Morgunblaðið - 26.09.1992, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 26.09.1992, Qupperneq 44
 MICROSOFT. einar j. WINDOWSl skúlasonhf MORGVNBLADW, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK SlMl €-- ------------ '-----'----- 1 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKVREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. SIS seldi hlut í Islenzkum sjávarafurðum Samvinnulíf- eyrissj óðurinn keypti bréfin Samvinnulífeyrissjóðurinn var samkvæmt öruggiim heimildum Morgunblaðsins kaupandi hlutabréfa Sambandsins í íslenzkum sjáv- arafurðum hf., sem seld voru fyrir skömmu. Um var að ræða bréf að nafnvirði 30 milljónir króna, sem samsvöruðu 4,55% af hlutafé fyrirtækisins. Með sölunni komst eignarhlutur Sambandsins niður fyrir 50%, en Landsbankinn hafði gert Sambandinu aðvart um að ef móðurfélag ætti meira en heiming í dótturfyrirtæki, teldist það allt undir móðurfélaginu. Landsbankinn gerði þá kröfu að Samband- _Jð minnkaði hiut. sinn í ýmsum dótturfyrirtækjum til þess að bæta stöðu sína gagnvart bankanum, en innan hans gildir sú regla að einstakt fyrirtæki megi ekki skulda bankanum meira en 50% af eig- in fé hans. Reglugerð Samvinnulífeyris- sjóðsins var breytt í fyrra og sett í hana heimild fyrir sjóðinn að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum upp að vissu marki. Á síðastliðnu ári voru keypt bréf fyrir 156 miiljónir króna í Olíufélaginu hf., sem Sam- bandið á þriðjung í, og fyrir 40 milljónir í Vátryggingafélagi ís- iands hf., sem varð til með samruna Brunabótafélagsins og Samvinnu- trygginga. Sjóðurinn fjárfesti ekki í öðrum hlutafélögum á síðastliðnu ári, samkvæmt ársreikningum hans. Samvinnulífeyrissjóðurinn er eig- andi að einni hæð í Sambandshús- inu á Kirkjusandi, sem bókfærð er á 119 milljónir króna í ársreikning- unum. Margeir Daníelsson, fram- Rifshöfn 7 0 lítrar af áfengi finnast í Hofsjökli TOLLVERÐIR úr Tollgæslu íslands og lögreglumenn úr Ólafsvík fundu 70 lítra af áfengi í Hofsjökli, flutninga- skipi Samskipa, þegar skipið kom til Rifshafnar á Snæ- fellsnesi frá Bandaríkjunum í gær. Uppistaða smyglsins var vodki. Kristinn Ólafsson, tollgæslu- stjóri, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að skipið hefði séð til þess í gegnum árin að halda tollvörðum í_ þjálfun við leit að smygli. „Ég held að ekkert íslenskt skip hafí komið oftar við smyglsögu okkar, af þeim sem nú eru í flotanum," sagði hann. Fimm skipveijar eru á Hofs- jökli, sem eiga áfengið, og verða þeir að greiða samtals 200.000 krónur í sekt vegna þess. Áfengið fannst á nokkrum stöðum í lestum skipsins. Hofs- jökull kom til hafnar í Hafnar- fírði í gærkvöldi. Með í för voru tollverðirnir úr Reykjavík sem fundu áfengið við leit í flutn- -ingaskipinu. kvæmdastjóri Samvinnulífeyris- sjóðsins, sagði í samtali við Morgun- blaðið fyrr í vikunni að hæðin hefði meðal annars verið keypt af Sam- bandinu til að létta á stöðu þess. Aðspurður hvort hann teldi hæðina góða íjárfestingu — en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki tekizt að selja hlut Sambandsins í húsinu á almennum markaði — sagðist hann telja að svo væri. Hins vegar hefði það gerzt, sem stjómendur sjóðsins hefðu ekki átt von á, að leigjendur á hæðinni hefðu flutt út og ekki fengizt aðrir í staðinn. Sam- vinnulífeyrissjóðurinn hefur ekki sjálfur þörf fyrir heila hæð í Sam- bandshúsinu, en starfsmenn hans eru sex talsins, samkvæmt árs- skýrslu. Samvinnulífeyrissjóðurinn er líf- eyrissjóður starfsmanna Sam- bandsins, dótturfyrirtækja þess og tengdra fyrirtækja og kaupfélag- anna út um land. Formaður stjómar sjóðsins er Guðjón B. Ólafsson, for- stjóri Sambandsins. Morgunblaðið/Kristinn Síldarfarmur til Faxamjöls Keflvíkingur KE kom til hafnar í Reykjavík í gær og landaði þar 200 tonnum af sfld sem fóra til mjölvinnslu hjá Faxan\jöli hf. Áð sögn Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, framkvæmdastjóra Faxamjöls, er þetta fyrsti sfldarfarmurinn sem verksmiðjan tekur til vinnslu nú í haust. Hann sagði tilfallandi hráefnisskort hafa verið hjá verksmiðj- unni og sfldarfarmurinn nægði til tveggja daga vinnslu á mjöli sem færi í laxafóður. Myndin var tekin þegar unnið var að löndun í gær. Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytis 400 upp- sagnir til- kynntar TILKYNNINGAR um uppsagnir sem vinnumálaskrifstofu félags- málaráðuneytisins hafa borist og taka eiga gildi um næstu áramót snerta á fimmta hundrað laun- þega. Óskar Hallgrímsson, for- stöðumaður vinnumálaskrifstof- unnar, segir að jafn straumur tilkynninga hafi borist að undan- förnu en vænta mætti skæða- drífu tilkynninga siðustu daga mánaðarins. Hann sagði að borist hefði til- kynning frá íslenska jámbiendifé- laginu á Grandartanga um upp- sagnir 38 manna í vikunni, og væri það stærsta einstaka málið sem skrifstofunni hefði borist að undan- förnu. Tilkynningum hefði fjölgað eftir því sem liðið hefði á mánuð- inn. „Menn era að póstleggja þetta síðustu dagana fyrir mánaðamót og jafnvel síðasta daginn. Það gæti gerst að það kæmi eftir helgina skæðadrífa tilkynninga," sagði Óskar. Hann sagði að á seinni helmingi þessa árs hefði borist á fímmta hundrað tilkynningar um uppsagnir sem langflestar taka gildi um ára- mótin. „Það kemur ekki allt til framkvæmda. Það er skylt að til- kynna uppsagnir þótt um endur- skipulagningu sé að ræða og megn- ið af fólkinu verði ef til vill ráðið aftur. Það er því ekki hægt að draga miklar ályktanir af þessum tölum fyrr en á reynir," sagði Óskar. Uppsagnirnar eru í mörgum greinum atvinnulífsins, t.a.m. hjá þjónustufyrirtækjum eins og hótel- um, iðnfyrirtækjum og verktökum. Óheimilt er að sökkva úreldingarskipum í hafið hér víð land 100 skip send sem brotajám til Póllands á næsta áratug FORSVARSMENN Dráttarskipa hf. á Siglufirði eru í samninga- viðræðum við nokkur útgerðar- félög hér á landi um að félagið taki að sér að draga skip sem úrelt hafa verið til brotajárns- vinnslu í Póllandi. Þá áttu Drátt- arskip hagstæðasta tilboð í að draga 100 skip til brotajárns- vinnslu á næstu tíu árum, en áætlað er að það verði sá fjöldi skipa sem verði úreltur næsta áratug. Það var nefnd á vegum samgönguráðuneytisins sem ósk- aði eftir tilboðum í þetta verk- efni. Jóhannes Lárasson hjá Dráttar- skipum hf. sagði að mikil vinna væri framundan við að draga skip sem safnast hefðu fyrir í höfnum landsins til brotajárnsvinnslu er- lendis. „Samheiji á Akureyri á þrjú skip, tvo báta og einn togara, tvö þeirra eru á Akureyri og eitt í Njarðvík. Vinnslustöðin í Vest- mannaeyjum er með eitt úreldingar- skip og við vitum af einu á Siglu- firði, Stapavíkinni. Ég held að það séu a.m.k. sextán skip nú þegar í höfnum landsins sem þarf að eyða. Við höfum sett okkur í samband við þessa aðila vegna þess að það verður ekki leyfílegt að sökkva þessum skipum. Það þarf því að koma þeim úr landi því hér á landi er engin aðstaða til að brenna skip- in í sundur," sagði Jóhannes. Hann sagði að hér væri ekki um arðbært fyrirtæki að ræða en það veitti þó vinnu og Dráttarskip hefðu staðið frammi fyrir verkefnaskorti. Skipin verða dregin til Póllands þar sem þau verða unnin í brotajárn, en ekkert verður greitt fyrir skips- skrokkana. „Það er samt ódýrara að draga þau út en að vinna þau í brotajárn hérlendis. Útgerðarfélög- in greiða fyrir að láta draga úreld- ingarskipin erlendis. Við þurfum að draga tvö og helst þijú í hverri ferð svo þetta standi undir sér,“ sagði Jóhannes. Hann sagði að Hvanneyri, skip Dráttarskipa, yrði notað í þetta verkefni, en það væri nú að draga dýpkunarpramma í eigu danskra aðila til Danmerkur. Á viðræðustigi væri að á heimleiðinni drægi skipið 500 metra langa leiðslu í heilu lagi frá Noregi, en hún verður hluti skolplagnar frá dælustöðvum í Reykjavík. Sænskir hjartasjúkl- ingar fresta komu sinni EKKERT verður af komu sænskra hjartasjúklinga hingað til lands í nóvember, til að gangast undir aðgerðir á Landspítalanum. Svíar hafa ákveðið að fresta því að senda sjúklingana hingað, vegna erfíðs efnahagsástands heima fyrir. Fyrirspurn barst frá Svíþjóð í vor, um möguleikana á því að sænskir hjartasjúklingar gengjust undir aðgerðir á hjartaskurðdeild Landspítalans og átti fyrsti hópurinn að koma til landsins í nóvember. Áætlað hafði verið að nokkrir tugir Svía kæmu hingað til lands á ári hveiju og ef til vill fleiri þegar fram í sækti. Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkis- spítalanna, sagði að Svíar hefðu nýlega haft samband og sagt að komu fyrsta hópsins hefði verið frestað um óákveðinn tíma, vegna erfíðs efnahagsástands í Svíþjóð.. Davíð kvað ekki hægt að segja til um það nú hvenær sænskir sjúklingar kæmu hingað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.