Morgunblaðið - 26.09.1992, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar
20 milljóna króna tap
fyrstu 8 mánuði ársins
TAP Á rekstri Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar á fyrstu átta mánuðum
ársins nemur 20,6 milljónum króna, samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
sem nú liggnr fyrir og sagt er frá í bæjarblaðinu Múla í Ólafsfirði.
Fyrir sömu mánuði í fyrra var tap á rekstrinum upp á 28 milljónir
króna.
Að teknu tilliti til greiðslu úr
V erðj öfnunarsj óði sj ávarútvegsins
að upphæð 10,8 milljónir króna
nemur tapið tæpum 10 milljónum
króna.
Tap á frystingu var 16,4 milljón-
ir króna eða 9,7% af veltu og tap
á físki- og loðnubræðslu var 4,3
milljónir króna eða 13% af veltu.
Heildarframleiðslutekjur Hrað-
frystihúss Ólafsfjarðar voru um 200
milljónir króna á tímabilinu og juk-
ust um 18 milljónir miðað við sama
tíma á liðnu ári.
Umfangsmiklar breytingar voru
gerðar í frystihúsinu síðasta vetur
þar sem m.a. var sett upp flæðilína
og var kostnaður við endurbætum-
ar um 25 milljónir króna. í kjölfar-
ið hefur framleiðsla aukist sem og
afköst og nýting hráefnis er betri.
Á árinu hefur hlutafé að upphæð
25 milljónir króna verið selt og á
stjórnarfundi i vikunni var ákveðið
að auglýsa viðbótarhlutafé til sölu
fyrir samtals 25 milljónir króna.
Verstöðin Island
sýnd í Borgarbíói
HEIMILDARMYNDIN Verstöðin
ísland verður sýnd á almennri
sýningu í Borgarbíói á morgun,
sunnudag, kl. 14 og er öllum
heimill ókeypis aðgangur. Mynd-
in verður sýnd fyrir boðsgesti í
dag, laugardag, og hefst sýning-
in einnig kl. 14.
arútvegsfræðinema við Háskólann
á Akureyri auk Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, sem lét gera
myndina til að minnast 50 ára af-
mælis sambandsins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ferðakaupstefnunni lýkur í dag
Ferðakaupstefnu Vestur-Norðurlanda lýkur í íþróttahöllinni á Akureyri dag og er hún opin almenningi milli
klukkan 13 og 16. Fyrir hádegið verður haldin ráðstefna í safnaðarheimili Akureyrarkirkju undir yfirskrift-
inni Ferðaþjónusta Vestur-Norðurlanda til ársins 2000. Einn fyrirlesari verður frá hverju landi og pallborðsum-
ræður að þeim loknum. Halldór Blöndal samgönguráðherra og Katrín Eymundsdóttir kona hans eru heiðurs-
gestir kaupstefnunnar og skoðaði Halldór sýninguna í gær. Með honum á myndinni er Lise Egcde-IIagélund,
einn af fulltrúum Grænlendinga í ferðamálanefnd Vestur-Norðurlanda.
Áform um breytingar á virðisaukaskatti
Myndin skiptist í fjóra hluta, sá
fyrsti nefnist Frá árum til véla og
segir frá tímabilinu til ársins 1918,
annar hluti nefnist Bygging nýs
íslands og greinir frá tímabilinu frá
1920 til 1950. Þriðji hluti myndar-
innar heitir Baráttan um fískinn og
þar er greint frá sjávarútvegssög-
unni á tímabilinu 1950 til 1989, en
í fjórða og síðasta hluta myndarinn-
ar er fléttað saman útgerð venju-
legs báts, sem stundar veiðar með
netum, botnvörpu og nót, og útgerð
togara. Þessi hluti myndarinnar
nefnist Ár í útgerð.
Hver hluti myndarinnar tekur um
eina klukkustund í sýningu. Stjórn
myndarinnar, handritsgerð og
gagnasöfnum var í höndum Erlends
Sveinssonar, Sigurður Sverrir Páls-
son annaðist kvikmyndatöku og
Þórarinn Guðnason um hljóðupp-
töku. í myndina er mikið notað af
gömlum heimildarmyndum, sem
fundist hafa bæði hér heima.og
einnig erlendis og ekki hafa verið
notaðar áður.
Að sýningu myndarinnar á Akur-
eyri standa Útvegsmannafélag
Norðurlands, Stafnbúi, félag sjáv-
Tugmilljóna viðbótarútgjöld fyr-
ir bæjarsjóð og stofnanir hans
Nýjar álögnr á sveitarfélög til að skapa ríkis-
sjóði nýja tekjustofna, segir formaður bæjarráðs
SIGURÐUR J. Sigurðsson formaður bæjarráðs Akureyrar segir að
fyrirhugaðar breytingar á virðisaukaskatti og áform ríkissljórnar-
innar um að fella niður endurgreiðslur virðisaukaskatts af vinnu
og þjónustu sveitarfélaga hafi í för með sér tugmilljóna króna út-
gjöld fyrir bæjarsjóð og stofnanir hans. Sveitarfélögin búi við óviðun-
andi aðstöðu þegar þau geti átt von á nýjum álögum á nær hveiju
ári og slíkt geri að verkum að langtímaáætlanir þeirra séu í upp-
lausn. Þá geti einnig svo farið að ekki takist að ljúka gerð fjárhagsá-
ætlunar fyrir árið 1993 fyrir áramót eins og stefnt var að. Miklar
umræður urðu um þetta mál á fundi bæjarráðs á fimmtudag.
„Fljótt á litið getum við ekki
annað séð en að bæjarsjóður og
stofnanir bæjarins verði fyrir út-
gjöldum upp á tugi milljóna króna,
sem ekki var ráð fyrir gert. Enn
sem komið er sjáum við ekki ná-
kvæmlega hvernig þetta kemur til
með að verða, en við væntum þess
að línur skýrist fyrir næsta fund
bæjarráðs, en við munum væntan-
lega á þeim fundi láta í okkur heyra
vegna þessa máls,“ sagði Sigurður,
en fulltrúar í bæjarráði munu eiga
fund með þingmönnum kjördæmis-
ins á mánudag þar sem þeir ætla
m.a. að fá nánari upplýsingar um
áform ríkisstjómarinnar hvað þetta
varðar.
Sigurður sagði þó ljóst nú þegar
að um yrði að ræða viðbótarálögur
fyrir sveitarfélögin og nefndi að það
eitt að hætta að endurgreiða virðis-
aukaskatt af snjómokstri gæti haft
mikil aukaútgjöld í för með sér fyr-
ir Akureyrarbæ sem og aðra staði
þar sem að jafnaði er snjóþungt.
„Eitt er að fækka undanþágum
frá virðisaukaskattinum, en hitt er
alvarlegra að þama er verið að setja
nýjar álögur á sveitarfélögin til að
mynda nýja tekjustofna fyrir ríkis-
sjóð. Það er óviðunandi aðstaða
fýrir sveitarfélögin að eiga yfir
höfði sér einhvetjar breytingar á
nær hveiju ári. Það gerir að verkum
að ómögulegt er að gera áætlanir
fram í tímann, allar slíkar áætlanir
verða í hálfgerðri upplausn af þess-
um sökum. Þetta er mjög bagalegt
fyrir sveitarfélögin og lítt skiljan-
legt hvers vegna ríkisvaldið hefur
ekki samráð við sveitarfélögin um
svona mál,“ sagði Sigurður.
Bæjarstjóm hefur nú til umfjöll-
unar þriggja ára áætlun um rekst-
ur, fjármál og framkvæmdir á veg-
um Akureyrarbæjar og sagði Sig-
urður að reynt yrði að halda áætlun-
inni fyrir næsta ár. Stefnt hafði
verið að því að ljúka gerð fjárhags-
áætlunar fyrir næsta ár nú fyrir
áramót, en Sigurður sagði að ef
drægist að afgreiða fjárlög væri lík-
legt að það setti strik í reikninginn
og vinna við fjárhagsáætlun dræg-
ist fram yfir áramót.
J l
Kiðrdæmisraft sjálfstæðisfélaganna
í Horðurlandsklnrdæmi eystra
boða til almennra stiórnmálafunda:
Ólafsfjörður, þriðjudaginn 29. sept-
ember, Tjarnarborg, kl. 21.00.
Dalvík, miðvikudaginn 30. septem-
ber, Bergþórshvoll, kl. 21.00.
Akureyri, fimmtudaginn 1. október,
Kaupangur v/Mýraveg, kl. 20.30.
Þórshöfn, sunnudaginn 4. október,
Félagsheimlið Þórshöfn, kl. 14.00.
Raufarhöfn, sunnudaginn 4. októ-
ber, félagsheimilið Hnitbjörg,
kl. 17.00.
Frummælendur á fundunum verða
Halldór Blöndal, landbúnaðar- og
samgönguráðherra, og Tómas Ingi
Olrich, alþingismaður.
Hrafnagils-
skóli reyklaus
Kennararn-
ir sýna gott
fordæmi
Ytri-Tjörnum; Eyjafjarðarsveit.
SKÓLASTJÓRI og kennarar
Hrafnagilsskóla hafa nú ákveðið
að sýna nemendum sínum gott
fordæmi með því að reykja ekki
innan veggja skólans.
f vinnuherbergi kennara hafa á
undanfömum ámm verið leyfðar
reykingar. Á kennarafundi nýlega
bar yfírkennari skólans, Anna Guð-
mundsdóttir, upp þá tillögu að skól-
inn skyldi vera algerlega reyklaus
og var hún samþykkt. Fáeinir af
sautján kennurum skólans era reyk-
ingamenn og verða þeir nú að stunda
þá iðju utan dyra.
Beiýamín
Morgunblaðið/Hólmfríður Haraldsdóttir
Ungir athafnamenn í Grímsey
Þeir hafa sjálfsagt hug á að leggja sitt af mörkum til bættra sam-
gangna í Grímsey, þessir félagar, Ragnar Guðmundsson, Þorleifur
Hjalti Alfreðsson og Sigfús Heiðarsson, sem voru á dögunum niður-
sokknir í vegagerð.