Morgunblaðið - 02.10.1992, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 02.10.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 35 og Jónas Kristmundsson, sjómaður, sem öll bjuggu lengst af í vestur- bænum í Reykjavík, en af þeim lif- ir nú Bergljót ein. Foreldrar Önnu Maríu voru með þeim fyrstu sem byggðu á sunnan- verðu Seltjarnarnesi á árunum fyr- ir 1960 og þar ólst hún upp ásamt tveimur bræðrum sínum, en þeir eru Jón Oddur, fæddur 1959, og Magnús Ingi, fæddur 1966. Anna María lauk skyldunámi í skólum á Seltjarnarnesi, en settist síðan í Verzlunarskóla íslands og lauk þaðan verslunarprófí árið 1979. Að námi þar loknu hóf hún fljót- lega störf á skrifstofu fyrirtækisins Blikks og Stáls hf. og þar starfaði hún æ síðan. Anna María vildi hag þess fyrirtækis sem bestan og mat eigendur og samstarfsfólk mikils enda naut hún öflugs stuðnings þeirra allra þegar á þurfti að halda. Strax á barns- og unglingsárum komu fram þeir þættir í viðmóti Önnu Maríu, sem alla tíð prýddu hana. Hún var afar hlý og greiðvik- in og þess nutu ömmur hennar og afi í ríkum mæli. Anna María var mjög frændrækin og lét sig aldrei vanta ef efnt var til einhvers fagn- aðar í fjölskyldunni. Þá var hún mjög listræn og lagin í höndum og til vitnis um það eru margir fagrir hlutir, sem hún gerði og færði okk- ur, ættingjum hennar, og prýða heimili okkar. Foreldrum sínum var Anna María ætíð mikil stoð og stytta og þegar þau hófu rekstur eigin fyrirtækis fyrir fáum árum, þá var það Anna María sem tók að sér umsjón með öllu bókhaldi þess og leiðbeindi móður sinni um framkvæmd og naut þar starfs- reynslu sinnar. Anna María var mjög stefnuföst, hún réðst fljótlega eftir að skóla lauk í það að festa kaup á íbúð á Seltjarnarnesi því þar vildi hún búa og náði því tak- marki fljótt. Anna María var ógift, en eignað- ist dótturina Ingu Láru, sem nú er 8 ára gömul, afar skýr og tápmik- il stúlka. Þær mæðgur voru mjög samrýndar, Anna María lagði metnað sinn í að sinna dótturinni sem allra mest og gefa henni tæki- færi til að kynnast sem flestu. Þær ferðuðust saman innan lands og utan og sinntu ýmsum fleiri áhuga- málum beggja. Þar gleymdist ekki sunnudagaskólinn hjá séra Guð- mundi í Neskirkju og án efa verða þær stundir Ingu Láru nú vega- nesti, þegar leitað er svara við erfíðum spurningum. Nokkur ár eru síðan Anna María kenndi fyrst þess sjúkdóms sem nú hefur bundið enda á líf hennar. Frá byijun tókst hún á við þennan vágest af miklu baráttuþreki og dugnaði og var aldrei á henni upp- gjöf að finna. Um tíma voru góðar vonir bundnar við að tekist hefði að ráða niðurlögum sjúkdómsins enda er ekki lengra síðan en um sl. páska að það mátti hitta þær Ingu Láru á skíðum, en þá útivist stunduðu þær jafnan af kappi. Á miðju þessu sumri varð hinsvegar ljóst að nú væri ný orusta hafin og að þessu sinni varð hún hörð en stutt. Síðari hluta ágústmánaðar var svo af Önnu Maríu dregið að hún flutti úr íbúð sinni ásamt Ingu Láru til foreldra sinna, en þar áttu þær mæðgur alltaf öruggt skjól, og þess mun Inga Lára njóta um ókomna tíð. Á engan er hallað þeg- ar sagt er að í Áslaugu, móður sinni, átti Anna María styrkustu stoðina í sjúkdómsbaráttu sinni. Áslaug var alltaf til staðar þegar á þurfti að halda og síðustu dagana vék hún ekki frá rúmi dóttur sinnar og var við hlið hennar þegar kallið kom. Fjolskylda Önnu Maríu þakk- ar af alhug læknum og starfsfólki krabbameinsdeildar kvenna á Landspítalanum, sem önnuðust hana í erfiðum veikindum. Fyrir mína hönd, Bjargar og dætra okkar, þökkum við fyrir að hafa átt Önnu Maríu að vini og samferðamanni í lífinu. Henni tengjast eingöngu bjartar minning- ar og þær munu verða Ingu Láru, foreldrum, bræðrum, ömmu og öðr- um vi'num og vandamönnum hugg- un í sorg. Þórður Jónsson. Guðný Björk Jóns- dóttir — Minning Fædd 29. maí 1966 Dáin 25. september 1992 Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg. En anda sem unnast fær aldregi eilífð að skilið. (J. Hallgrímsson) Þetta erindi átti vel við í gleðinni sem ríkti á brúðkaupsdegi þeirra Hannesar og Guðnýjar, enda var hún notuð við það tækifæri, en hún á ekki síður vel við í sorginni sem ríkir nú eftir andlát Guðnýjar, að- eins nokkrum mánuðum eftir brúð- kaupið. Það ríkti alltaf mikil gleði í kring- um Guðnýju og hún var alltaf til í smá prakkarastrik við hvaða tæki- færi sem var. Oft skemmtum vð okkur konunglega yfir uppátækjum þeirra hjónanna, sérstaklega þegar grínið beindist að okkur og við gerð- um þeim grikk á móti. Þá voru öll tækifæri notuð og á afmælum og jólum gat maður alltaf verið viss um að pakkinn frá Hannesi og Guðnýju væri alveg eintakur. Þann- ig var það með allt sem þau hjónin tóku sér fyrir hendur, það var engu öðru líkt og þau sjálf einstök í sinni röð. En nú hefur verið höggvið stórt skarð í hópinn. Þessi lífsglaða og góða vinkona okkar er horfin á braut, og var hún þó rétt að hefja lífið og átti ásamt manni sínum og börnum svo bjarta framtíð. Elsku Hannes, Thelma og Kári. Eftir svona stórt áfall er fátt hægt að segja til huggunar, en minningin er og verður alltaf til staðar, því að „anda sem unnast fær aldregi eilífið að skilið". Við vottum ykkur og fjölskyld- unni í Fossatúni okkar dýpstu sam- úð. Iris og Valgarður. Hví var þessi beður búinn bamið kæra þér svo skjótt. (B. Halldórsson (sb. 1886).) Föstudaginn 25. september lést á heimili sínu tengdadóttir mín, Guðný Björk, aðeins nýorðin 26 ára. Guðný var dóttir hjónanna á Fossatúni, Andakílshreppi, þeirra Sturlu Guðbjarnarsonar og Sjafnar Pálsdóttur. Hún ólst upp við mikið ástríki Ólafía Valgerður Hálfdánardóttir lést á Akureyri hinn 22. september á 90. aldursári. Hún fæddist á Grænhóli í Kræklingahlíð 21. októ- ber 1901, dóttir hjónanna Kristínar Sigurðardóttur og Hálfdánar Hall- grímssonar. Hinn 1. maí 1920 gift- ist hún Jóni Þorvaldssyni frá Bessa- hlöðum í Öxnadal og stofnuðu þau heimili að Heiðarhúsum á Þela- mörk. Þar bjuggu þau í 12 ár, en síðan á ýmsum bæjum í Eyjafirði, síðast á eignaijörð sinni, Tréstöð- um. Eignuðust þau hjón sjö börn og lifa þau móður sína, utan elsta dóttirin sem lést ung. Frá 1965 bjuggu þau hjón á Akureyri á heim- ili Kristrúnar dóttur sinnar og fjöl- skyldu hennar. Árið 1976 andaðist Jón en Ólafía dvaldi áfram hjá Kristrúnu, en allra síðustu ár var hún á dvalarheimilunum Skjaldar- vík og Hlíð. Fundum okkar Ólafíu bar saman fyrir 13 árum, en þá var hún gest- komandi í Hveragerði hjá Svein- gerði, systur sinni en tengdamóður minni. I þeirri ferð um Suðurlandið foreldra sinna, ásamt tveim systkin- um, Guðlaugu og Sölva. Guðlaug á einn son, Smára, og á nú öll fjöl- skyldan um sárt að binda vegna fráfalls elskaðrar dóttur, systur og frænku. Og votta ég þeim mína dýpstu samúð. Hver skilur slík ör- lög, ung elskandi móðir og eigin- kona er hrifin burt frá fjölskyldu sinni rétt þegar lífsstarfið er að byija. Er einhver tilgangur með lífi og dauða? Hvar eru svörin? Hvar er huggunin? Hvar er sá sem sagði: „Ég verð með yður á stund neyðar- innar, ákallið mig.“ Það hefir verið gert síðastliðin tvö ár en svörin virð- ast vera hvert áfallið á eftir öðru. Það þarf mikinn styrk til að standa staðfastur í trúnni þegar svona er komið eftir allar bænirnar Guðnýju óg fjölskyldunni til handa. Ég vona að Hannes sonur, minn eiginmaður Guðnýjar, hafi þann styrk. Þau voru bæði kornung er ástir tókust með þeim, hún aðeins 15 ára og hann 17 ára. Alla tíð síðan hafa þau verið ótrúlega samrýnd, ást- fangin og full vonar og trúar á framtíðina. Þau eignuðust tvö böm, Thelmu Sjöfn, sem er átta ára, og Sigurð Kára, fjögurra ára, bæði yndisleg og mannvænleg börn. Þau eru svo ung að þau fá vart nokkurn ‘ tíma skilið hvers vegna guð tók mömmu þeirra, þó vissu þau bæði að hún væri mjög veik. Hannes og Guðný luku bæði framhaldsnámi sama vorið, hún varð stúdent en hann lauk námi í húsbyggingum. Það var mikill gleðidagur er haldið var upp á útskrift þeirra. Um haustið lögðu þau land undir fót með Thelmu Sjöfn sem var á öðm ári. Þau ætluðu að vinna, læra og skoða heiminn örlítið. Þau gerðu það í u.þ.b. tvö ár, en komu síðan heim og unnu um tíma hjá Anda- kílsárvirkjun. Síðan ákveða þau að fara í frekara nám, hún fór í Há- skólann en hann í Tækniskólann, þá var Sigurður Kári fæddur. Ham- ingjan brosti við þeim, að manni fannst, samvinnan var einstök og bæði lögðu mjög hart að sér. Þá kom fyrsta áfallið, í júlí 1990 greindist Guðný með illkynja sjúk- dóm, hún þessi hrausta stúlka sem annars aldrei kvartaði hafði fundið fyrir einhverri breytingu og fór því heimilislæknis síns og síðan til sér- fræðings sem taldi að um óverulegt umkvörtunarefni væri að ræða. Sérfræðingurinn úrskurðaði ein- kennin svo ótrúlega að ekki er eftir hafandi, en er þó svo sannarlega rannsóknar verður. Þetta gerðist dvaldi hún hjá okkur hjónum eina dagsstund. Sá dagur varð einn af þeim góðu dögum, sem gleymast ekki. Þrátt fyrir fimmtíu ára aldurs- mun milli okkar urðum við strax vinkonur. Ólafía var enn þegar ég sá hana fyrst glæsileg kona. Hún var þrek- lega vaxin, virðuleg í fasi og fríð. Miðað við aldur var heilsufar henn- ar gott, en andlegu atgervi hélt hún enn betur. Það má með sanni segja að hún hafi „lifað tímana tvenna“. Á fyrsta heimili sínu bjó hún við hlóðareld- hús og fylgdi hún síðar eins og all- ir aðrir í þessu landi hinni alkunnu þróun í ytri skilyrðum. Þessum bylt- ingarkenndu breytingum á þjóðfé- laginu lagaði hún sig sérlega vel að. Lýsing hennar á gamla tímanum var lifandi og sönn, laus bæði við upphafningu í ævintýraljóma og sjálfsvorkunn þess sem bugast und- an stritinu og erfiðleikunum. Nú- tímanum tók hún eins og hann er og naut þess sem hann hefur upp á að bjóða. Þetta fannst mér ég sjá ári áður en sjúkdómurinn var greindur endanlega og þá var hann kominn á mjög hátt stig. Ég er þess fullviss að hefði rétt verið stað- ið að rannsókn í fyrstu hefði þetta fundist á byijunarstigi og staðan verið jafnvel önnur í dag. En þau ákváðu strax að láta ekki deigan síga heldur takast á við sjúkdóminn af fullri hörku með guðs og manna hjálp. Baráttuvilji þeirra stappaði stálinu í okkur öll hin í fjölskyldun- um báðum. En forlögin láta ekki að sér hæða, 10 dögum eftir þetta áfall lést faðir Hannesar í bílslysi, á einni örskotsstund var hann hrif- inn brott, einmitt þegar hann þurfti mest á sínum góða föður að halda. Er nema von að svara sé vant. Hvað meinar almættið, á hann kannski hvergi hlut að máli? Guðný var okkur hjónunum jafn kær sem hún væri okkar barn, enda bar hún með sér birtu og yl hvar sem hún kom, hún var afar falleg, listræn, vel gerð og mjög vel gefin, hún virtist aldrei hafa neitt fyrir því að læra en tók alltaf próf með miklum ágætum. Allan tímann sem hún var veik sótti hún skólann með miklum dugnaði, baráttuviljinn var svo sterkur að hún fór jafnvel í próf að morgni og þaðan beint á skurðarborðið eða í lyfjameðferð. Aldrei féll úr dagur í mætingu í skóla nema hún gæti ekki staðið á fótunum. Um tíma héldu allir að hún hefði komist yfir þetta. Og vorið 1991 fór hún, nýkomin úr skurðaðgerð, til Noregs með jarð- fræðinemum í námsferð og allt gekk vel. Hannes beið í Danmörku hjá systur sinni og þangað kom Guðný og saman voru þau þar í viku. Þau höfðu ekki verið formlega vígð saman, en í sumar ákváðu þau að fara til Bandaríkjanna til að leita frekari lækninga, brúðkaup var haldið í Saurbæjarkirkju á Hval- fjarðarströnd og veislan haldin á Hlöðum. Þetta var yndisleg athöfn og mikil gleði í veislunni, brúðhjón- in ljómuðu af hamingju. Þessi dagur skín yfír alla aðra um ókomna fram- tíð. Ut fóru þau en dvöldu aðeins í nokkra daga, því allt kom fyrir ekki, heilsu hennar hrakaði og eftir það var ekkert sem læknavísindin réðu við. Hún varð að láta í minni pokann fyrir þeim „slynga sláttumanni, er slær allt hvað fyrir er“. Hannes stóð við hlið hennar allan tímann og vék ekki úr sjúkrastofunni þegar hún þurfti að dvelja þar. Þegar ljóst var að hveiju stefndi fór hann með hana heim og hjúkraði henni þar svo aðdáunarvel að slíks þekkjast vart dæmi. Á fimmtudaginn kvaddi hún börnin sín og þau fóru í sveit- ina með ömmu sinni og afa. En á föstudagskvöld Iést hún í örmum eiginmanns síns. Hannes minn, Thelma Sjöfn og vel þegar við hjónin buðum henni reyndar með hálfum hug í Tívólí. Þar virti hún fyrir sér leiktæki, sem voru „af allt öðrum heimi“ en hún og börn hennar ólust upp við og svipur hennar lýsti ánægju og vel- þóknum. Ég held að það sé ekki ofmælt að segja að Ólafía hafi haft mann- bætandi áhrif á okkur sem vorum Olafía V. Hálfdán- ardóttir — Minning Sigurður Kári, á svona stundum koma engin orð að gagni, en þið eigið ást mína og samúð alla. Sig- rún systir þín og fjölskylda hennar sendir ykkur öllum ástar- og sakn- aðarkveðju. Vertu sæl, vor litla, hvíta lilja, lögð í jörð með himnafóður vilja, leyst frá lifi nauða, ljúf og björt í dauða lést þú eftir litla rúmið auða. Gráttu móðir, gjöfina Drottins friðu, gráttu þá með djúpri hjartans blíðu. Sérðu ei sigurbjarma? Sérðu ei líknarvarma breiða sig um bamsins englahvarma. Því til hans, sem bömin ungu blessar. biðjum hann að lesa rúnir þessar, heyrum hvað hann kenndi: hér þó lífið endi, ris upp í Drottins dýrðarhendi. Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða, lof sé Guði, búin ertu að stríða. Upp til sælu sala saklaust bam án dvala. Lærðu ung við engla Guðs að tala. (M. Jochumsson) Svala ívarsdóttir. Við viljum minnast Guðnýjar skólasystur okkar sem kenndi okk- ur það sem enginn skóli getur kennt. Hún kenndi okkur að gefast aldrei upp. Þau hjónin voru alltaf jákvæð og horfðu bjartsýn fram á veginn. Guðný var dugleg og samvisku- söm og fannst það ekkert mál. Meðan við hin eyddum tíma í að býsnast yfír því hve mikið var að gera í skólanum vann hún verkefn- in sín, var gjaldkeri Fjallsins, félags jarð- og landfræðinema, sinnti fjöl- skyldunni og var að byggja. Okkur langar að segja litla sögu úr skólanum sem lýsir Guðnýju vel. Fyrir eldfjallafræðipróf þurfti að lesa stóra og þunga bók, Guðný las hana alla og gerði útdrátt úr henni. Við hin fengum útdráttinn lánaðan því við töldum okkur ekki hafa tíma til að lesa bókina, þó höfðum við flest bara um okkur sjálf að hugsa. í prófinu sjálfu „skrapp" Guðný eftir hálfan próftímann í aðgerð, en fékk engu að síður ágætis ein- kunn. Þó að kali heitur hver hylji dali jökull ber steinar tali allt hvað er aldrei skal ég gleyma þér. (Skáld-Rósa). Elsku Hannes, Thelma og Kári, vottum ykkur og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð. Skólafélagar í jarðfræði, Háskóla Islands. svo heppin að fá að kynnast henni. Mér varð hún fyrirmynd í æðru- leysi og jákvæðni. Dómharka og illt umtal er eitthvað sem henni var framandi, enda lagði hún sig eftir því að koma auga á hið góða í öðr- um. Hún varð fyrir ýmsum raunum á ævi sinni, en ekkert bugaði hana, heldur var hún sú manngerð sem þroskast við hvetja raun. Ég man ekki til að ég hafi séð Ólafíu iðjulausa meðan hún hélt heilsu. Ætíð var hún að búa eitt- hvað til handa öðrum. Hún heklaði dúka, pijónaði, saumaði myndir, málaði á tau og útbjó þannig gjafir handa þeim fjölmörgu afkomendum sem hún á og handa vinum sínum. Ólafía var gestrisin og naut þess að veita öðrum. í fyrrasumar heim- sóttum við hjónin hana í Skjaldar- vík. Þótt hún væri orðin þreklítil og slöpp var ekki við annað kom- andi, en hún legði á borð, bæri fram, kökur og kaffí. Var þetta í síðasta sinn sem við áttum slíka stund sam- an, því að í haust, þegar við sáumst í hinsta sinn var hún orðin mjög veik og auðséð að hverju dró. Við hjón söknum góðrar konu, þar sem Ólafía var, en erum jafn- framt þakklát fyrir þær góðu minn- ingar sem við eigum um hana. Sendum við fólkinu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Georgía og Einar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.