Morgunblaðið - 13.10.1992, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐID ÞRIÐJUDAGUR 13,»OKTÓBER 1992
7
Kirkjubygging í Digranessöfnuði
Samþykkt að heimila
byij unarframkvæmd-
ir í Suðurhlíðum
Safnaðarfundur Digranessóknar samþykkti einróma að veita
sóknarnefndinni leyfi til að hefja undirbúningsframkvæmdir við
kirkjubyggingu á nýrri lóð í Suðurhlíðum á sunnudag. Þorbjörg
Daníelsdóttir, formaður sóknarnefndar, segir að gert sé ráð fyrir
að framkvæmdir hefjist af alvöru í desember.
Safnaðarfundurinn var haldinn Kæmu svæðin til með að styrkja
í Kópavogskirkju að lokinni messu
á sunnudag. Nálægt 150 manns
sóttu fundinn og samþykkti hann
einróma að veita sóknarnefndinni
leyfi til að hefja undirbúnings-
framkvæmdir á nýrri lóð í Suður-
hlíðum. Að lóðinni liggja Hlíðar-
vegur, Digranesvegur og Fífu-
hvammsvegur. Tillaga sem kom
fram á fundinum um allsherjarat-
kvæðagreiðslu um lóðimar við
Víghól og í Suðurhlíðum var dreg-
in til baka.
Grenndarkynning á lóðinni
hefst á næstunni og stendur yfir í
4 vikur. Gefst þá fólki kostur á
að koma á framfæri athugasemd-
um. Að því loknu fer málið fyrir
skipulagsstjórn og byggingar-
nefnd sem gefur út byggingar-
leyfi. Þorbjörg sagði að gert væri
ráð fyrir að framkvæmdir gætu
hafíst af alvöru í desember. Þang-
að til gæfist hins vegar arkitektin-
um tími til að aðlaga teikningar
af kirkjubyggingunni nýju um-
hverfí.
Þorbjörg sagði að á safnaðar-
fundinum hefði komið fram ein-
dreginn vilji fólks um að eiga sátt
um málið og hefði það komið best
fram í því að samþykkt hefði ver-
ið mótatkvæðalaust að veita leyfí
fyrir undirbúningsframkvæmdum
á lóðinni. Hún sagði að nýi staður-
inn væri aðlaðandi og sýndi að
hennar mati skilning bæjaryfir-
valda á því að ekki færi illa saman
að hafa kirkju inni á grænu svæði.
Sveppaneysla
ungs fólks
svipuð og
undanfarinár
Á HVERJXJ hausti koma upp til-
felli þar sem ungmenni komast
í vímu eftir að hafa neytt
sveppa. Að sögn Þórarins Tyrf-
ingssonar, yfirlæknis SÁÁ,
valda sveppir ofskynjunum en
líkamleg áhrif virðast ekki vera
mikil. „Tilfellin í ár eru ekki
fleiri en undanfarin ár,“ sagði
hann. „Þetta er óttalega vitlaus
víma sem fæstir verða fíknir í.“
Á slysadeild Borgarspítalans um
helgina tók Ársæll Jónsson læknir
á móti einstaklingi sem neytt hafði
sveppa. Sagði Ársæll að eftir því
sem hann vissi best hefði tilfellum
ekki fjölgað í ár. „Þetta er fíkt og
tilraunaaldurinn er táningsárin en
flestir reyna þetta aldrei aftur,“
sagði hann.
Jón Baldursson, læknir á
Borgarspítalanum, sagði að
ástæða neyslunnar væri vankunn-
átta. Menn væru að neyta þess sem
þeir tíndu upp af fömum vegi án
þess að vita hvað það væri. Sveppa-
tegundir væru margar og áhrif
mismunandi, allt frá óþægingum
til þess að vera lífshættuleg.
„Ég er ekki með tölulegar upp-
lýsingar um fjölda þeirra sem neytt
hafa sveppa á þessu hausti,“ sagði
Þórarinn Tyrfingsson. „Tií okkar
koma ungmenni frá 16 ára aldri
til tvítugs og er ekki óalgengt að
þeir noti sveppi í þeim aldurshópi.
Líkamlega eituráhrif virðast ekki
vera mikil, en menn geta orðið
vitlausir af þessu og verða fyrir
ofskynjunum.“
hvort annað.
Gylfí Sveinsson, sóknarbarn í
Digranessöfnuði og fulltrúi í Víg-
hólasamtökunum, sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið halda að
menn væru yfirleitt mjög jákvæðir
og bjartsýnir með framgang mála.
Það væru frekar þeir sem væru
að reyna að vekja athygli á sér
eða væru kannski alltaf á móti
öllu sem hefðu eitthvað við þetta
mál að athuga. Það væri hins veg-
ar ekki á málefnalegum grunni
reist, og sagði Gylfí að sér fyndist
á því sem hann heyrði að málið
myndi leysast á farsælan hátt,
smátt og smátt.
Ný brú á Jökulkvísl
Morgunblaðið/Sigurður Hjálmarsson
NY BRÚ hefur verið sett á Jökulkvísl í Álftaversafrétti. Það er brúarvinnuflokkur Vegagerðar ríkisins
undir stjórn Jóns Valmundssonar sem unnið hefur þetta verk. Á myndinni sést nýja brúin komin á sinn stað
en gamla brúin, sem orðin var hrörleg, er við hlið hennar.
HER ER EITTHVAÐ TIE AÐ GLIGGA I
Ert þú að kaupa
eða selja fasteign?
Gluggími
að Síðiimúla
í glugganum að Síðumúla 21 kynnum við hverju sinni
400 eignir með litljósmyndum og ýtarlegum upplýsingum.
Með þessu móti er hægt að nálgast þessar upplýsingar
hvenær sem er, að nóttu sem degi.
Þetta er einstök þjónusta sem kemur kaupendum og
seljendum til góða (og er seljendum að kostnaðarlausu).
IK.WMIDII \l\ %
- Abyrg þjónusta í áratugi
SIIVII 67-90-90 SIÐUMULA 21
FÉLAG HfASTEIGNASALA