Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 38
Rúmgóður, burðarþolinn og sparneytínn bíll sem nýtist vel bæði sem fjölskyldubill og í atvinnurekstri. Vegna atvinnurekstrar nýtist ffádráttur á virðisaukaskatti. Verð ffá: 474.000 m. vsk 380.723 án vsk K BIFREIÐAR 0G LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. iiil Ármúla 13 108 Rtykjavík Slmar 681200 8 31236 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992 Ráðstefna um rétt barna SAMTÖKIN BarnaheiII halda dagana 30. til 31. október ráðstefnu um mannréttindamál barna í samvinnu við Rauða kross íslands. Markmið- ið með ráðstefnunni er að kynna og efna til umræðna um Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna. 20. nóvember 1989 var samþykkt- ur á allsherjaþingi Sameinuðu þjóð- anna samningur um réttindi bama. íslendingar voru meðal þeirra þjóða sem undirrituðu Bamasáttmálann eins og hann er kallaður í daglegu tali. Með tilkomu sáttmálans var brotið blað í réttarsögu bama því þar er í fyrsta skipti slegið föstu að manngildi bama sé skýlaust, að böm hafi eigin réttindi sem ákvarðast út frá þörfum þeirra. Þessi lög bam- anna fela í sér full mannréttindi allra barna og unglinga. Öll böm eiga sama rétt til að alast upp og lifa í friði, öryggi og virðingu fyrir skoð- unum sínum og hugsunum. A ráðstefnunni verður fjallað um sáttmálann frá ýmsum sjónarhorn- um t.d. þjóðréttarlegu, stjómsýslu- legu sem og um einstakar greinar sáttmálans. Fyrirlesarar verða úr ýmsum áttum m.a. stjómmálamenn og fólk sem vinnur með böm. Sérleg- ur gestur ráðstefnunnar verður Trond Viggo Torgersen umboðsmað- ur bama í Noregi. Ráðstefnan verð- ur haldin í Vinabæ. B/LALE/GA Úrval 4x4 fólksbfla og statlon bila. Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bílar með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og 12 sæta Van bllar. Farsímar, kerrur f. búslóðir og farangur og hestakerrur. Reykjavík686915 iníerRent Europcar BÍLALEIGA AKUREYRAR Fáðu gott tilboð! Brids Ný gerð bamabílstóla * Fyrlr böm frá fæðingu til 5 ára aldurs. * Þægilegar 5 punkta fest- ingar með axlapúðum. * Stillanlegur. * Stólnum má snúa með bakið fram (->9kg.) eða aftur (9-18kg.). * Má hafa frístandandi. * Vasi á hlið, fyrir leikföng eða annað. * Auðvelt að tcika áklæðið af og þvo það. * Vlðurkenndur. * Verðkr. 10.998,- naust Borgartúni 26 Sími: (91) 62 22 62 Mynds.:(91) 62 22 03 MnsöiuUaóá hverjum degi! Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Síðasta miðvikudag var spiluð síð- asta umferð í hausttvímenningnum ’92 sem var þriggja kvölda keppni. Lokastaðan: Birkir Jónss./Gísli Torfa—Jóhann Sigurðss. 749 ValurStonarson-GunnarGuðbjömsson 724 KarlG.Karisson-KariEinarsson 718 Jóhann Benediktsson - Sigurður Albertsson 690 Sigurjón Jónsson - Magnús Magnússon 683 Úrslit í þriðju umferð: Biricir Jónss./Gísli Torfa - Jóhann Sigurðss. 260 Jóhann Benediktsson - Sigurður Albertss. 245 GunnarSiguijónsson-HögniOddsson 239 SiguijónJónsson-MagnúsHagnússon 236 Gísli Davíðsson—Skúli Sigurðsson 228 KarlG.Karlsson-KariEinarsson 221 Næst verður spiluð tveggja kvölda hraðsveitakeppni. Spilað er í Björgun- arsveitarhúsinu í Sandgerði miðviku- daga kl. 20. Bridsfélag Kópavogs S.l. fimmtudag hófst sveitahrað- keppni með þátttöku 15 sveita. Staðan: Sigrún Pétursdóttir 558 Sveitin fyrir sunnan 549 HelgiViborg 546 Heimir Tryggvason 539 Kjartan Jóhannsson 538 Þórður Jörundsson 533 Meðalskor 504. Bridsdeild Húnvetn- ingafélagsins Síðastliðinn miðvikudag var spilað- ur hausttvímenningur, þriðja kvöldið af Qórum. 20 pör spila í tveimur 10 para riðlum. Efstu pör eftir þijú kvöld: KáriSiguijónsson-EysteinnEinarsson 382 V aldimar Sveinsson - Friðjón Margeirsson 363 ÞorvaldurÓskarsson-KarenVilhjálmsdóttir 361 GuimarBiigisson-JóngeirHlinason 358 í efstu sætum síðasta kvöld urðu: A-riðill GunnarBiigisson-JóngeirHlinason 127 ValdimarSveinsson-FriðjónMargeirsson 122 ValdimarJóhannsson-KarlAdolfsson 119 B-riðill Ólafurlngvarsson-JóhannLúthersson 133 KáriSiguijónsson-EysteinnEinarsson 132 HeimirTryggvason-TryggviÞ.Tiyggvason 130 Miðlungur 108 Spilað er I Húnabúð, Skeifunni 17, 3. hæð og hefst spilamennskan kl. 19.30. Frá Bridsdeild Barðstrendinga Staðan í Aðaltvímenningi eftir 2 kvöld: BjömAmarsson-EggertEinarsson 357 Hannes Ingibergsson—Jónína Halldórsdóttir 352 HaraldurSveinsson-LeifurKr.Jóhannesson 351 GuðbjörgJakobsdóttir-DanHansson 341 Sigurðurísaksson-EddaThorlacius 339 Efstu pör, síðasta spilakvöld. A-riðiU Bjöm Ámason - Eggert Einarsson 193 HannesIngibergsson-JónínaHalldóisdóttir 173 Ásthildur-Láms 170 B-riðiU SkarphéðinnLýðsson-Guðbjöm 191 RagnarBjömsson-LeifurJóhannsson 182 GuðbjörgJakobsdóttir-DanHansson 172 . Morgunblaðið/Amór G. Ragnarsson Sveit Suðurlandsvídeós með bikarinn. Frá vinstri eru Jón Baldursson, Sverrir Ármannsson, Guð- laug Jónsdóttir forsvarsmaður Suðurlandsvídeós, Matthías Þorvaldsson, Björn Eysteinsson og Aðal- steinn Jörgensen. Bikarkeppnin 1992 Sveit Suðurlandsvídeós hafði mikla yfirburði í úrslitaleik Sama sveitin spilaði 5 tígla doblaða við bæði borð í einu spilinu Brids GuðmundurSv. Hermannsson SVEIT Suðurlandsvídeós vann öruggan sigur í VISA^Bikar- keppni Bridgesambands íslands um helgina, svo öruggan að mót- herjar þeirra í úrslitaleiknum lögðu niður vopnin þegar þremur lotum af fjórum var lokið. í sig- ursveitinni spiluðu Aðalsteinn Jörgensen, Björn Eysteinsson, Jón Baldursson, Matthías Þor- valdsson og Sverrir Armannsson en þessi sveit vann öll helstu mót á síðasta keppnistímabili. Suðurlandsvídeó vann sveit Gísla Hafliðasonar örugglega í undanúr- slitum Bikarkeppninnar á laugar- dag, 192-47, og sveit Eiríks Hjalta- sonar vann sveit Símonar Símonar- sonar einnig örugglega, 133-88. Og í úrslitaleiknum á sunnudags- morgun fékk sveit Eiríks óskabyij- un því þetta var fyrsta spilið á sýn- ingartöflunni: S/NS Norður ♦ K96 VÁG52 ♦ Á5 4K854 Vestur Austur ♦ Á 4DG105 ♦ 86 ♦ D ♦ D863 ♦ K109742 ♦ ÁG10963 ♦ D7 Suður ♦ 87432 ♦ K109743 ♦ G ♦ 2 í lokaða salnum sátu Jón Hilm- arsson og Páll Hjaltason NS og Jón Baldursson og Matthías Þorvalds- son AV Vestur Norður Austur Suður JB JH MÞ PH — - - Pass 1 tfgull Dobl 2 lauf 4 ty'örtu 5 Iauf Dobl 5 tíglar Pass Pass Dobl/// -100 AV spiluðu 5 tígla doblaða eftir að Matthías sýndi tígullit með 2 laufum. Jón fór 1 niður þegar laufa- kóngurinn lá ekki fyrir svíningu en það var ódýr fóm fyrir 4 hjörtu sem hefðu unnist. í opna salnum, þar sem Bjöm Eysteinsson og Aðalsteinn Jörgens- en sátu NS og Eiríkur Hjaltason og Oddur Hjaltason AV, var loka- samningurinn sá sami, en samt sem áður gerólíkur. Vestur Norður Austur Suður OH BE EH AJ - - - 2 spaðar 3 lauf 4 hjörtu Dobl Pass Pass 5 tíglar Dobl/// -2300 Aðalsteinn og Bjöm opna á 2 spöðum með ýmsar skiptingahend- ur en lítinn punktastyrk, þar á meðal iáglitina, langan tígullit eða hálitina. Þegar Björn stökk i 4 hjörtu sagðist hann vilja spila þann samning, ef Aðalsteinn átti hálitina, eða 5 lauf eða 5 tígla, ef Aðalsteinn átti láglitina. Sennilega hefur Eirík- ur ætlað doblinu sínu frekar að vera til úttektar en Oddur passaði og þá flaug skyndilega kýr yfir borðið og truflaði Bjöm. Hann fékk bakþanka og fannst hann hefði sjálfur lofað hjartalit með 4 hjörtum og allar líkur væm á að Aðalsteinn ætti tígullit. Bjöm flúði því í 5 tígla og Aðalsteinn fylgdi þeirri reglu að láta félaga ráða ferðinni í svona spilum og breytti því ekki í 5 hjörtu. Hann var enda búinn að sýna hálit- ina með því að passa 4 hjörtu og taldi því að Bjöm ætti langan tígul- lit. Bjöm fékk aðeins 3 slagi og sveit Eiríks græddi 20 impa í þessu fyrsta spili! En liðsmenn Suðurlandsvídeós létu þetta ekki hafa nein áhrif á sig. Þeir náðu fljótlega forustunni í leiknum og það sem eftir var sýndu þeir mikla yfirburði. Þeir unnu fyrstu 16 spiia lotuna 70-32. Og í fyrsta spilinu á sýningartöflunni í annarri lotu sástjafn óvenjuleg tala og í þeirri fyrstu: S/NS Norður ♦ Á103 ♦ 7 ♦ ÁD92 ♦ ÁG1075 Vestur Austur ♦ 98 ♦ D754 ♦ ÁD104 ♦ K532 ♦ G85 ♦ 1073 ♦ D863 „ . ♦ 92 Suður ♦ KG62 ♦ G986 ♦ K64 ♦ K4 í lokaða salnum spiluðu Hjalti El- íasson og Páll Hjaltason 3 grönd í NS og fengu 11 slagi. En við hitt borðið sátu Jón Baldursson og Aðal- steinn Jörgensen NS og Eiríkur Hjaltason og Ragnar Hermannsson AV. Vestur Norður Austur Suður RH JB EH AJ - - - Pass Pass 1 tígull Pass 1 hjarta Pass 1 grand Pass 2 grönd Pass 3 grönd Pass Pass Dobl Redobl/// +1000 Eftir tígulopnun Jóns lofaði 1 hjarta a.m.k. 3-lit en var ekki krafa. Með 1 grandi sýndi Jón báða lág- liti, Aðalsteinn gaf geimáskoran og Jón hækkaði. Þegar 3 grönd komu til Ragnars doblaði hann og bað með því félaga um að spila út hjarta, vafasöm ákvörðun með ekki lengri hjartalit. Jón redoblaði og sýndi með því að hann ætti fyrirstöður í hinum litunum þremur en Aðal- steinn yrði að sjá um hjartað. Og Aðalsteinn passaði redoblið niður þótt hjartaliturinn væri ekki beys- inn, enda ólíklegt að flótti í 4 tígla yrði til fjár. Vömin tók fjóra hjarta- slagi og Jón henti tveimur laufum og einum spaða. Vestur skipti síðan í lauf og þá var Jón kominn með 9 slagi og fékk 1.000 fyrir og 8 impa. Suðurlandsvídeó vann aðra lotu leiksins 75-21 og þá þriðju 63-27. Þá var staðan orðin 208-80 og Ei- ríkur og félagar hans kusu að gefa leikinn frekar en að spila síðustu lotuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.