Morgunblaðið - 26.09.1992, Síða 27

Morgunblaðið - 26.09.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 27 JWtóáur / a morgun ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón- usta kl. 14. Ingibörg Marteinsdóttir syngur einsöng. Kaffisala Safnað- arfélags Ásprestakalls eftir messu. Kirkjubíllinn ekur. Árni Bergur Sig- urbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Ellefu manna hljómsveit tekur þátt í messunni og fluttir verða Taizé söngvar. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Dóm- kórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Fundur með for- eldrum fermingarbarna eftir messu. Sunnudágaskóli í safnaðar- heimilinu á sama tíma. Kirkjubíllinn fer frá Vesturbæjarskóla kl. 10.45. Sr. Hjalti Guðmundsson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón- usta kl. 10. Sr. Magnús Björnsson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. 6 ára börn og eldri og foreldrar þeirra uppi. Yngri börnin niðri. Messa kl. 14. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Árni Arinbjarnarson. Þriðjudag: Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur í 10 mínútur. Fyrirbænir, altaris- ganga og léttur hádegisverður. Þriðjudag kl. 14. Biblíulestur. Sr. Halldór S. Gröndal annast fræðsl- una. Kaffiveitingar. HALLGRÍMSKIRKJA: Fjölskyldu- messa kl. 11. Altarisganga. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þórir Jök- ull Þorsteinsson cand. theol. préd- ikar. KIRKJA H EYRN ARLAUSRA. Messa kl. 14. Sr. Miyako Þórðar- son. Hervör Guðjónsdóttir talar af tilefni dags heyrnariausra. Mynd- listarsýning 5 heyrnarlausra opn- uð. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa kl. 10. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíll fer um Hlíðar og Suður- hlíðar á undan og eftir messu. Messa kl. 14. Sr. Tómas Sveins- son. Biblíulestur mánudagskvöld kl. 21. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Kór Langholtskirkju (hópur I) syng- ur. Organisti Jón Stefánsson. Barnastarf á sama tíma. Kaffisopi eftir guðsþjónustu. Aftansöngur alla virka daga kl. 18. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Sigrún Óskarsdóttir messar. Barnakór Grensáskirkju, Barnakór Biskupstungna og Drengjakór Laugameskirkju syngja í guðsþjónustunni. Barnastarf á sama tíma í umsjá Þórarins Björns- sonar. Barnakórarnir syngja einnig fyrir guðsþjónustu frá ki. 10.30. Heitt á könnunni eftir guðsþjón- ustu. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Munið kirkjubílinn. Guðmundur Óskar Ólafsson. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson. Mið- vikudag: Bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. Guðspjall dagsins: Matt.6.: Enginn kann tveimur herrum að þjóna. SELTJARNARNESKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Kynningarguðs- þjónusta fyrir fermingarbörn, þar sem fermingarbörn og fjölskyldur þeirra verða sérstakiega boðin vel- komin. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Organisti Gyða Halldórsdóttir. Barnastarf á sama tíma. Umsjón Hildur og Erla. Mið- vikudagur: Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðar- heimilinu. ÁRBÆJARKIRKJA: Barna- og fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11 árdegis við upphaf barnastarfs kirkjunnar í Árbæjarsókn. Foreldrar boðnir velkomnir með börnum sínum í guðsþjónustuna. Skólakór Árbæj- arskóla syngur undir stjórn Áslaug- ar Bergsteinsdóttur tónmennta- kennara. Ungmenni aðstoða við guðsþjónustuna. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Fyrirbænastund miðvikudag kl. 16.30. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Ath. breyttan messutíma. Org- anisti Daníel Jónasson. Samkoma á vegum Ungs fólks með hlutverk kl. 20.30. Ræðumaður: Helga Björg Guðmundsdóttir. Bænaguðsþjón- usta þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guös- þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti Guðný M. Magnúsdóttir. Fyrirbænaguðs- þjónusta mánudag kl. 18. Helgi- stund í Gerðubergi fimmtudadg kl. 10.30. Prestarnir. GRAF ARVOGSPREST AKALL: Barnaguðsþjónusta í Félagsmið- stöðinni Fjörgyn kl. 11. Nýr sunnu- dagspóstur. Aðstoðarfólk guð- fræðinemarnir Sveinn Valgeirsson og Elínborg Gísladóttir. Skólabíllinn hefur akstur síðar. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Sigurbjörg Helga- dóttir. Vigfús Þór Arnason. HJALLAPRESTAKALL: Messusal- ur Hjallasóknar Digranesskóla. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Upphaf barnastarfs. Foreldrar eru hvattir til að fylgja börnum sínum til guðsþjónustu. Organisti Oddný Þorsteinsdóttir. Helgistund og fundir með fermingarbörnum og foreldrum * þeirra í Messusalnum sunnudag. Kl. 14 mæti börn úr Snælandsskóla og Digranesskóla og foreldrar þeirra og kl. 16 mæti börn úr Hjallaskóla ásamt foreldr- um. Sóknarprestur. KÁRSNESPRESTAKALL: Fyrsta samvera barnastarfsins verður í safnaðarheimilinu Borgum sunnu- dag kl. 11. Umsjón Viiborg, Helga Sigríður og Edda. Ægir Fr. Sigur- geirsson. DIGRANESPRESTAKALL: Barna- samkoma í Safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Ingólfur Guðmundsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sr. Þorbergur Kristjáns- son. SEUAKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Molasopi eftir guðs- þjónustuna. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN í RVÍK: Guðsþjónusta kl. 11. Athugið tímann. Miðvikudag 30. september, morgunandakt kl. 7.30. Organisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson. KRISTSKIRJA Undakoti: Messa kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messakl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugardag: Messa kl. 14 og ensk kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur kl. 8 og kl. 18. MARÍUKIRKJA Breiðholti: Messa kl. 11. Laugardag kl. 14, fimmtu- daga kl. 19.30. Aðra rúmhelga daga messa kl. 18.30. KFUM/K/SÍK/KSH: Samkoma í kristniboðssalnum kl. 20.30. Ræðumaður sr. Ólafur Jóhanns- son. Upphafsorð og bæn: Valgerð- ur Gísladóttir. Myndir og frásögn af kristilegu barnastarfi. Einsöngur Laufey Geirlaugsdóttir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgunar- samkoma kl. 11. Kaft. Thor og El- björg. Kl. 14 sunnudagaskóli. Bæn kl. 19.30 og kl. 20 hjálpræðissam- koma. Majorarnir Kare og Reidun Morken og Odd Andersen stjórna og tala. HVÍTASUNNUKIRKJA Ffladelfía: Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu- maður Hafliði Kristinsson. Barna- gæsla. VEGURINN: Fjölskyldusamvera Jtl. 11. Ungbarnastarf m.m. Almenn samkoma kl. 20.30. Biblíulestur miðvikudag kl. 18. Sr. Halldór S. Gröndal. GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason préd- ikar. Sunnudagaskóli í Kirkjuhvoli kl. 13. Sr. Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Jósefssystra Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Messa Hrafnistu kl. 13 og í kirkjunni messað kl. 14. Prestur sr. Einar Eyjólfsson. Kór Víðistaðasóknar. Organisti Úlrik Ólason. HAFNARFJ ARÐAR KIRKJA: Sunnudagaskóli kl 11. Munið skólabflinn. Guðsþjónusta kl. 14. Prestarnir. FRÍKIRKJAN Hafnarf.: Barnaguðs- þjónusta kl. 11 og guðsþjónusta kl. 11 í Hrafnrstu. Kór Víðistaða- sóknar leiðir söng. Sr. Einar Eyj- ólfsson. KAPELLA St. Jósefsspítala: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa kl. 8.30. Rúmhelga daga kl. 8. YTRI-Njarðvíkurkirkja: Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Baldur Rafn Sig- urðsson. GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa sunnudag kl. 14. 10 ára vígsluaf- mæli kirkjunnar. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar. Pétur Sigur- geirsson biskup og Jónas Gíslason vígslubiskup þjóna fyrir altari ásamt sóknarpresti, sr. Jónu Krist- ínu Þorvaldsdóttur. Jón Hólmgeirs- son og Jóhanna Sigurðardóttir lesa ritnignarlestra. Margrét Sighvatsd- sóttir syngur einsöng. Öllum kirkju- gestum er boðið til kaffisamsætis í safnaðarheimilinu eftir guðsþjón- ustuna. Þar syngur kór kirkjunnat nokkur lög undir stjórn kirkjuorgan- istans Siguróla Geirssonar. Sókn- arnefnd. KAÞÓLSKA KAPELLAN Keflavík: Messa kl. 16. í miskunnarleysi martraðar Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bióborgin/Bíóhöllin: Alien8. Leikstjóri David Fincher. Aðal- leikendur Sigourney Weaver, Charles S. Dutton, Charles Dance, Paul McGann, Brian Glover, Ralph Brown. Banda- rísk. 20th Century Fox 1992. Þá er komið að lokakaflanum í þrennunni um „Alien“, sem tví- mælalaust er einn eftirtektarverð- asti kvikmyndabálkur síðari ára, ekki síst úr vísindaskáldskapar- geiranum. Hann hófst með „Alien“ árið 1979, æsispenndi geimhroll- vekju sem var leikstýrt af Ridley Scott og margir kvikmyndaunn- endur flokka í hóp sígildra mynda af sinni gerð. Árin liðu og sjö árum síðar betrumbætti James Camer- on, spennumyndaleikstjórinn kunni, hugmyndina með „Aliens". Eða svo var dómur flestra. Einn aðalhvatamaður Alien3 er enginn annar en stjarna myndanna allra, hin góðkunna Sigourney Weaver sem vildi enda þessa metnaðarfullu seríu með stórum punkti. Og ekki er annað að sjá en það hafi tekist með láði. „Alien"“ hefst langt, langt úti í buskanum þar sem geimfarinn Weáver rumskar af löngum svefni í brotlendingu á fangaplánetu þar sem örgustu glæpafól sitja af sér í einangrun gamallar verksmiðju. Vekur nærvera konunnar mikla spennu meðal fanganna og hún eykst þegar i ljós kemur að hún hefur ekki komið einsömul heldur hefur geimskrímslið ógnarlega slæðst með í för .. . - Sú í þriðja veldinu sver sig í ætt við forvera sina; framúrstefnu- leg, metnaðarfull, spennandi, grá og grimm. Og er jafnvel enn magn- aðri og vafalaust ein hrottalegasta og óþægilegasta hryllingsmynd sem gerð hefur verið um árabil. Hvergi er skímu að sjá. Persónurn- ar skítugar upp fyrir haus og held- ur ókræsislegt úrkast úr mann- heimum ef undan er skilin hin jafn- grómtekna en guðumlíka Weaver. Og umhverfið gæti eins gott verið sjálft Helvíti í allri sinni grámyglu og viðurstyggð þar sem hvergi bregður fyrir hlýlegri sýn. Og efn- ið sjálft er ekki síður andstyggi- legt. Krafist er hrikalegrar fómar af aðalpersónunni sem minnir ekki lítið á trúarlega athöfn. Og út myndina er hún á flótta undan skrímslinu og mannskepnunum. Það er því alveg ljóst að „Ali- en3“ er ekki hvers manns hugljúfi og ekki fyrir þá viðkvæmustu. En þeir sem hafa unun af vel gerðum vísindaskáldskaparhrollvekjum þar sem andinn fær að svífa óvenju-óbeislaður meðal lista- mannanna — sem þurfa auk þess heldur ekki að hlíta þeim leiðu reglum kvikmyndaborgarinnar að láta allt saman enda í rósrauðri birtu — fá mikið fyrir snúð sinn. Leikstjóranum Fincher farnast býsna vel í sinni fyrstu mynd og hann hefur gott tak á brellunum en flest spennuatriðin líða þó nokk- uð fyrir seinagang og endurtekn- ingar. Sagan er heldur ófrumleg og má segja að hún hafi verið sögð í fyrri myndunum og er að auki eftir eina þrjá, fjóra höfunda. En það er lagt ofurkapp á að hafa „Alien3“ sem ljótasta og yfirgengi- legasta og að vissu leyti hefur hún slegið ný met í martraðarkenndu miskunnarleysi og rustamennsku. Og það er hreint ekki auðhlaupið að ná því marki á þessum síðustu og verstu! Tæknin er mikil, tón- list, klipping og taka í úrvalsflokki og leikhópurinn einstaklega smekklega valinn úr röðum hinna ófélegustu skapgerðarleikara. Og Weaver stormar í gegnum mynd- ina sína í gervi sem fæstar stöllur hennar þyrðu að voga sér í. Tekur áhættuna, snoðuð og kámug, og vinnur. Hér bólar á Óskarsverð- launatilnefriingu. Það kemur á óvart hversu áberandi „bresk“ myndin er í útliti. Þar er kannski komin ástæðan fyrir takmörkuðu gengi hennar vestan hafs en vin- sældum í Evrópu? Klassík; úr teiknimyndinni um Mjallhvít. Móðir Disneymyndanna Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Mjallhvít og dvergamir sjö („Snow White and the Seven Dwarfs“). Sýnd í Sambíóunum. Framleiðandi: Walt Disney. Leikstjóri: David Hand. 80 mín. 1937. Hæhó, hæhó, við höfum unnið nóg ... syngja dvergarnir í ævin- týrinu um Mjallhvíti og víst er að þótt þeir hafi unnið nóg fær heim- urinn aldrei nóg af þeim og litlu prinsessunni sem þeir gæta. Sam- bíóin endursýna nú þessa einu frægustu og bestu teiknimynd sem gerð hefur verið, Mjallhvít og dvergana sjö. Hún er frá árinu 1937 og var sýnd í Sambíóunum fyrir fímm árum á hálfrar 'aldar afmæli myndarinnar. Nú er kær- komið tækifæri til að endurnýja kynnin við þessa klassísku mynd og fyrir nýja áhorfendur að upplifa teiknimyndagaldur eins og hann gerist bestur. Mjalihvít er móðir Disney-teikni- myndanna. Hún var fyrsta teikni- myndin sem gerð var í fullri lengd og með henni rættist áralangur draumur teiknimyndaframleiðand- ans Walts Disneys um að búa til teiknimynd í 'lengd venjulegrar, leikinnar myndar. Mjallhvít varð fyrirmynd þeirra Disney-teikni- mynda sem á eftir komu og hefur haft margvísleg áhrif á listamenn. Meðal annars mun Orson Welles hafa tekið upphafsskotið á kastala Kane í sinni frægu mynd „Citizen Kane“ úr Mjallhvíti þar sem sýnt er upp í kastalaglugga nomarinn- ar; Fellini skrifaði í handritið að Júlíu andanna árið 1956 að móðir Giulietta Masina í myndinni ætti að líkjast drottningunni í Disney- myndinni; sovéska tónskáldið Serge Prokofiev var svo hrifið af samvirkni hljóðs og myndar í Mjall- hvíti að hann samdi tóniistarævin- týri sem hann vonaði að Disney gerði mynd eftir, Pétur og úlfinn. Teiknimyndin um Mjallhvít og dvergana sjö er með ástsælustu barnamyndum sem gerðar hafa verið, hún er með vinsælustu myndum kvikmyndasögunnar og fyrir utan sögulegt mikilvægi hennar eru hún einfaldlega veru- lega skemmtileg, falleg og ljúf. En eins og hún er töfrandi og hugljúft ævintýri er hún líka ógn- vekjandi og grimm að því er lýtur að drottningunni og illum áform- urn hennar og í teiknimyndinni er lögð áhersla á hvort tveggja. Hún er bæði myrk og spennandi, nánast hrollvekjandi, þar sem drottningin bruggar banaráð í höllinni og ekki síður björt og gamansöm þegar kemur að lýs- ingu á hinum óborganlegu sjö dvergum og Mjallhvít í skóginum. Þetta er hrífandi blanda brugguð úr litaseið Disney-listamannanna fyrir 55 árum og hefur staðist' tímans tönn ótrúlega vel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.