Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 29
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið. Ahrif ofbeldis- mynda á börn og unglinga Parskipta- og samgöngutækni nútímans hefur fært þjóðir heims í sambýli. Aðstreymi utan- komandi áhrifa á íslenzka menn- ingu og á íslenzkt mannlíf er mik- ið og vaxandi. Gjörbreyttri stöðu okkar í íjölskyldu þjóðanna, að þessu leyti, fylgja bæði kostir og gallar. Kostimir eru mun fleiri - en gallamir vega þungt. Það gild- ir sum sé hið sama um það sem miður hefur farið hjá milljónaþjóð- um heims og það góða í þjóðlífí þeirra og menningu, að það á greiðari aðgang að fyrrum afkim- um jarðar en áður. í þessum efnum hefur fjölþjóð- legt sjónvarp reynzt áhrifaríkt, jafnvel skeinuhætt, hvað sam- skipti fólks og hegðan varðar, sem og ýmis sérkenni smærri menn- ingar- og málsamfélaga. Niður- stöður rannsókna, sem era tíund- aðar í grein Ólafs Ólafssonar land- læknis hér í Morgunblaðinu í fyrri viku, staðfesta þannig, að ofbeld- ismyndir ýta undir árásargimi, meðal annars bama, og aðra óæskilega hegðan í samfélaginu. „Mörgum fínnst það þversögn," segir landlæknir í grein sinni, „að ofbeldi er vaxandi vandamál í flestum velmegunarþjóðfélögum.“ Vaxandi ofbeldi í íslenzku sam- félagi er m.a. rakið til neyzlu eit- urlyfja, sem víða era mikill böl- valdur í lífi einstaklinga og þjóða. Niðurstöður úr bandarískum fjöldarannsóknum, sem landlækn- ir vísar til, rekja rætur vaxandi ofbeldis til fleiri átta. Þannig hef- ur „rannsókn meðal bandarískra fanga, sem dæmdir vora fyrir of- beldisverk, leitt í ljós, að 22-36% þeirra höfðu framið ofbeldisverk sem vora nákvæm eftirlíking á senum úr ofbeldismyndum í sjón- varpi“. „Niðurstöður fyrri rannsókna hafa leitt í ljós,“ segir landlæknir, „að ofbeldismyndir geta vakið árásargimi með bömum og í ein- staka tilfellum hefur verið greint frá ofbeldisaðgerðum bama og unglinga, sem voru nákvæmar eftirlíkingar á ofbeldissenum í sjónvarpi." Bamalæknasamtök í Bandaríkjunum hafa og ráðlagt að sjónvarpsáhorf bama verði tak- markað við eina til tvær klukku- stundir á dag. Síðar í grein landlæknis, þar sem fjallað er um rannsóknir á ofbeldisverkum dæmdra fanga, segir, „að eftir að tekið hafí verið tillit til hugsanlegra samverkandi þátta, svo sem ofbeldis í heima- húsum, vímuefnaneyzlu, árangurs í skóla o.fl., komi í ljós greinileg fylgni milli ofbeldisverka á fullorð- insáram og áhorfs ofbeldismynda í sjónvarpi í æsku“. Orðrétt segir í grein landlæknis: „Ýmis samtök og stofnanir hafa grandskoðað þessa þróun, svo sem bandarísku læknasamtökin, heil- brigðisyfírvöld, Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunin og bamalækna- samtök í Bandaríkjunum og telja að sjónvarpsáhorf og þá sérstak- lega ofbeldismyndir hafí haft mik- il áhrif á að ofbeldi hefur aukizt mikið.“ Ekki er hægt að horfa fram hjá niðurstöðum faglegra kann- ana af því tagi sem hér hefur verið vitnað til, þótt fleira komi til en sjónvarpið eitt. Það er held- ur ekki við öðra að búast en því að nánast síbylja ofbeldis í sumu sjónvarpsefni hafa svipuð áhrif hér á landi sem í umheiminum. „Þótt margt hafí breytzt í [ís- lenzkum] skólum til hins betra er vaxandi áreitni og jafnvel ofbeld- istilhneiging þar veralegt áhyggjuefni foreldra og kennara," segir landlæknir. „Nú gera böm og unglingar ekki upp sakirnar vegna meintra ávirðinga „maður gegn manni“ heldur áreitir gjam- an hópur einn af tilefnislausu og jaðrar oft við misþyrmingu sem ekki tíðkaðist áður. Alþekkt er að mörg böm/unglingar kaupi sér vemd af skólafélögum gegn of- beldi. Hvar skyldi þessi siður eiga upptök sín?“ Ómar Smári Ármannsson að- stoðaryfirlögregluþjónn tekur í sama viðvöranarstreng í grein hér í blaðinu um neikvæð áhrif ofbeld- ismynda. Hann segir það niður- stöður rannsókna í Bandaríkjun- um að ofbeldismyndir hvetji til agaleysis og ofbeldis. „Þessar rannsóknir staðfesta,“ segir lög- reglumaðurinn, „að böm læra ekki einungis meira um ofbeldi heldur og nákvæmlega hvemig á að framkvæma það.“ Ómar Smári segir ekki rétt að taka niðurstöður af þessu tagi of alvarlega „en þó er vitað um allmörg ofbeldisbrot í Bandaríkjunum, sem beinlínis má rekja til undanfarandi áhorfs unglinga á ofbeldismyndir í sjón- varpi.“ Álvöru- og viðvöranarorð land- læknis og lögreglumannsins um óhugnanleg áhrif ofbeldismynda í sjónvarpi, einkum á böm og ungl- inga í mótun, eiga brýnt erindi við alla. „Mest ábyrgð hvílir á okkur foreldram," segir landlækn- ir réttilega. En ábyrgðin nær til allra, sem áhrif hafa á mótun og viðhorf bama og unglinga, og stuðla vilja að velferð náungans í samfélaginu. Síðast en ekki sízt hvílir ábyrgðin á þeim sem velja útsendingarefni sjónvarpsstöðva, sem ná augum og eyrum þorra þjóðarinnar, ungra sem aldinna, einhvem tíma dags eða kvölds ár og síð og alla tíð. Stefnuræða Daviðs Oddssonar forsætisráðherra Varanlegur árangur bygg- ist á varanlegum lausnum HÉR fer á eftir stefnuræða Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, sem hann flutti á Alþingi í gærkvöldi. Millifyrirsagnir eru Morgunblaðs- ins. Virðulegi forseti, góðir íslendingar. Stefnuræða forsætisráðherra er nú flutt við nokkuð aðrar aðstæður en hefðbundið er. Al- þingi er ekki að koma saman að loknu löngu sumarleyfí, heldur eftir stutt hlé, sem gert var á störfum þess, en það kom saman til reglulegs fundar hinn 17. ágúst síðastliðinn. Samkvæmt sérstöku samkomulagi stjórnar og stjómarandstöðu var meginverkefni sumarþings- ins að ræða frumvarp til staðfestingar á samn- ingi um hið evrópska efnahagssvæði og mál, sem þeim samningi tengjast. Segja má að störf þings- ins hafí gengið all vel og þingflokkamir hafi komið sér sæmilega saman um hina formlegu skipan mála hér á þinginu, þótt efniságreiningur um þessi stóru mál sé veruíegur. EES ákjósanleg millileið Ekki er að efa, að sá ágreiningur hljóti að koma þjóðinni nokkuð í opna skjöldu, því málið bar þannig að henni við síðustu kosningar, að fjórir af fímm helstu stjórnmálaflokkum þjóðar- innar höfðu með beinum og óbeinum hætti lagt blessun sína yfir samningagerðina eins og hún þá stóð, en EES-samningurinn lá þá efnislega fyrir í öllum aðalatriðum. Ég leyfi mér að full- yrða, að það sem gerst hefur í samningaferlinum frá síðustu kosningum er fremur í þágu ís- lenskra hagsmuna en öndvert þeim. Mál standa nú þannig í Vestur-Evrópu, þrátt fyrir sviptingar á síðustu vikum, að flest bendir til, að öll önnur ríki en ísland verði sameinuð í einu Evrópubanda- lagi innan tíu ára. ísland hefur ekki valið þann kost. Sú afstaða okkar hefur valdið nokkurri undrun í röðum frænd- og vinaþjóða, en hún á sér margar og eðlilegar skýringar. Þeirra er ekki að leita í því að Islendingar vilji ekki eiga góð og náin samskipti við nágranna sína í Evr- ópu. Eg held að íslendingar eigi um það nánast eina sál að vilja hvergi fremur eiga náin skipti en við þær þjóðir, sem líkastar eru okkur að uppruna, menningu og stjómmálaskipan. En við sjáum fjölmarga annmarka á því fyrir litla þjóð að ganga inn í Evrópubandalagið og vega þeir miklu þyngra en sá ávinningur sem aðild kynni að fylgja. Á hinn bóginn höfum við auðvitað viljað treysta stöðu þjóðarinnar og koma í veg fyrir að hún einangrist eða útilokist frá þessum mikilvægustu viðskiptakostum sínum. Ríkis- stjórnarflokkarnir telja, og það sama töldu Fram- sóknarflokkur og Alþýðubandalag þar til fyrir skömmu, að samningurinn um hið evrópska efna- hagssvæði sé ákjósanleg millileið fyrir íslend- inga. Með aðild að þeim samningi era okkur tryggð þau viðskiptalegu skilyrði og kjör, sem við megum ekki vera án. Á hinn bóginn felst ekki í samningnum neitt fullveldisafsal, eins og óneitanlega í aðild að Evrópubandalaginu. Hin íslenska stjórnskipun, allar greinar íslensks full- veldis, framkvæmdavald, dómsvald og löggjafar- vald, stendur óhögguð eftir samninginn sem áður. Einnig má minna á að samningnum má hvenær sem er segja upp með tólf mánaða fyrir- vara. Framsókn og Alþýðubandalag skulda þjóðinni skýringar Tíminn líður hratt og 1. janúar 1993 er skammt undan. Berum við gæfu til þess að stað- festa þá samningsgjörð, sem lengi hefur verið unnið að, munu okkur opnast ýmsir möguleikar á nýju ári. Óumdeilanlegt er, að þau tækifæri, sem þá bjóðast íslensku atvinnulífi eru mikil og einnig sá ávinningur sem íslenskir neytendur munu njóta. Tollar af mikilvægum sjávarafurðum falla niður, sem mun á afgerandi hátt bæta sam- keppnisstöðu innlendrar fískvinnslu gagnvart erlendum keppinautum. Þetta mun því treysta atvinnu í íslenskum sjávarútvegi. Samningurinn tryggir að íslenskum fyrirtækj- um verður ekki mismunað á Evrópumarkaði og hann opnar fyrirtækjunum möguleika á víðtæku samstarfí við erlend fyrirtæki. Þetta mun styrkja stöðu íslenskra fyrirtælqa í harðnandi erlendri samkeppni. Síðast en ekki síst mun samkeppni í þjónustustarfsemi leiða til aukinnar hag- kvæmni og verðlækkunar á þjónustu sem mun koma íslenskum neytendum og íslensku atvinnu- lífí til góða. Allt þetta mun skila sér í auknum hagvexti, lægri verðbólgu og vöxtum og auknum kaupmætti á næstu árum. Það væri ótrúlegt lánleysi og afglöp, að láta slík tækifæri úr greip- um sér ganga. Það er vissulega ósannfærandi, að þeir tveir stjórnmálaflokkar, Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur, sem áður unnu, að því er virtist af fullum heilindum, að því að koma á samningi um hið evrópska efnahagssvæði, skuli nú, við lokaafgreiðslu málsins, telja rétt að snúa gjörsamlega við blaðinu og reyna að fiska í því pólitíska gruggi sem af þeim mikla viðsnúningi hlýst. Þessir flokkar skulda þjóðinni skýringar, skiljanlegar skýringar, á þessum miklu sinna- skiptum. Engar slíkar skýringar hafa komið fram, enda vandfundnar. Breyttar aðstæður í öryggismálum En það er ekki aðeins á efnahags- og viðskipta- sviðinu sem við stöndum frammi fyrir breytingum á alþjóðavettvangi. Vegna breyttra aðstæðna í öryggismálum er unnið að því af sérstakri nefnd um öryggis- og varnarmál að meta þróun mála og stöðu íslands og varanlega öryggishagsmuni þjóðarinnar, meðal annars með viðræðum við bandamenn okkar beggja vegna Atlantshafs. Fundir nefndarinnar með fulltrúum bandarískra stjómvalda í síðasta mánuði leiddu í ljós að sterk- ur samhljómur er í mati okkar og Bandaríkjanna á breyttum aðstæðum, varanlegum hagsmunum og nauðsyn þess að halda áfram varnarsam- starfí milli Islands og Bandaríkjanna og sam- starfi NATO-ríkjanna. Þótt við og bandamenn okkar búum við meira öryggi nú en áður, ríkir óstöðugleiki og óvissa um framtíð mála víða á meginlandinu. Atlantshafsbandalagið er mikilvægasti vett- vangur íslendinga til að hafa áhrif á öryggishags- muni sína. Nú eru hafnar viðræður um auka- aðild að Vestur-Evrópusambandinu fyrir þau Evrópuríki í NATO sem ekki eru í Evrópubanda- laginu. Þetta eru ísland, Noregur og Tyrkland. Aukaaðild að Vestur-Evrópusambandinu fylgja engar skuldbindingar. Það sem mælir með henni er einkum að hún eflir þátttöku íslands og hags- munagæslu í samstarfínu í NATO, og gefur okkur kost á að halda fram á evrópskum vett- vangi þeim hagsmunum okkar að varðveita tengslin yfír hafið og mikilvægi Atlantshafs- bandalagsins. Kreppa á Vesturlöndum íslendingar eru flestum öðrum þjóðum háðari heilbrigðu viðskiptaumhverfi og því era það vissulega vonbrigði hve efnahagsbati á Vestur- löndum hefur látið á sér standa. Ekki er vafi á því, að sú kyrrstaða hefur víðtæk áhrif hér á landi og á okkar afkomu alla. Mikill órói hefur verið á evrópskum gjaldeyris- mörkuðum að undanfömu. Þær efnahagslegu umhleypingar hafa óneitanlega áhrif hér á landi. Athuganir benda til, að viðskiptakjör íslands hafí versnað um eitt og hálft prósent vegna þeirra hræringa, sem urðu á gjaldeyrismörkuðum seinni hluta septembermánaðar. En sé litið á árið í heild og breytingar á gjaldeyrismörkuðum og þróun vaxta í helstu viðskiptalöndum íslands skoðað í samhengi, þá er niðurstaðan íslensku atvinnulífí og þjóðarbúinu í hag. Lágir vextir í Bandaríkjunum, og veik staða dollarans, en hann er fyrirferðarmestur í skuldum íslendinga, og að sama skapi sterkari staða margra evrópskra gjaldmiðla, sem vega þungt í okkar útflutningi er okkur fremur hagstæð. Auðvitað geta einstök fyrirtæki og jafnvel heilar atvinnugreinar, sem selja afurðir sínar í þeim myntum sem mest hafa lækkað að undanfömu, farið illa út úr slík- um sveiflum, en það breytir ekki heildarmynd- inni. Efnahagsástand annars staðar á Norðurlönd- um hefur verið erfítt, ekki síst í Svíþjóð og Finn- landi. Segja má, að í raun hafi íslendingar kom- ist betur en þessi tvö ríki frá hinum efnahags- lega óróleika, sem yfír þjóðimar hefur dunið. íslendingar gripu fyrr til aðgerða í ríkisfjármál- um og standa því heldur betur að vígi. Það er alkunna að skattheimta er óvíða meiri en í Sví- þjóð. Þrátt fyrir það hafa ríkisútgjöld farið langt fram úr tekjum og halli á ríkissjóði hefur því farið ört vaxandi, og stefndi í það að verða margfalt meiri í hlutfalli við landsframleiðslu en hann er t.d. hér á landi. Þetta hefur orðið til þess að veikja mjög stöðu sænsku krónunnar og urðu Svíar að grípa til stórbrotinna vaxta- hækkana til þess að verja gengi hennar. Ekki er því að neita, að atburðirnir í Svíþjóð, samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu um stórfelldar breytingar á lífsmunstri og nýjar Morgunblaðið/Þorkell Davíð Oddsson flytur stefnuræðu sína á Al- þingi í gærkvöldi. áherslur, hljóta að vekja mikla athygli. Þar hafa sænskir stjórnmálaflokkar gengið þvert á sínar helstu kennisetningar. Sænska velferðarkerfið verður skorið svo mikið niður að það verður naumast samt aftur. Einnig verða skattar á at- vinnurekstri lækkaðir en skattar á neyslu og tekjur einstaklinga verða hækkaðir. Um leið er viðurkennt, að Svíþjóð hafi gengið lengra eftir velferðargötunni, en nokkurt efnahagslíf gat til langframa risið undir. Sænskt atvinnulíf var að verða undir í samkeppni við erlenda keppinauta. Snúa verður af braut sjálfvirkni í ríkisútgjöldum Auðvitað eru aðstæður á íslandi um margt ólíkar því sem er í Svíþjóð, og ekki hægt að draga einhlítan lærdóm af því, sem þar hefur gerst. Ein áminning er þó lærdómsríkust. Sænsku stjómarflokkarnir og stærsti stjómar- andstöðuflokkurinn, Sósialdemókratar, sem ráðið hefur mestu um uppbyggingu velferðar- og skattakerfís í Svíþjóð, hafa komist að þeirri sam- eiginlegu niðurstöðu, að sjálfvirkni í útgjalda- aukningu verði að setja strangar skorður. Hér á íslandi gætir slíkrar sjálfvirkni í auknum mæli, og löggjafarsamkoman hefur ekki verið nógu aðgætin er lög hafa verið sett, sem hafa falið í sér óviðráðanleg útgjaldatilefni, „opna tékka“, sem framtíðinni var falið að fylla út. Mikilvægt er, að snúið verði af þeirri braut. í sjálfu sér er ekkert við því að segja, ef þingið ákveður að auka útgjöld hins opinbera umfram það sem þjóðarframleiðslan gefur tilefni til hveiju sinni. Taki menn slíkar ákvarðanir verða þeir jafnframt að hækka skattbyrðina á almenning í landinu. Ef slíkt þarf að fylgjast að í hvert sinn, má búast við ríkara aðhaldi frá borgurun- um, gagnvart fulltrúum sínum hér á hinu háa Alþingi. Með hinni sjálfvirku útgjaldaaukningu fylgist enginn. Hver ríkisstjórnin á fætur ann- arri stendur frammi fyrir gerðum hlut og á í erfíðleikum með að vinda ofan af þeim vexti, sem orðið hefur. Einnig sýna atburðimir í Svíþjóð að vaxandi fjárlagahalli grefur undan gengisstefnunni og getur kollvarpað henni ef ekki er brugðist ræki- lega við. Þurfum að fá meira fyrir minna Virðulegi forseti. Ríkisstjómin hefur á stefnuskrá sinni að halda aftur af ríkisútgjöldum. Það þýðir alls ekki að menn vilji hverfa frá því að tiltekin grundvallar- þjónusta sé veitt. En eðli þeirrar þjónustu þarf að breytast og forsendur hennar að koma til endurskoðunar frá ári til árs. Menn kunna að hafa stofnað til ríkisafskipta á tilteknum sviðum fyrir nokkrum áratugum án þess að forsendur hafi síðar komið til endurskoðunar. Við erum sjálfsagt öll sammála um að veija miklum fjár- munum í menntun og menningu, en við þurfum einnig að vera sammála um að þeim fjármunum sé varið vel og skynsamlega. Var það til að mynda skynsamlegt skref, þegar ákveðið var fyrir fáum árum að lokaáfangi grunnskólanáms skyldi ekki hafa neina þýðingu fyrir framhalds- námið? Var það skynsamlegt að senda nemend- um þau skilaboð að engu skipti hvort þeir stæðu sig vel eða illa í grunnskólanáminu? Er ekki lík- legt að slík breyting leiði til slappara skólastarfs en ella væri. Auðvitað hljóta menn að taka slík- ar ákvarðanir til endurmats. Ekki vegna þess að spamaðarástæður líðandi stundar kalli á það, heldur miklu frekar vegna nemendanna sjálfra og þeirrar framtíðar sem þeir eru að undirbúa. Við megum ekki senda ungum íslendingum þau skilaboð á þroskaárum þeirra að lífsbaráttan hafi verið afnumin og allt fáist átakalaust og án þess að nokkur þurfi að leggja sig fram. Reyndar þurfum við að endurmeta afstöðu okkar á fleiri sviðum. Við þurfum nauðsynlega að fá meira fyrir minna, hvar sem borið er niður í þjóðfélaginu. Reynslan sýnir að það er hægt að ná fram sparnaði, til að mynda í heilbrigðiskerf- inu, án þess að nauðsynleg þjónusta sé skert. Við viljum ógjaman horfast í augu við þá stað- reynd að okkar langi vinnudagur skili minni af- rakstri en styttri vinnutími gerir annars staðar. Langur vinnutími og langur vinnudagur á ekki að vera okkur keppikefli, en góður afrakstur af hverri vinnustund hlýtur á hinn bóginn að vera það. Við getum sagt með sanni og án sjálfshóls að íslendingar séu duglegt og vinnusamt fólk, og þess vegna er engin ástæða til þess að af- köst okkar og árangur á hveija vinnustund sé lakari en annars staðar gerist. Það er mjög þýð- ingarmikið að atvinnulífið, launþegar og vinnu- veitendur, taki saman höndum að finna hér á úrlausn, lausn sem ætti að geta leitt til þess að draga mætti smám saman úr vinnutíma, án þess að heildarlaun lækkuðu að sama skapi. Það er einnig kominn tími til að ríkisvaldið líti í eigin barm og skoði afskipti sín af fjölmörgum þáttum mannlífsins, og hvort þau séu ekki á stundum gagnslaus í besta falli, en til stórra trafala í versta falli. Það hefur verið venja hjá okkur að setja reglugerðir um alla skapaða hluti, auðvitað í þörfum og góðum tilgangi. Hætt er við að slíkar reglugerðir standi áfram þótt ástæð- ur þeirra kunni að vera fyrir löngu á bak og burt og jafnvel þó að þær hafi frá upphafí verið ástæðulausar. Þess vegna þurfa öll ráðuneyti stöðugt að huga að því að grisja reglugerðar- skóginn. Árangur í efnahagsmálum Meginverkefni íslenskra stjómvalda í efna- hagsmálum um langan aldur hefur verið að stuðla að stöðugleika, koma böndum á verðbólgu og ná jafnvægi í utanríkisviðskiptum. í fyrsta sinn, höfum við náð raunverulegum árangri. Verð- bólga er minni en nokkru sinni í íslenskri nútíma- sögu, og við getum ekki bara kinnroðalaust held- ur stolt borið okkur saman við aðrar þjóðir í þeim efnum. Þessir sigrar gjörbréyta efnahags- forsendum á íslandi og gefa stjórnvöldum, og ekki síst íslensku atvinnulífi tækifæri til þess að gera langtímaáætlanir til að bregðast við utanaðkomandi áhrifum. Ráðagerðir forsvars- manna fyrirtækja um endurskipulagningu og hagræðingu eiga meiri möguleika að ná fram að ganga þegar þannig er í pottinn búið. Aukin hagræðing, meiri framleiðni og vaxandi styrkur fyrirtækja byggist einmitt á slíkum efnahagsfor- sendum. Þessir áfangasigrar era auðvitað fagnaðar- efni, en svo sem vænta mátti, leysa þeir ekki allan vanda. Minnkandi þorskveiðiheimildir um árabil setja þjóðinni þröngar skorður í efnahags- málum. Aðrir þættir hafa því miður farið á sama veg. Verð á þeim málmum, sem mikilvægastir eru í útflutningi íslendinga, svo sem áli og járn- blendi, er með því lægsta sem þekkist. Þeirra áhrifa gætir strax á tekjur þjóðarinnar, og vonir um hraða uppbyggingu á orkufrekum iðnaði hafa enn ekki ræst. Þótt enn geti orðið nokkur bið eftir framkvæmdum þarf ekki að ætla ann- að, en að aðstæður muni breytast til batnaðar, þannig að eftirsóknarvert verði að gera þau áform að veruleika, sem búið hefur verið í hag- inn fyrir. Þessi utanaðkomandi efnahagslegi samdráttur gerir mjög ríkar kröfur til starfs- manna og forráðamanna fyrirtækja um að sýna ítrastu gát og fyrirhyggju, svo fyrirtækin megi standast hann. Ekki fer á milli mála að íslensk fyrirtæki hafa gert margt til að laga sig að þess- um erfíðleikum og eru því betur í stakk búin til þess að mæta batnandi tíð. Aðlögun að breyttum forsendum fyrir búsetu Atvinnu- og efnahagsmál og byggðamál eru samofin og erfiðleikar í helstu atvinnugreinum hafa því fljótt áhrif á landsbyggðina. Þar er í gangi ör aðlögun að breyttum forsendum fyrir búsetu. í landbúnaðarhéruðum minnka tekjur vegna samdráttar í sauðfjárrækt. Það er áhyggjuefni ef ekki tekst þannig til að tekjur þeirra sem áfram munu stunda þessa búgrein verði bærilegar. Á sjávarútvegssvæðunum hefur verið í gangi mikil hreyfing til hagræðingar auk þess sem fjölgun frystitogara mun óhjákvæmilega minnka vinnslu í frystihúsum. Mun minni afli en verið hefur þýðir minni vinnu og með frystitogaravæð- ingunni minnkar hráefni til vinnslunnar enn. Hér þarf að huga að því að jafna svo sem verða má starfsskilyrði milli landvinnslu og sjóvinnslu. Þær breytingar sem til stóð að gera á áhersl- um í starfí Byggðastofnunar hafa gengið eins og að var stefnt. Tekið er tillit til þeirrar áhættu sem fylgir hverri lánveitingu í afskriftasjóði, sem þýðir að starfsemi stofnunarinnar nú leggur ekki kröfur á almannafé í framtíðinni. Með því fé sem fyrir var á afskriftareikningi má segja að Byggðastofnun sé betur sett en margar stofn- anir og sjóðir. Mjög breytt áhersla er á starfsemi Byggðastofnunar frá því sem var á árum áður. Stofnunin hefur nú tekið við styrkveitingum til atvinnuráðgjafarstarfsemi á landsbyggðinni, sem áður var í umsjá Iðnaðarráðuneytis. Veruleg aukning hefur orðið á framlögum til þessarar starfsemi. Þá styður stofnunin mikinn fjölda af verkefnum sem hafa öll að markmiði að efla nýsköpun í atvinnulífí landsbyggðarinnar. Hér er um mjög mikilvægt starf að ræða sem skilar árangri á lengri tíma. í atvinnuþróunarmálum gildir það að heimaaðilar hafí frumkvæði en þeir þurfa að njóta stuðnings hins opinbera. Oft er þörf en nú er nauðsyn á eflingu nýrra atvinnu- fyrirtækja. Sýnist svo að ýmsar nýjar hugmynd- ir séu í athugun á landsbyggðinni í þeim efnum og ekki víst að hún verði neinn eftirbátur höfuð- borgarsvæðisins. Eins og áður sagði eru erfíðleikar í helstu atvinnugreinum. íslenskur landbúnaður stendur á timamótum. Sú mikla ofstjórn og miðstýring, sem einkennt hefur stjórn þessarar atvinnugrein- ar um áratugaskeið hefur verið henni mikil áþján. Og það verður ekki sársaukalaust að koma þeim klafa af sér. Bændastéttin hefur brugðist vel við í þeirri baráttu, en ljóst er að hún þarf að fá ráðrúm til að mæta þeirri auknu samkeppni sem breyttir viðskiptahættir munu fyrr en síðar kalla á. Forsvarsmenn í sjávarútvegi víkist ekki undan kröfum Aflabrestur sem þrengir að allri þjóðinni, kem- ur auðvitað fyrst niður á fyrirtækjum í sjávarút- vegi og hafa þau orðið að grípa til margvíslegra ráðstafanatil að bregðast við honum. Ríkisstjóm- in hefur beitt sér fyrir því að fresta greiðslum af lánum í Atvinnutryggingarsjóði, að hætt yrði greiðslum fyrirtækja í Verðjöfnunarsjóð sjávarút- vegsins og að þeim væru greiddar út inneignir þeirra í þeim sjóði. Þessar aðgerðir allar hafa verið til þess fallnar að létta sjávarútveginum baráttuna, en auðvitað hefur engum manni dott- ið í hug, að þar með væri nóg að gert. Flotinn er stærri og vinnslan afkastameiri en núverandi sjávarafli gefur tilefni til. Þessar staðreyndir verða menn að horfast í augu við og bregðast við. Því er ljóst, að nú verða gerðar meiri kröfur til forsvarsmanna í sjávarútvegi, en þeir hafa þurft að mæta á undanförnum áram. Áríðandi er, að þeir víkist ekki undan þeim kröfum. Eng- in rök standa til þess, að breyta gengi krónunn- ar vegna aðstæðna í sjávarútvegi. Ástæður fyrir erfíðri stöðu hans eru margar og breytilegar í einstökum greinum. Einnig er staða einstakra fyrirtækja afar misjöfn. Sé litið á almenna mæli- kvarða verðlags, launa og gengis þá er staðan sú að raungengi krónunnar miðað við verðlag er nú nokkru hærra en að meðaltali á árunum 1980 til 1992 en sé miðað við launaþróun er raungengið nokkuð lægra. Á þessa almennu mælikvarða er samkepnisstaðan gagnvart út- löndum því svipuð og hér hefír verið síðasta áratuginn. Þetta sýnir best að þau vandamál sem uppi eru í sjávarútvegi og öðrum greinum eru ekki vegna þess að kostnaðarhækkanir að undan- förnu hafí verið hér með allt öðrum hætti en í samkeppnislöndum okkar. Þótt viðskiptahalli hafí verið verulegur að undanförnu þá fer hann minnkandi vegna samdráttar í þjóðarútgjöldum. Þrátt fyrir erfiða stöðu í sjávarútvegi er þannig ekki hægt að sýna fram á, að gengi íslensku króunnar sé nú rangt skráð miðað við almenna mælikvarða. Áríðandi er að menn átti sig á því, að gengisfelling er alls ekki til þess fallin að leysa þann vanda sem ég áðan lýsti. Ég sagði að fyrirtækin í sjávarútvegi yrðu að eiga stærstan þátt í því sjálf, að vinna sig út úr vandanum. A hinn bóginn verður banka- og sjóðakerfið að aðstoða fyrirtækin í þeirri vinnu. Eitt meginverkefnið hlýtur að vera, að lengja veralega þau lán sem á sjávarútveginum hvfla. Ríkisvaldið, bankar og sjóðir verða að taka hönd- um saman, ef það á að ganga eftir, sem að er stefnt. Rétt leið en ekki greiðfarin Það er hárrétt, sem sagt hefír verið, að efna- hagsstefna eins og sú, sem við höfum orðið að fylgja um hríð, fastgengisstefna, ásamt allharka- legum aðgerðum í ríkisfjármálum, og á peninga- og vinnumarkaði, er enginn dans á rósum. En því fyrr sem menn átta sig á, að önnur stefna gengur ekki við þær aðstæður sem nú eru, því betra. Þótt sú leið, sem við erum að fíkra okkur eftir, sé hvorki greiðfarin né létt, er enginn vafí á, að hún er rétt. Við sjáum tákn þess, að hún er hægt og sígandi að bera ávöxt. Margar megin- forsendur farsæls efnahagslífs, með bættum lífs- kjörum allri þjóðinni til handa, eru að skapast. Ríkisstjómin mun í engu hvika frá stefnu sinni. Markmið hennar hefur verið og verður, að treysta forsendur hins efnahagslega stöðugleika. Þannig og aðeins þannig tekst til langframa að vinna bug á því atvinnuleysisböli, sem skotið hefur upp kollinum á íslandi. Það atvinnuleysi er bein af- leiðing af sex ára stöðnun. Á því tímabili hefur störfum annað hvort fækkað eða þau staðið í stað, á sama tíma og verkfúsum höndum á vinnu- markaði hefur íjölgað. Það verður að skapa at- vinnulífinu, sérhverri atvinnugrein, almenn, traust skilyrði þess, að framtak á þeim vett- vangi beri árangur og að íslensk fyrirtæki sitji ekki skör lægra en samkeppnisfyrirtækin erlend- is gera. Af þeim ástæðum hefur ríkisstjórnin m.a. lagt til, að tekjuskattshlutfall félaga verði lækkað úr 45 í 33 prósent. Af sömu ástæðum hefur verið ákveðið, að styðja við rannsóknar- og þróunarstarfsemi. Til þess hefur ríkisstjórnin ákveðið að veija verulegum fjármunum á næstu árum. í sama skyni verður varið eitt hundrað milljónum króna til sérstaks markaðsátaks á evrópska efnahagssvæðinu í því skyni að auð- velda fyrirtækjum að nýta þau tækifæri, sem EES-samningur býður þeim upp á. Island hefur öll skilyrði þess, að hér megi dafna öflugt atvinnulíf. Það á ekki eingöngu við þær greinar, sem löngum hafa staðið undir lífs- kjörum okkar, svo sem landbúnaður, iðnaður, verslun og síðast en ekki síst sjávarútvegur. En það eru margar aðrar greinar sem binda má vonir við. Ferðaþjónustan er atvinnugrein, sem verið hefur í örum vexti, og gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu aukast ár frá ári. Þar eigum við íslendingar mikla möguleika ef rétt verður á haldið. Efnahagslegur ávinningur framundan Virðulegi forseti, góðir íslendingar. Ríkisstjórnin ákvað nýlega, að leggja til að ráðist yrði í sérstakar atvinnuskapandi fram- kvæmdir. Varið yrði tveimur milljörðum króna á næsta ári umfram það sem áður hafði verið ákveðið, einum milljarði króna á árinu 1993 og 500 milljónum króna á árinu 1994, eða samtals 3‘/2 milljarði króna á næstu þremur áram. Lán vegna þessara framkvæmda verður að endur- greiða af því fé sem til ráðstöfunar verður á viðkomandi liðum þegar að endurgreiðslu lán- anna kemur. Við það var miðað, að meginhluta þessara fjármuna yrði varið til vegafram- kvæmda. Óllum er ljóst, að haldgott og traust samgöngukerfí leggur grunn að góðum hag- vexti í landinu. Með sama hætti er mönnum ljóst, að greiðar samgöngur eru skilvirkasti þátturinn í skynsamlegri byggðastefnu. Og enn er öllum ljóst, að slíkar aðgerðir geta stuðlað að stækkun og eflingu sveitarfélaga, svo þau geti veitt íbúum sínum þá þjónustu, sem vilji þeirra stendur til. í raun má segja að það væri stílbrot á stefnu ríkisstjórnarinnar, að taka ákvörðun um slíkar framkvæmdir, ef menn þættust ekki sjá fram á, að þegar hefði náðst töluverður árangur í baráttu við verðbólgu, og að skapa hér skilyrði fyrir stöðugleika. Jafnframt bendir margt til, að efnahagslegur ávinningur fyrir okkur íslendinga sé framundan, og má í því sambandi vísa til samningsins um hið evrópska efnahagssvæði, spár manna um horfur í áliðnaði á næstu tveim- ur til þremur árum og væntingar um, að vernd- un þorskstofnins muni, innan tveggja til þriggja ára skila veralegum afrakstri. Þar sem menn þykjast mega með sæmilegum rökum vænta þess, að bjartara verði framundan hjá okkur, en verið hefur undanfarin fimm til sex ár, þykir réttlætanlegt, og í raun skynsamlegt, að grípa einmitt nú til aðgerða af þessu tagi. Stöðugt gengi f orsenda jafnvægis Virðulegi forseti. Eins og fram kemur í Þjóðhagsáætlun mun framleiðsla þjóðarbúsins enn dragast nokkuð saman á næsta ári, einkum vegna minnkandi þorskafla auk þess sem nauðsynlegt er að draga úr útgjöldum þjóðarinnar til að minnka viðskipta- hallann. Það er óhjákvæmilegt að efnahagsstefna ríkis- stjórnarinnar taki mið af þeim erfíðleikum sem íslenskur þjóðarbúskapur stendur frammi fyrir. Megináherslu þarf að leggja á endurreisn at- vinnulífsins til þess að stuðla að hagvexti á nýj- an leik og vinna þannig bug á vaxandi atvinnu- leysi. Við þessum vanda er hinsvegar engin alls- heijarlausn sem breytt geti aðstasðum í einni svipan. Ríkisstjórnin setur sér það meginmarkmið að tryggja áfram stöðugleika í verðlagsmálum og koma á viðunandi jafnvægi í viðskiptum við önn- ur lönd. Við höfum náð veralegum árangri í þessum efnum, árangri sem við megum alls ekki glata. Það er því mikið í húfí. Meginforsenda stöðugleikans er áframhaldandi stöðugt gengi Sjábls. 34.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.