Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992
11
Hvað er eigin-
lega á seyði?
efíir Einar Braga
Sú ótrúlega fregn hefur flogið-
úr sölum alþingis að þar séu til
menn sem hafi í hyggju að inn-
leiða á nýjan leik illræmdan
refsiskatt á bækur sem þingið
afnam fyrir skömmu öllum góð-
um mönnum til léttis og ájiti
þjóðarinnar útávið til þarfrar við-
reisnar.
í heila hvers fæðist eiginlega
svona hugmynd?
Ekki hafa þingflokksmenn
Sjálfstæðisflokksins breyst í því-
líka umskiptinga í skyndi að þeir
séu nú einhuga um að endur-
vekja þennan menningarskað-
lega skatt sem landsfundur
flokksins 1989 tók skelegga af-
stöðu gegn („ÖIl útgáfu- og
menningarstarfsemi verði und-
anþegin virðisaukaskatti") og
þáverandi þingmenn flokksins
(sem margir hveijir sitja enn á
þingi) felldu síðan úr gildi með
stolti eins og raunar allur þing-
heimur. Orðalag landsfundar-
samþykktarinnar ber augljóst
yfirbragð stefnumörkunar
stærstu stjórnmálasamtaka
landsins í stórmáli. Það væri
meiri hringlandaháttur en ábyrg-
um stjórnmálaflokki er ætlandi,
ef tveim árum síðar hefði á
landsfundi verið gengið þvert á
þessa grundvallarstefnu hans
með jafnalmennri samþykkt og
þeirri, að undirbúa bæri lækkun
skatthlutfalls og ná því mark-
miði „með breikkun skattstofns-
ins (afnámi undanþága).. .“ Ég
leyfi mér að fullyrða að fáir
þeirra sem greiddu ' þessu at-
kvæði hafi skilið svigaorðin tvö
á þá lund, að nú skyldi öll út-
gáfu- og menningarstarfsemi
skattlögð á ný, enda vandséð
hvað hefði getað réttlætt slíka
kúvendingu.
Hver trúir að forsætisráðherr-
ann Davíð Oddsson, félagsmaður
í Rithöfundasambandi íslands og
Bandalagi íslenskra listamanna,
eigi frumkvæði að skattpíningu
menningar eða ljái henni fylgi?
Ég fæ ekki séð að Rithöfunda-
sambandið ætti annars úrkosti
en víkja úr samtökunum hverjum
sem jafngróflega réðist gegn
brýnustu lífshagsmunum félags-
manna. Það þættu tíðindi trúi
ég í Evrópu og kannski víðar um
álfur að forsætisráðherra bóka-
þjóðarinnar íslensku hefði verið
rekinn úr samtökum rithöfunda
fyrir að leggja lestrarskatt á
bækur. Algjörlega er útilokað að
menntamálaráðherra ljái máls á
annarri eins ósvinnu og sérskött-
un námsfólks og bókelskra barna
eða öllu heldur foreldra þeirra,
því að þar er kominn sá hópur
sem ómögulega gæti flúið lestr-
arskattinn með því að fresta
bókakaupum uns honum yrði
aflétt. Eða landbúnaðarráðherr-
ann — sonur bókavarðar við
Einar Bragi
„Ekki hafa þing-
ílokksmenn Sjálf-
stæðisflokksins
breyst í þvílíka um-
skiptinga í skyndi að
þeir séu nú einhuga
um að endurvekja
þennan menningar-
skaðlega skatt sem
landsfundur flokks-
ins 1989 tók skelegga
afstöðu gegn.“
Landsbókasafn, dóttursonur
bókavarðar við Landsbókasafn
og útgefanda íslendingasagna —
hvað þýðir að telja manni trú
um að hann fáist til að skatt-
leggja bókmenntir og aðra lista-
starfsemi? Ég nefni aðeins þessa
þijá áhrifamenn í Sjálfstæðis-
flokknum sem gjörsamlega er
óhugsandi að láti leiðast útí það
spellvirki gegn íslenskri menn-
ingu sem endurvakning virðis-
aukaskatts á bækur væri. Annað
eins og það gera menn bara ekki
í þeirra stöðu. Og hver er sá
burgeis í Sjálfstæðisflokknum
sem gæti samfylkt öðrum þing-
mönnum flokksins til krossfarar
gegn bókmenntum í harðri and-
stöðu við þessa máttarstólpa?
Ég bara spyr.
Eini þingmaður sem opinskátt
hefur við því gengist að vilja
leggja vítisaukaskatt á íslenska
menningu er fjármálaráðherr-
ann. Honum er vorkunn af því
að sá sem í þann stólinn sest er
næstum tilneyddur að benda á
hveija fjáröflunarleið sem hann
eygir, án þess að skeyta um
skömm eða heiður. En aðrir hafa
ekki þá afsökun.
Höfundur er rithöfundur.
Þorvaldur Þorsteins-
son sýnir í Gerðubergi
OPNUÐ veður sýning á verkum
Þorvaldar Þorsteinssonar mynd-
listamanns í menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi í Breiðholti
mánudaginn 5. október kl. 20.00.
Á sýningunni eru lágmyndir sem
Þorvaldur hefur verið að vinna að
á undanförnum átta árum þar sem
hann fjallar m.a. um hinar lang-
vinnu landamæradeilur Rusllands
og Listlands. Fjöldi listamanna á
þessari öld hefur lagt sitt að mörk-
um til að sætta þessi nágrannaríki
og er sýningin í Gerðubergi þar enn
eitt lóð á vogarskálarnar.
Þorvaldur lauk námi frá Nýlista-
deild MHÍ 1987 og framhaldsnámi
frá Jan van Eyck Akademie í Ma-
astricht 1989. Hann hefur sýnt víða
erlendis og hér á landi á undanförn-
um árum, síðast í Nýlistasafninu
og á Mokka í janúar á þessu ári.
Hann hefur auk þess framleitt bók-
verk og vídeóverk, stjórnað Vasa-
leikhúsinu á Rás 2 og í sumar sýndi
P-leikhópurinn eftir hann leikverkið
í tilefni dagsins.
Sýningunni lýkur 3. nóvember.
Hún er opin á mánudögum-
fimmtudaga frá kl. 10-22, föstu-
dögum og laugardögum frá kl.
13-16. Lokað á sunnudögum.
EESÍ
OKKARÞÁGU
• EES-samningurinn eflir íslenskt
atvinnulíf og bætir lífskjör
landsmanna. Öflugt atvinnulíf
er forsenda raunverulegs
sjálfstæðis.
• EES er besti kosturinn í sam-
skiptum okkar við önnur
Evrópuríki. EES tryggir hags-
muni okkar og annar jafngóður
kostur er ekki í augsýn.
• EES dregur úr höftum og
viðskiptahindrunum og eykur
frelsi og samkeppni til hagsbóta
fyrir neytendur.
• EES eykur fjölbreytni í
atvinnulífi og skapar
fleiri og áhugaverðari störf.
• EES gefur okkur fleiri tæki-
færi til útflutnings sjávar-
afurða á mikilvægasta
markað okkar.
• EES stuðlar að áfram-
haldandi stöðugleika
hér á landi.
ATVINNULÍFÍÐ
STYÐUR EES
Vinnuveitendasamband íslands • Samband veitinga- og gistihúsa • Landssamband iðnaðarmanna
Verktakasamband íslands • Samtök fiskvinnslustöðva • Apótekarafélag íslands • Útflutningsráð íslands
Verslunarráð íslands • Félag blikksmiðjueigenda • Félag íslenskra iðnrekenda • Félag íslenska prentiðnaðarins
Landssamband bakarameistara • Landssamband veiðarfæragerða • Hárgreiðslumeistarafélag íslands
Félag löggiltra rafverktaka í Reykjavík* Landssamband íslenskra útvegsmanna
Meistara- og verktakasamband byggingamanna • Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda
Málmur (samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði)