deildastjóra og allra þeirra sem vinna á deildinni," sagði Valgerður Jóhannsdóttir, formaður Félags fréttamanna. Heimir Steinsson útvarpsstjóri segir að það sé lögbundið hlutverk útvarpsráðs að taka þátt í ráðningu starfsfólks. Það væri misskilningur að halda að þetta væri einhver af- skiptasemi, útvarpsráði væri skylt að tjá sig. „Frá því að ég kom hing- að hafa afskipti útvarpsráðs verið einskorðuð við fréttamenn og alla deildarstjóra. Ég held að það sé rangt að leggja nokkurn annan skilning í þetta annan en þann sem lög mæla fyrir um og þá hefð sem hér hefur skapast," sagði Heimir. FULLTRÚAR starfsmanna Kópavogshælis, félagar í for- eldra- og vinafélagi vistmanna Birna Hreiðarsdóttir sagði að lengi hefði staðið í íslenskum lögum að ekki mætti mismuna fólki á grundvelli kynferðis og svipað ákvæði væri í 119. grein Rómarsátt- mála EB-landanna sem tekið er upp í í 69. grein samningsins um Evr- ópskt efnahagssvæði. „Þessu ákvæði var lítið beitt til að byija með,“ sagði og formaður Landssambands Þroskahjálpar lýstu yfir ánægju sinni með stefnuyfirlýsingu stjórnarnefndar ríkisspítalanna um breytingu á starfsemi hælis- ins á blaðamannafundi í gær. Stefnuyfirlýsingin hefur í för með sér að meiri áhersla verði lögð á endurhæfingu á Kópavogs- hæli í þeim tilgangi að smám sam- an verði hægt að útskrifa hluta vistmanna á sambýli. Áfram er gert ráð fyrir að hælið, sem gert verður að Endurhæfingardeild Landspítalans, veiti fólkinu þjón- ustu sem og þeim sem áfram dve(jist á hælinu. Árni Gunnars- son, formaður sljórnarnefndar ríkisspitalanna, segir að stefnuyf- irlýsingin verði rædd á fundi með Sighvati Björgvinssyni, heil- brigðisráðherra, eftir helgi. Sig- hvatur segist ekki tjá sig um stefnuyfirlýsinguna fyrr en eftir fundinn. Á blaðamannafundi vegna stefnuyfírlýsingar stjómarnefndar- innar sagði Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri ríkisspítalanna, að stjórnar- nefndin hefði horft á stefnumörkun stjómvalda og gildandi reglugerð um að koma sem flestum þroska- heftum í sambýli. „Og, við segjum sem svo, við viljum breyta Kópa- vogshælinu í endurhæfíngardeild. Við viljum gera það til þess að reyna að gera sem flesta sem þar búa, með markvissari og aukinni endur- Birna, „en síðan hefur það verið notað æ meira og Evrópudómstóllinn í Lúxemborg er óragur við að beita því þegar talið er að konur hafí bor- ið skarðan hlut frá borði vegna kyn- ferðis síns. Dómstóllinn túlkar jafn- réttisreglur mun strangar en ísleiisk- ir dómstólar og ef við gemmst aðilar að EES getur það stuðlað að auknu hæfíngu, hæfari til að flytjast á sambýli. Þeim mun meiri sem þjálf- unin er þeim mun líklegra er að fleiri þeirra geti flust á sambýli. Þegar það hefur gerst, og stjórnamefndin hefur ekki lýst neinni skoðun á því hversu hratt eða hægt það á að gerast, þá vill nefndin að húsnæðið sem er á Kópavogshælinu verði not- að áfram sem endurhæfíngardeild og þá ekki síst fyrir þroskahefta, sem bæði búa á Kópavogshælinu áfram og sem hafa flust á sambýli. Hulda Harðardóttir, yfirþroska- þjálfí, sagði að tillögur stjómar- nefndarinnar væru spor í rétta átt. „Ég er ein af þeim sem hef hafnað Kópavogshæli eins og það hefur verið. Það er bams síns tíma. Þetta var úrræði fyrir 40 árum og því miður hefur ekki verið fylgst nægi- lega vel með þróuninni í málefnum þroskaheftra. Þess vegna tel ég að þarna hafí verið stigið afar heilla- vænlegt spor,“ sagði hún. Árni Már Björnsson, yfirþroska- þjálfi á vinnustofu, tók undir orð Huldu og sagði að eftir að hafa velt tillögunum fyrir sér sæi hann að þær væm hárréttar. Þær yrðu til þess að fleiri myndu flytjast út af hælinu. Það myndi verða þessum vistmönnum til hagsbóta og Ifka þeim sem eftir yrðu því þeir myndu fá betri þjónustu en nú. „Og þar sem ég er á vinnustofunum þá er það minn draumur að geta opnað þær meira fyrir fólkið sem býr út í bæ,“ sagði Arni Már í þessu sambandi. jafnrétti karla og kvenna." Lokadagur landsþings Kvenrétt- indafélagsins er í dag, laugardag, og fyrir hádegi verða til umræðu áherslur í jafnréttisbaráttu næstu ára. Erindi flytja Lilja Ólafsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Sólveig Pétursdóttir og umræður verða að þeim loknum. Fundurinn hefst í Gerðubergi í Breiðholti klukkan 9.30 og honum lýkur síðdegis. Morgunblaðið greinir í næstu viku nánar frá erindum gærdagsins í umræðu um konur í breyttri Evrópu. Sigríður Harðardóttir, hjúkrunar- forstjóri, sagðst telja að breyting- amar ættu að auka og bæta hjúkr- un. Jóhann Amfinnsson, í foreldra- og vinafélagi Kópavogshælis, sagði aðfélagið fagnaði stefnuyfirlýsing- unni. „Við teljum jákvætt að út- skrifa eigi fólk og það komist út í samfélagið en jafnframt að það eigi afturkvæmt í stoðþjónustu á staðn- um, í dagvistunarathvarf, vinnu- stofu og sjúkraþjálfun,“ sagði Jó- hann og lagði I máli sínu ríka áherslu á að með breytingu væri ekki verið að reka einn né neinn af hælinu heldur yrðu ákvarðanir varð- andi vistmenn teknar í nánu sam- starfi við þá og aðstandendur þeirra. Árni Gunnarsson, stjórnarfor- maður ríkisspítala, segir að um ein- falda stefnuyfírlýsingu af hálfu stjórnarnefndar ríkisspítalanna væri að ræða. „Hún hefur ekki fjárlaga- valdið og þess vegna hlýtur þetta að koma til kasta heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis vegna þess að hér er um það rætt að helmingur af vistmönnum, sem talið er að geti búið á sambýlum, flytjist á sambýli en þetta er hins vegar ekki jafn langt frá stefnu stjórnvalda og margur gæti haldið því til er reglu- gerð frá 1987 sem gerir ráð fyrir því að það verði fækkun á Kópa- vogshæli sem nemur um helmingi vistmanna, sá helmingur fari í sam- býli. Þetta hefur því miður ekki gerst ennþá,“ sagði Árni. Landssamband iðnaðarmanna 60 ára afmælis minnst í með hátíðardagskrá HÁTÍÐARDAGSKRÁ í tilefni 60 ára afmælis Landssambands iðnað- armanna verður í Borgarleikhúsinu í dag. Hátíðin hefst með ávarpi Haraldar Sumarliðasonar, forseta Landssambands iðnaðarmanna og Davíð Oddsson forsætisráðherra flytur ávarp. Haraldur Sumarliðason sagði við Morgunblaðið, að stærstu mál- in sem sneru að sambandinu um þessar mundir væru þær breyting- ar sem væru að verða í þjóðlífínu vegna samningsins urh Evrópska efnahagssvæðið. „Við höfum tekið þá afstöðu að þrátt fyrir ýmsar hættur þá sé þetta mál sem við þurfum að snúa okkur að. Aðalá- herslan í iðnaðinum þessa dagana er að setja sig í stellingar til að mæta þessum nýju aðstæðum," sagði Haraldur. Hann sagði mikið baráttumál samtakanna að íslenskum iðnaði yrði sköpuð sömu skilyrði og gilda í þeim löndum sem aðilar verða að EES. Fyrst og fremst væri um að ræða skattamál. Landssam- bandið væri afar óánægt með það að iðnaðurinn byggi við skatta sem væru óviðkomandi afkomu fyrir- tækjanna. Hann sagði að lítill skilningur væri hjá ríkisstjórnum hvers tíma á þörfum atvinnulífsins. Ofur- áhersla væri lögð á sjávarútveg- inn, en það vildi gleymast að ef iðnaðurinn legðist með öllu af í þessu landi, þyrftu tekjur af sjáv- arútvegi að þrefaldast ef þjóðin ætlaði að halda í horfinu hvað varðar þjóðartekjur. Aðrir dagskrárliðir á hátíðar- dagskránni í dag verða erindi Stef- áns Ólafssonar prófessors og auk þess söngatriði og tónlistaratriði. Dagskráin hefst kl. 14. Kópavogshæli _t__e__ Anægja með boðaða breyt- ingu á starfsemi hælisins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.