Morgunblaðið - 02.10.1992, Side 31

Morgunblaðið - 02.10.1992, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 31 Minning * _____ OlafurE. Gestsson pípulagningamaður Fæddur 29. janúar 1927 Dáinn 25. september 1992 í dag er til moldar borinn ástkær faðir minn, Ólafur E. Gestsson, Unufelli 50, Reykjavík, sem lést 25. september síðastliðinn á Borgarspítalanum. Fyrir um tveimur árum greindist hann með þann sjúkdóm er að lok- um sigraði. Pabbi fæddist í Reykja- vík en var á sumrin hjá móðurafa sínum og ömmu í Stykkishólmi, þar sem hann undi hag sínum vel. Hann starfaði við pípulagningar mestan hluta ævinnar. í febrúar 1950 giftist hann móð- ur minni, Ingibjörgu Axelsdóttur úr Reykjavík, og var hún hans stoð og stytta alla tíð og þá ekki hvað síst í veikindum hans. Foreldrar mínir hófu búskap í Reykjavík og bjuggu þar alla tíð. Margs er að minnast þegar litið er yfír farinn veg og þá sérstakleg- as lífsgleðinnar er einkenndi hann svo mjög. í sumar var hann búinn að vera um tíma á sjúkrahúsi er hann dreif sig á fætur og keypti sér nýjan bfl, en allir töldu að hann ætti stutt eftir. Þegar nýi bíllinn var kominn lifnaði hann allur og efldist. Dreif sig á Þingvöll og fór vestur í Stykkishólm að sjá æsku- stöðvarnar. Þangað var farið með stuttum fýrirvara því pabbi las auglýsingu um hús til leigu þar, hringdi og pantaði húsið og dreif mig, Unni og Axel litla með. Áttum við þar ánægjulega viku saman. Þá rifjaði hann upp æsku sína þar og einnig ræddi hann það sem framundan væri og virtist sáttur við að kallið kæmi þá og þegar þó hann ætti sína drauma. Pabbi naut þess að vera úti í náttúrunni og taka með sér veiðistöng og nesti. Að leiðarlokum vil ég, Unnur og Axel litli þakka sérstaklega sumar- ið í sumar, þar sem við pabbi náð- um mjög vel saman. Vil ég loks þakka starfsfólki Borgarspítalans á deild A-7 fyrir elskulega umönn- un við pabba þann tíma sem hann þurfti að dvelja á spítala. Guð blessi pabba og styrki þig elsku mamma. Axel Ólafsson. Nú er afi minn farinn til Guðs. Um hann á ég margar góðar minningar. í sumar sem leið fórum við að veiða silung. Afi kastaði og ég fékk að draga inn. Það fannst mér gaman. Við fórum líka á Þing- völl með gúmíbát. Við máttum ekki fara of langt út á vatnið því þá var amma hrædd. Ég veit að ég á eft- ir að sakna hans mikið en hugga mig við það að nú líður honum vel. Eg vil að lokum þakka afa mín- um samverustundirnar. Hvíli hann í friði. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guð englar saman í hring sænginni yfir minni. Axel litli. „Deyr fé, deyja frændur deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim sér góðan getur. í dag verður til moldar borinn, elskulegur bróðir okkar, hann lést á Borgarspítala 25. september, eft- ir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Það er erfitt að trúa því að hann sé horfinn sjónum okkar, svo hetjulega bar hann sín veik- indi, kvartaði aldrei, ávallt stutt í brosið. Óli var sérlega skapgóður og jákvæð persóna. Það geislaði frá honum kærleika. Ólafur fæddist í Reyjavík, sonur Guðrúnar Ólafs- dóttur og Gests Hannessonar, pípu- lagningameistara. Guðrún lést 1979, en Gestur lifir son sinn. Eiginkona Ólafs er Ingibjörg Axelsdóttir og varð þeim 6 barna auðið, barnabörnin eru 9 og barna- barnabörn 4. Inga og Óli, eins og við köllum þau, voru mjög samrýnd, þau minntu oft á unglinga þegar þau voru að ferðast saman og það voru þau dugleg við, bæði innanlands og utan. Það er sárt að sjá á bak elsku- legs bróður, en von um endurfund hjálpar í sorginni. Með þessum fá- tæklegu línum kveðjum við Óla okkar. Guð gefi Ingu og börnum styrk í sorginni. Minningin um góð- an dreng lifir. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Systkinin. Sigurður Hall- dórsson - Minning Fæddur 4. desember 1913 Dáinn 26. september 1992 Hinn 26. september sl. var hringt í mig að heiman vegna þess að afí hafði dáið þá um morguninn. Afi fæddist í Húsey í Hróars- tungu 4. desember 1913. Ég á margar kærar minningar um afa, bæði á Egilsstöðum og heima f Garðabæ. Hann var hjá okkur flest jól eftir að hann flutti aftur austur á árinu 1978, en þá hafði hann dvalið í Reykjavík í 5 ár vegna veikinda ömmu, Guðrúnar Ingi- bjargar Guðmundsdóttur, en hún lést í janúar 1977. Afi gat endalaust setið með okk- ur krökkunum við að leysa alls konar þrautir og leiki. Hans líf og yndi var að fást við tölur og þess vegna voru störf hans við bókhald honum hugleikin. Hann vann lengi á skrifstofu Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðum eða þar til fyrir tveimur árum. Þá orðinn 76 ára en vildi hafa eitthvað að fást við og keypti sér þá tölvu og byijaði að læra á hana. Okkur krökkunum fannst alltaf gaman að sjá hvað stóru hendurnar hans voru fimar á tökkunum. Jafnaðargeð afa var alveg ein- takt, alltaf sömu rólegheitin, hann skipti aldrei skapi eða hækkaði röddina og oft var nú hávaði í okk- ur krökkunum og mamma að reyna að þagga niður í okkur. Þau þurfa nú aðeins að hreyfa sig, sagði þá afi. Mér þykir það leitt að geta ekki verið með fjölskyldu minni og skyldmennum á þessari sorgar- stundu og geta ekki fylgt afa mín- um til hinstu hvíldar. Fráfall ástkærs afa míns skilur eftir sig stórt skarð en ástin og allar þær minningar sem ég á um hann hjálpa mér núna við fráfall hans. Megi guðs náð og kærleikur ætíð vera með honum og megi hann hvíla í friði. Edda Hrund Halldórsdóttir, San José, Costa Rica. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reyk)anesbraut. Kópavogi, sími 671800 OPIÐ SUNNUDAGA KL. 2 - 6 Plymouth Laser RS Twln Cam 16v '90, grásans, 5 g., ek. 33 þ. mílur, rafm. í öllu o.fl. Sportbíll í sérflokki. V. 1690 þús., sk. á ód. MMC Lancer 4x4 hlaðb. '91, rauöur, 5 g., ek. 27 þ., rafm. í öllu o.fl. V. 1080 þús. stgr. Chevrolet Suburban 20 Silverado 6.2 diesel '85, sjálfsk., ek. 94 þ., rafm. í öllu. 3'/2 T.spil o.fl. Gott eintak. V. 1980 þús., sk. á ód. Toyota Corolla XL '90, 5 dyra, sjálfsk., ek. 48 þ., central, rafm. í rúðum o.fl. V. 780 þús. BMW 5181 '88, silfurgrár, 5 g., ek. 43 þ., álfelgur, rafm. í öllu o.fl. Toppeintak. V. 1290 þús. stgr. Dodge Power Ram 4x4 turbo diesel '90, sjálfsk., ek. 29 þ. vask-bíll. V. 1800 þús., sk. á ód. Mazda 323 GLX 1500 Sedan '88, 5 g., ek. 45 þ. V. 490 þús. stgr. Nissan Laurel diesel '84, sjálfsk., ágætt ástan. V. 390 þús. MMC Colt GL '91, 5 g., ek. 26 þ. V. 720 þús. stgr. MMC Lancer GLX '89, sjálfsk., ek. 61 þ. V. 650 þús. stgr. Nissan Bluebird 2.0 SLX '89, sjálfsk., ek. 58 þ. V. 790 þús. stgr. Nissan Douple Cap 4x4 '88, 5 g., uppt. vél. V. 780 þús. stgr. Nissan Terrano 2.4i 4x4 '90, 5 g., ek. 60 þ. V. 1750 þús. Suzuki Vitara JLXi '91, talsvert breyttur, ýmsir aukahl., ek. 40 þús. V. 1470 þús. stgr. Toyota Tercel RV Special 4x4 '88, sóll- úga, o.fl., ek. 79 þ. V. 750 þús. stgr. MMC L-300 GLX 4x4 diesel, '88, hvítur, 8 manna, 5 g., ek. 70 þ., álfelgur o.fl. V. 1250 þús., sk. á ód. Toyota Landcruiser turbo diesel, '87, steingrár, 5 dyra, ek. 100 þ., talstöð o.fl. Úrvalsjeppi. V. 1980 þús., sk. á ód. Subaru 1800 DL 4x4 station '91, stein- grár, 5 g., ek. 42 þ. Fallegur bíll. V. 1050 þ. stgr. Royal -fjölbreyttur skyndibúðingur Fimm bragðtegundir: Súkkulaði, jarðarberja, karameilu, vaniilu og sitrónu. Royal ' VANILLJ n OM ísL.'l L J * ' COo* Vinnupallar - Sölutilboð Gefum 15% afslátt af takmörkuðu magni vinnupalla á meðan birgðir endast og 30% afslátt af notuðum vinnupöllum. Sölutilboðið gildir til 16. október. í ! i. Ir V .( >1 ‘ . <_ÍJ T* , ,UPírrT bs.fi í lii ■■ *> • ? v \ wBm' , O.—-V *-r*í 1 -r ’ i L _ Veggjapallar Innivinnupallar Alhjólapallar Pallar hf. Dalvegi 16, Fífuhvammi, Kópavogi, símar 641020 og 42322.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.