Morgunblaðið - 02.10.1992, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992
Norræna félagið 70 ára
Á _þessu ári er Norræna félagið
á Islandi 70 ára, en stofnfundur
þess var haldinn í Reykjavík 22.
september 1922.
Kvikmynd-
in Pjalla-
hótelið sýnd
íMÍR
FJALLAHÓTELIÐ nefnist
kvikmynd sem sýnd verður í
bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, nk.
sunnudag, 4. október, kl. 16.
Fjallahótelið var gerð á áttunda
áratugnum í Tallin, Eistlandi, und-
ir leikstjóm Grígoríj Kromanovs.
í myndinni er sagt frá því er rann-
sóknarlögreglumaðurinn Glebskíj
fær boð um að halda til íjallahót-
els eins, sem ber það skrítna nafn
Dauði íjallgöngumaðurinn. Lög-
reglumaðurinn verður einskis
grunsamlegs var á hótelinu en
fínnst þó sitthvað sérkennilegt við
staðinn. Og þegar snjóflóð teppir
veginn að hótelinu og veldur því
að lögreglumaðurinn kemst ekki í
burtu fara einkennilegir og dular-
fullir atburðir að gerast. Skýringar
eru með myndinni á ensku.
Aðgangur að kvikmyndasýn-
ingum MIR er ókeypis og öllum
heimill.
Markmið Norræna félagsins er
og hefur ætíð verið að efla sam-
vinnu norrænna þjóða, en sam-
svarandi félög em einnig starfandi
á Álandseyjum, í Finnlandi, Fær-
eyjum, á Grænlandi, í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð. Heildarfjöldi
félagsmanna Norrænu félaganna
er yfir 100.000 og þar af em um
7.000 félagar í Norræna félaginu
á íslandi. Norrænu félögin era því
fjölmennasti vettvangur Norrænn-
ar samvinnu og eru á vegum þeirra
eða í samvinnu við þau haldin ár-
lega fjölmörg námskeið, mót og
stefnur um margvísleg efni.
Afmælisins verður minnst með
tvennum hætti. Laugardaginn 3.
október verður haldin ráðstefna í
Norræna húsinu, þar sem formenn
félagsdeilda og fastanefnda Nor-
ræna félagsins ræða m.a. framtíð
Norræna félagsins í Ijósi stöðu
norræns samstarfs í dag og vænt-
anlegra breytinga í kjölfar aukins
stjórnmálalegs samstarfs milli
Norðurlandanna og annarra Evr-
ópuríkja. Sunnudaginn 4. október
kl. 14 verður afmælisins síðan
minnst með samfelldri dagskrá í
íslensku óperanni. Þar mun lista-
fólk koma fram og flytja norræna
tónlist, lýst verður broti úr æsku-
lýðsstarfsemi félagsins og ávörp
flutt. Meðal flytjenda tónlistar má
nenfa Tjamarkvartettinn úr
Svarfaðardal, Auði Hafsteinsdótt-
ur fiðluleikara og finnska vísna-
söngvarann og lagasmiðinn Bengt
Ahlfors. Aðalræðu dagsins flytur
dr. Gylfi Þ. Gíslason, fyrrv. ráð-
herra. Hátíðin í íslensku óperanni
er öllum opin meðan húsrúm leyf-
ir. Formaður Norræna félagsins á
íslandi er Haraldur Ólafsson, dós-
ent við Háskóla íslands.
(Fréttatilkynning)
Eiður Guðnason umhverfisráðherra tekur við bókagjöfinni af Janet
S. Andres, starfandi sendiherra Bandaríkjanna hér á landi.
Umhverfisráðuneyti fær bókagjöf frá Bandaríkjunum
Hvalreki að fá þessar bækur
- segir Magnús Jóhannesson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra
Umhverfisráðuneytinu hefur borist vegleg bókagjöf frá Bandaríkjun-
um og var gjöfin afhent í vikunni af Janet S. Andres, starfandi sendi-
herra Bandaríkjanna hér á landi. „Þessi bókagjöf er hvalreki fyrir
okkur því þetta er safn bóka sem tekur á öllum þáttum umhverfis-
mála,“ segir Magnús Jóhannesson, aðstoðarmaður umhverfísráð-
herra.
Umhverfisvemdarstofnun Banda-
ríkjanna gefur bækurnar, en um er
að ræða ritgerðir, úttektir og rann-
sóknir á ýmsum þáttum umhverfis-
mála á undanförnum áram. Magnús
segir að í þessum bókum sé margt
sem getur komið íslendingum að
góðum notum, svo sem förgun úr-
gangs, verndun vatns og mengun-
arvarnir.
„Bókagjöf þessi mun efla bókakost
ráðuneytisins og nýtast starfsmönn-
um þess sem og öðrum sem áhuga
hafa,“ segir Magnús. „Bókasafn
ráðuneytisins er aðgengilegt þeim
sem vilja kynna sér umhverfismál."
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi
EB
GONGUSKOR
yp5q Stefnt að stofnun fiskmarkað-
ar á norðanverðum Austfjörðum
ISLAND Stærðir4047.
Verðkr. 13.780,-
ISLANDLADYStærðir 36-41.
. Verðkr. 12.970,-
útiléf:
GLÆSIBÆ, SÍMI812922
Geitagerði.
Á AÐALFUNDI Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi,
sem haldinn var á Höfn í Hornafírði nýlega, var stjórn sambands-
ins falið að vinna að stofnun fiskmarkaðar á norðanverðum Aust-
fjörðum. Á fundinum komu fram miklar áhyggjur vegna ört vax-
andi atvinnuleysis hér á landi og í ályktun segir að ljóst sé að
atvinnuleysi eigi eftir að aukast mikið á komandi mánuðum verði
ekki brugðist við því með markvissum aðgerðum. Á samdráttartím-
um sé mjög mikilvægt að rikisvaldið geri hvað það geti til að skapa
aukna atvinnu. Á Austurlandi verði það m.a. gert með því að út-
deila veiðiheimildum Hagræðingarsjóðs til þeirra byggðarlaga, sem
verst verða úti vegna skerðingar á þorskveiðiheimildum. Einnig
að stuðla að og styrkja ýmis sérverkefni í sjávarútvegi, flýta ýms-
um verkefnum, m.a. í vegagerð og hlúa að vaxtarbroddum í ferða-
mannaiðnaði.
Á aðalfundinum var rætt um
atvinnumál á Austurlandi og í
ályktun kemur fram að það sé
skylda Austfirðinga að kanna þær
leiðir til hlítar, sem hagkvæmar
þyki að því marki að ná fullum
rétti til að virkja auðlind vatnsafls-
ins, þegar færi gefast, einir, eða
með öðram. Þá var stjórn sam-
bandsins falið að kanna hvort
mögulegt væri að stofna heildar-
samtök atvinnurekenda á Austur-
landi.
Þá var samþykkt að fela stjórn
sambandsins að koma á laggirnar
samráðsnefnd framhaldsskóla-
stigsins á Austurlandi, sem verði
skipuð fulltrúum sveitarfélaga,
Stjómunarnefndar framhalds-
náms á Austurlandi og mennta-
málaráðuneytisins. Nefndinni er
m.a. ætlað að vinna að samningum
sveitarfélaga og ríkis um fram-
haldsskóla á Austurlandi. Stjórn
SSA var falið að fara þess á leit
við menntamálaráðuneytið að það
kosti störf nefndarinnar.
Fjallað var um samgöngumál
og var þeim tilmælum beint til
samgönguráðherra að hann beiti
sér fyrir því að nefnd um jarð-
gangagerð á Austurlandi, sem
skipuð var af fyrrverandi sam-
gönguráðherra árið 1988, skili áliti
hið fyrsta. Þá samþykkti aðalfund-
urinn að skora á alþingismenn að
samþykkja tillögu til þings-
ályktunar frá Hjörleifi Guttorms-
syni o.fl. um aðgerðir til að tryggja
vegarsamband á hringveginum
yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi
í Austur-Skaftafellsgýslu.
SACHS HÖGGDEYFAR
SACHS verksmiðjurnar eru leiðandi framleiðendur á höggdeyfum og
kúplingum í evrópska og japanska bíla.
ÓSKALÍNAN FRÁ SACHS TRYGGIR ÖRYGGIOG AKSTURSEIGINLEIKA
Þá skoraði aðalfundurinn á
Vegagerð ríkisins að auka snjó-
mokstur frá því sem nú er á snjó-
mokstursleiðum á Austurlandi og
auka sveigjanleika varðandi snjó-
mokstursreglur. Einnig var því
beint til Vegagerðar ríkisins að
nú þegar verði gefnar út skýrar
reglur, sem geri sveitarstjórnum
kleift að stemma stigu við hrað-
akstri á þjóðvegum í þéttbýli. Loks
var fagnað þeim árangri í sam-
göngumálum fjórðungsins, sem
væri í sjónmáli með byggingu
Egilsstaðaflugvallar.
Á fundinum var samþykkt að
hvetja alla sveitarstjórnamenn til
virkrar þátttöku í umræðu um
samrana sveitarfélaga í stærri
stjórnsýslueiningar. Aðalfundur-
inn taldi æskilegt að verkefni fær-
ist frá ríki til sveitarfélaga ef þess
væri jafnframt gætt að sveitarfé-
lögunum væra tryggðir fullnægj-
andi tekjustofnar á móti. Lögð var
áhersla á að ekki komi til greina
að sveitarfélögin verði þvinguð til
sameiningar með valdboði heldur
verði það sjálfstæð ákvörðun
þeirra eftir að vandlega hafa verið
metnir kostir og gallar hins nýja
skipulags. Benti fundurinn á sam-
einingar syðstu hreppa Suður-
Múlasýslu sem jákvæða þróun í
þá átt. Jafnframt undirstrikaði
fundurinn nauðsyn þess, að stuðl-
að verði að sameiningu sveitarfé-
laga með ýmsum óbeinum hætti,
svo sem með samgöngubótum.
Albert Eymundsson, Höfn í
Hornafírði, var kjörinn formaður
Sambands sveitarfélaga á Austur-
landi en Arnbjörg Sveinsdóttir,
Seyðisfirði, sem verið hefur for-
maður SSÁ sl. 3 ár, lét af störfum
samkvæmt reglum sambandsins
um kjör stjórnarmanna.
- G.V.Þ.
♦ ♦ ♦
Norræna húsið
Kvikmynda-
sýningar
fyrir börn
SÝNINGAR á barnamyndum
hefjast í Norræna húsinu á morg-
un, sunnudag, kl. 14. Þetta er
orðinn fastur liður í vetrardag-
skránni að hafa kvikmyndasýn-
ingar fyrir börn á hverjum
sunnudegi.
Fyrsta myndin sem sýnd verður
í vetur er danska myndin Otto er
et næsehorn eftir sögu Ole Lund
Kirkegaard. í fréttatilkynningu frá
Norræna húsinu segir um sögu-
þráðinn: „Vinirnir Topper og Viggo
búa í dæmigerðum dönskum hafn-
arbæ. Ðag einn finna þeir töfrablý-
ant sem getur töfrað fram hina ólík-
legustu hluti, m.a. stóran gulan
nashyrning og þá fara að gerast
ýmsir kynlegir hlutir í bænum ...“
Myndin er ætluð börnum á öllu
aldri og er hún um 90 mínútna löng
með dönsku tali. Allir eru velkomn-
ir og er aðgangur ókeypis.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA!
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURUNDSBRAUT 8 • SlMI: 81 46 70 • FAX: 68 58 M
Fyrirtækjasalan Braut
Óskum eftir öllum fyrirtækjum á söluskrá.
Fljót og góð þjónusta.
Fyrirtækjasalan Braut,
sfmi 626643, heimasími 36862.