Morgunblaðið - 02.10.1992, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992
Rússar byrjaðir að landa ísfiski í Bretlandi
Líklega engin áhrif á
landanir frá Islandi
- segir Pétur Björnsson fram-
kvæmdastjóri Isbergs í Hull
RÚSSNESKUR togari landaði um 150 tonnum af ísuðum þorski í
Hull síðastliðinn mánudag, og að sögn Péturs Björnssonar fram-
kvæmdastjóra umboðsfyrirtækisins Isbergs í Hull er þetta að öllum
líkindum í fyrsta skipti sem rússneskur togari landar ferskfiski í
Bretlandi. Pétur sagði togarann hafa fengið um 100 krónur á kíló-
ið, en sama dag fengust 130-150 krónur fyrir íslenskan þorsk sem
seldur var í Hull. Pétur sagðist ekki álíta að landanir rússneskra
togara í Bretlandi hefðu áhrif á landanir frá íslandi í bráðina.
„Fiskurinn sem rússneski togar-
inn landaði leit ágætlega út að því
leytinu til að hann var ferskur, en
það var hins vegar mikið los í hon-
um. Ég er ekki frá því að það eigi
eftir að endurtaka sig í einhverjum
mæli að Rússar landi hér, en ég
hef orðið var við að það eru ákveðn-
ar fyrirspurnir í gangi varðandi
þetta. Þeir eru með nokkuð stóra
afiakvóta í Barentshafi og með stór-
an flota, en það sem þeir hafa ekki
heilfryst sjálfír um borð í skipun-
unm hafa þeir lagt upp töluvert í
Noregi. Það virðist hins vegar vera
nokkuð minni áhugi fyrir þeim við-
skiptum í augnablikinu," sagði Pét-
ur.
Hann sagði landanir rússneskra
togara í Bretlandi að öllum líkindum
ekki hafa mikil áhrif á sölur frá
íslandi. Bæði væri það vegna þess
að núorðið kæmi sáralítið af fersk-
um þorski héðan á markað, og einn-
ig væri meðhöndlun aflans um borð
í rússnesku togurunum mun lakari.
„Þetta hefur því kannski ekki
nein afgerandi áhrif fyrir okkur,
því það er yfírleitt mikið los í þess-
um físki og hann fer því meira til
vinnslu. Það hafa hins vegar komið
þúsundir tonna af heilfrystum físki
af rússneskum togurum síðustu
mánuði, og þetta er í sjálfu sér
grein af sama meiði,“ sagði Pétur.
Magnús Ver með forystu
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Magnús Ver Magnússon hefur forystu eftir fyrsta
keppnisdag af þremur í keppninni um titilinn Sterk-
asti maður heims, sem hófst hér á landi í gær. íslend-
ingurinn sigraði í keppni þessari í fyrra, og segist
staðráðinn í að halda titlinum. Magnús varð fjórði
í fyrstu grein gærdagsins, annar í þeirri næstu og
sigraði í þriðju greininni. Myndin var tekin við það
tækifæri, en hver kappanna tíu þurfti þá að vaða út
í Bláa lónið, sækja sex tunnur sem möruðu í hálfu
kafí, fara með þær á land og iyfta upp á pall. Hver
tunna vó 100 kg. Magnús var hálfri mínútu á und-
an næsta manni í þessari grein. Hann er til hægri
á myndinni, en til vinstri er Gary Taylor frá Wales.
Sjá nánar um keppnina á bls. 20.
Guðmundur Óli Hauksson
Drengur-
inn sem lést
Drengurinn sem lést eftir slys
í Sundlaug Kópavogs á miðviku-
dag hét Guðmundur Óli Hauks-
son.
Guðmundur Óli var níu ára,
fæddur 16. febrúar árið 1983.
Hann var sonur hjónanna Birnu
Bjarnadóttur og Hauks Ingibergs-
sonar, til heimilis að Kársnesbraut
69 í Kópavogi.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur andmælir opnun verzlana á sunnudögum
VSI tilbúið til viðræðna
um tryggingu hvfldartíma
♦ ♦ ♦
Ekið á teipu í
Lækjargötu
TÍU ára telpa varð fyrir bíl í
Lækjargötu á móts við Iðnó um
kl. 19.30 í gærkvöldi.
Að sögn lögreglunnar meiddist
telpan á hægra fæti, en ekki var
talið að um aivarleg meiðsl væri
að ræða.
STJÓRN og trúnaðarmannaráð Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
andmæla þeirri ákvörðun ýmissa kaupmanna að hafa verzlanir sínar
. opnar á sunnudögum og telja að hún brjóti í bága við lög og kjara-
samninga. Á fundi forystu VR á miðvikudagskvöld var þó ákveðið
að leggja ekki á yfirvinnubann, eins og um hafði verið rætt. Tilefn-
ið var bréf Vinnuveitendasambands íslands til VR, þar sem lýst var
áhuga á viðræðum um lausn málsins. Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdasljóri VSÍ, segir að vinnuveitendur vilji tryggja að ákvæði
laga um hvíldartíma launþega séu virt.
„Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur efast um að með opnun verzl-
ana á sunnudögum sé ákvæði laga
um vikulegan frídag launþega full-
nægt,“ segir m.a. í ályktun stjórnar
og trúnaðarmannaráðs VR frá því á
miðvikudagskvöld. „Ljóst er að
kaupmenn nota sér erfítt atvinnu-
ástand til að þvinga starfsmenn sína
beint og óbeint til að vinna á sunnu-
dögum. Lengri afgreiðslutími leiðir
til óeðlilegs vinnuálags á verzlunar-
menn. Vinna á sunnudögum, eina
vikulega frídegi verzlunarmanna,
bitnar óhjákvæmilega á fjölskyldulífí
þessa fólks.“
„Við fórum ofan í þetta mál og
okkar niðurstaða var sú að frá því
að reglugerð Reykjavíkurborgar um
afgreiðslutíma var meira og minna
afnumin fyrir tæplega tveimur
árum, megi heita að afgreiðslutími
verzlana hafí í reynd verið frjáls,"
sagði Þórarinn V. Þórarinsson í sam-
SfiS*g Þriðjungurnemenda, Kristina
(f sem hefia nam i(ramhalrf«lrrila ÍV'**1* ^
Smit hefur greinst víða vestan
Eyjafjarðarár og Þjórsár 7
Útsendingartími veðurfregna
breytist________________________
Skiptar skoðanir um hvort breyt-
ingarnar eru til bóta 16 og 21
Jqfntefli hjá Fischer og Spasskí Dugldgt líf
Örlítið betri staða Fischers dugði
ekki til vinnings 20
Leiðari ________________________
Staða kvenna í nýrri Evrópu 24
Fasteignir
► I skjóli friðhelgi heimiia -
Mazda 121 í reynsluakstri - Lífs-
stfll Suður-Asíubúa - Ford fjár-
festir í nýjum bílvélum - Um verð- sófasettin - Bókahillur - Smiðjan
lagningu okkar á ferðaþjónustu
► Setbergshlið í Hafnarfirði -
Byggingarkostnaður - Bóta-
skylda leigjenda - Chesterfield
tali við Morgunblaðið. „Afgreiðslu-
tíminn hefur vikið verulega frá þeim
ákvæðum, sem áður voru skráð í
kjarasamninga og tóku mið af regl-
um Reykjavíkurþorgár. Þetta var
þróun, sem var orðin þegar við geng-
um frá kjarasamningum í vor þann-
ig að í raun hefði sú skylda með
réttu átt að hvíla á báðum samnings-
aðilum að hafa frumkvæði að því
að ræða þessi mál og breyta þessum
samningsákvæðum, annaðhvort til
þess vegar sem hlutir voru eða með
öðrum hætti."
Þórarinn sagði að greinilegt væri
að verzlunareigendur litu svo á að
fyrmefnd ákvæði kjarasamninga
væru í reynd óvirk vegna breyting-
anna á reglugerð borgarinnar. „Við
gerum okkur hins vegar grein fyrir
þeim aðstæðum, sem Verzlunar-
mannafélagið bendir á; að ekki sé
fyllilega tryggt að fólk, sem vinnur
í verzlunum sem hafa opið sjö daga
vikunnar, fái lögboðna hvíld. Þar
hvílir á okkur nokkur skylda að hafa
okkur í frammi og við erum reiðu-
búnir til viðræðna við Verzlun-
armannafélagið um það hvemig
tryggja megi að hvíldartímaákvæði
séu virt með viðunandi hætti.“
Pétur A. Maack, varaformaður
Verzlunarmannafélagsins, sagði,
aðspurður hvers vegna ekki hefði
verið ákveðið á fundi stjómar og
trúnaðarmannaráðs að fara út í yfir-
vinnubann, að verzlunarmenn vildu
reyna að fara friðsömu leiðina í
þessu máli. „Við viljum leita leiða á
friðsaman hátt til að leysa þessa
deilu og fá kaupmenn til að virða
kjarasamninginn. Við viljum ekki
fara af stað með hamagangi á þessu
stigi málsins," sagði Pétur. „Við
finnum að verið er að bjóða upp á
vissa leið. Vinnuveitendasambandið
hefur í bréfí getið þess að ástæða
sé til að taka upp viðræður um þessi
mál. í skjóli þess, og eins eftir við-
töl við ýmsa vinnuveitendur, teljum
við þessa leið vænlegri til árangurs
en að blása í herlúðra á þessari
stundu. Það segir ekki að við séum
endanlega búin að afskrifa eitt eða
neitt.“
Morgunblaðið/Ingvar
*
Arekstur
bifhjóls og
valtara
Tvítugur piltur á bifhjóli slasað-
ist þegar hann ók á kyrrstæðan
valtara á Vogatungu í Kópa-
vogi skömmu eftir hádegið í
gær. Að sögn Iögreglunnar var
valtaranum ekið út á götuna,
en þegar ökumaður hans sá til
piltsins á hjólinu stöðvaði hann
farartækið. Pilturinn lenti beint
framan á valtaranum og fót-
brotnaði hann illa á vinstra
fæti við áreksturinn.