Morgunblaðið - 26.09.1992, Page 32

Morgunblaðið - 26.09.1992, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 Guðjón Jónsson og Guð- mundur A. Siguijóns- son - Frændaminning Guðjón Fæddur 13. mars 1911 Dáinn 12. september 1992 Guðmundur Amar Fæddur 6. apríl 1932 Dáinn 5. september 1992 Það er skammt stórra högga á milli í íj'ölskyldunni frá Ásmúla. Tveir frændur eru fallnir í valinn. Það er sárt þegar menn kveðja þessa tilvist þó svo að við sem eft- ir lifum vitum að hefur verið þeim lausn frá þjáningum þeirra. Móðurbróðir minn, Guðjón, lést á öldrunardeild Landspítalans, 12. september sl. eftir löng veikindi. Og systusonur hans, Guðmundur Amar, lést á Landakotsspítala 5. september sl., úr sjúkdómi sem herjað hefur á hann sl. tvö ár. Á stundu sem þessari reikar hugurinn til liðins tíma, mér er hugsað til afa míns og ömmu í fallegri sveit, þar sem bærinn stóð hátt í brekku fyrir ofan stórt stöðu- vatn. Fegurðin þótti mér mikil og auðvitað fallegasta bæjarstæðið sem ég þekkti. Þarna var unnið hörðum höndum að ræktun lands- ins til nytja fyrir búpeninginn sem var hefðbundinn; kindur, kýr og hestar. Hjónin í Ásmúla áttu tíu böm. Fjölskyldan var stór og bömin tóku til hendinni og hjálpuðu til við búskapinn. Þegar fram liðu stundir komu síðan bamabömin og settu sinn svip á heimilið. Guðmundur Amar var_ fyrsta bamabarn hjónanna í Ásmúla. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JAKOB S. J. TRYGGVASON, Hófgerði 9, Kópavogi, lést á heimili sínu 24. september. Tryggvi Jakobsson, Erlingur Jakobsson, Helgi J. Jakobsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Ragnar Guðmundsson, Eybjörg Einarsdóttir, Kristjana ísleifsdóttir, Pálmar Björgvinsson, Torfhildur Þorvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT ÞÓRÐ ARDÓTTi R, Hvassaleiti 42, sem lóst á Hvítabandinu, verður jarðsungin mánudaginn 28. sept- ember kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, láti líknarstofnanir njóta þess. Þórður Rafn Guðjónsson, Jónína Björnsdóttir, Katrín Hlíf Guðjónsdóttir, Hákon Sigurðsson, Jón Hlíðar Guðjónsson, Sigriður J. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Bróðir okkar, SIGURGEIR TRYGGVASON, Svertingsstöðum, Eyjafjarðarsveit, verður jarðsunginn frá Kaupangskirkju miðvikudaginn 30. septem- ber kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hans, láti Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri njóta þess. Fyrir hönd vandamanna, Guðrún Bergrós Tryggvadóttir, Haraldur T ryggvason. t Útför mannsins míns, föður, tengdafööur, afa og langafa, VALDIMARS VETURLIÐASONAR, Hrafnistu íHafnarfirði, verður gerð frá Vífilsstaðakirkju mánudaginn 28. september kl. 13.30. Ingibjörg Kristjánsdóttir, Frfða H. Valdimarsdóttir, Halldór Ebenesarson, Ari Valdimarsson, Helga Valdimarsdóttir, Finnur Valdimarsson, Pétur Valdimarsson, Sigurður Valdimarsson, Haraldur Valdimarsson, Þórdís Valdimarsdóttir, barnabörn og Marit Valdimarsson, Haukur Schram, Ingibjörg Giisdóttir, Stefanfa Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Ingibjörg T ryggvadóttir, Hörður Snorrason, barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu á margvíslegan hátt við andlát og jarðarför systursonar okkar, GUÐMUNDAR ARNARS SIGURJÓNSSONAR. Systkinin frá Ásmúla. Hann varð að sjálfsögðu auga- steinn þeirra og eyddi þar sínum fyrstu árum. Þegar hann komst á skólaaldur dvaldist hann hjá móður sinni í Reykjavík en var í Ásmúla á sumrin. Frá þessum tíma minnist ég góðlátlegrar kímniblandinnar stríðni hans. Ég minnist frásagn- anna frá ferðum hans norður í Skagafjörð, þar sem var urmull af draugum. Endalaust var hægt að hlusta á sögur af reimleika og furðulegum fyrirbærum sem fyrir hann höfðu borið. Frásagnir hans voru svo lifandi að maður upplifði nánast atburðina. Ekki lá fyrir Arnari að njóta þessarar gleði sem í honum bjó sem ungum dreng. Hann varð snemma heltekinn af þeim sjúkdómi sem átti eftir að marka allt hans líf. Þegar litið er til baka, til tíma þjáninga, þá verður mér hugsað til frétta um niðurskurð í heil- brigðiskerfinu. Ég vil ekki trúa því að við, þessi velmegandi þjóð, séum ekki fær um að veita sjúkum þá bestu þjónustu sem hugsanleg er. Mér finnst það eigi að vera eitt af forgangsverkefnum samfélags- ins að líkna sjúkum. Á annan áratug naut Amar umönnunar starfsfólksins á Litla- Hrauni, sem ailt gerði til þess að honum gæti liði sem best, fýrir það ber að þakka sérstaklega. Einnig ber að þakka fyrir þá umönnun og umhyggju sem starfsfólkið á Kumbaravogi veitti honum hin síð- ustu ár. Megi frændi minn, Guðmundur Arnar, hvíla í friði. Guðjón var fjórði í röðinni af börnum þeirra Olafar Guðmunds- dóttur og Jóns Jónssonar bónda í Ásmúla. Hann ólst þar upp og var þar fram til fullorðinsára en þá fór hann á vertíðir og vann einnig við trésmíðar að vetrinum. Á sumrin hvarf hann heim til þess að vinna við bú foreldra sinna og varð síðan sjálfur bóndi við fráfall föður síns. Ég minnist Guðjóns sérstaklega hversu hratt hann vann við hey- skapinn. Hann var drífandi í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Hann unni landinu og fann jafn- framt fyrir skyldum við það. Hann sinnti öllum búpeningnum vel, en ég hafði þó alltaf á tilfinningunni að féð væri það sem hann hélt mest upp á. Guðjón bar ekki tilfinningar sín- ar á torg, hann var fremur þögull maður og sem barn bar ég vissan ótta eða virðingu fyrir honum. Ég gerði mér ekki ljóst fyrr en síðar með kynnum hans af mínum dætr- um hversu barnelskur hann var. Guðjón bjó í Ásmúla ásamt bróð- ur sínum, Guðmundi og systur sinni, Lilju. Þegar aldurinn og heilsan fóru að segja til sín brugðu þau búi og fluttu til Reykjavíkur. Það þarf mikið átak til þess að taka sig þannig upp og hverfa frá ævistarfi sínu, en búskapur er eng- in léttavinna og samdráttur í bú- skap e.t.v. ekki að þeirra skapi. Þau vildu að áfram væri búið myndarbúi á föðurleifð þeirra. Guðjón var sín síðustu ár í Há- túni lOb, á öldrunarlækningadeild Landspítalans. Systkini Guðjóns vilja þakka lækninum og öðru starfsfólki sérstaklega fyrir alla umönnun. Blessuð sé minning Guðjóns frænda míns. Rut Guðmundsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓSKAR V. EGGERTSSON, Tunguvegi 82, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 28. september kl. 13.30. Sigurlaug Sigurbjörnsdóttir, Ágúst Óskarsson, Hildur Sigurðardóttir, Elsa Óskarsdóttir, Sigurlaug Ósk Williams, Guðborg Óskarsdóttir Gasper, Róbert Gasper, Davíð Óskarsson, Þóra Sveinsdóttir, Óskar Óskarsson, Lilja Guðbjörnsdóttir, Eggert Óskarsson, Guðrún Lárusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ESTHERAR HÖGNADÓTTUR, Ásvallagötu 39. Edda Jónsdóttir, Steingrfmur Björgvinsson, Högni B. Jónsson, Hadda Halldórsdóttir, Björgvin Jónsson, Jónína Bjarnadóttir, Margrét G. Jónsdóttir, Ólafur Albertsson, barnabörn og langömmubörn. + Innilegar þakkir til allra, er auðsýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elsku litlu dóttur okkar, systur og barna- barns, THELMU HRUNDAR SIGURGEIRSDÓTTUR. Sigurgeir Sigurðsson, Herdfs Jónsdóttir, Anna Ósk Sigurgeirsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Nanna Sigfúsdóttir, Jón Guðmundsson, Alma Garðarsdóttir. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför INGIMUNDAR STEFÁNSSONAR kennara. Fyrir hönd arlnarra vandamanna, Blanca Ingimundardóttir, Helga Ingimundardóttir, Jan Ingimundarson. + Þökkum innilega vináttu og samúð vegna andláts og útfarar GRÍMS LAXDAL LUND. Fyrir hönd aðstandenda, Marfa Jóhannsdóttir. ( I ( í i í $ i í ci % ( ( I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.