Morgunblaðið - 02.10.1992, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992
45
Grófargil á Akur-
eyri verður listagil
Hlynur Hallsson
í Grófargili á Akureyri eru að
gerast spennandi hlutir. Til langs
tíma var Gilið kjarni iðandi atvinnu-
lífs á Akureyri. En eins og allir vita
má iðnaðurinn í bænum muna sinn
fífil fegurri. Akureyri hefur verið að
breytast úr því að vera fyrst og
fremst verksmiðjubær í þjónustu- og
skólabæ og vonandi líka blómlegan
menningarbæ. Þegar húsin í Gróf-
argili urðu óhentug fyrir starfsemi
eins og mjólkursamlag, smjörlíkis-
gerð, málningar-, svamp- og efna-
vinnslu var starfsemin flutt í nýrra
húsnæði og eftir stóðu gömlu húsin
tóm. Sumir sögðu að best væri að
rífa þau svo hægt yrði að breikka
götuna. En þeir voru líka til sem
bentu á að þessi gömlu og fallegu
hús gætu hentað fyrir annarskonar
starfsemi og að Gilið gæti á ný orð-
ið miðpunktur athafnalífs á Akureyri
þar sem menning og listir fengju að
hjóta sín.
Hugmyndin
Myndlistaskólinn á Akureyri reið
á vaðið og flutti inn í húsnæði sem
virðist eins og hannað fyrir skólann,
enda má segja að húsnæðið þar sem
Efnagerðin Sjöfn var áður, væri end-
urhannað algerlega með þarfir skól-
ans í huga. Þar með var grunnurinn
að Listagili lagður. Og þar sem
svampgerðin hafði verið fluttu tveir
myndlistarmenn inn með vinnustofur
og íbúð. Það var svo vorið 1990 sem
Guðmundur Ármann myndlistarmað-
ur teiknaði mynd af Listagili framtíð-
arinnar sem birtist á forsíðu Norður-
lands. Eftir að núverandi bæjar-
stjómarmeirihluti Alþýðubandalags
og Sjálfstæðisflokks tók til starfa
fóru hlutimir að gerast hratt. Kaup-
félag Eyfírðinga sem átti nær öll
húsin í Gilinu (sem fyrir vikið var
gjarnan kallað Kaupfélagsgilið) vildi
selja þau fyrir sanngjamt verð. Bær-
inn keypti öll húsin sem eftir vom á
æinu bretti en endurseldi einstakling-
um hluta Smjörlíkisgerðarinnar og
Flóru fyrrverandi fyrir starfsemi sem
nú er óðum að fara í gang. Þar verða
vinnustofur listamannna, vinnustofu-
íbúðir, gallerí, teiknistofa, arkitekta-
stofa og kaffíhús. Síðastliðið haust
var svo Gilfélagið stofnað en það er
félagsskapur opinn öllum sem áhuga
;hafa á uppbyggingu listamiðstöðvar
I Grófargili.
Nútíðin
Akureyrarbær hefur nú leigt Gilfé-
laginu stóran hluta húsanna og þar
er allt að komast á skrið. Um tíu
lista- og handverksmönnum hefur
verið endurleigð aðstaða í gamla
iMjólkursamlaginu og Gallerí Allra-
handa hefur einnig flutt starfsemi
sína í Gilið. Þá ætlar félagið einnig
að reka tilraunasal í Flóru þar sem
fjölbreytt starfsemi á að geta farið
fram; litlar leiksýningar, upplestur,
tónleikar, myndlistasýningar, dans
og hvað sem fólki dettur í hug. Einn-
ig verður þar miðstöð félagsins og
vonandi fleiri félaga sem hafa upp-
byggingu menningar og listar á
stefnuskrá sinni. Þegar em hafnar
viðræður milli Gilfélagsins og MEN-
OR (Menningarsamtök Norðlend-
inga) um rekstur slíkrar miðstöðvar.
Þá ætlar Gilfélagið að standa að
rekstri gestavinnustofu ásamt Akur-
eyrarbæ þar sem hinir ýmsu lista-
menn, jafnt innlendir sem erlendir
geta fengið aðstöðu um stundarsakir
til að vinna að sínum verkum og
halda svo jafnvel sýningu í lokin.
Fraratíðin
/ Mjólkursamlaginu er stefnt að
Frá Margréti Jónsdóttur
Leiðari Morgunblaðsins föstudag-
inn 18. september sl. fjallar um versl-
un á ísiandi og er aðeins gott eitt
um það að segja. Undirritaðri fínnst
þó að leiðarinn lýsi ekki ástandinu
eins og það raunvemlega er og að
málað sé með of dökkum litum á
kostnað verslunar í landinu.
Ég geri mér grein fyrir að þessi
skrif em byggð á upplýsingum frá
Verðlagsstofnun, en margir telja að
stofnunin hafí ekki alltaf ástundað
nákvæm vinnubrögð í þessum mál-
um.
Réttar verðkannanir er aðeins
hægt að gera með því að bera saman
verð á ólíkum stöðum á nákvæmlega
sömu hlutunum á sama tíma. Verð-
lagsstofnun hefur að vísu endað sín-
ar tilkynningar á því að í viðkom-
andi könnun sé ekki tekið tillit til
gæðá en reynslan sýnir að gagnvart
almenningi er slíkur vamagli einskis
virði. Hafa mörg fyrirtæki hér á landi
borið skarðan hlut frá borði tíma-
bundið að ósekju vegna þessara
vinnubrögðum.
Ég tek sem dæmi í þessari könnun
að sagt er að verð á Levi’s gallabux-
um í Reykjavík sé tæplega 6.900 kr.
og hefur þá greinileg aðeins verið
athugað verð á þessum buxum í svo-
kallaðri Levi’s búð enda sýndi frétta-
maður Sjónvarps mynd af þeirri búð.
Sannleikurinn er sá að Levi’s galla-
opnun sýningarsalar um næstu
páska og á efri hæðunum verður
Listasafn Norðurlands til húsa. Þar
eru glæsilegir salir með mikilli loft-
hæð og henta því vel sem sýningasal-
ir. Og þá er Ketilhúsið eftir en það
gæti orðið frábært tónleikahús sem
nimaði 300-400 áheyrendur. Það
gæti einnig hentað vel fyrir leikhópa
sem koma til bæjarins en eiga nú í
engin hús að venda því oftast er
Samkomuhúsið upptekið allan vetur-
inn.
Það ætti því öllum að vera ljóst að
í Gilinu eru að gerast stórkostlegir
hlutir og þyrfti að leita langt til að
fínna sambærilegt dæmi um árang-
ursríka samvinnu bæjarfélags, lista-
manna og bæjarbúa sem vilja njóta
menningar. Það er því full ástæða
til að láta úrtöluraddir sem vind um
eyru þjóta og taka heldur þátt í að
gera Grófargil að eftirsóknarverðri
listvin í hjarta Akureyrar. Það hlýtur
að vera hagur okkar að sem flestir
eigi kost á því að njóta menningar
og lista í sinni heimabyggð og að
þeir sem hafa menntað sig í listum
geti unnið á sínu sviði þar sem þeir
helst vilja og líður best.
buxur fást í ótal mörgum verslunum
hér í Reykjavík og úti á landi.
Meiri parturinn áf seldum vörum
í verslunum mínum eru vörur undir
ákveðnu merki, Vero Moda. Þetta
fyrirtæki er að öllum líkindum stærst
á fatamarkaðnum á Norðurlöndum
einnig er það í Englandi, Þýskalandi
og íriandi.
Móðurfyrirtækið hefur núna gefíð
út vörulista með verði á sömu vörum
frá því í hinum ýmsu löndum. ís-
lenskt verð er að vísu ekki enn kom-
ið inní þennan bækling en líkur eru
á að það verði fljótlega. Nú fylgja
með bæklingnum ljósrituð blöð sem
sýna okkar verð á sömu vörum. Þrátt
fyrir ýmsar erfiðar aðstæður hjá
okkur þá hefur okkur tekist að leysa
málin þannig að við bjóðum uppá
sambærilegt verð.
Nú hefur Verðlagsstofnun fengið
í hendur þennan vörulista og verður
fróðlegt að sjá hvort þeir sýni áhuga.
Vero Moda-vörur eru þekktar í
viðkomandi löndum sem vandaðar
og ódýrar. Okkur reynist samt erfítt
að keppa við innkaupaferðimar til
útlanda þar sem virðisaukaskattur
fellur niður af þessum innkaupum
erlendis og við komu til landsins er
hann heldur ekki innheimtur.
Maður getur spurt sig, hvers á
fólkið, sem verslar innanlands, að
gjalda að það þurfí að borga virðis-
aukaskatt en ekki hinir? Manni dett-
ur einnig í hug hvort það sé tilviljun
að þessi verðkönnun sé birt núna þar
sem hún var gerð í apríl sl.
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR
Fjölnisvegi 10, Reykjavík.
LEIÐRÉTTINGAR
Artal misritaðist
í kveðjuorðum um Mogens A.
Mogensen í blaðinu í gær eftir
Karl Lúðvíksson misritaðist ártal.
Peter Lassen Mogensen, faðir
Mogens, var apótekari á Seyðis-
fírði á árunum 1909 til 1922. Leið-
réttist þetta hér með.
Fundur hag-
fræðinema hefst
kl. 17
í dagbók viðskiptablaðs Morg-
unblaðsins í gær var sagt frá fundi
Okonomíu, félags hagfræðinema
við Háskóla íslands. í blaðinu var
sagt að fundartími sé kl. 15.00
laugardaginn 3. október í stofu
101 í Odda. Dagsetningin er rétt,
en hins vegar hefst fundurinn kl.
17.00.
VELVAKANDI
JAKKI
Hettujakki tapaðist á skóla-
dansleik í Garðalundi föstu-
dagskvöldið 25. september en
annar samskonar jakki, hettu-
laus, skilinn eftir. Þeir sem við
þetta kannast eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband í síma
656648.
YTRA PRJÁL
Konráð Friðfinnsson
Orgelkaup
Fyrir skömmu var keypt org-
ei í Hallgrímskirkju fyrir tugi
milljóna og nú hefur annar
söfnuður í Reykjavík farið fram
á að fá orgel fyrir um 40 millj-
ónir. Eitt ættu þessir söfnuðir
að athuga, að þeir byggja ekk-
ert fyrir drottin sjálfír. Dýrir
hlutir og miklar fjárfestingar
er ekki það sem drottinn ætiast
til af mönnum, hann biður um
einlægni hjartans en ekki ytra
pijál. Þess verður að gæta að
fjármálaumsvif skyggi ekki á
orðið sjálft.
TASKA
Blá ómerkt Flugleiðataska
tapaðist laugardaginn 26. sept-
ember í Hafnarfirði. í töskunni
voru m.a. nestisbox og svört
vekjaraklukka og var nest-
isboxið merkt Ingvar Helgi.
Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 52472
fyrir hádegi eða 691180 eftir
hádegi.
KETTLINGUR
Grábröndóttur kettlingur
fannst við Sólvallagötu fyrir
nokkru. Upplýsingar í sima
15594 eða í Kattholti í síma
672909.
HLYNUR HALLSSON
Eskihlíð 12 A, Reylqavík.
Sambærilegt verð
heima o g erlendis
Ky/iningí dagfrá
kl. 14—18 á /týju
Jouvence Actif
kremlín un/i i frá
Jea/i d'Avexe.
Ársól,
Grímsbæ v/Bústaðaveg.
Verslunin veitir 10% kynningaraf-
slátt af öllum Jean d’Aveze vörun-
um meðan á kynningu stendur.
BOKAMARKAÐUR
HUNDRUÐ
BÓKATITLA
■ Barnabækur
• Unglingabækur
• íslenskur fróðleikur
• Æviminningar
• Viðtalsbækur
• Ljóðabækur
' Þýddar skáldsögur
• Ástarsögur
> Sakamálasögur
i og býður fjöida bóka sem ekki
t á bókamörkuðum áður
Það er gaman
að lesa - og nú
gefst tækifærið
að eignast
bækur á
einstöku verði.
LAGERINN
Skjaldborgarhúsinu
Armúla 23