Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 56
MORGIINBLAÐIÐ, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVtK StMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 15S5 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTI SS ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. 'Oím. Varnarliðsframkvæmdir á Keflavíkurvelli A FULLRI FERÐ I FISCHERSUNDI Morgunblaðið/Kristinn Yitað um allt að 30% niðurskurð þegar á næsta ári Jafngildir því að framkvæmt verð- ur fyrir 35 til 40 milljónir dollara í stað 50 milljóna dollara í ár NÚ ÞYKIR Ijóst að niðurskurður sá sem blasir við í varnarliðsfram- kvæmdum á Keflavíkurflugvelli á næsta ári, miðað við árið í ár, verði á biiinu 20%-30%. Gengið er ót frá því sem vísu að niðurskurð- urinn verði ekki minni en 20%, þótt framkvæmdir næsta árs séu að stórum hluta þegar ákveðnar og komnar í gang. Það jafngildir þvi að fjárframlög til framkvæmda hér á landi á næsta ári verða 40 milljónir dollara (rúmlega 2,4 mil(jarðar ísl. kr.) í stað 50 milþ'óna (2,7 milþ'arða) á þessu ári. Þetta hefur Morgunblaðið eftir áreiðanleg- um heimildum. Vitað er að íslenskir aðalverktak- ar munu þurfa að segja upp tals- verðum fjölda starfsmanna, hver sem niðurstaðan verður. Þar mun einkum um það að ræða að þeim sem starfa á stórum vinnuvélum, við allskyns jarðvinnu, verði sagt upp, þar sem slík vinna mun ekki fyrirsjáanleg á næsta ári. Samkvæmt upplýsingum emb- ættismanna í Brussel bíður stjóm Mannvirkjasjóðs NATO nú tillagna um verkefnalista og forgangsröð, bæði frá SACLANT (yfírhershöfð- ingj a Atlantshafsfiotastjórnarinn- ar) og SACEUR (yfírhershöfðingja Banaslys í Mjóddinni Atlantshafsbandalagsins í Evrópu). Er þess jafnvel vænst að slíkar til- lögur berist síðar í þessari viku eða þeirri næstu. Sjá ennfremur Af innlendum vettvangi, Mikil óvissa um um- fang varnarliðsframkvæmda, bls. 22. Námaleyfi Kísiliðjunnar í Mývatnssveit rennur út á næsta ári Krefjumst fullra skaðabóta verði verksmiðjunni lokað - segir Robert Manning, aðstoðarforstjóri hjá Celite Corp., sem á 48,56% í Kísiliðjunni ROBERT Manning, aðstoðarforsljóri framkvæmda erlendis hjá Celite Corporation í Bandaríkjunum, segir að fari svo að námaleyfi Kisiliðjunn- ar við Mývatn verði ekki framlengt og verksmiðjunni lokað, muni fyrir- tækið krefja ríkisstjóm íslands um fullar skaðabætur. Celite á 48,56% hlut í Kísiliðjunni og er nafnverð hlutarins 59,5 mil(jónir króna. BANASLYS varð við byggingar- vinnu í Breiðholti í gær þegar 26 ára gamall maður féll af vinnupalli við þak nýbyggingar í Mjóddinni. Enginn sjónarvottur var að slys- inu sem varð að sögn lögreglu skömmu fyrir klukkan sex síðdegis. Maðurinn sem lést var við vinnu sína á palli við tólftu hæð íbúða- húss aldraðra að Árskógum 6. Ver- ið var að losa pallinn frá efstu hæð hússins með krana þegar slysið varð. Námaleyfí Kísiliðjunnar rennur út i lok marz á næsta ári. Jón Sigurðs- son iðnaðarráðherra hefur sagt að ákvörðun um framlengingu náma- leyfís verði ekki tekin fyrr en að lokn- um rannsóknum á umhverfísáhrifum verksmiðjunnar, sem nú standa yfír. Ekki sé von á ákvörðun fyrr en í marzmánuði. Forráðamenn verk- smiðjunnar hafa hins vegar farið fram á að ákvörðun verði tekin fyrr. Þeir vilja fá leyfí til að færa kísilg- úrnámið úr Ytriflóa, þar sem talið er að hráefni þar endist aðeins í 3-5 ár til viðbótar, og hefja námavinnslu í Bolum, sunnar á vatninu. Þá hefur Kísiliðjan farið fram á vinnsluleyfi til 15 ára í senn. „Við viljum leysa úr umhverfís- málunum eins fljótt og það er hægt, því að við þurfum að geta skipulagt áframhald framkvæmda okkar,“ sagði Robert Manning í samtali við Morgunblaðið í gær. Aðspurður hvað myndi gerast ef iðnaðarráðherra ákvæði í marz að framlengja ekki námaleyfíð, sagði Manning: „Við myndum, í samstarfí við ríkisstjóm- ina, loka verksmiðjunni." Celite keypti hlutabréfin í Kísiliðj- unni síðastliðið sumar af öðru banda- rísku stórfyrirtæki, Manville Corpor- ation. Morgunblaðið spurði Manning hvort forráðamenn Celite hefðu þá átt von á að námaleyfið yrði allt eins ekki framlengt. „Við sáum það sann- arlega ekki fyrir þegar við keyptum hlutabréfin að verksmiðjunni yrði ef til vill lokað eftir tvö eða þijú ár,“ sagði hann. Manning sagði að sér væri þó ekki kunnugt um að ríkis- stjómin hefði gefíð Celite neina tryggingu fyrir áframhaldandi rekstri Kísiliðjunnar er samningavið- ræður um kaupin fóru fram. Ríkis- stjómin ákvað þá að nýta ekki for- kaupsrétt sinn að hlut Manville, en íslenzka ríkið á 51% í Kísiliðjunni og sveitarfélög 0,44%. Aðspurður hvort Celite kynni að fara fram á skaðabætur, yrði Kísiliðj- unni lokað, sagði Manning: „Við myndum alveg áreiðanlega gera það. Við myndum búast við að fá fjárfest- ingu okkar að fullu bætta. Við mynd- um fara fram á skaðabætur, sem svömðu þeirri upphæð, sem við og fyrirrennari okkar höfum lagt í fyrir- tækið, ef verksmiðjunni yrði lokað án þess að það væri tímabært." Hlutafé Kísiliðjunnar hf. er tæpar 123 milljónir króna að nafnvirði. Nafnverð hlutar Celite í verksmiðj- unni er því um 59,5 milljónir króna. Ekki liggur fyrir á hvaða gengi bréf- in voru keypt af Manville á sínum tíma, því að Celite keypti hlut í fleiri kísilgúrverksmiðjum af fyrirtækinu og greiddi fyrir heildarverð. Átta milljóna króna hagnaður var af rekstri Kísiliðjunnar fyrstu átta mánuði þessa árs. Á aðalfundi fyrir- tækisins, sem haldinn var 29. apríl síðastliðinn, var ákveðið að greiða hluthöfum 10% arð og var hann borg- aður út í síðustu viku, að sögn Frið- riks Sigurðssonar framkvæmda- stjóra Kísiliðjunnar. HugmyndjLtm um gagnkvæmar veiði- heimildir Mendinga og Rússa hafnað Ekki rætt um að hleypa Rússum inn í landhelgina, segir sjávarútvegsráðherra ÞÆR hugmyndir hafa að undanförau skotið upp kollinum hvort mögu- legt væri að fá þorskveiðiheimildir i Barentshafí gegn þvi að rússnesk verksmiðjuskip fengju keypta síld hér til vinnslu um borð eða leyfi til veiða. Slík viðskipti hafa átt sér stað milli Rússa og þjóða við Norð- ursjó svo sem Skota og Norðmanna. Stefán Garðarsson, bæjarstjóri í Ólafsvík, sagði á ráðstefnu um aukna verðmætasköpun í Olafsvík á föstudag að hann hefði áhyggjur af síldarsölumálunum. „Menn munu ekki vera tilbúnir að selja síldina til bræðslu fyrir 4 krónur kilóið. Er ekki mögulegt að hleypa Rússum með sín skip inn í okkar lögsögu og selja þeim síldina fyrir 10-15 krónur kilóið?" Rússnesk og íslenzk stjórn- völd segja slíka samninga ekki á döfinni, enda banni íslenzk lög veiðar útlendinga innan lögsögunnar. Júríj AJexandrovítsj_ Reshetov, sendiherra Rússlands á íslandi, segir að Rússar hafí ekki lagt fram neina fyrirspum til íslenskra stjómvalda um að fá fiskveiðiréttindi í íslenskri lögsögu. „íslendingar hafa beðið okkur að athuga möguleika á að fá að veiða físk í Barentshafí en ég hef ekkert heyrt um að Rússar hafí spurst fyrir um möguleika á að veiða sfld við ísland," sagði Reshetov. Hann sagði að á síðustu árum hefðu fískveiðar á Barentshafi farið fram á gmndvelli milliríkjasamnings Rússlands og Noregs og að Færey- ingar og Grænlendingar hefðu fengið veiðikvóta í Barentshafí á grundvelli samningsins. „íslendingar hafa spurst fyrir um hvort þeir gætu líka fengið slík réttindi en ástandið er þannig, að íslensk löggjöf bannar algerlega erlendar fiskveiðar í ís- lenskri lögsögu," sagði hann. „Mér hafa borist tvö skeyti frá Fiskveiðir- áði Rússlands sem eru þess efnis að Rússar geti ekki samið við íslendinga um fískveiðiréttindi í Barentshafí vegna þess að löggjöf íslendinga bannar erlendar fískveiðar við ísland. Það kemur því ekki til mála að íslend- ingar fái fískveiðiréttindi í Barents- hafí,“ sagði sendiherrann. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagði að ekki hefði komið til greina að Rússar fengju sfldveiði- heimildir í íslenskri lögsögu. „Ég hef átt samtal við rússneska sendiherr- ann um hugsanlega möguleika á því að við gætum keypt físk úr Barents- hafi og það hafa alltaf legið fyrir óskir af hálfu Sovétmanna um að fá keyptan einhvern físk yfír borðstokk. Þessar viðræður voru mjög óformleg- ar og eingöngu um hvort slíkir mögu- leikar væru fyrir hendi en þessi kaup á afla fara fyrst og fremst fram á milli fyrirtækja á frjálsum grund- velli,“ sagði ráðherrann. Þorsteinn sagðist hafa lýst því yfir í bréfi til sendiherra Rússlands í sumar að íslensk stjómvöld væm reiðubúin til viðræðna um fiskveiði- mál almennt án þess að tilgreint væri nánar í hveiju þær fælust. „Vilji okkar til að ræða saman hefur legið fyrir en það laut ekki að því að hleypa þeim inn f landhelgina," sagði Þor- steinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.